Þjóðviljinn - 07.02.1981, Qupperneq 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.-8. febrúar 1981
Enn fjölgar á
kvikmyndahátíð:
Tvær
Keaton
myndir
til við-
bótar
Voru taldar
gallaðar
Buster Keaton hátiöin.sem
haldin er innan ramma kvik-
myndahátiðarinnar i Regn-
boganum sem hefst I dag,
verður sennilega i minnum höfö
i kvikmyndasögunni, þvi á
henni verða sýndar tvær stuttar
myndir sem til skamms tima
var haldiö að heföu giatast
fvrir fullt og allt.
Raymond Rohauer, sem vann
með Buster Keaton siðustu árin
sem hann lifði og hefur unnið
ötullega aö þvi að leita uppi
verk Keatons og bjarga þeim
frá skemmdum, kemur hingað
til að fylgja hátiðinni úr hlaði,
og hefur meðferðis þessar tvær
myndir, Fangi nr. 13. (Convict
13) og Ástarhreiðrið (Love
Nest). Mun hann kynna og sýna
myndirnar á morgun, og verður
þar um einskonar heimsfrum-
sýningu aö ræða, þvi þær hafa
ekki verið sýndar neinsstaðar
siðan á framleiðsluári.
Fangi nr. 13 (1921) var aðeins
tili ösýningarhæfri kópiu, en úr
Astarhreiðrinu (1923) var
ekkert til nema ein ljósmynd.
Fangi nr. I3er eitt besta dæmið
um gálgahúmor Keatons. Þar
stendur til að hengja hann fyrir
framan áhorfendur, sem borða
að sjálfsögðu poppkorn, en
siöan gerist margt óvænt.
AstarhreiðriCer eins konar upp-
kast að löngu myndinni
Sæfaranum (The Navigator),
sem einnig verður sýnd á kvik-
myndahátiðinni.
—ih
1 Kjaradeilan í ríkisverksmiðjunum:
12félögnáðu
samningum
Tólf verkalýðsfélög af þeim
þrettán, sem staðið hafa i
samningaþófi við ríkisverksmiðj-
urnar undanfarnar vikur, undir-
rituðu nýjan kjarasamning í gær-
morgun. Það þrettánda, Vél-
stjórafélag íslands, skrifaði ekki
undir og hefur boðað verkfall i
rikisverksmiðjunum frá og með
sunnudagskvöldinu næsta hafi
Þá voru ymis atriði i samn-
ingum rikisverksmiðjfólksins
samræmd. Auk þess var samið
um aukagreiðslu til starfsfólksins
i desember sem nemur 2ja vikna
launum.
Félagar f þeim 12 verkalýðs-
félögum sem samið hafa eru á
milli 300 og 400 i rikisverksmiðj-
unum, en vélstjórar eru 16.
J
— betta eru aö minum dómi
mjög góðir samningar. Og það
sem mér þykir mest um vert i
þeim er, að föst aukavinna, 8
timar á viku, er felld niður, en
samt halda menn sömu launum
og jafnvel riflega það, sagði
Guðjón Jónsson, formaður Málm-
og skipasmiðasambands íslands,
i samtali við Þjóöviljann i gær.
Þessi nýi samningur er næstum
alveg eins og sá kjarasamningur
sem gildir við Grundatangaverk-
smiðjuna. Fólkið i rikisverk-
smiðjunum fer nú á byrjunarlaun
samkvæmt Grundartangasamn-
ingnum, en 1. nóvember nk. fer
það á taxta eins og eftir eins árs
starf, og 1. mai 1982 á 3ja ára
taxta, en þá hefur það náð sömu
kjörum og starfsfólk Grundar-
tangaverksmiðjunnar, sem þá
hefur starfað þar i 3 ár
Þroskaþjálfarar lýsa
stuðningi við fóstrur:
Göngum ekki
í ykkar störf
Fundur i Félagi þroskaþjálfa
s.l. miðvikudag gerði eftirfarandi
samþykkt i tilefni af uppsögnum
fóstra: „Félag þroskaþjálfa lýsir
yfir stuðningi sinum við Fóstur-
félag Islands i kjarabaráttu þeirri
sem nú stendur yfir. Viljum við
ennfremur lýsa þvi yfir að við
þroskaþjálfar komum ekki til
með að gegna störfum fóstra ef til
vinnustöðvunar kemur af þeirra
hálfu.”
Ferðafélag íslands og Náttúruverndarráð óska að ráða konur og karla til gæslu- starfa næstkomandi sumar. Um er að ræða störf i 2 til 4 mánuði, sem m.a. gætu hentað hjónum. Starfið er fólgið i eftirliti með sæluhúsum, tjaldsvæðum og friðlýstum svæðum. Málakunnátta, reynsla i ferðalögum og þekking á landinu æskileg. Skrifleg umsókn með sem gleggstum upplýsingum óskast send skrifstofu Nátt- úruverndarráðs, Laugavegi 13, Ferða- félags íslands, öldugötu 3, Reykjavik.eða Ferðafélagi Akureyrar, Skipagötu 12, Akureyri.fyrir febrúarlok. Ferðafélag íslands. Náttúruverndarráð.
|fc RÍKISSPÍTALARNIR S lausarstöður Landspitalinn Tveir AÐSTOÐARLÆKNAR óskast á handlækningadeild til 1 árs frá 1. mai n.k. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 16. mars. Upplýsingar veita yfirlæknar deildarinnar i sima 29000. Reykjavik, 8. febrúar 1981. Skrifstofa rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, sími 29000.
Iðnskóiiim í Reykjavík
Námskeið vegna endurtökuprófa hefjast
23. febr. n.k.. Fyrirhugaðar kennslugrein-
ar eru: Danska, enska, efnafræði, eðlis-
fræði, stærðfræði og grunnteikning. Nán-
ari upplýsingar og innritun i skrifstofu
skólans.
Iðnskólinn i Reykjavik.
Fóstrur hjá ríkinu segja upp:
Lokast spítaladag
heimílín líka?
Föstrursem starfa hjá rikinu á
dagheimilum viö spitalana hafa
nti slegist i hóp starfsfélaga sinna
hjá sveitarféiögunum og sagt upp
störfum frá 1. febrúar s.l. að
telja.
Hér er um aö ræöa nær 40
fóstrur sem starfa við dagheimili
fyrir starfsmenn á Landspitala,
Kleppsspitala, Vifilsstaða-
spítala, Kópavogshælis, Landa-
kots og Hjúkrunarskólans. Sér-
kjarasamningum milli starfs-
mannafélags rikisstofnana og
samninganefndar ríkisins við
fóstrur er ekki lokið enn, þó sér-
kjarasamningar hafi veriö undir-
ritaðir fyrir alla aöra starfshópa
rikisins í nóvember s.l. Fóstrur
hjá rikinu eru þvi i 10. launaflokki
og 11. eftir 4ra ára starf og hefur
þeim verið boöiö upp á „Reykja-
vikursamninga”, þ.e. byrjun i 11.
launaflokki. Sem kunnugt er hafa
fóstrur á Akureyri og i Kópavogi
hafnað enn hærri tilboöum.
Kjaramálaráöstefna fóstra
hefst í húsnæði BSRB i dag kl. 14
og veröa aðgerðir þá ræddar og
kröfur samræmdar. — AI
Framtals-
frestur fram-
lengdur
í gærmorgun var tekin
ákvöröun um að framlengja
skilafrest einstaklinga á skatt-
framtölum tilog meö 18. febrúar.
Eftir sem áður er skilafrestur
einstaklinga með sjálfstæðan
rekstur til 15. mars og félaga til
31. mai.
Þeir sem ekki hafa fengið
leiðbeiningabækling rikisskatt-
stjóra vegna framtalsins geta
snúið sér til skattstjóra i sinu
umdæmi eða umboðsmanns hans.
Einhver brögö munu að þvi aö
bæklingurinn hafi ekki fylgt
framtalseyðublöðunum en upplag
hans var miðað við fjölda heimila
i landinu. —AI
Listahátíð:
Ný framkvæmdastjórn
Nú hefur verið kosiö og tilnefnt
I nýja framkvæmdastjórn Lista-
hátfðar sem haldin verður árið
1982. Stjórnarmenn eru fimm
talsins, þrir kjörnir af fulltrúa-
ráði Listahátiðar, einn tilnefndur
af menntamálaráöherra og einn
af borgarstjórn Reykjavikur.
Samkvæmt hefð mun fulltrúi
borgarinnar veröa næsti for-
maður stjórnarinnar, fulltrúi
rikisins gegndi þvi starfi á síðasta
tveggja ára kjörtfmabili stjórnar.
1 stjórn Listahátiðar eru:
Guðrún Helgadóttir, fltr. Reykja-
víkurborgar, Gunnar R. Bjarna-
son, fulltrúi menntamálaráö-
herra, Ann Sandelin, Njörður P.
Njarðvik og Rögnvaldur Sigur-
jónsson eru kosin af fulltrúa-
ráðinu.
Thor Vilhjálmsson, Sveinn
Einarsson og Atli Heimir Sveins-
son sem voru kjörnir af fulltrúa-
ráöinu fyrir tveimur árum gáfu
ekki kost á sér. Hrafn Gunnlaugs-
son og Niels P. Hafátein náðu ekki
kjöri.
A fyrrnefndum fulltrúaráðs-
fundi var sú breyting gerö að upp-
sagnarfrestur framkvæmda-
stjóra var lengdur úr 3 mánuðum
i sex en þvi starfi gegnir nú örn-
ólfur Arnason. — AI
Torfusamtökin:
Aðalfundur á
Aðalfundur Torfusamtaka
verður haldinn i Norræna húsinu
sunnudaginn 8. febrúar kl. 15.00.
A fúndinum mun stjórn sam-
takanna gera grein fyrir starfinu
frá siöasta aðalfundi. Reikningar
verða lagðir fram og tillögur aö
breyttum lögum bornar undir at-
sunnudag
kvæöi. Telur stjórnin breyt-
ingarnar nauðsynlegar vegna
aukins og breytts rekstrar sem
séö er fram á að veröur æ meiri.
Þá verða ræddar hugmyndir að
framtiðarskipan mála varðandi
endurbyggingu Bernhöftstorfu og
önnur verkefni.