Þjóðviljinn - 23.01.1981, Síða 2

Þjóðviljinn - 23.01.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐvVlJINn' Föstudagur'23. jantiar 1981. Kærleiksheimilid Mamma, á lappir með þig! Það er svolítið óvænt yfir öllu! (Er ekki orku- sparnaðarvikan?) Bandarikjamenn burðast samanlagt með meira en mil- jarð kilógramma fitu eða yfir- vigt eins og það heitir á tillits- sömu máli. Það er jafngildi yfir 5,5 biljarða hitaeininga eða samsvarar orkunni úr 5 mil- jörðum litra bensins. Breytt i eldsneyti mundi þetta duga til að aka 900 þúsund bandariskum bilum i heilt ár, eöa til að raflýsa Boston, Wash- ington, San Francisco og Chi- cago. (Timaritið „Self”) spörum RAFORKU Stórveldin vilja endilega að allir séu vinir þeirra. Við vcrð- um svo að sætta okkur við að sitja mitt á milli tveggja óvina. vidtalið Spjallað við Þuríði Baxter hjá Máli og menningu Allt of lítið af frum- sömdu efni Hvernig skyldi ástandið vera i bókaútgáfunum ^ftir að vertiðin mikla er afstaðin? Leggjast menn I leti, eða undir feld til að hugsa fyrir næstu törn, eða er starfið samfellt og stöðugt allt árið? Þjóðviljinn spjallaði við Þuriði Baxter bókmennta- fræðing.sem starfar hjá Máli og mcnningu, um útgáfumál. — Hvað er að frétta hjá ykkur i MM, er eitthvað að gerast svona rétt eftir áramót? Já, það er að koma út ný bók hjá okkur, barnabókmennta- saga eftir Silju Aðalsteins- dóttur, sem hún hefur verið að vinna að i nokkur ár. Ég á von á þvi að bókin verði komin á markað eftir helgina. Hún verður kynnt þegar þar að kemur. — Hvernig gekk vertiðin hjá ykkur, svo notað sé sjómanna- mál? Ég held að það megi segja að hún hafi gengið mjög þokka- lega. Það liggur ekki fyrir neitt uppgjör, en við vitum að nokkrar bækurnar seldust mjög vel,t.d. Pelastikk eftir Guðlaug Arason og bók þeirra Einars Olgeirssonar og Jóns Guöna- sonar: Island i skugga heims- valdastefnunnar. Nú aðrar bækur fylgja fast á eftir. Þaö má koma þvi að hér aö við erum að fá indiánabókina Heygðu mitt hjarta við undað hné aftur, en hún seldist upp fyrir jólin og okkur tókkst ekki að láta binda meira inn þá. — Hvað verður unt þær bækur sem varð að fresta eftir brun- ann i prentsmiðjunni Hólum? Eftir þvi sem ég best veit er von á bók Brynjólfs Bjarna- sonar Heimur rúms og tima i vor, en sennilega biöur ritsafn Sverris Kristjánssonar fram á haust. — Hvað er gert i bókaútgáfu- fyrirtæki fyrri hluta árs? Það er verið að reyna að ganga frá útgáíulista fyrir þetta ár, en það er enn margt óljóst i þeim efnum. — Berst mikið af frumsömdu efni til ykkar? Allt of litið. Þaö er helst að kornung ljóðskáld koma með verk sin. Við höfum okkar föstu höfunda, en það eru fáir sem koma fram. — Þú nefnir ljóðskáld, halda ljóðin sinu? Þau hafa sinn ákveðna les- endahóp, ég held að þau standi alltaf fyrir sinu. — Að lokum, í hverju er þitt starf fólgið? Það má segja að ég fylgi verkunum eítir, þegar búið er aðákveða aðgefa þau út. Það er langmest að gera á haustin, en ég hef verið að reyna aö dreifa vinnunni yfir ailt árið, að ná þvi inn sem á að koma út og reyna aðkoma bókunum i vinnslu sem fyrst en það vill ailtaf veröa þannig að allt hrannast á haust- mánuðina. —ká Afmælisár i Aski: Boðið upp á nýjungar í hverjum mánuði Pétur Sveinbjarnarson i Aski bauð blaðamönnum i vikunni að smakka nýjung hér á landi, sem hann hefur fengið einkaumboð fyrir, svokallaða „broasted” kjúklinga, en það er einungis fyrsta nýjungin af tólf sem hann ætlar að taka upp á árinu i til- efni þess, að Askur er nú 15 ára. ,,Broasted”-kjúklingarnir eru matreiddir þannig, að fyrst liggja þeir i sérstökum krydd- legi i 12 tima, þá er þeim velt uppúr ákveðnu deigi og loks djúpsteiktir viðháþrýsting. Með þessari aðferð á að vera tryggt, að bragð og safi haldist i kjötinu og óhætt er að segja, að a.m.k. viðstöddum blaðamönnum bragðaðist nýja framleiðslan vel. Auk kjúklinganna hefur svo verið tekið upp á að steikja fisk og kartöflur á sama hátt (án marineringar þó) og verða þessir rétir framvegis á boðstól- um i Aski á Suðurlandsbraut 14, eingöngu, þar sem Hermann Ástvaldsson veitingastjóri og hans samstarfsfólk hefur sér- staklega þjálfað sig i steik- ingarlistinni að undanförnu. Pétur i Aski; Býður uppá nýtt góðgæti á afmælisárinu.— Ljósm. —gel. Hægt er að fá matinn sendan út i handhægum umbúðum. Sérstakt kynningarverð verð- ur á réttunum fyrstu vikuna: 14 kr. stykkið af kjúklingunum, 4 kr. fiskstykkið og kartaflan á krónu. Þá lækkar verðið eftir þvi sem fleiri stykki eru keypt i einu og rétt er að benda partifólki og öðrum á, að væng- irnir eru boðnir sem snakk- matur, steiktir með sömu að- ferð. ----vh.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.