Þjóðviljinn - 23.01.1981, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJIN'N Föstudagur 23. janúar 1981.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
75 ÁRA
i tilefni 75 ára afmælis Dagsbrúnar verður
opið hús og veitingar i Lindarbæ sunnu-
daginn 25. janúar frá kl. 3—6 e.h., fyrir
Dagsbrúnarmenn og maka þeirra og vel-
unnara félagsins.
Stjórn Dagsbrúnar.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i smiði á festihlutum úr stáli fyrir
dreifilinur.
Útboðsgögn nr. 81001 verða seld á skrif-
stofu Rafmagnsveitna rikisins að Lauga-
vegi 118 Reykjavik á kr. 50 frá og með
föstudeginum 23. janúar 1981.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu okkar
föstudaginn 13. febrúar kl. 14.00 að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Rafmagnsveitur rikisins.
Dagkennsla i Fellahelli:
Leikfimi, Enska
Athugið: Barnagæsia á staðnum.
Kvöldkennsla i Breiðholtsskóla
Enska, Þýska
Upplýsingar i sima 12992 og 14106.
LAUSSTAÐA:
Staða lektors i tannvegsfræðum i tann-
læknadeild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar. Staðan verður veitt til þriggja
ára.
Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn
sinni rækilega skýrslu um visindastörf
sin, ritsmiðar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik,
fyrir 20. febrúar n.k.
Menntamálaráðuneytið, 19. janúar 1981.
Akerrén-styrkurinn 1981
UrBo Xkerrén, læknir i Sviþjóð, og kona hans tilkynntu
islenskum stjórnvöidum á sinum tima, að þau hefðu i
hyggju aö bjóöa áriega íram nokkra fjárhæð sem ferða-
styrk handa islendingi er óskaöi að fara til náms á
Norðurlöndum.
Hefur stykrurinn veriö veittur nitján sinnum, i fyrsta
skipti vorið 1962.
Akerrén-ferðastyrkurinn nemur aö þessu sinni 1.500 sænsk-
um krónum. Umsóknum um styrkinn, ásamt upplýsingum
um náms-og starísleril, svo og staðfestum afritum próf-
skirteina og meðmæla, skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 1. mars n.k.
I umsókn skai einnig greina, hvaöa nám umsækjandi
hyggst stunda og hvar á Norðurlöndum. — Umsóknar-
eyðublöö fást i ráðuneytinu.
.Menntamálaráðuneytið
20. janúar 1981.
Hvernig er hægt að spara rafmagn?
Þvottavél
og þurrkari
1. Fyllum þvottavélina.
2. Sleppum forþvotti.
3. Tökum heitt vatn inn á vélina
ef hægt er. ,
4. Veljum lægra hitastig.
5. Kynnum okkur þá möguleika
sem þvottavélin býður upp á.
6. Þurrkum á snúru ef hægt er.
7. Notum þeytivinduna.
8. Fyllum þurrkarann hæfilega.
9. Ofþurrkum ekki.
10. Hreinsum siu þurrkarans.
1. Þvottavélin notar svo til jafn
mikla raforku hvort heldur
hún er full af þvotti eða hálf.
Fyllum þvi vélina eftir þvi
sem segir i leiðarvisi og þvo-
um sjaldnar.
2. Ef þvotturinn er ekki mjög ó-
hreinn er hægt að sleppa for-
þvotti, við það minnkar raf-
orkunotkunin um 20%.
3. A hitaveitusvæðum er hag-
kvæmt að taka heitt vatn inn á
vélina ef vatnsgæði og vélar-
gerð leyfa, þvi þá þarf ekki að
hita vatnið með rafmagni i
vélinni.
4. Ekki er ástæða til að þvo alltaf
á hæsta hitastigi sem þvottur-
inn þolir, heldur láta óhrein-
indin i þvottinum ráða. Raf-
orkunotkun þvottavélar sem
tengd er við kalt vatn er við
niutiu gráðu heitan þvott um 3
kWh, við 60 gr. C um 2 kWh og
við 25-40 gr. C um 1 kWh.
5. Þvottavélar bjóða upp á mjög
fjölbreytta möguleika, sem of
langt yrði að telja upp hér.
Kynnum okkur þvi leiðarvis-
inn. Nefna má að sumar teg-
undir eru með sparnaðarkerfi
sem rétt er að nota þegar
vélarnar eru ekki fylltar.
6. Það fer betur með þvottinn að
þurrka á snúru. Þurrkari not-
ar hverju sinni um 3 kWh.
Mikla orku má spara með þvi
að þurrka á snúru.
7. Aður en þvottur er settur i
þurrkara er best að þeyti-
vinda hann vel. Þvi betur sem
þvottur er undinn þeim mun
styttri verður þurrktiminn og
orkunotkunin minni.
8. Fylgjum leiðarvisinum þegar
sett er i þurrkarann. Litill
þvottur veldur þvi að heita
loftið fer of hratt i gegnum
hann. Við of mikið magn
þornar þvotturinn ójafnt og
hann krumpast. Þannig lengir
bæði of mikill og of litill þvott-
ur þurrktimann og eykur raf-
orkunotkunina.
9. Þurrktimi er háður þvi hvað
verið er að þurrka. Benda má
á að t.d. hlaupa bómullarföt ef
þau eru ofþurrkuð.
10. Munum eftir að tæma siuna i
þurrkaranum eftir notkun.
Þurrktiminn lengist ef það
gleymist.
Bókmenntir og
tónlist kvenna
Kvenréttindafélag ís-
lands heldur afmælishátiö
að K jarvalsstöðum nk.
sunnudag. Slík afmælis-
vika er árlegur viðburður
hjá félaginu, en tilgangur
þessa hátíðahalds er m.a.
sá að vekja athygli á f ram-
lagi kvenna á sviði bók-
mennta, vísinda og lista.
Kynnt veröa m.a. visindarit,
ljóðlist, skáldsaga, smásaga,
smásagnasafn og frumsamið tón-
verk. Bókasýning verður enn-
fermur i anddyri Kjarvalsstaða
á innlendum og erlendum bókum
eftir konur og um konur.
Höfundar og fleiri lesa úr bók-
unum Konur skrifa til heiðurs
önnu Sigurðardóttur, 99 ár, ævi-
minningabók Jóhönnu Egilsdótt-
ur, Hrifsum, ljóðabók eftir Berg-
Safnaðarfélög Langholtskirkju
hjóða eldra fólki i prestakallinu
til samverustundar á sunnu-
daginn kl. 3 i Safnaðarheimilinu
við Sólheima.
Borið verður fram kaffi, tón-
listarfólk skemmtir, lesið upp, og
svo, auðvitað, spjallað saman.
,,Við höfum áhuga á að kynnast
ykkur sjálfum, og högum ykkar,
og heitum þvi á yngri granna
þóru Ingólfsdóttur, Þetta er ekk-
ert alvarlegt, eftir Friðu A. Sig-
urðardóttur, island á brezku
valdsvæði 1914-1918, eftir Sólrúnu
B. Jensdóttur, og llaustviku eftir
Aslaugu Ragnars. Elisabet Gunn-
arsdóttir mun einnig fjalla um
bókina Kvennaklósettið sem hún
hefur þýtt.
Af tónlist verður flutt verkið
Sex japönsk Ijóð eftir Karólinu
Eiriksdóttur, en flytjendur verða
Signý Sæmundsdóttir, sópran-
söngkona, Gunnar Kvaran, selló-
leikari, og Bernard Wilkins
flautuleikari. Valva Gisladóttir
þverflautuleikari og Anna Rögn-
valdsdóttir fiðluleikari munu
flytja dúett eftir Bach og i lokin
mun Signy Sæmundsdóttir syngja
lög eftir Schubert við undirleik
Guðriðar Sigurðardóttur.
Afmælishátið K.R.F.l. hefst
kl.14.00 og i verði aðgöngumiða
eru kaffiveitingar innifaldar.
ykkar að aðstoða ykkur viö að
komast i Safnaðarheimilið, og
taka þátt i fagnaðinum með
okkur,” segir i orðsendingu frá
safnaðarfélögunum.
Hafi einhver, i prestakallinu,
áhuga á að komast á sam-
komuna, en vanti aðstoð til þess,
þá látið vita i sima 35750 milli kl. 5
og 7 i dag, föstudag.
Tónlistarfélag
Akureyrar:
Zu-
kovsky-
tónleikar
Þriðju áskriftartónleikar
Tónlistarfélags Akureyrar
verða haldnir laugardaginn
24. janúar n.k. i Borgarbiói
kl. 17.00.
Flytjendur eru átta manna
kammersveit undir stjórn
Pauls Zukovskys. Kammer-
sveitina skipa Rut
Magnússon, söngvari, Anna
Málfriöur Sigurðardóttir,
pianó, Gunnar Egilsson,
klarinett, Bernhard
Wilkinson, flauta, Carmen
Russel, selló, Helga Hauks-
dóttir, fiðla, Rut Ingólfsdótt-
ir, fiðla.
A efnisskrá verður tón-
verkið Pierrot Lunaire eftir
Schönberg, samið árið 1912.
Rut Magnússon hefur hið
vandasama hlutverk að
flytja ljóðið, sem er eftir
Giraud. Þetta verk var flutt
á Listahátið 1980.
Siðara verkefni kammer-
sveitarinnar verður klari-
nettkvintett eftir Brahms
(þ.e. fyrir klarinett og
strengjakvartett). Þessi
kvintett, sem Brahms samdi
árið 1891, þykir vera eitt af
áhrifamestu kammertón-
verkum hans. Einleikari hér
er Gunnar Egilsson.
Sala aðgöngumiða verður i
Bókabúðinni Huld og < ið inn-
ganginn.
Langholtsprestakall:
Eldra fólki boðið
til samverustundar