Þjóðviljinn - 19.01.1982, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 19.01.1982, Qupperneq 16
mðvminn Þriðjudagur 19. janúar 1982 Kópavogur og Hafnarfjörður: Kosið um hundana nú í vor Bæjarstjórn Kópavogs hefur nú samþykkt að samhliða bæjarstjórnar- kosningum þar i vor, skuli atkvæði greidd um það, hvort hundahald verði framvegis leyft í bænum. Er þessi ákvörðun tekin eftir ósk heilbrigðis- nefndar. Björn Þorsteinsson, bæjarritari i Kópavogi, sagði aö enn heföi þó aöeins fyrsta skrefiö veriö stigiö i þessum efnum: aö atkvæða- greiöslan skuli fara fram og hvenær. Eftir er hinsvegar að móta það, hvernig að atkvæöa- greiöslunni verður staöiö að ööru leyti en mikilvægt er, þegar at- kvæði eru greidd um viökvæm mál, að spurning eöa spurningar séu skýrar og afdráttarlausar, þannig að ekki megi eftirá túlka úrslitin á ýmsa vegu. Ekki munu Kópavogsbúar vera einir á báti i þessum efnum þvi Hafnfirðingar hafa ákveðiö samskonar atkvæöagreiðslu hjá sér við sama tækifæri. —mhg AOalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfsmenn hlaðsins I þessum simum: Ritstjóm 81382, 81482 og 81527, umbrot 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga ki. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaösins I sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663 Kópavogsbúar og Hafnfirðingar fá tækifæri til að greiða atkvæði meö eða móti hundahaldi i svcitarstjórnarkosningunum i vor. Það var þröng á þingi þegar ljósmyndari Þjóðviijans leit við i fyrri umferö forvaisins á laugardag. A myndinni má m.a. sjá Bjargeyju Elíasdóttur, tJrsúiu Sonnenfeldt, Sölva ólafsson, Eirík Þorleifsson, Finnboga Júliusson, Guðrúnu Ágústsdóttur og Guðrúnu Helgadóttur. Við kjörstjórnarborðiö sitja Þór- unn Klemensdóttir og Skúli Thoroddsen. Niðurstöður fyrri umferðar forvals ABR: Konur sækja á Niðurstöður fyrri umferðar forvals Alþýðubandalags- ins i Reykjavik vegna borgarstjórnarlista urðu þær að í efstu tíu sætunum voru Guðrún Ágústsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Þorbjörn Broddason, Margrét Björnsdóttir, Arthur Morthens, Gunnar Gunnarsson, Skúli Thorodd- Guðrún Hallgrímsdóttir, Sigurður Harðarson og sen, Þórunn Klemensdóttir, i þessari röð. Tilnefningar dreiföust á rúm- lega 140manns,en kjörnefnd birti 34 nöfn úr tilnefningarumferöinni sl. laugardagskvöld. í þeim hópi eru 17 konur og margir karlar. Fyrri áfangi forvalsins gegndi þvi hlutverki aö tilnefna menn til þátttöku I siöari hluta þess, sem fram fer föstudaginn 29. þ.m. og laugardaginn 30. janúar. Kjörnir borgarfulltrúar voru ekki kjör- gengir i fyrri umferðinni en eru þaö sjálfkrafa i seinni umferö gefi þeir kost á sér. Þar bætast þvi fimm nöfn viö sem til álita koma i seinni umferö forvalsins, þ.e.a.s. Adda Bára Sigfúsdóttir, Guö- mundur b. Jónsson, Guðrún Helgadóttir, Siguröur G. Tómas- son og Sigurjón Pétursson. í siðari umferö forvalsins verö- ur raðað á framboðslistann og eru þeir sem hér hafa verið nefndir á undan allir i kjöri gefi þeir kost á sér. Auk þeirra koma til álita samkvæmt niðurstööum fyrri umferöar forvalsins og stafrófs- röö eftirtaldir einstaklingar að þvi til skyldu að þeir ijái máls á þvi: Arna Jónsdóttir, Alfheiöur Steinþórsdóttir, Arnmundur Bachman, Bjargey Eliasdóttir, Elisabet borgeirsdóttir, Ester Jónsdóttir, Grétar Þorsteinsson, Guöjón Jónsson, Kristin ólafsdóttir, Kristján Valdimars- son, Kristvin Kristinsson, Helgi Samuelsson, Ólöf Rikharösdóttir, Lena Rist, Pétur Reimarsson, Ragnar Arnason, Sigurður Magnússon, Stefania Harðardótt- ir, Stefán Thors, Stella Stefáns- dóttir, Svanhildur Halldórsdóttir, Tryggvi Þór Aöalsteinsson, Þor- björn Guðmundsson og Vilborg Harðardóttir. Þátttaka i forvalinu var betri en tiðkast hefur i fyrri tilnefning- arumferðum i forvali Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik. 200 ihanns tóku þátt i fyrri umferö- inni. —ekh Forvalið í Hafnarfirði: Þorbjörg og Rannveig efstar Fyrri umferð forvals Alþýðu- bandalagsins I Hafnarfirði fór fram á laugardaginn og hafði stjórn félagsins beint þeim til- mælum til félagsmanna að til- nefna jafnmarga af hvoru kyni. Hallgrimur Hrqftmarsson for- maður félagsins sagði i gær að þetta markmið hefði náðst í fyrri umferðinni og að sömu tilmælum væri beint til félagsmanna i siðari umferð, sem fram fer 6. febrúar, en þá verður raðað óskuldbundið i listanna. Þorbjörg Samúelsdóttir og Rannveig Traustadóttir urðu efstar I fyrri umferðinni. Til siö- ari umferöar hefur uppstillinga- nefnd stillt upp tólf nöfnum og eru þar þeir sem flest atkvæöi fengu i fyrri umferð aö undanskildum fjórum sem báöust undan og ein- um sem kjörnefnd bætti viö. beir sem gefið hafa kost á sér til seinni umferöar eru sem hér segir i staf- rófsröö: Bragi V. Björnsson, Guömundur Rúnar Arnason, Gunnlaugur R. Jónsson, Hall- grimur Hróðmarsson, Harpa Bragadóttir, Magnús Jón Arna- son, Páll Arnason, Rakel Kristjánsdóttir, Rannveig Traustadóttir, Sigurbjörg Sveins- dóttir, Siguröur Gislason og Þor- björg Samúelsdóttir. Þátttaka i fyrri umferðinni var skikkanleg að sögn formannsins, en hann kvað reynsluna vera þá að i siöari umferð væri þátttakan fyrst almenn meðal félags- manna. —ekh Suðurlandssíldin: Stofninn kominn í 250 þús. lestir stefnt að því að ná honum uppí 300 þús. lestir segir Jakob Jakobsson, fiskifræðingur Okkur hefur gengið illa að finna sildina i haust og mældum til aö mynda aöeins 50 þúsund lestir rétt fyrir jólin, en svo þegar við fórum út núna i byrjun jánúar fundum viö 250 þúsund lestir með bergmáls- mæSngu, þar af um 200 þús. lestir hryngingarstofn, sem er svipað þvi sem ég átti von á að stofninn væri, sagði Jakob Jakobsson fiskifræöingur, er bjóöviljinn leitaði fréttá af siöasta sildarleitarleiöangri hans. Jakob sagði að fyrstu árin eftir að farið var að mæla sildarstofninn á haustin heföi mátt ganga aö honum sem vfsum við Ingólfshöföa. En svo fyrir 2 árum breyttist þetta og sildin héltsig bæði i Lónsbug og inná fjörðum fyrir austan. Fyrir bragöið hefur verið erfiðara að mæla. Það sem kom mér á óvart nú eraði stofninum er mun meira af stórsild en ég átti von á, ég hélt aö magnið af stórsild væri mun minna, sagöi Jakob . Hann var inntur eftir þvi hve stór Suöurlandssildarstofninn gæti orðið miöað við æti á þessum slóðum og sagöi hann að þegar stofninn var stærstur, um 1960, heföi hann verið um 300 þúsund lestir. Siðan var hann ofveiddur og honum nærri eytt, fór niður i 10 til 15 þúsund lestir. Siðan 1970 hefur verið stefnt að þvi aö ná hrygningarstofninum aftur uppi 300 þúsund lestir. E n hvort hann geturoröiö stærrierannaö mál. A þeim árum þegar hann var 300 þúsund lestir voru tveir aörirsildarstofnar hér við land, Norðurlandssildin og islenska vorgotssildin. Þvi var um sam- keppni um æti að ræða. Nú er hún ekki til staðar, en á móti kemur að nú er verra áferði i sjónum en 1960, kaldari sjór og þvi verri afkomleikar fyrir sild- ina, þaö gæti verkaö á móti þeirri ætissamkeppni sem var hér áður fyrr. En viö biðum spenntir eftir þvi aö hrygn- ingarstofninn nái 300 þúsund lestum, sem ætti að geta orðið innan 5 ára, sagði Jakob Jakobsson. —S.dór T ónlístahátíð vændum! / 1 Fimmtugsafmæli F.Í.H. í febrúar Tónlistarunnendur eiga gott i vændum á næstunni: Félag is- lenskra hljómlista- manna boðar til tón- listahátiðar í tilefni fimmtugsafmælis fé- lagsins dagana 22.—27. febrúar næstkomandi. Margt og mikið verður á i þessu „eyrnanna boði”, m.a. endurvakin hin gamla kaffihúsa- stemmning, sem hér rikti á árunum fyrir strið, gamlar og góðar hljómsveitir dregnar fram og dunandi djass. Sverrir Garðarsson, formaður Félags isl. hljómlistamanna, sagði blaðinu, að hátiðadagskráin væri að renna saman og ekki væri vert að tilgreina menn eða hljóm- sveitir á þessu stigi lið fyrir lið. En örugglega verður eftirtalið á dagskrá: Hátiðin verður sett á Lækjar- torgi mánudaginn 22. febrúar og mun lúðrahljómsveit leika þar fyrir vegfarendur. Um kvöldið hefst siðan söguleg upprifjun félagsmanna’, saga félagsíns verður i máli, myndum og hljóð- færaleik afturábak — þ.e. býrjað verður á deginum i dag og endað á árinu 1932, en það ár var félagið stofnað. Þessi upprakning helstu æviatriða verður haldin i Breiðvegi (Broadway) frá mánu- degi til föstudágs og hefst alla dagana kl. 19.00. Tvö fyrstu kvöldin koma um tuttugu popp- hljómsveitir fram, gamlar og nýjar, á Breiðvegi. Hinn 23., 24. og 25. veróur tcam- húsamúsik á Hótel Borg eins og gerðist á árum áður. Jafnframt kemur hljómsveitin „Friðryk” fram á Lækjartorgi hinn 25. Popptónleikar eru einnig áform- aðir hinn 23., þ.e. á þriðjudeg- inum. Þannig er endalaust hægt að halda áfram, en við látum hér staðar numiö. Dagskrá hátiðar- innar verður birt siðar. Meðan á tónlistarhátiðinni stendur munu á annað hundrað hljómlistarmenn heimsækja sjúkrahús og stofnanir fyrir aldraða og öryrkja á Stór- Reykjavikursvæðinu og flytja vistmönnum list sina. „Okkur hefur lengi þótt þessu fóíki litið sinnt,”sagði Sverrir Garðarsson. „Við höfum oft rætt það okkar á mOli að koma á heimsóknum af þessu tagi, en aldrei getað sinnt þessu nema mjög takmarkað. Vonandi veröa heimsóknir okkar nú aðeins byrjunin á föstum dag- skrárlið.” Þá mun FIH gefa út vandaða tvöhundruð siðna bók sem skiptist aö jöfnu i mál og myndir um sögu félagsins þau 50 ár, sem það hefur lifað. Við óskum afmælisbarninu til hamingju og biðjum þaö að lifa sem lengst. ast

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.