Þjóðviljinn - 23.01.1981, Blaðsíða 16
E
VOÐVIUMN
Föstudagur 23. janúar 1981.
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiðslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Góð
loðnu-
veiði
Aö sögn Andrésar Finnboga-
sonar hjá Loðnunefnd, var góð
loðnuveiði i gær og fyrradag, því
að á einum og hálfum sólarhring
tilkynntu 22 skip um afla, samtals
13,200 lestir. Aflinn fékkst af
Langanesi. Þetta er eiginlega
fyrsta loðnan sem veiðist á
þessari vetrarvertið.
Um siðustu áramót voru eftir
um það bil 95 þúsund lestir af
loðnukvótanum, sem ákveðinn
var fyrir siðustu haustvertið og
þessa vetrarvertlð. Andrés taldi
vist, að einhver skip sem ættu enn
eftir af sinum kvóta myndu biða
með veiðar þar til hrognafrysting
hefst, enda er margfallt hærra
verð greitt fyrir loðnuna til
hrognatöku en til bræðslu. Eins
og skýrt var frá i Þjóðviljanum i
gær, hefur verið samið um sölu á
1200 lestum af loðnuhrognum i ár
til Japans.
—S.dór
Skipuð
bygging-
arnefnd
Ríkis-
útvarps-
ins
Ég á vorí á að við komum sam-
an sem fyrst i næstu viku og tel
sjálfsagt, að hafist verði handa
úm útvarpsbygginguna eins fljótt
og aðstæður leyfa á þessu ári,
sagði formaður nýskipaðrar
byggingarnefndar Kikisútvarps-
ins, Hörður Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri, i viðtali við bjóð-
viljann i gær.
Menntamálaráðherra skipaði
auk hans i nefndina þá Vilhjálm
Hjálmarsson form. útvarpsráðs,
Ólaf R. Einarsson varaformann
þess og Benedikt Bogason verk-
fræðing. Verkefni nefndarinnar
er að hafa á hendi framkvæmda-
stjórn og yfirumsjón með bygg-
ingu útvarpshússins.
_______________—vh
Herþyrla
naudlentí
í Mýrdal
Þyrla frá hernámsliðinu á
Kefíavikurflugvelli nauðlenti I
gær skammt frá bænum Litla
Hvammi i Mýrdal. Hún
skemmdist ekkert og ekki urðu
slys á mönnum, en 6 hermenn
voru i vélinni.
Að sögn Björgvins Salómons-
sonar, bónda á Ketilsstöðum i
Mýrdal, mun gir hafa bilað i þyrl-
unni og þvi þurfti hún að nauð-
laida. Björgvin sagði, að með i
vélinni hefði verið viðgerðar-
maður og hefði hann gert við bil-
unina án utanaðkomandi aö-
stoðar. Vélin var ekki farin i loftið
um kvöldmatarleytið i gær.
Veöur var vont i Mýrdal en þó
taldi Björgvin það ekki svo slæmt
að vélin kæmist ekki á loft þess
vegna.
—S.dór
Afgreiðsla Kókverksmiðjunnar: — Heilli vakt sagt upp
Fjöldauppsagnir
í gosdrykkjaiön-
aðinum
Þriöjungur starfsfólks Coca Cola
fékk uppsagnarbréf
Sextiu manns eða um
þriðjungur starfsfólks hjá Coca
Cola verksmiðjunni eða Vifil-
felli hf. fengu uppsagnarbréf í
gærmorgun og eiga að hætta að
vinna um næstu mánaðamót.
Kennt er um samdrætti i fram-
leiðslunni og geysilegu tapi
verksmiðjunnar að undanförnu.
Aðrar gosdrykkjaverksmiðjur,
hérlendis, ölgerð Egils Skalla-
grimssonar og Sanitas/Sana,
hafa einnig undirbúið uppsagnir
hjá sér.
Samkvæmt okkar útreikning-
um hefur orðið 27% samdráttur
i sölunni og 25—30% hjá hinum
verksmiöjunum tveim, sagöi
Pétur Björnsson forstjóri Vifil-
fells hf. i viðtali við Þjóðviljann
i gær. Hann sagði, að þessi mán-
uður sýndi þegar geysilegt tap,
það sama væri fyrirsjáanlegt i
febrúar, en desember hefði ver-
ið skárri, enda hæsti sölumán-
uður samkvæmt venju.
Hjá fyrirtækinu vinna að jafn-
aði 160—200 manns. Unnið er á
tveim vöktum i verksmiðjunni
og hefur nú verið sagt upp heilli
vakt ásamt öllum sem henni
fylgja, þ.e starfsfólki á lager,
við akstur osfrv.. Sagði Pétur,
að fólkinu hefði verið skýrt frá
þessu munnlega i fyrradag, en
fengið skriflegar uppsagnir i
gær. Fyrirtækið hefði i siðasta
mánuði tilkynnt Vinnumála-
deild að svona kynni að fara.
Gosdrykkjaframleiðendur
sóttu um hækkun til verðlags-
yfirvalda siðla árs 1980 og átti
að taka beiðni þeirra og fleiri
fyrir á fundi daginn fyrir
gamlársdag. Hætt var við fund-
inn og hafa framleiðendur
endurnýjað beiðni sina, sem
hljóðar upp á 27 1/2% hækkun og
er einungis vegna kostnaðar við
framleiðsluna, sagði Pétur
Björnsson.
Bjarni Jakobsson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks,
vissi ekki i gær, að fólk i gos-
verksmiðjunum hefði fengið
uppsagnarbréf, hinsvegar væri
búist við þeim, sagði hann.
Trúnaðarmenn félagsins i
verksmiðjunum héldu fund i
gær og munu næstu daga boða
fundi með verkafólki hver á sin-
um vinnustað.
—vh
Frá þvi að þessi mynd var tekin hefur heldur betur syrt iálinn i atvinnumálum á Djúpavogi. Ljósm. — gel
Alvarlegt ástand
í atvmmimálum
,,Hér á Djúpavogi rikir mjög
alvarlegt ástand i atvinnumálum.
Hér er enginn bátur gerður út og
fólk er farið að koma sér til ann-
arra staða i leit að vinnu”, sögðu
þeir Jóhann Alfreðsson og Óli
Arnarson sem báðir vinna i
frystihúsinu Búlandstiiuli á
Djúpavogi.
A siðustu vertið voru þrir bátar
gerðir út frá staðnum á troll, net
og linu, en siöan voru tveir þeirra
seldir og loönuskip keypt i staðinn
sem ekki leggur upp á Djúpavogi.
Nú um áramótin var siðasti bát-
urinnleigöurburt. Forsvarsmenn
á staðnum hafa verið að reyna að
fá bát keyptan og höfðu samning-
ar tekist um kaup á bát frá Nes-
kaupstað, en þegar til kom fékkst
engin fyrirgreiðsla. Að sögn
þeirra Jóhanns og Óla var nýtt
frystihús tekið i notkun i nóvem-
ber, en sáralitil atvinna hefur
verið i boði frá þvi i haust, og
margir farið i burt i atvinnuleit.
Þeir félagar lýstu miklum
áhyggjum yfir ástandinu, en svo
virtist sem enginn vissi af þvi eða
þá menn létu sér fátt um finnast
utan héraðsins. Við svo búið
mætti ekki standa. —ká
Tillögur íhaldsins um
niðurskurð felldar:
Gátu ekki
bent á
hvar ætti
aö skera
Við afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar Reykjavikurborgar i gær lögðu
Sjálfstæðismcnn til 2.5 miljarða
niðurskurð og miðaði hann að þvi
að lækka útsvarsálagninguna i
11%. Tillögur þeirra voru allar
felldar.
Meginuppistaðan i þessum til-
lögum var ótilgreindur niður-
skurður um 5% i öllum byggingar
framkvæmdum borgarinnar og
gatna- og holræsagerð. Þá lögðu
þeir til að fjárveiting til viðgerða
á Dillonshúsi yrði felld niður,
styrkur til Torfusamtakanna yrði
strikaður út, ótilgreind áhalda-
kaup yrðu felld niður, framlag til
Bæjarútgerðarinnar yrði lækkað
svo og framlag til rekstrar SVR,
auk þess sem ekki yrði gert ráð
fyrir eins miklum launahækkun-
um og jafn miklum vanhöldum á
innheimtu gjalda og fjárhags-
áætlunin tilgreindi.
Adda Bára Sigfúsdóttir vakti
athygli á þvi að tillögur ihaldsins
einkenndust mjög af hinum nýja
stil Bandarikjaforseta sem
kynntur hefði verið, — að minnka
umsvif hins opinbera og lækka
skatta, en hins vegar væri engin
grein gerð fyrir þvi hvaða þjón-
ustu og framkvæmdir ætti að
skera niður. Hún sagði að slikar
tillögur gætu eflaust gengið i ein-
hvern hóp manna og kannski færu
þær vel i fyrirsögnum, en i
borgarstjórn yrði að gera kröfu til
þess að menn vissu hvað þeir
væru að leggja til og samþykkja.
Staðreyndin væri sú að ekkert af
þessum framkvæmdum mætti
missa sin og það vissu Sjálf-
stæðismenn vel, enda gætu þeir
greinilega ekki bent á neitt.
Nánar verður skýrt frá ein-
stökum framkvæmdaliðum i
Þjóðviljanum siðar svo og um-
ræðum um áætlunina. —AI
Framtals-
eyðublöö í
næstu viku
Fram talsfrestur
einstaklinga rennur
út 10. febrúar
Margir hafa verið að velta fyrir
sér undanfarið hvenær von sé á
framtalseyðublöðunum. Að sögn
skattstjórans i Reykjavik, Gests
Steinþórssonar, verður þeim
dreift i Reykjavik i næstu viku.
Mjög litlar breytingar verða á
eyðublöðunum frá i fyrra. Eina
umtalsverða breytingin varðar
vaxtafrádráttinn, en nú gilda þær
reglur eins og kunnugt er, að ein-
ungis eru frádráttabærir þeir
vextir sem tengdir eru öflun
ibúðarhúsnæðis til eigin nota.
Framtalsfrestur einstaklinga
sem ekki stunda atvinnurekstur
rennur út 10. febrúar nk.
Einstaklingum sem atvinnu-
rekstur stunda ber að skila 15.
mars og lögaðilum eða félögum
fvrir 31. mai. Bó.