Þjóðviljinn - 19.01.1982, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 19. janúar 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Graciela Geuna, 26 ára, fyrrum nemi i Cordoba. Argentinu. „Hvarf”
1975, var látinn laus I aprfl 1978.
fjöldi „horfinna” manna aðallega
verkamenn, smábændur og
námsmenn, sem ekki hefur verið
unnt að gera grein fyrir. Þrátt
fyrir neitun stjórnvalda, eru
óyggjandi sannanir fyrir, að
öryggissveitir herforingja-
stjórnarinnar i Chile hafi tekiö þá
i sina vörslu á næstu fjórum árum
eftir að herforingjar steyptu kos-
inni rlkisstjórn 11. nóvember
1973. Flestar handtökur voru
framkvæmdar af Uppljóstrunar-
miðstöö rikisins, sem var stofnuö
á árslok 1973 til að samræma að-
gerðir njósnasveita hers og lög-
reglu. Samkvæmt skilgreiningu
hinnar nýju stjórnar um „fólk,
sem ógnar öryggi þjóðarinnar”,
voru llklegir einstaklingar
gripnir án handtökuheimildar og
stóðu vopnaöir menn, óeinkennis-
klæddir, aö verkinu. Þessum
„hættulegu einstaklingum” var
síðan hlaðiö 1 sendiferðabila, sem
oft báru engin einkenni eða
númer.
Forstööumaður Uppljóstrunar-
miðstöðvar rikisins, sem var
ábyrgur aðeins gagnvart forset-
anum, PINOCHET hershöfð-
ingja, var um tima einn og sami
maður, sem stjórnaði Tejas Ver-
des, varöhaldsstöö þar sem
fangar voru pindir til dauða.
Oftar þó þreyðu hinir „horfnu” i
leynifangelsum i langan tima eða
skamman og neituðu yfirvöld
allri vitneskju um dvalarstað eða
varðhald.
Mótmæli, hungurverkföll, skir-
skotutun til skoðana almennings
viðsvegar um heim, ýtarlegar til-
raunir til lögfræðilegra úrræða og
vitnisburður margra vitna reynd-
ust haldlitil i samskiptum við
rikisstjórnina, sem hélt upptekn-
um hætti aö bera af sér alla
ábyrgð.
Sannanirnar fengu enn meiri
þunga er fimmtán lik fundust i
nóvember 1978 i ónýtri kalknámu
i Lonquen, sem er ekki fjarri
höfuðborginni Santiagó. Allir
þeir, sem fundust höfðu verið
handteknir eða numdir á brott i
október 1973; voru nöfn hvers ein-
asta á lista yfir „horfna”, sem
Vicariá de la Solidaridad, mann-
réttindastofnun rómversk-ka-
þólsku kirkjunnar i Chile gaf út.
Opinber rannsókn rannsóknar-
dómara leiddi i ljós að a.m.k. ell-
efu af þessum fimmtán höfðu
veriö teknir til fanga eða numdir
á brott fimm árum áður. Höfðu
lögreglumenn veriö að verki.
Fangar þessir höfðu fyrst verið
ákærðir, siöan náöaðir. Aðrar
leynigrafir hafa fundist, hvildu
þar leifar allmargar annarra
„horfinna” manna.
Fjöldamargir I Chile biða enn
eftir fregnum af „horfnum” að-
standendum eða vinum, en einn
þeirra er Ðr. Carlos GODOY
Lagarrigue sem taliö er að Upp-
ljóstrunarmiðstöö rikisins hafi
tekið til fanga i ágúst 1976. Hans
hefur verið saknað siðan á þeim
degi, er hann fór úr vinnu sinni á
San Bernando sóknarspital-
anum i Santiagó. 28. september
1976 var afrýjunarréttinum i San-
tiagó sagt aö fyrrverandi fangar
hefðu séð hann I Villa Grimaldi,
pyntingarstöðinni, og i Cuatre
Alamos, fangabúðum þar sem
margir „horfnir” fangar hafa
verið i haldi. Yfirvöld neita að
hann sé i gæslu og hefur ekki frést
af honum siðan.
Amnesty International fékk
vitneskju um umfang og kerfis-
Alaide FOPPA de Solórzano,
Guatemala. 67 ára, gift 5 barna
móöir, rithöfundur og listagagn-
rýnandi, „hvarf” 19 des. 1980
Jorgelina PLANAS Argentina var
3 1/2 árs þcgar móöir hennar,
Christina, var numinn á brott i
mai 1977.
bundiö eöli „mannhvarfa” i
Argentinu með vitnisburði
tveggja fyrrverandi fanga leyni-
búða i Argentinu. Oscar Alfredo
GONZALES og Horacio CID de la
Paz voru i haldi i ýmsum fanga-
búöum höfuöborgarinnar Buenos
Aires og gáfu upplýsingar um
hundruð „horfinna” fanga, lýstu
meðferð og staðfestu tilvist leyni-
fangabúða i Argentinu.
Þeim var rænt i Buenos Aires i
nóvember 1977, en eftir 15 mánaða
fangelsisvist tókst þeim að losna
og flýðu þeir til Brasiliu. Fyrstu
daga i varðhaldinu voru þeir
pyntaðir með rafstjaka (sem not-
aður er við nautgripagæslu,) og
var höfði þeirra auk þess margoft
haldiö niöri i vatni. Pyntingarnar
voru gerðar undir eftirliti læknis,
sem mældi blóðþrýsting fang-
anna og taugaviðbrögð.
Mennirnir tveir voru fluttir frá
búðum til búða,úr einu lögsagnar-
umdæmi i annað. Starfsmenn frá
landher, sjóher, flugher og rikis-
lögreglu mynduðu sveitir, sem
sáu um brottnám og fangabúða-
rekstur. Meöal þeirra sem komu
til eftirlits i búðirnar voru hers-
höfðingjar, liösforingjar og. aðrir
háttsettir menn.
1 búöunum beið „flutningurinn
á endanlegan ákvörðunarstaö”
margra fanganna. Þrjátiu til
fimmtiu föngum var troðið inn i
flutningavagn, sem kom til baka
með handjárnin ein. Enginn sem
„fluttur” var á þennan hátt kom
nokkru sinni fram. Eiginkonu
Oscar Gonzales Stella Maris
PAREIRO, var rænt 6. desember
1977, og var hún fiutt i Iþrótta-
kiúbbinn. Hún hafði aldrei tekið
þátt i neinu stjórnmálastarfi.
Enda þótt starfsmenn sjóhers
hafi staðhæft við Oscar, aö kona
hans hafi viö látin laus i janúar
1978, hefur hann ekki heyrt frá
henni.
Skýrslur úr ýmsum áttum
benda til aö „horfnum” föngum
hafi verið hrint út úr þyrlum á
flugi. Aðrar halda þvi fram, að
íangar séu geymdir með bindi
fyrir augum eöa hettu á höföi, séu
i handjárnum og keöjum svo
mánuðum skipti. I einstöku til-
fellum hafa hinir „horfnu” þó
verið leystir úr haldi og skilaö til
þjóðfélagsins.
Staðfesting á aöstæöum i öðrum
búöum, sem mennirnir tveir
nefndu: Perlunnii Cordoba, kom
i vitnisburði Gracilu GEUNA, 26
ára Argentinubúa sem nú býr er-
lendis. „Ég var flutt i herbúöir
sem heita Perlan, og þar var ég
pyntuð grimmdarlega”. Nakin og
með járn um úlnliði og ökla var
hún lögð á rúmbotn og pyntuð
með raflosti. Verðir spörkuðu i
hana og slógu með kylfum er þeir
yfirheyrðu hana.
Graciela, sem var háskólanem-
andi i Cordoba, „hvarf” er 20
vopnaöir menn rændu henni og
eiginmanni hennar Jorge Omar
CAZORLA. Mannræningjarnir
vor óeinkennisklæddir, en siöan
komst hún að raun um, að þeir
voru óbreyttir hermenn, liösfor-
ingjar og starfsmenn hersins:
hópur, sem vann undir stjórn
njósnardeildar Ibarren hershöfð-
ingja, sem á hinn bóginn var
undir beinni stjórn Þriðju her-
sveitarinnar. Er hjónin reyndu að
flýja fékk Jorge Omar Cazorla
skot i bakið og dó. Loks ári eftir
brottnámiö fengu foreldrar Gra-
cielu vitneskju um að hún væri á
lifi.
Enda þótt pólitisk brottnám i
Argentinu væru tiökuö á miðjum
sjöunda áratugnum, á stjórnar-
dögum Perons, var þaö ekki fyrr
en herinn tók völd 24. mars 1976
að „mannshvörf” voru iðkuð i
stórum stil. Hámarkinu, sem
voru 100 manns á mánuöi, var náð
árin 1976 og 1977, en dregið hefur
úr fjölda þeirra á seinustu árum.
Enn eru „mannshvörfin” þó
stunduö: 30 ný mál bárust Amn-
esty til eyrna 1980. Heildarfjöldi
„horfinna” er u.þ.b. 15.000.
Ekki er að fullu ljóst hvers
vegna „mannshvarf” hefur verið
svo mjög tiðkað i Argentinu. Her-
foringjastjórnin hefur alloft
látið i það skina að „manns-
hvarf” hafi verið nauðsynlegt
vopn i hinni „grófu” baráttu gegn
undirróðursmönnum. Mannrétt-
indastofnanir landsins, t.d. Rann-
sóknarstofnun i lögfræði og
félagsfræði, heldur þvi fram, að
„mannshvarf” hafi verið með-
vituð stjórnarstefna hersins og
hafi öryggissveitirnar fylgt henni
kerfisbundiö.
Alþjóðlegar mannréttinda-
hreyfingar hafa einnig visað á
bug að opinberir aðilar beri enga
ábyrgð á „mannshvarfi”. Skýrsla
Vinnuhóps Sameinuöu þjóðanna
um „mannshvarf” greinir frá, aö
upplýsingar séu til um sjö til niu
þúsund mál af þessu tagi i Argen-
tinu. Fimmhundruð þessara mála
hafa veriö greind og sýnir sú
greining að mjög ósennilegt sé að
mannránin hafi ekki verið framin
af opinberum starfsmönnum.
Meöal „grunaöra einstaklinga”
eða „andófsmanna”, sem
„horfið” hafa, eru lögfræöingar,
luan
Juan CHAVES Hoyos fæddist
1958. Hann starfaði I Hylsa stál-
iðjuveri og var jafnframt
nokkurskonar trúnaöarmaður
verkafólksins, þangað til að hann
var numinn á brott 7. eða 8.
september 1978 i Mexikó borg.
Hann hefur sést i „Campo Militar
No.l” i Mexikó borg. Þrir fangar
sem var sleppt úr leynilegu fang-
elsi I Mexikó borg i desember
1979, sögðu aö hann hafi ennþá
verið á lifi þann 5. júli 1979, en þá
var hann fluttur á óþekktan stað.
Aðstæður
Amnesty International hefur
undir höndum nafnalista 400
manna sem hafa horfið i Mexikó
siðan 1972. Það eru til skýrslur frá
fólki sem hefur veriö haldiö i
nokkra mánuði i leynilegum
fangelsum, en siðan veriö sleppt.
Þaö talar mikið um aö fangar séu
pyndaðir. Mörg fangamál i Mexi-
kó hafa veriö borin undir Am-
nesty International eru um fólk
sem hefur starfaö I verkalýös-
félögum, stúdentasamtökum eöa
verið aö gagnrýna stjórnina.
Amnesty Internationai hefur
oftar en einu sinni látiö i ljós
áhyggjur til stjórnvalda vegna
„mannshvarfa”. Flores Sanches
rikissaksóknari i Mexikó skýröi
frá þvi að I 314 tilvikum um
mannshvörf, sem rikisstjórnin lét
rannsaka höfðu 154 falliö i skær-
um við herinn, 89 eru eiphvers-
staöar i felum en hinir höföu látist
* / • <■..... • \
Juan Chaves Hoyos, Mexfkó. 23
ára, iönverkamaöur, „hvarf” 8,
sept. 1978.
af öðrum orsökum, sem yfirvöld
komu ekki nálægt. Þessar opin-
beru skýrslur léttu ekki þeim
áhyggjum sem Amnesty Inter-
national hefur af öryggi þeirra
manna sem haldið er i leyni-
legum fangelsum i Mexikó og
stööugt berast skýrslur um
mannshvörf þaðan.
Hvað gerá skal
Vinsamlegast skrifaöu bréf og
spyrðu hvar Juan Chavez Hoyos
er og um heilsufar hans. I bréfi
þinu skaltu lýsa áhyggjum þinum
af fjölda „mannshvarfa” i
Mexikó á siöastliönum árum, Þú
skalt biöja yfirvöld i Mexikó aö
gera allt sem i þeirra valdi
stendur aö upplýsa þessi
íæknar, hjúkrunarkonur, verka-
lýösleiötogar, prófessorar
og aörir kennarar, visindamenn,'
sálfræðingar, félagsráögjafar,
verkfræðingar, blaðamenn, menn
i herþjónustu og fangar i fang-
elsum. Námsmenn og verkamenn
eru stærstu hóparnir. Heilar fjöl-
skyldur hafa „horfiö” þ.á m.
vanfærar konur, börn og jafnvel
ungabörn.
Siöan 1976 hafa yfir 50 börn
horfiö. Areiöanlegar heimildir
segja að flest þeirra séu börn,
sem fæðst hafa i varðhaldi, eins
og t.d. i Vélvirkjaskóla Sjóhersins
i Buenos Aires, eftir brottnám
mæðra þeirra. En einnig eru
þekkt mál sjö annarra litilla
barna sem „hurfu” er foreldrar
þeirra voru gripnir af öryggis-
vörðunum. Einni þeirra, Jorge-
linu PLANAS, fæddri i Rosario 5.
ágúst 1973, var rænt ásamt móður
sinni Christinu PLANAS 32, ára
gömlum háskólanema, i mai 1977
i Buenos Aires. Af hvorugri hefur
frést siöan.
Enda þótt ameriska millirikja-
nefndin um mannréttindi hafi
skorað á argentinsku stjórnina aö
skila börnum þessum til foreldr-
anna eða annarra náinna ætt-
ingja, er nú á döfinni i Argentinu
ný ættleiðingarlöggjöf, sem mun
enn frekar torvelda ættingjum
barnanna að hafa upp á þeim.
Opinberlega neitar stjórnin
allri ábyrgð. llabeas corpus
beiönir (þ.e. réttarkrafan um aö
hinn „horfni” verði leiddur fyrir
rétt), voru næstum alltaf settar á
spjaldskrá i réttarkerfinu, en
ekki hefur kröfu þessara veriö
sinnt i einu einasta máli.
1 sumum rikja Miö og Suöur
Ameriku hefur kúgunaraöferöin
„mannshvarf” nýlega veriö tekin
upp.
i Bóliviuhafa a.m.k. 19 „hvarf”
mál verib staöfest siöan herfor-
ingjastjórn tók viö völdum i júli
1980. Þaö hefur auöveldaö fram-
gang aðferðarinnar aö bólivisk
yfirvöld hafa hingaö til brugðist
þeirri skyldi að setja lög um,
hvernig staöið skuli að löglegri
handtöku. Sumar fjölskyldnanna
grunar aö ættingjar þeirra séu i
haldi innan herskálanna I höfuö-
borginni La Paz.
I Paraguay hafa, aö þvi er
fregnir herma, horfið 16 manns
siöan I mai 1979. Viö og viö hafa
menn „horfið” á árinu 1980. Auk
þess hafa 43 Paraguaymenn
horfiö i Argentinu frá 1976 til 1979,
sem bendir til sambands milli
öryggissveita þessara tveggja
landa.
Ariö 1979 sendi Amnesty
stjórninni i Brasiliu nöfn yfir 60
manna sem „horfiö” höfðu i land-
inu á undangengnum árum,
margir þeirra voru taldir hafa
veriö pyntaöir til dauða.
„Mannshvarf” i ýmsum lönd-
um rómönsku Ameriku mun
verða áhyggjuefni þar til hvert.
einasta mál hefur verið rann-
sakað og leitt til lykta. Þegar á
heildina er litið, gæti virst svo
sem umfang aöferðarinnar hafi
náð hámarki. Afl og þungi alþjóö-
legra þrýstihópa hefur ef til vill
haft áhrif i þessa veru.
Ef svo er, að fjöldi „manns-
hvarfa” fari minnkandi i róm-
önsku Ameriku, er það einnig
rétt, aöaöferöin hafi náö fótfestu I
öörum heimsálfum. Verður
fjallaö um. Afriku og Ásiu i næstu
grein.
„mannshvörf ”, svo aö fjölskyldur
þeirra geti haft samband viö
þetta fólk.
Skrifiö til:
Sr. D. Lopez Portillo
Presidente de la Kepública
Los Pinos
Mexico 1 DT F.
Mexico
Bréf til stuönings Juan
CHAVES Hoyos (Mexlkó) og bréf
til stuðnings fanga i Eþiópiu
liggja frammi til undirskriftar
fyrir almenning á skrifstofu Is-
landsdeildar Amnesty Inter-
national, Hafnarstræti 15, 2h, en
skrifstofan er opin á þriðjudögum
15.30 til 17.30.