Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 27
i-anTiffw'mmtte wp*
filvi'íH
Inn að
miðju
heimsins
sunnudag
kl. 10.25
Hvaö skyldi leynast bakvið himnahuröina breiöu?
Himnahurðin breið?
islensk rokkópera er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld og nefnist
„Himnahuröin breiö?”. Verk
þetta var kvikmyndaö veturinn
1979—1980 og frumsýnt i Regn-
boganum 10. mai i fyrra. Siöan
hefur hún gert viöreist, og m.a.
verði sýnd í Bandarikjunum.
Ilimnahurðin breiö? var
upphaflega samin sem rokkópera
og sett á svið i Menntaskólanum
við Hamrahlið. Textann og
tónlistina sömdu þeir Ari Harðar-
son og Kjartan ólafsson, en
leikstjórier Kristberg óskarsson.
laugardag
kl. 21.30
Sjö söngvarar leika og syngja i
myndinni, og eru þeir flestir úr
Hamrahliðarkórnum.
Myndin er fantasia um hiö góöa
og illa og gerist ekki að öllu leyti i
raunveruleikanum. Sýningartimi
er 50 minútur og var myndin tekin
á 16mm litfilmu. — ih
Nóttin skelfilega
Arið 1938 gerði Orson Welles
allt vitlaust i Ameriku og varð
heimsfrægur á einni nóttu. Hann
var þá 23 ára og haföi skrifað
leikrit sem hann nefndi
„Innrásina frá Mars”. Þvi var út-
varpað um öll Bandarikin og varð
það þess valdandi að gifurleg
skelfing greip um sig. Fólk hélt
þetta væri i alvöru innrás frá
Mars.
Sjónvarpið sýnir i kvöld nýlega
laugardag
kl. 22.15
bandariska sjónvarpsmynd um
þessa sögufrægu útvarpssend-
ingu, og nefnist hún Nóttin skelfi-
lega (The Night That Panicked
America). Aðalhlutverkin eru
leikin af Paul Shenar og Vic
Morrow. _jj,
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri segir í fyrramálið frá
ævintýralegu ferðalagi til Miö-
Asiu i þættinum ,,Ct og suður”
sem Friðrik Páll Jónsson stjórn-
ar.
— Haustið 1979 fórum við Þór-
arinn Benedikz, tilraunastjóri hjá
Skógræktinni, tveir saman i ferð
austur i Altaifjöll til að skoða
skógana þar, — sagði Sigurður. —
Við höfum aldrei séð lerkiskóginn
i sinu náttúrulega umhverfi fyrr,
enda varð ferðin ævintýraleg.
Við flugum frá Moskvu til
Barnaul, sem er höfuðborg Altai-
héraðs. Þaðan flugum við svo til
bæjar sem er við fjallsræturnar
og héldum þaðan i tveggja daga
bilferð upp i fjöllin. Fannst okkur
við þá komnir nálægt miðju
heimsins, þvi hvergi mun vera
jafnlangt til sjávar og þarna. A
þessar slóðir munu engir Islend-
ingar hafa komið fyrr. Ég reyni
að segja frá þessu i þættinum,
þótt það verði að visu brotakennt,
en umhverfið var mikilfenglegt.
Einnig þótti okkur fróðlegt að sjá
mannabyggð sem þarna er, og
fórum við um óteljandi sveita-
þorp.
Sem kunnugt er eru þættir
Friðriks Páls sérstakir að þvi
leyti, að þeir eru ekki lesnir,
heldur sagðir, og gefur það þeim
einkar skemmtilegan blæ.
— ih
Siguröur Blöndal segir frá
ævintýraferö til Altaifjalla.
„Ég er bara ég”
Ljóð eftir Unni Sigurbjörgu Eysteinsdóttur,
13 ára, Höfn i Hornafirði
Vinur
Ég er einmana
af hverju?
er ég svona leiðinleg?
Ég fór að yrkja af leiðindum
í Ijóðunum get ég sagt frá öllu; OLLU
líka þér
líka því að þú vildir ekki verða vinur minn
Nú sérðu eftir því
NEI, nú hugsarðu með þér:
gott að ég vildi ekki verða vinur hennar
hún hefði sagt frá öllum okkar leyndarmájum
í Ijóðunum sínum
En það er ekki satt
ef þú vilt verða vinur minn þá lof a ég því
að yrkja ekki meir
að minnsta kosti ekki meir um þig
Það er lika svo hagstætt að vera vinur minn
ég gæti til dæmis ort um þig.
Ég meina ort fallega um þig
og þá yrðirðu loksins f rægur.
Spegill
Ég lít í spegilinn og sé...
EKKERT
á spegilinn het ég málað svartar og hvítar rendur
hvitar tyrir ánægjustundirnar í lífi minu
svartar fyrir sorgarstundirnar ílífi mínu
hvort skyldi nú vera meira af svörtum
eða hvítum röndum á
speglinum?
Ég á vinkonu
Einni vinkonu minni í skólanum er strítt
Krakkarnir segja að hún sé fátæk
Er hægt að stríða fólki á því að það sé f átækt?
Mamma hennar á 4 börn í lausaleik
öll eiga þau sitthvorn pabbann.
Getur vinkona mín nokkuð gert að því?
Mamma hennar vinnur og vinnur en er samt
alltaf fátæk
Mamma min vinnur ekki neitt en á samt
nóg af peningum
Er þetta ekki óréttlátt?
Vinkona mín fær bara buxur í jólagjöf
en samt er hún glaðari yf ir því en ég yf ir
_ öllum mínum gjöfum
Fmnst ykkur það ekki skrýtið
Öll hennar föt eru gefins af öðrum
og hún er líka aldrei í fötum sem eru í tísku
Þess vegna stríði ég henni.
utvarp
laugardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn.7.15. Leikfimi
7.25 Tónleikar.Þulur velur og
kynnir.
8.10Fréttir.
8.15 VeÖurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Morgunorö. Stina Gisladótt-
ir talar.Tónleikar.
8.50 Leikfimi
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 óskalög sjúklinga Asa
Finnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veöurfregnir).
11.20 Gagn og gaman
Goósagnir og ævintýri i
samantekt Gunnvarar
Braga.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilky nningar.
Tónleikar.
14.00 i vikulokin Umsjónar-
menn: Asdis Skúladóttir.
Askell Þórisson. Björn Jósef
Arnviöarson og Oli H.
Þóröarson.
15.40 tslenskt mál Dr. Guörún
Kvaran talar.
16.00 Fréttir.
16.15Veöurfregnir.
16.20 Tónlistarrabb. — XIV.
Atli Heimir Sveinsson fjall-
ar um rússneska tónlist.
17.20 Aö leika og lesa Jónina
H. Jónsdóttir stjórnar
barnatima. Dagbók. klippu-
safn og fastir liöir eins og
venjulega.
18.00 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynninga.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá"
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
Tilkynningar.
19.35 ,.Ast viö fyrstu svn”.
smásaga eftir Steinunni
Siguröardóttur Höfundur
les.
20.00 lllööuball. Jónatan
Gröarsson kynnir ameriska
kúreka- og sveitasöngva.
20.30 ..Því frostiö er napurt”
Létt blanda handa bölsýnis-
mönnum. Umsjön: Anna
ólfsdóttir Björnsson.
21.15 Fjórir piltar frá
Liverpool Þorgeir Astvalds-
son rekur feril Bitlanna —
The Beatles. — þrettándi og
siöasti þáttur.
21.55 Konuri norskri ljóöagerö
1930—1970 Bragi Sigurjóns-
son spjallar um skáldkon-
urnar Gunvor Hofmo,
Astrid Tollefsen. Halldis
Moren Vesaas og Aslaug
Vaa og les óprentaöar
þýöingar sinar á sjö ljóöum
þeirra.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kv öldsins
22.35 ..Karl. Jón og konan”,
smásaga eftir Guöberg
Bergsson Höfundur les.
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
sunnudagur
8.00 Morgunandakt. Séra
Siguröur Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorö
og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög.
Hljómsveit Wal-Bergs leik-
ur.
9.00 Morguntónleikar
10.05 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.
10.25 (Jt og suöur: Inn aö
miöju heimsins. Siguröur
Blöndal skógræktarstjóri
segir frá ferö til Altaihéraös
i Miö-Asi'u i október 1979.
Umsjón: Friörik Páll Jóns-
son.
11.00 Messa I Neskirkju.
(Hljóörituö 11. þ.m.)
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Um heilbrigöismál og
viöf angsefni heilbrigöis-
þjónustunnar. Skúli John-
sen borgarlæknir flytur
annaö hádegiserindi sitt.
14.00 Tónskáldakynning. GuÖ-
mundur Emilsson ræöir viö
Gunnar Reyni Sveinsson og
kynnir verk eftir hann. —
15.00 Sjómaöurinn og fjöl-
skyIdullfiö. Þáttur I umsjá
GuÖmundar HallvarÖsson-
ar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
VeÖurfregnir.
16.20 Um suöur-amerískar
bókmenntir, þriöji þáttur.
16.55 „Aö marka og draga á
land”. Guörún Guölaugs-
dóttir tekur saman dagskrá
um ÞjóÖskjalasafn Islands.
17.40 Drengjakórinn I Vlnar-
borg syngurlög eftir Johann
Strauss meö Konsert-hljóm-
sveitinni i Vin, Ferdinand
Grossmann stj.
18.00 Anton Karas-hljóm-
sveitin leikur austurrisk al-
þýöulög.
Tilkynningar.
18.45 VeÖurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Veistu svariö? Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti, sem fram fer
samtimis í Reykjavik og á
Akureyri.
19.50 Harmonikuþáttur.
20.20 Innan stokks og utan.
20.50 Þýskir píanóleikarar
leika samtimatónlist: V'est-
ur-Þýskaland.
21.30 Söguskoöun Leopolds
von Ranke.
21.50 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 „Virkiö”, smásaga eftir
Siegfried Lenz.
23.00 Nýjar plötur og gamlar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
mánudagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn.
7.15 Leikfimi.
7.25 Morgun pósturinn.
8.10 Fréttir.
8.15Veöurfregnir. Forustugr.
landsmálabl. (útdr.). Dag-
skrá. Morgunorö: GuÖ-
mundur Einarsson talar.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
9.45 La ndbúnaöa rmál
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.
10.25 tslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
11.00 tslenskt mál.
11.20 Leikiö á tvö pianó.
12.00 dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar.
Mánudagssyrpa
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 SfÖdcgistónleikar: Tón-
list eftir Mozart.
17.20 Barnatimi: llvernig
veröur bók til?Stjórnendur:
Kristin Unnsteinsdóttir og
Ragnhildur Helgadóttir.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Guöni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn
Óskar Einarsson talar.
20.00 Ruslatunnutónlist og
fuglakvak. Þáttur I umsjá
Jökuls Jakobssonar frá ár-
inu 1970.
20.40 Lög unga fólksins
21.45 Otvarpssagan: ,,Min lilj-
an frlö” eftir RagnheiÖi
Jónsdóttur Sigrún Guöjóns-
dóttir les (4).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
OrÖ kvöldsins.
22.35 „MaÖurinn á bekknum”
Smásaga eftir ólaf Orms-
son. SigurÖur Karlsson leik-
ari les.
23.00 Frá tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar tsiands i Há-
skólabiói 15 þ.m.: — siöari
hluti Stjórnandi: Páll P.
Páisson. Sinfónia nr. 6 iC-
dúr eftir Franz Schubert.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok
sjónvarp
laugardagur
16.30 Iþróttir.
18.30 Lassie. Friöarboöar —
þriöji hluti. Þýöandi er Jó-
hanna Jónannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrn-
an.-19.45 Fréttaágrip á tákn
máli.
20.00 Frétlir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Spitalalif.
21.00 A gamalli þjóöleiö
21.30 llimnahuröin breiö?
Islenskur poppsöngieikur.
geröur áriö 1980. Handrit
Ari HarÖarson og Kristberg
óskarsson. sem einnig er
leikstjóri. Tónlist: Kjartan
ólafsson. Kvikmyndun:
Guömundur Bjartmarsson.
Söngvarar: Ari Haröarson.
Ingibjörg Ingadóttir.
Kjartan ólafsson. Erna
Ingvarsdóttir, Bogi Þór Sig-
urodsson og Valdimar Orn
Flygenring. — Fram-
leiöandi: Listform Sf.
22.15 Nnttin skelfilega. (The
Night That Panicked
America». Nýleg. bandarisk
sjónvarpsmynd. Aöalhlut-
verk Paul Shenar og Vic
Morrow. Ariö 1938 varö
(Jrson Welles heunslra*gur a
svipstundu þá 23 ára
gamall. þegar útvarpaö var
um Bandarikin leikriti
hans, lnnrásiu frá Mars.
23.50 Dagskrárlok.
sunnudagur
16.00 Sunnudagshugvekja.
Séra Ragnar Fjalar
Lárusson, sóknarprestur i
Hallgrimsprestakalli, flytur
hugvek juna.
16.10 IIúsiö á sléttunni. Milli
vonar og ótta — fyrri hluti.
Þýöandi: óskar Ingi-
marsson.
17.10 Leitin mikla. Tólfti þátt-
ur. Þýöandi: Björn Björns-
son. Þulur: Sigurjón Fjeld-
sted.
18.00 Stundin okkar. Meöal
efnis: Fjallaö veröur um
myntbreytinguna og fariö i
Sædýrasafniö. Lúörasveit
fra Búöardal leikur.
Umsjónarmaöur: Bryndis
Schram. Stjórn upptöku:
Andrés Indriöason.
18.50 lllé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Tónlistarmenn. Rögn-
valdur Sigurjónsson leikur á
pianó. Egill Friöleifsson
kynnir Rögnvald og spjaUar
viö hann. Stjórn upptöku:
Rúnar Gunnarsson.
21.30 Landnemarnir. Niundi
þáttur. 23.00 Dagskrárlok.
mánudagur
19.45 F'réttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir 'og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Frá dögum goöanna.
Finnskur myndaflokkur i
sex þáttum, fyrir börn og
unglinga.
20.50 iþróttir.
21.25 Ég er hræddur viö
Virginiu Wooif. Breskt sjón-
varpsleikrit eftir Alan
Bennett. þar sem endur-
sagöar eru nokkrar þekktar
sagnir úr griskri goöafræöi.
Fyrsti þáttur. Prómþeifur.
Þýöandi Kristin Mantylá.
Sögumaöur Ingi Karl Jó-
hannesson.
22.15 Meöferö gúmbjörgunar-
báta s/h. Endursýnd
fræöslumynd um notkun
gúmbáta og fleiri björgun-
ar- og öryggistækja. Kvik-
myndun Þorgeir Þorgeirs-
son. InngangsorÖ og skýr-
ingar flytur Hjálmar R.
Báröarson siglingamála-
stjóri.
22.35 Dagskrárlok.