Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.—18. janúar 1981 Viðtal við Ragnar Arnalds Jóhannesson veitti forstöBu og Alþýöubandalagiö átti aöild aö. Formreglurnar sjálfar hafa aldrei veriö aöalatriöiö frá okkar bæjardyrum séö, heldur sá kaup- máttur launanna, sem veröbæt- urnar eða aörar aðgerðir skiluöu. Þessar aðgeröir sem ákveðnar hafa verið um áramótin eru þvi, eins og aðrar efnahagsráðstafan- ir sem Alþýöubandalagið hefur tekið þátt i, miöaðar viö það að hægja á hraða verðbólgunnar án þess að skerða kaupmátt hjá meðaltekjufólki og lágtekjufólki. Þrjár leiðir til skattalækkunar Þjv.: En geta ekki skapast vandamál við skattgreiðslur ef verðbólguhjöðnun veröur að veruleika? R.A.: 1 sambandi við þessi skipti á sköttum og veröbótum verður að hafa i huga það vandamál aö þegar veröbólga fer minnkandi verða skattarnir hlut- fallslega heldur þyngri miðað við tekjur á liöandi stund. A sama hátt og skattarnir lækka raun- verulega þegar verðbólgan er á uppleið. Þetta er staðreynd sem við komumst aldrei framhjá. Þjv.: Nú er ekki ákveðit hvernig formið verður á þessar skattaiækkun, en það hlýtur at skipta verulegu máli. Hvenær má vænta ákvörðunar i þvi efni? R.A.: Við munum eiga ýtar- legar viðræður við verkalýðs- hreyfinguna um þessa hlið máls- ins áður en nokkrar ákvaröanir veröa teknar. En þrjár leiðir koma helst til greina: 1. Hækkun skattafsláttar, sem gengur þá upp i útsvar og sjúkratryggingargjald, ef við- komandi greiðir ekki tekju- skatt. 2. Ákveöin verði tiltekin upphæð i fjölskyldubætur til allra skatt- greiðenda, sem hafa tekjur undir ákveðnu marki. Þá fá þeir mest sem minnst hafa, ef um er aö ræöa fasta krónutölu. 3. Afnám sjúkratryggingar- gjalds, sem eins og kunnugt er nemur 1 1/2 til 2% af tekjum. Þaöer einföld aöferð til þess að skila þessu 1 1/2% i skatti, en kæmi ekki að eins góðum not- um og hinar leiöirnar tvær fyrir lægst launaöa fólkið. Nægt fé í niðurgreiðslur Þjv Svo við vendum okkar kvæði i kross þá eru uppi efa semdir um að nægilegt fé sé fyrii hendi til þess að viðhaida niður greiðslustigi á búvöru. R.A.: Það er rétt að sumir stjórnarandstæðingar eru með upphrópanir um að niður- greiðslur nægi ekki fyrir óbreyttu niðurgreiðslustigi, hvað þá að þær geti hækkað til jafns við hækkun búvöruverðs á árinu. Þessir menn hafa greinilega ekki fylgst með þvi sem samþykkt var á fjárlögum. Til niðurgreiðslna eru áætlaðir 35 miljarðar gamalla króna, en það er 43% aukning frá liönu ári, og ætti aö duga lang- leiöina til að halda i við verðbólg- una. Hugsanlega verðum við þó að taka einn miljarð eða svo af liönum efnahagsaðgerðir á fjár- lögum i þessu skyni. 3% viðskiptahalli Þjv.: Enda þótt margar stærðir i þjóöarbúskapnum virðist hafa þróast skaplega á siðasta ári er enn um nokkurn viöskiptahaila að ræða. Er það ekki áhyggjuefni? R.A.: Viðskiptahallinn er liklega rúmir 40 miljarðar gamalla króna á siöasta ári, en það er um 3% af þjóðarfram- leiöslu, sem er alls ekki meira en oftast áður. Samkvæmt þjóðhags- spá er gert ráð fyrir að viðskipta- hallinn á árinu 1981 veröi um 2%. I þessu sambandi verðum við að minnast þess að við erum að byggja upp fyrir framtiðina, bæði með stórfelldum raforkufram- kvæmdum og miklum hitaveitu- framkvæmdum, og þess er varla að vænta að viö fjármögnum þessar framkvæmdir, t.d. 30 miljarða kr. til Hrauneyjarfoss- virkjunar taliði gömlum krónum, með tekjum liðandi árs. Það er fullkomlega eðlilegt að við dreif- um kostnaðinum af þessum fram- kvæmdum á nokkurt árabil og þess vegna verðum viö að taka erlend lán i þessu skyni. En það kemur þá út i minni háttar viðskiptahalla á liðandi stund. Komið og skoðið þá bestu frá V.Þýskalandi og Japan frá kl. 1 - 6 lASYNIHGB VOLKSWAGEN - BÍLAH FRA V.ÞÝSKALANDI DERBY GOLF - SENDIBÍLAR MITSUBISHI - BÍI.AR FRÁ JAPAN COLT - LANCER - GALANT - SAPPORO - L300 SENDIBÍLAR Erlendar skuldir ekki áhyggjuefni Þjv.: Þú ræðir um erlendar lántökur og þvi er ekki úr vegi að spyrja hvort greiðslubyrði af erlendum iánum sé ekki komin á hættuiegt stig. R.A.:Undanfarinár hafa hægri öflin haldið uppi miklum hræðslu- áróðri þess efnis að fjárfesting i landinu væri að setja þjóðarbúið á hvolf með erlendri skuldasöfnun. Fyrir nokkrum árum var algengt að þvi væri haldið fram að fjárfestingin i tið vinstri stjórnarinnar ’71 til ’74 myndi leiða til þess að greiðslubyrði af erlendum lánum i hlutfalli við út- flutningstekjur færiupp i 20%. Ég gagnrýndi þennan málflutning á sinum tima sem óraunsæjar hrakspár. Enda taka menn sjaldnast meö i reikninginn að er- lend lán rýrna einsog önnur lán i hinni alþjóðlegu verðbólgu. Staðreyndin er sú að þetta skuldahlutfall hefur fariö jafnt og þétt lækkandi. Það var 14.2% 1975, og hefur lækkað ár frá ári niður i 12.8% 1979. A sl. vetri ruku sérfræðingar með þessa tölu upp i 16%, en nokkrum mánuðum seinna var talan aftur komin niö- ur i 14 til 15%. Skýringin var ein- faldlega sú að vextir hækkuðu á erlendum fjármagnsmörkuðum um tima, en lækkuðu siöan aftur. Það er þvi ljóst að þessir útreikn- ingar segja ekki mikiö sem máli skiptir. Auðvitað verðum við hiklaust að taka erlend lán til arðbærra framkvæmda, sem afla okkur gjaldeyris eða spara hann. Og við þurfum ekkert að óttast þó að lánsfjáráætlun sé nokkuð há þessa stundina, eða þessi árin, meðan svo gifurlegar orkufram- kvæmdir standa yfir. Bráða- birgðayfirlit um lánsfjáráætlun var lagt fram áður en fjárlög voru afgreidd á þingi. Þar var gert ráð fyrir erlendum lántökum uppá 135 miljarða gkr. Þar ber að sjálf- sögðu langhæst lántökur vegna Hrauneyjarfossvirkjunar, sam- anlagt um 46 milljarða gkr., og lántökur vegna hitaveitufram- kvæmda, um 18 miljarðar gkr. Verðtryggðir sparifj árreikningar og vaxtalækkun Þjv.: Fráhvarf frá raunvaxta- stefnu og hagur sparifjáreigenda er mjög til umræðu. Telur þú að sú stefna sé verjandi gagnvart þeim? R.A.: Fráhvarf frá vaxtavit- leysu kratanna á eftir að verða þjóðinni til heilla. Lita má á lausafjárstöðu bankanna en hún batnaði verulega á sl. ári, enda þótt vaxtahækkunum væri skotið á frest. Innlánaaukningin i bankakerfinu varð um 65%, en útlánaaukningin um 56%. Þessi þróun sýnir betur en flest annað að sparifjármyndun er ekki i neinni hættu þótt ekki sé farið að hækka vexti enn frekar eins og kratar hafa lagt megináherslu á. Aðalatriðið er að allir eigi þess kost að ávaxta sparifé á verð- tryggðum reikningum, sem ekki eru bundnir til alltof langs tima. Þetta er einmitt það sem rikis- stjórnin hefur ákveðið með bráðabirgðalögunum, þar sem gert er ráð fyrir verðtryggðum sparireikningum með 6 mánaða bindingu i stað tveggja ára áður. Að öðru leyti þurfum við heldur á vaxtalækkun að halda til þess að auðvelda okkur að hægja á verðbólgunni. Viðunandi útlit í efnahagsmálum Þjv.: Af máli þinu má ráða að þú teljir stöðu efnahagsmála ekki mjög slæma nú i ársbyrjun. En hvernig er útlitið á næstu mánuð- um? R.A.: Ég tel að staða efnahags- mála sé nokkuð viðunandi nú um áramótin, miðað við allar aðstæður. I þvi sambandi vil ég nefna nokkur atriði: 1. Rekstrarstaða atvinnuveganna á að geta orðið i sæmilegu lagi næstu mánuði eftir efnahags- aðgerðir rikisstjórnarinnar; verðbólgan verður miklu minni en horfur voru á, lækkun vaxta af gengistryggðum lánum hjálpar verulega til, svo og sú millifærsla fjármagns, sem fyrirhuguð er. 2. Kaupmáttur launa batnaði verulega i kjölfar nýrra kjara- samninga. Hann rýrnar að visu eitthvað þegar á árið liður, en rýrnunin er sennilega minni en verið hefði að öllu óbreyttu, ef engar efnahagsaðgerðir hefðu verið gerðar. 3. Staða rikissjóðs er i viðunandi jafnvægi. Að visu er enn ekki ljóst, hver endanleg niðurstaða verður, en þó' er fullljóst að staðan gagnvart Seðlabankan- um á föstu verðlagi hefur batn- að um allmarga milljarða gkr. 4. Hinsvegar eru horfur á að nokkur halli verðir á viðskipta- jöfnuði við önnur lönd, en þó alls ekki meiri en oftast áður. 5. Lausafjárstaða bankakerfisins •batnaði verulega á liðnu ári og aukning innlána varð talsvert meiri en aukning útlána. Þegar á heildina er litið tel ég þvi.að staða efnahagsmála se alls ekki slæm og ýmis merki um jákvæða þróun. Þar við bætist aö atvinnuástandið er viðast hvar með viðunandi hætti og i heildina tekið nokkuð gott, sem er talsvert annað en unnt er að segja um ástand mála i flestum nálægum löndum, sem þessutan eiga mörg við mikinn .vanda i rikisfjármál- um að etja. — ckh Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 Gangavörður JStarf gangavarðar, karl eða kona, við Viðistaðaskóla, Hafnarfirði, er laust til umsóknar. Til greina kemur að skipta starfinu i tvær hálfar stöður. Umsóknarfrestur er til 23. jan. n.k. Væntanlegir umsækjendur tilgreini aldur og fyrri störf. Upplýsingar i simum 52911 53113 og 53444, Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar, Strandgötu 4.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.