Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 32
Samkomulag um nýja Landsvirkj un: Gaflaðra en hið fyrra Borgarstjórn samþykkti a fimmtudag með 14 atkvæðum gegn einu, samkomulag það sem fulltrúar rfkisins, Reykjavikur- borgar og Akureyrarbæjar höfðu gert um sameiningu I-axárvirkj- unar og Landsvirkjunar. Felur samkomulagið i sér að endanleg sameining eigi sér stað vorið 1983 og að sameignarsamningur verði gerður fyrir lok febrúarmánaðar næst komandi. Rcykjavikurborg kemur til með að eiga 45.95% i hinu nýja fyrirtæki, rikið 48.40% og Akureyrarbær 5.65% Þó hefur rikið áskilið sér rétt til þess að auka hlutdeild sina i 50%. Sigurjón Pétursson rakti að- draganda þessa samkomulags, en sem kunnugt er felldi Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, annar borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins, sam- komulag það sem gert var fvrir rúmu ári um sameiningu fyrir- tækjanna. Leiddi þaö til þess að Laxárvirkjun úskaði aðildar að Landsvirkjun á grundvelli 17. greinar laga um Landsvirkjun. Sigurjón sagði að hann teldi mikilvægt að samkomulag hefði nú náðst og rétt að samþykkja það, þó það væri gallaðra og þrengra en það sem áður var lagt fram og fellt i borgarstjórn. 1 samninganefnd Reykjavikur- borgar voru tveir fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins, Birgir Isleifur Gunnarsson og Davið Oddsson og hæddist Albert Guðmundsson að þeim i ræðu sinni og sagði að meirihlutinn hefði lokkað þá með sér i þessu máli. Hann sagöi frá- leitt að hengja sig i' það að Laxár- virkjun gæti sameinast Lands- virkjun á grundvelli einhverra laga, — lögum mætti breyta og engin ástæða væri til að leggja upp laupana i þessu máli! Hann sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin i borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins um þetta mál og vonandi tækist að fá nokkra fulltrúa til þess að fella samning- inn. Þá vék Albert að orðum Sigurjóns um samkomulagið og sagðist ekki trúa þvi að Sjöfn Sigurbjörnsdóttir færi nú að sam- þykkja samkomulag sem Sigur- jón segði að væri miklu verra en hið fyrra. Framhald á bls. 30 Anddyri nýju Heilsugæslustöðvarinnar i Borgarspitalanum en hún á að þjóna ibúum Fossvogshverfis. —7 Ljósm.: — gel. Þjónar Fossvogshverfi Heilsugæslustöð fyrir Foss- vogshverfið sem staðsett er i slysadeild Borgarspitalans var formlega tekin i notkun i gær. Þar með er tekin til starfa þriðja heilsugæslustöð borgarinnar, en hin fyrsta sem er inni á sjúkrahúsi. Adda Bára Sigfúsdóttir for- maður stjórnar Borgarspitalans bauð gesti velkomna og sagði frá þeim framkvæmdum sem staðið hafa yfir. Skúli Johnsen borgar- læknir lýsti hlutverki heilsu- gæslustöðvar, en það eru nánast allar þær hliðar sem snerta Fullyrðingum um lóðaskort vísað á bug: Fleiri lóðum úthlutað nú en í tíð íhaldsins Kristján Benediktsson, formaður borgarráðs vís- aði á bug klifi íhaldsins um lóðaskort í Reykjavík og fullyrðingum þeirra um að færri lóðum væri úthlutað nú og yfirvof- andi væri stórfellt hrun í byggingamálum í borg- inni. Kristján sagði að það væri rétt, að miklu hefði verið út- hlutað meðan byrjað var að byggja i Breiðholtinu enda hefði ríkið þá lagt fram gifurlegar fjárhæðir sem hefðu gert borg- inni kleift að taka stór svæði til bygginga. Hins vegar sagöist hann hafa tekið saman meðaltal úthlutana fyrir siðasta kjör- timabil, á árunum 1975—1978,og væri niöurstaðan sú að á þeim árum hefði verið úthlutaö lóð- um undir 432 ibúðir að meðal- tali. A siðasta ári hefði verið út- hlutað lóðum undir 576 ibúðir og á árinu 1981 yrði úthlutað undir 500 ibúðir og jafnvel 540 ef út- hlutað yrði á Laugarásnum, sem enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um. Þá vék hann að lóðum undir iðnað og aðra atvinnustarfsemi og sagði rétt að ekki væri'mikið af lóðum til úthlutunar á þeim vettvangi. Hins vegar hefði ihaldið úthlutað geysilega stór- um landsvæðum til fjölmargra fyrirtækja á árunum 1977 og 1978 og við könnun sem gerð hefði verið nýlega hefði komið i ljós að þrjátiu fyrirtæki sem þá fengu úthlutað væru ekki byrj- uð að huga að framkvæmdum. „Þarna var Sjálfstæðisflokkur- inn að fullnægja falskri þörf”, sagði Kristján, ,,og ef það hefði ekki verið gert væri enginn skortur á iðnaðarlóðum i borg- inni”. — almenna heilsugæslu allt frá mæðraskoðun, heimilsihjúkrun og skólalækningum til þess að sjúklingum er visað til sér- fræðinga. Markmið heiisugæslu- stöðva er að flytja sem mest af þjónustunni á einn stað, en nú er gerð tilraun til að tengja heilsu- gæslu hverfisins starfi spitalans. örn Smári formaður Lækna- félags Reykjavikur árnaði starfs- fólki heilla, en minnti á að það hefði vérið stefna lækna að allir sjúklingar væru skráðir á lækna. 1 nýju heilsugæslustöðinni koma 2500 einstaklingar á þau Katrinu Fjeldsted og Gunnar Helga Guð- mundsson sem verða læknar stöðvarinnar, en senn mun von á hinum þriðja. í heilsugæslu- stöðinni er alltaf hægt aö leita annars læknis ef heimilislæknir er ekki við og læknirinn hefur aðgang að öllum gögnum sem skráð eru og geymd á einum stað. Siðar á þessu ári er áætlað að taka upp vaktaþjónustu á kvöldin og um helgar fyrir ibúa hverfis- ins, en þar til sú þjónusta hefst er stöðin opin hvern virkan dag frá kl. 8—17. Við opnun stöðvarinnar i gær mættu forráðamenn heilbrigðis- mála svo og starfsfólk stöðvar- innar, en eftir ræðuhöld þakkaði Katrin Fjeldsted læknir, fyrir hönd starfsfólks, fögur orð og auðsýnt traust, sem þeim tækist vonandi að standa undir i starfi. — ká. DJOÐVIUINN Heigin 17.—18. janúar 1981 Aðalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðarnenn og aðra starfsmenn blaðsins Iþessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiöslu blaðsins i slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Endurskoðun á kjörum fóstra: Gleðileg niðurstaða — segir formaður Fóstrufélagsins 1£ Heilsugæslustöd „Þessi niðurstaða var mjög ánægjuleg og gleðilegt að samn- ingarnir verða teknir til endur- skoðunar,” sagði Kristin Kvaran, formaður Fóstrufélagsins i gær, en borgarstjórn samþykkti með 15 samhljóða atkvæðum á fimmtudagskvöld að endurskoða launakjör fóstra sem starfa hjá Reykjavikurborg. Fóstrur hafa sem kunnugt er mótmælt niður- stöðum sérkjarasamninganna harðlega og hótað uppsögnum ef leiðrétting fæst ekki fyrir 1. febrúar n.k. „Nú biðum við bara eftir þvi að verða boðaðar til fundar með fuil- trúum borgarinnar”, sagði Kristin, „og leyfum okkur að vona að menn standi við þær yfir- lýsingar sem þeir gáfu i borgar- stjórninni. Það hlýtur öllum að vera orðið það ijóst að við sættum okkur ekki við neitt minna en gagngera endurskoðun á öllum okkar kjörum. Við erum búnar að fá nóg af fögrum yfirlýsingum og loforðum og viljum að staðið sé við þau í framkvæmdinni sjálfri.” — AI.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.