Þjóðviljinn - 23.01.1981, Síða 1

Þjóðviljinn - 23.01.1981, Síða 1
UOWIUINN Föstudagur 23. jan. 1980 18. tbl. 46. árg. Ýmsir mála - vextir rijjaöir upp — Sjá síöur 6 og 7 Þessi mynd var tekin I álverinu iStraumsvik í gær. — Ljósm. gel. 139 fóstrur hafa sagt upp í fyrradag tók Bergur Feiixson, forstöðumaður Dagvistar barna i Reykjavik,á móti uppsögnum 139 fóstra. Koma uppsagnirnar i kjöl- far óánægju meö niöurstöðu sér- kjarasamninga og of fáa undir- búningstima og taka þær gildi 1. febriiar n.k.. Bergur Felixson sagöi i gær, aö i þessum hópi væru nokkrar for- stööukonur, kennarar og þroska- þjálfar sem eru i störfum fóstra og umsjónarfóstrur meö dag- vistun á einkaheimilum. Fóstrur hjá borginni eru um 160 og lætur því nærri að 20 þeirra hafi ekki sagt upp störfum. Þá hafa 13 fóstrur á dagheimili Borgar- spitalans sagt upp störfum. Uppsagnarfresturinn er þrir mánuöir en Bergur sagði aö sam- kvæmt lögum um opinbera starfsmenn gæti borgin frestaö framkvæmd uppsagna i þrjá mánuöi. Björgvin Guðmundsson, for- maöur launamálaráðs borgar- innar.sagði i gær, aö á borgar- ráösfundi s.l. þriðjudag heföi undirbiíningstlminn veriö til umræöu en borgarstjórn visaöi ákvöröun um fjölda þeirra til borgarráös. Þá hefði Magnús Óskarsson vinnumálastjóri borgarinnar lagt fram yfirlit um hversu marga launaflokka fóstrur hefðu fengiö til hækkunar I sérkjarasamningunum, en á borgarstjórnarfundinum var dregið I efa að þeir væru jafn margir og samkomulag hafði náðst um. A.I. Fjárhagsáætlun borgarinnar samþykkt: Raunhæf áætlun en ekki loforðalisti Þetta er vönduð f járhagsáætlun og likleg til að standast út árið eins og fyrri áætlanir þessa meirihluta ef ekki verður koll- steypa i þjóðfélaginu, sagði Sigurjón Pétursson m.a. i umræð- um um fjárhagsáætlun Reykja- vikurborgar sem samþykkt var i gær. Sigurjón visaði á bug tiilög- um Sjálfstæðisflokksins um stór- felldan niöurskurð á útgjöldum borgarinnar, sérstaklega tiliögu Si ómannaveridall boðað , , ... ........ þann 9. febrúar á togurunum og 16. febrúar á bátunum — Svo sannarlega förum við ekki út i þessar aðgerðir með glöðu geði, en hin ósvifna fram- koma forráðamanna LtÚ i Framfærsluvísi- talan 1. nóv. til 1. janúar Hækkun 12,5% Hagstofa íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu um vísitölu framfærslu- kostnaðar þann 1. janúar s.l. og reyndist hún hafa hækkað um 12,49% frá 1. nóvember. 1 bráöabirgðalögunum sem sett voru á gamlársdag var m.a. kveðið á um þaö, að framfærsluvisitala skyldi reiknuð Ut miðaö við verölag. i byrjun janúar 1981, og að visitalan yrði sett á 100 frá þeim tima. Það er vegna þessa laga- ákvæöis sem framfærslu- visitalan var reiknuö Ut sér- staklega nú, þótt ekki væru liðnir nema tveir mánuðir frá siðasta Utreikningi, en að jafnaði er hækkun fram- færslukostnaðar mæld á þriggja mánaða íresti. Ekki er enn séð hvað verð- bætur á laun munu hækka þann 1. mars. 1 þeim efnum er i fyrsta lagi eftir að sjá hverjar verðhækkanir verða i janUarmánuði og eins liggur ekki fyrir enn hver verða áhrif skerðingar- ákvæða ólafslaga, en þau ákvæði munu lækka verð- bætur á laun i siðasta sinn á þessu ári þann 1. mars. Hitt er ljóst að hverjar svo sem verðhækkanirnar reynast frá 1. nóv. s.l. til 1. febrUar n.k. þá verða það sjö visitölustig, sem falla niður i' verðbótum þann 1. mars vegna setningar bráðabirgðalaganna á gaml- ársdag. Aðrar hækkanir verða bættar i kaupi þá þegar. samningamálunum hreinlega hrekur okkur til að boða verkfall, sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands islands, i samtali við Þjóðviljann i gær, eftir að sambandsstjórn og samn- inganefnd sambandsins hafði samþykkt að skora á aðiidarfélög Si að boða verkfall. Stefnt er að verkfalli á togurunum þann 9. febrúar en á bátaflotanum þann 16. febrúar. óskar sagði, að það hefði verið alger einhugur á fundinum i málinu. Astæðuna fyrir þvi, að verkfall hefst ekki samtimis á bátum og togurum, er fyrst og fremst sú, að öll aðildarfélög Sjómannasambandsins hafa enn ekki aflað sér verkfallsheimildar, einkum eru það sjómannafélögin á Austfjörðum. Þá er þess að geta, að sjómenn á Vestfjörðum verða ekki með i Óskar Vigfússon, formaður mannasambandsins. verkfallinu, vegna þess að þeír eru með sérsamninga við vest- firska Utgerðarmenn, og þeir samningar eru ekki lausir. Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Llú hefur látið hafa það eftir sér, að verkfall komi útgerðarmönnum ekkert illa. Þar á hann við veiðitak- markanir þær, sem ákveðnar hafa verið og myndu koma inni dæmið ef flotinn stöðvast vegna verkfalls. Óskar VigfUsson sagði um þetta atriði, að það væri i raun sama hvenær ársins sjómenn boðuðu verkfall vegna þessa atriðis, en aftur á móti væri staða sjómanna sterk nú, vegna vertiðarbáta. — Við erum tilbúnir til samn- inga hvenær sem er og vonum auðvitað að ekki þurfi að koma til verkfalls, það er algerlega undir Utgerðarmönnum komið hvort til þess kemur eða ekki, sagði Óskar Vigfússon að lokum. _ —S.dór Ríkisverksmiðjudeilan: Verkfalli frestað Um miðnætti sl. þegar Þjóðviljinn hafði samband við menn á sáttafundi i rikisverksmiðjudeilunni hafði samkomulag ekki náðst, en virtist i augsýn, eins og einn samningamanna orðaði það. Verkfall átti að skella á i rikisverksmiðjunum um miðnætti sl. en talið var öruggt að þvi yrði frestað, þar sem samkomulag virtist i augsýn. En jafnvel þótt menn yrðu sammála taldi sá,er Þjóðviljinn talaði við, svo mikla vinnu eftir við samningsgerðina en henni lyki tæplega fyrr en I dag. —S.dór Kockum í Svíþjóð: 1500 sagt upp Þangað fóru fjölmargir íslendingar til vinnu 1967-1969 i sænska stórblaðinu Dagens Nyheter er skýrt frá þvf, að skipasmiöastöðin Kockums i Malmö, þar sem tugir ef“ ekki hundruö íslendinga fengu vinnu á kreppuárunum hér 1967 til 1969, þegar landflótti var sem mestur, neyðist til að segja upp á næst- unni 1500 starfsmönnum. Og þetta mun þýða að um 4 þúsund manns missi atvinnu sina á Skáni, segir DN. Engin leið er að afla upplýsinga um hve margir íslendingar vinna enn hjá Kockum, en að sögn þeirra er gerst vita munu þeir vera fáir sem þar vinna ennþá. Flestir tslendinganna voru ráönir til ákveðinna verkefna, en að þeim loknum fóru þeir annað. Astæðuna fyrir þessum upp- sögnum segir DN vera þá, að tap fyrirtækisins á siðasta ári hafi numið hálfum miljarði sænskra króna og fyrirsjáanlegt sé enn meira tap i ár. Þá var fyrirtækinu veittur rikisstyrkur sem nam 1.1 miljarði s. króna og átti hann að duga til ársins 1984, en ljóst er að hann verður upp urinn I árslok 1981. —S.dór um að lækka framlag til launa- hækkana úr 3 i 2,5 miljarða g.króna. Hann sagði að þessi upp- hæð ásamt öðrum ráðstöfunum sem i áætluninni væru væri trygging fyrir þvi að ekki þyrfti að skera niður áætlunina á miðju sumri eins og reglan hefði verið meðan Sjálfstæðisflokkurinn fór með stjórn borgarinnar. Það er sanngjarnt og rétt, að fjárhagsáætlunin segi Reykvik- ingum satt um það, hvað á að framkvæma á árinu.frekar en að hún sé loforðalisti, sem ekki er staðið við þegar til kastanna kemur, sagði Sigurjón og minnti á að niðurskurður Sjálfstæðis- flokksins á miðju sumri heföi venjulega bitnað hvað mest á byggingu dagvistarheimila. Aætlunin var samþykkt með 8 atkvæðum meirihlutans. Sjá frétt á baksiðu og lista yfir styrkveit- ingar á bls. 3. —AI Skoðanakönnun Dagblaðsins: Fylgis- hrun hjá Krötum Dagblaðið birti i gær niðurstöður skoðanakönnun- ar sinnar um fylgi stjórn- málaflokkanna. Af þeim 600 sem spurðir voru sögðust um 45% vera óákveðnir, neituðu að svara eða sögðust engan flokk styðja. Af hinum sem lýstu fylgi við fiokkana kváðust 45,6% styðja Sjálf- stæðisflokkinn, 23,9% Fram- sóknarflokkinn, 18,3% AI- þýðubandalagið og 10,7% Al- þýðuf lokkinn, en 1,5% kváðust styðja aðra. Samkvæmt þessum niður- stöðum er fylgi Alþýðu- bandalagsins og Fram- sóknarflokksins mjög svipað og i siðustu alþingiskosning- um. Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar bætt viö sig verulegu fylgi úr 37,3% i 45,6%, en Dagblaðið hefur enn ekki birt beinar upp- lýsingar um það hvernig þetta fylgi skiptist milli stjórnar og stjórnarand- stöðu. Út frá niðurstöðum i skoðanakönnun Dagblaðsins á dögunum um fylgi og and- stöðu við rikisstjórnina er þó augljóst aö a.m.k. um helm- ingur þeirra sem telja sig Sjálfstæðismenn og þátt tóku i skoðanakönnuninni lýsa stuðningi viö rikisstjórnina. Athygli vekur, að sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönnunarinnar hefur Alþýðuflokkurinn tapaö um 40% af fylgi sinu i siöustu alþingiskosningum, og fengi samkvæmt þvi að- eins 6 þingmenn, ef nú væri kosið til alþingis.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.