Þjóðviljinn - 29.01.1981, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. janúar 1981
MOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Kitstiórar; Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Auglvsingastjóri: Þorgeir Ólafsson.
Umsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson.
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason,
Sigurdór Sigurdórsson.
iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
(Jtlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Ljósmvndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Auglysingar: Svanhildur Bjarnadóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvaröardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir.
Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir,
Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsia, afgreiðsla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Keykjavik, simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Um
orkuskort
• Þótt framkvæmdir í orkumálum hér á landi hafi á
síðari árum verið mun meiri en nokkru sinni fyrr, þá
ríkir nú orkuskortur í landinu.
% Á undanförnum vikum hafa almenningsrafveitur
víða um land orðið að taka í notkun varaaf Istöðvar, sem
ganga fyrir rándýrri olíu, og hefur slíkt að sjálfsögðu
mikinn kostnað í för með sér.
• Óhjákvæmilegt er að landsmenn allir taki eðlilegan
þátt í þeim kostnaði sem af keyrslu varaaf Isstöðvanna
leiðir.
• Alþýðubandalagið hef ur markað þá stef nu, að orku-
verð skuli vera hið sama um allt land, og í stef nuyf irlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að unnið skuli að
verðjöfnun á orku.
• I þessu sambandi má minna á, að þegar Hjörleifur
Guttormsson tók við sem iðnaðar- og orkumálaráðherra
haustið 1978 var raf magn til heimilisnota 80-90% dýrara
víðast úti um landið heldur en í Reykjavík, en um síðustu
áramót var þessi munur kominn niður í 24%. A þessari
braut þarf að halda áfram, og m.a. að jafna aukakostn-
aðinum við olíukeyrslu varaaf Isstöðva nú á landsmenn
alla.
• Nú er svo komið að nær allt landið hef ur verið sam-
tengt f orkumálum með Austur-, Norður- og Vesturlínu.
• Þegar haf ist var handa um þessa miklu framkvæmd
á ráðherraárum Magnúsar Kjartanssonar snemma á
síðasta áratug risu margir upp til andmæla, — þar á
meðal ýmsir þeir sem nú þykjast miklir spámenn í orku-
málum. Það kemur hins vegar fram í greinargerð sem
Landsvirkjun sendi f rá sér f yrr í þessum mánuði að sala
raforku inn á Norðurlínu (og þaðan líka austur og vest-
ur) hefur á árunum 1977-1980 sparað yfir 20 miljarða
gamalla króna í olíunotkun, og er þá miðað við núverandi
olíuverð.
• Hvernig halda menn svo að ástatt hefði verið nú í
vetur ef ekki hefði verið ráðist í byggingu stofnlínanna
eða framkvæmdum slegið á frest í þeim efnum?
• Vegna orkuskortsins nú hefur járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga verið algerlega lokað um sinn og
munu allir aðilar sammála um að sú ráðstöfun sé þjóð-
hagslega hagkvæm og sjálfsögð.
• En hér er einnig ástæða til að minna á, að þótt orku-
sala haf i nú verið skert nokkuð til álversins í Straumsvík
um sinn, þá fær þetta erlenda f yrirtæki áf ram í sinn hlut
mun meiri orku dag hvern en þyrfti til að komast hjá
olíukeyrslu varaafIsstöðva, ef við aðeins hefðum sjálf
ráð á þeirri orku sem til álversins fer.
• i frétt, sem Fjórðungssamband Norðlendinga sendi
f jölmiðlum fyrir skömmu, í tilefni ráðstefnu um orku-
mál sem haldin var á Akureyri, þá er vakin athygli á því
að í Bandarikjunum sé verðið á kílówattstund raforku til
stóriðju 15 aurar. Hér er þessi sama orkueining seld
ALUSUISSE fyrir 4 aura, eða aðeins einn þriðja þess
verðs, sem kilówattstundin kostar nú í nýjum virkjunum.
Og samkvæmt álsamningnum, sem helstu talsmenn nú-
verandi stjórnarandstöðu á Islandi syngja lof flesta
daga, þá erum við bundnir við þetta smánarverð alger-
lega til 1994 og að mestu til 2014! Og álverið fær að jafn-
aði um helming allrar orku, sem framleidd er í landinu.
• En flestum fjölmiðlum þykir víst ekki taka því að
nefna þetta lítilræði, þótt margt sé skrafað og skrifað
um orkuskort.
• Síðan Hjörleif ur Guttormsson varð iðnaðar- og orku-
málaráðherra haustið 1978 hefur verið haldið uppi meiri
framkvæmdum á þessu sviði en nokkru sinni fyrr.
Framkvæmdum við Hrauneyjarfossvirkjun hef ur miðað
áfram í samræmi við fyrri áætlun og enginn frestur
komið þar til greina síðan upplýsingar lágu fyrir. Fyrsti
hluti þeirrar virkjunar kemur í gagnið næsta haust og
verði framhald með þeim hætti sem að er stefnt og ný
stórvirkjun ákveðin á næstu mánuðum, þá ættu lands-
menn ekki að þurfa að kvíða alvarlegum orkuskorti á
komandi árum.
• Og þess er einnig vert að minnast, að hefði Kröf lu-
virkjun náð aðeins helmingi þess afls, sem henni var
ætlað/Og óvæntur leki í Sigöldulóni ekki komið til, þá
hefði engin orkuskömmtun reynst nauðsynleg nú í vetur
þráttfyrir þurrtog kalttíðarfar. — k.
klippt
Minnkandi
■ markaður
Þrjátiu prósent vörugjald á
I gosdrykki, sem sett var um ára-
. mótiahefur valdiö miklum deil-
■ um, og ieitt til þess aö sögn Coca
I Cola-forstjórans aö hann neyö-
| ist til þess aö segja upp kvöld-
, vaktinni, um 60 starfsmönnum,
| frá næstu mánaöamótum. Gos-
I drykkjaframleiðendur telja aí
| hækkunin sem vörugjaldiö
■ veldur hafi komið út i miklum
| sölusamdrætti i jandar. Aörir
I hafa bent á að gosdrykkjasalai
I hafi sjálfir lagt fram beiðni um
• 27% hækkun verðs á framleiöslu
I sinniog sölusamdráttur i byrjun
I árs sé venjulegt fyrirbrigöi 1
| allri verslun eftir jólaútlátin.
■ Eins mun það merkjanlegt aö
I fólk velti nýkrónunni meira á
I milli handanna áöur en henni er
| eytt.
• En það er fleira að gerast á
I gosdrykkjamarkaðinum en
I þetta. í viðtölum viö Morgun-
I blaöið og Frjálsa verslun hefur
■ forstjöri Sanitas fullyrt að öl- og
I gosdrykkjamarkaöurinn hafi
I dregist saman aö undanförnu.
I Hann rekur aö visu ekki ástæö-
■ urnar, en þær geta verið
I margar. Talsverður áróður er
I nú fyrir heilbrigðari lifsháttum
I en áöur og ýmsar tegundir gos-
■ drykkja geta vart talist til
I hollustuvöru. Þá hafa ýmsir á-
I vaxtadrykkir náð vinsældum,
| svo sem Tropicana-vörurnar og
« drykkir i hentugum umbúðum
I frá Mjólkursamsölunni svo sem
I Jógi, Floridana, Mangó-sopi, og
| hvað það nú heitir. Loks má svo
« til taka töluverðan innflutning á
t.d. pilsner.
Harðnandi
samkeppni
1 En á þessum minnkandi
Imarkaði kemur einnig til harðn-
andi samkeppni. Ragnar
Birgisson forstjóri Sanitas lýsir
• þessu þannig i viðtali við
IFrjálsa verslun:
„Eiginlega má segja að
Sanits fyrirtækið hafi verið búið
J að sofa Þyrnirósarsvefni I 20 ár.
Tveir stórir aðilar skiptu öl- og
gosdrykkjamarkaðnum bróður-
lega á milii sin: Coca Cola verk-
smiðjan og ölgerðin Egill
Skallagrimsson. Samkeppnin
var nánast engin og litið nýtt
kom fram. Neysla jókst jafnt og
þétt, venjuleg 10 til 15% á ári.
Kók hélt sinu meö sjónvarps- og
blaöaauglýsingum og ölgerðin
með vel skipulögðu dreifingar-
kerfi. Þrátt fyrir að Sanitas
framleiddi tvær af þrem mest
seldu gosdrykkjategundum i
heiminum, Pepsi og Seven Up,
var fyrirtækiö naumast inn i
myndinni”.
Sanitas vaknar
af svefni
Þetta breyttist árið 1979, er ný
forusta tók við Sanitas. Fyrst
keypti fyrirtækið Sana h.f. á
Akureyri og var siöan sameinaö
Pólaris h.f. og er stærsti eigand-
inn og stjórnarformaðurinn nú
Páll i Pólaris G. Jónsson.
Ragnar Birgisson lýsir þvi aö
þegar hafist var handa um að
vekja þessi fyrirtæki af Þyrni-
rósarsvefninum hafi verið sett
upp fjögur markmiö, sem öllum
hefur veriö fylgt eitilhart eftir,
sem sé gagnger endurskipu-
lagning, aukning vöruúrvals,
betra samband við smásala og
neytendur.
Og árangurinn hefur ekki
látið á sér standa. I viötali i
Morgunblaðinu 29. nóvember i
tilefni af 75 ára afmæli Sanitas
h.f. segir Ragnar Birgisson for-
,,A þessu ári munum við svo
komast á réttan kjöl að nýju.
Það getum við þakkaö stórauk-
inni sölu um land allt, sérstak-
lega hefur Pepsi náð góðri fót-
festu fyrir norðan. Reyndar má
segja, að mikil söluaukning hafi
oröiö á allri okkar framleiðslu á
undanförnum mánuðum. Það
sem er kannski ánægjulegast
við þá þróun er að markaöurinn
i heild sinni hefur á þessum
sama tima dregist nokkuð
saman”.
Kóksalan
stórminnkuð
Fram kemureinnig i viðtalinu
að sumar nýjar vörutegundir
hjá Sanitas seljist svo ört að
verksmiöjan hafi ekki undan.
En aöspuröur um hvort ekki sé
hörö samkeppni á þessum
markaöi segir Ragnar Birgis-
son i 12. tölublaði Frjálsrar
verslunar 1980:
„Jú, svo sannarlega. Heildar-
sala á gosdrykkjum á markaðn-
um hefur minnkað, en þó hefur
framleiðsla Sanitas aukist
gifurlega. Sem dæmi má taka
að í september sl. vorum við
búnir að framleiða og selja jafn-
mikið og allt árið i fyrra. Ljóst
er að þessi söiuaukning okkar
hlýtur að koma niöur á hinum
framleiðendunum. Ég held að
þetta bitni harðast á Coca Cola
framleiðslunni. Kóksalan hefur
stórminnkað. En þetta er ekkert
einsdæmi á tslandi, þvi að Kókið
er I mikilli vörn gagnvart Pepsi
bæði i Evrópu og i Bandarikjun-
um”.
-—®3
/ vinnu hjá Pepsi?
Gosdrykkjasala dregst saman ,
af mörgum ástæðum um leið og ■
einn framleiðenda á þessum J
markaði vaknar af löngum .
Þyrnirósarsvefni og þrengir að I
hinum tveimur stóru, sem setið I
höfðu nær einir að vaxandi J
markaði. Þetta rennir stoðum .
undir þær lausafregnir að um I
nokkurt skeið hafi verið i undir- 9
búningi hjá Coca Cola verk- J
smiðjunni að draga saman J
seglin og slátra kvöldvaktinni I
vegna sölusamdráttar. Harön- I
andi erlend og innlend sam- J
keppni hlýtur af framansögðu j
að vera meginorsök erfiðleika
hjá Vifilfelli— Coca Cola en ekki I
það innheimtuhlutverk sem
rikið hefur falið framleiðend-
um gosdrykkja. Ef til vill hefur I
velgengni hinna tveggja stóru I
á markaðnum, meðan Sanitas ]
svaíj gert þá of værukæra til .
þess að standast samkeppni. En I
Pétur B jörnsson i Coke hefur ef- I
laust meiri áhuga á að gera ]
málið pólitiskt og breiða yfir .
það að vara hans fer halloka I I
samkeppni, heldur en að viður- I
kenna að hann hafi oröið undir. J
Boðberar frjálsrar samkeppni J
ættu þó að bera sig karlmann- I
lega þótt stundum vilji svo til að I
þeir fái að kenna á kostum sinna *
eigin kenninga.
En vonandi fær starfsfólkiö I
hjá Coke vinnu hjá Sanitas, þvi I
ef marka má orð forstjóra •
siðarnefnda fyrirtækisins hefur I
þaö vart undan við framleiðsl- I
una. Má bjóða þér Pepsi, Pétur I
Björnsson? 1
— ekh
skorið