Þjóðviljinn - 17.01.1981, Page 9

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Page 9
Helgin 17.—18. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 í tilefni bréfs frá sovéskri fréttastofu Fyrir nokkru kvartaði leiðarahöfundur Morgun- blaðsins yf ir því, að Þjóð- viljinn talaði óvirðulega um nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, Ronald Reagan. Blaðinu fannst að skrif Þjóðviljans um „kúrekann í Hvíta húsinu" bæru svip kalda- stríðshyggju og var ekki í vafa um að Þjóðvilja- menn hefðu tekið upp þennan tón að fyrirmæl- um Rússa. Nú gerðist það á þriðjudaginn var að birt var hér i blaðinu bréf frá yfirmanni sovésku frétta- stofunnar APN, Agarkov, þar sem hann kvartar yfir grein eft- ir AB, sem kom i helgarblaði rétt eftir áramót. Agarkov segir að sá vandræðamaður ÁB hafi fjallað á „hlutdrægan” hátt um Brésjnéf forseta og það sér- stæða stáss með æðsta mann Sovétrikjanna, sem iðkað hefur verið fyrr og siðar og þeir sjálfir kallaö „persónudýrkun” þá sjaldan að vandamálið er viður- kennt. Aður en lengra er haldið: það er óneitanlega dálitið skemmti- leg reynsla að fá aðfinnslur fyr- ir óviðurkvæmilegt tal um hátignir úr svo ólikum áttum. En allt er þetta reyndar eins og það á að vera — það er vel við hæfi að fjölmiðlafulltrúar tveggja risavelda á Islandi, Morgunblaðið og APN, taki upp hanskann hvor fyrir sinn mann. Þagað þunnu hljóði En Agarkov ræðir reyndar ekki persónudýrkunarmálin Kremlarfræðin- Þetta skal nú verða tilefni til að minnast á eitt mikilvægt at- riði — nefnilega skiining á Sovétrikjunum, sem er vissu- lega nauðsynlegur þvi þau eru fyrirferöarmikil staðreynd i heiminum. Svo hlálega vill til, að sá sem skrifaði óvirðulega um Brésjnéf hér i Þjóöviljanum og „þegir” um nýja fimm ára áætlun er gamall hundur i svokölluðum Kremlarfræðum. En svo kalla blaðamenn og fleiri túlkanir á fréttum úr Sovétrikjunum. Gildur þáttur þessara fræða er einmitt að velta vöngum yfir framleiðslutölunum, þvi bæði sovéskir og vestrænir talna- meistarar telja sig geta lesið af þeim sterkar visbendingar um kosti og galla sovésks hagkerfis og þjóðskipulags. Allsnægtir árið 1980 Ég kom inn i þennan talnaleik rétt fyrir 1960 þegar ég var I Moskvu. Þá var af stað farin sjö ára áætlun, sem tók mið af þvi, að sovéskur þjóöarbúskapur hafði náð drjúgum skriði eftir að verstu agnúarnir af stjórn- sýsluaðferðum Stalins höfðu verið klipptir af. Höfuðmark- miðið var að fara þegar árið 1965 fram úr Bandarikjunum i framleiöslu á helstu tegundum matvæla á hvert mannsbarn og draga mjög á þau i iðnaðar- framleiðslu. Svo átti að fara fram úr Bandarikjunum i iðnaði árið 1970. Um 1980 átti að vera lokið við að byggja upp helstu forsendur kommúnisks alls- nægtaþjóöfélags. Það var ekki vel ljóst hvað i þessu fólst, en það var að minnsta kosti gert ráð fyrir þvi að þá hefði almenningur gnægð helstu Sovéskar framfarir og talnaleikurinn mikli neitt nánar. Aðaltilgangur bréfs hans er aö mótmæla þvi, að Þjóðviljinn birti efni um Sovét- rikin þar sem hlutirnir séu „málaðir eingöngu i svörtum litum” og þegi um leið „þunnu hljóði um mikilvæg atriði I lifi þjóöar vorrar, framfarir hennar á sviði efnahags, visinda og menningar”. Akarkov nefnir til dæmis, að um þessar mundir sé verið að ganga frá nýrri fimm ára áætlun i Sovétrikjunum og feii hún m.a. þetta i sér: „Rauntekjur þjóöarinnar munu á næstu fimm árum aukast um 16—18% . Til þess að ná þessu marki þarf að auka þjóðartekj- urnar um næstum 20% og iðn- aöarframleiðsluna um 1/3.”. Ennfremur segir i bréfinu: „Þaö er álit vort að óhlutdrægar upplýsingar um lif sovésku þjóðarinnar, áætlanir hennar og framkvæmd þeirra á siðum blaðs yðar séu mikilsvert fram- lag til eflingar gagnkvæms skilnings og góðrar sambúðar milli Sovétrikjanna og Islands”. Það þarf ekki mikla lagni til að snúa þessari siðustu athuga- semd viö og þá þýðir hún: sá sem ekkisýnir framfaraáætlun- um Sovétrikjanna sóma er nið- höggur góðrar sambúðar rikja og gagnkvæms skilnings. Þaö var og. nauðsynja og nyti viðtækrar ókeypis þjónustu. Um þetta skrifuðu blaða- snápar margir greinar og ég var i þeirra hópi. Þar sést að ég hefi tekiö þessum áformum i fullri alvöru. Og voru fieiri i þeim sama báti: New York Times sagöi um þetta leyti, að nú væru Sovétmenn alveg að ná Bandarikjunum i efnahagslegu tilliti. Það vantaði ekki nema svosem tiu ár upp á það. Igrein i Rétti setti ég skema eftir sovéskan hagfræöing. Þar er sovésk iönaðarframleiðsla áriö 1960 60% af þeirri bandarisku, en framreiknuö til 1970 er hún komin upp fyrir og átti þá — fyr- irellefu árum — að vera 115% af bandariskri framleiðslu. Veruleikinn Nú vita allir að þessar áætlan- ir stóöust ekki. Sovéskur land- búnaður náði ekki i skottið á þeim bandariska hvorki þá né siðar. 1975 voru Sovétrikin orðin meiriháttar innflytjandi mat- væla. Enn i dag er verið að glima við kjötframleiðslumark- iö sem sett var fyrir áriö 1965 (15—16 miljónir tonna). Einmitt sá sem „þekkir vel til” i Sovét- rikjunum hefur ekki frið fyrir fregnum um kjötbiöraöir og ostaskort og grænmetisbiðraðir og ávaxtaskort og allt i einu er meira að segja sápa orðin vandamál og velkomin vinar- gjöf. 1959 var Krúsjof við völd. A Brésjnéftimanum hafa menn ekki tekið jafn stórt upp i sig og hann gerði. En svipaðir hlutir verða samt uppi á teningnum. Ég hefi skoðaö samanburð á fyrirheitum fyrstu áætlunar Brésjnéfs fyrir árin 1966—70 og framkvæmdinni að henni lok- inni. Ekki verður betur séö en aö af 47 stórum liðum iönaðar- framleiðslu hafi ekki tekist að standa við fyrirheit ársins 1966 nema i þrem-fjórum greinum. Algengt er að staðist sé við 30—70% loforða og sum alls ekki. A þessum árum átti að byggja 640 miljónir fermetra af ibúöarhúsnæði i landinu, en i reynd komust 517 miljónir ferm. i gagnið. Ef menn vilja skoða „óhlutdrægt” hvað þetta þýðir, þá lætur nærri að þetta sam- svari þvi að Islendingar væru að reisa um 100 þúsund fermetra á ári. (Við reisum vist 1900 ibúöir á ári). Og sú áætlun sem nú er að ljúka hefur veriö skorin niöur i ýmsum greinum. Enn i dag er sovésk iðnaöarframleiðsla talin á við tvo þriðju af þeirri bandarisku —einsog 1960. Hvað sem liður bandariskum efna- hagsþrengingum og undanhaldi fyrir vesturþýskum og japönskum keppinautum. Talnagaldrar Látum nú vera þótt bjart- sýnisáform standist ekki, það kemur fyrir á flestum bæjum. Hitt er þó lakara þegar Kreml- arpælarar eru sifellt að rekast á upplýsingar sem setja stór spurningarmerki viö allar sovéskar skýrslugerðir, nema kannski þeirra sem lúta að ein- földum beinum magntölum i iðnaöi — oliutonn, stáltonn osfrv..Mjög margir áætlana- #sunnudag spistill Eftir Árna Bergmann liðir, ekki sist um neysluvöru- framleiðslu, eru gefnir upp i rúblum. En það þýðir einmitt að við vitum litið um það hvaö prósenturnar þýða þegar þær snúa aö almenningi i vörullki. Sovéskir talsmenn leggja á það áherslu að verðbólga sé litil og þvi séu kauphækkanir nokkurn vegin jafngildar rauntekju- hækkun. Þetta er ekki rétt, þvi miður. Verðbólgan er til, þótt hálffalin sé. Það er gert með þvi, til dæmis, að komið er fram með ný vöruheiti i nýjum umbúðum og kostar þessi vara meira en sú sem hverfur af markaöi. Með þessu móti er hægt að plata bæöi opinberar tölur um verðlag og áætlana- skýrslurnar . Tökum litið dæmi (sem ég hefi úr þvi ágæta blaði L i teratúrnaja gazéta). Verksmiðja sem framleiðir sokkabuxur breytir einhverju i gerð þeirra og slær út á þaö 15% verðhækkun. Hún getur sýnt 7% framleiösluaukningu i rúblum og litið prýðilega út á skýrslum — enda þótt verksmiðjan hafi i raun framleitt færrisokkabuxur en áður til almennings. Svipuð brögð eru af ýmsu að dæma leikin með húsgögn, unnar mat- vörur, jafnvel vélbúnað. Auk þess getur lesandi sovéskra blaða rekist á hin undarlegustu dæmi um „pripiski” en svo nefnast þau brögð sem verða til þess að vara (jafnvel heil hús) er komin á skýrslur án þess aö vera nokkursstaðar til annars- staðar. Eða þá um feiknalega og hörmulega sóun — einkum á matvælum á leið frá fram- leiðendum til neytenda. Þau dæmi eru sum svo herfileg aö jafnvel lifsreyndir menn verða að taka á öllu til að trúa. Hógvær ósk Að öllu þessu sögðu ætti engan að undra þótt gamlir hundar i Kremlarfræðum hrökkvi ekki upp þótt nokkur talnaskruön- ingur heyrist að austan. Ég segi fyrir sjálfan mig: mikið yröi ég feginn ef sovéskur almenn- ingur fengi þessar 16—18% rauntekjubætur á næstu fimm árum, sem nú er búið að setja á blað. Svo sannarlega á fólkiö það skilið og meira til. En eins og rússneskur málsháttur segir: það er ekki gáfulegt aö skipta á milli veiðimanna feld- inum af bjarndýri, sem þeir eru ekki búnir að skjóta. Nú geta menn sagt sem svo: það er þó gott aö Sovétmenn ígeta áformað einhvern hagvöxt, ekki treysta vestræn iönriki sér til aö gera meira en rétt halda i horfinu. Það er rétt, en þá skal þvi ekki gleymt, að sovéskur almenningur þarf svo miklu meira á ósköp einfaldri fram- leiösluaukningu aö halda — vegna þess hve mikið vantar enn á að það verkefni sé leyst að sjá fólki þar fyrir ýmsum nauðsynjum. Þaö er lika hægt að segja: ekki lifir manneskjan á hagvexti einum saman, annað er meira virði. Satt var orðið. Ariö 1959 höfðu menn hátt i Moskvu um kommúnisma ársins 1980, sem er horfið i aldanna skaut. Nú eru þeir hógværari, sem betur fer. En ég segi það satt: ástandiö er það alvarlegt og kemur það misjafnlega niður á fólki, að ef nú væri kominn i landið sá „kommúnismi” sem þýddi, aö sovétfólk upp og ofan og hvar sem er i landinu gæti gengið sig út og keypt fyrirhafnarlitið i matinn — án timasóunar, „sambanda” og óguðlegra fjár- útláta, þá mundi ég telja ástæðu til að berja bumbur með nokkr- um fögnuöi. Vegna þess fólks sem landiö byggir; vonandi er það einmitt það sem við erum að hugsa um? Mér væri meira aö segja sama þó að forysta kommúnistaflokksins hirti sér allan heiður af slikri framför. Og þetta er i raun og veru ekki stór ósk til handa sovésku fólki. Ég hefi ekki minnst einu orði á æðri munað, eins og það málfrelsi og prentfrelsi og sam- takafrelsi og það óttaleysi við yfirvald, sem höfundar rúss- nesku byltingarinnar vildu i hávegum hafa á sinni tið. AB

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.