Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 9
Helgin 7.— 8. febrúar-1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Evert Ingólfsson leikur Plútus
sjálfan.
Þdrunn Páisdóttir sem'Kaion
Kristin Bjarnadóttir sem Hemes
Eyvindur Erlendsson f hlutverki
Kreinylusar
Sigriín Björnsdóttir leikur
fátæktina.
Mikil stemmning og almenn ánægja
Spjallað við Þórunni Pálsdóttur og
Jakob S. Jónsson um viðtökurnar
sem Breiðholtsleikhúsið hefur fengið
Sennilega hefur aldrei veriö
jafnmikil gróska f leikhúslffi
Reykvikinga eins og einmitt
núna. M.a. hefur sprottið upp
splunkunýtt leikhús uppi I Breiö-
holti sem nefnist Breiöholtsleik-
húsiö. Þaö er nú búiö aö sýna
gamanleikinn Plútus eftir
Aristofanes i nokkur skipti og þvi
ekki úr vegi aö ná i skottið á
tveimur af stofnendum leikhúss-
ins, þeim Þórunni Pálsdóttur og
Jakobi S. Jónssyni, til aö forvitn-
ast um hvernig þetta ævintýri
gengi.
bau voru sammála um aö fólk
væri ánægt með þetta framtak og
sögðust vera mjög bjartsýn á að
það ætti sér framtið fyrir hönd-
um. Þau sögðu að visu að komið
hefði upp sú skoðun að svona leik-
rit væri ekki við hæfi Breiðhylt-
inga en þegar þeir væru á annað
borð búnir að fara á sýninguna
kæmi allt annað hljóð I þá.
Stemmningin á sýningum er
nefnilega mjög góð og fólk virðist
hafa almenna ánægju af. Leikrit-
ið fjallar um rlkidæmi, og fátækt
og leikaðferðin er sú að áhorfend-
ur eru I rauninni i hlutverki
mUgsins I Aþenu og leikendur tala
mikið beint til þeirra.
Einungis atvinnuleikarar eru I
sýningunni en þeir eru Eyvindur
Erlendsson, Þórunn Pálsdóttir,
SigrUn Björnsdóttir, Kristln S.
Kristjánsdóttir, Kristln Bjarna-
dóttir og Evert Ingólfsson. Leik-
stjórinn er Geir Rögnvaldsson en
bUninga gerði Hjördls Bergsdótt-
ir með aðstoð Mariu Hauksdóttur..
Þórunn lét þess getið I samtal-
inu að mjög gaman væri að leika i
þessu leikhUsi en áhorfendur sitja
á þrjár hliðar. Þetta mun vera
eina skólahúsið á landinu sem
notað er undir fasta leikstarf-
semi. Bæði skólastjórinn I Fella-
skóla, Arnfinnur Jónsson, og yfir-
kennarinn, Guðjón Ólafsson, eru
mjög jákvæðir og hjálpfúsir enda
hafa þeir staðið fyrir fleiri nýj-
ungum I hUsnæði skólans.
Þess skal getið að Nemendaráð
Fellaskóla er með veitingar I hléi,
kaffi, kökur, gos og sælgæti, og
eykur það á stemmninguna. Allur
ágóði rennur til skólafélagsins en
þess I stað sjá krakkarnir um að
bera stóla inn fyrir sýningu og Ut
eftir hana. Þau Þórunn og Jakob
kváðu það m.a. hafa komiö sér á
óvart hve krakkar hafa gaman að
þessari sýningu en þeir hafa sótt
hana töluvert.
Að ýmsu leyti er erfitt að fara á
stað með svona starfsemi og m.a.
eru Reykvlkingar almennt ekki of
klárir á þvl hvar Fellaskóli er.
Sögðu þau að borgin ætti eigin-
lega aö setja upp vegvisa á skól-
anna þvi að I Breiðholti eru
hvorki meira né minna en 5
grunnskólar óg 1 fjölbrautaskóli.
Þeir sem eru ókunnugir þarna
uppfrá halda sumir að það sé
bara einn skóli I Breiðholti.
Jakob er framkvæmdastjóri
hUssins og sagði hann að fyrir-
tækjum og stofnunum væri boðið
að koma á sýninguna gegn hópaf-
slætti og nU ætti að fara á stað
með að bjóða hUsfélögum. Það
gæti llka haft það gildi að auka
kynni milli fólks I fjölbýlishUsum.
bau sögðu að ldcum að það væri
ekki sist áhugamál þeirra sem að
leikhúsinu standa að fá nýja
áhorfendur sem ekki sækja leik-
hús reglulega. ,,Ef það tekst
erum við ánægð og ef þessi sýning
gengur vel höldum við ótrauð
áfram I næsta stykki. Við erum
næstum óhugnanlega bjartsýn”,
sögðu þau að lokum.
—GFr
Blepsidemus mælir til múgsins (áhorfenda). Kristln S. Kristjánsdóttir.
MISTÖK
Frú Bergström hafði tognað á
handlegg. Herra Bergström
hafði nefnilega orðið litið á
fætur konu sinnar og sagt við
hana að þessir skór sem hún
væri I væru bæði rifnir, slitnir og
ljótir. Þá hafði frU Bergström
tryllst. HUn var nefnilega ber-
fætt. HUn hafði slegið til hans
með vinstri, og síðan eldsnöggt
með þeirri hægri. Herra Berg-
ström sem var I góðri þjálfun
gat beygt sig undan höggunum,
með þeim afleiðingum að frU
Bergström lenti með hendina i
málmstyttu þeirra hjóna er átti
að sýna „Strlð og Friöur”.
Málmstyttan slapp ósködduö,
en frU Bergström tognaði á
hendinni.
HUn hafði dálltinn verk i
hendinni svo að hún ákvað aö
fara á slysadeildina til að láta
llta á hana og ef til vill fá
teygjubindi um hana. Svo hún
gaf manni sinum „einn á'ann”
með þeirri vinstri og fór siöan á
slysavarðstofuna. Læknirinn
þar spuröi hvernig þetta hefði
atvikast. HUn svaraði þvi til að
hUn hefði dottið.
„Þetta lítur nú ekki neitt illa
Ut”, sagði læknirinn og kreisti
dálltið handlegginn og Ulnliðinn.
„Þaö eina sem þarf er teygju-
bindi, og síðan þarft þú að hlifa
hendinni dálitinn tlma, þá
verður þetta strax gott”.
Þegar frU Bergström hafði
þakkað fyrir sig og ætlaði að
fara, sagði læknirinn: „blðiö að-
eins. Þér eruð dálítið fölar i
andliti. Við ættum ef til vill að
mæla i yður blóðið, fyrst þér
eruð staddar hérna. Þá þurfið
þér ekki að líða af blóðskorti.
Hinkrið aðeins, ég skal biðja
hjúkrunarkonú um að koma
strax og taka blóðsýni.”
Læknirinn hvarf á braut og
eftir skamma stund birtist
hjúkrunarkonan til að taka
blóðsýni Ur frú Bergström. Þaö
hafði aldrei valdið henni erfiö-
leikum að sjá blóð, það er að
segja ef það var blóö einhvers
annars. Aftur á móti þoldi hún
alls ekki að sjá sitt eigiö blóð.
Þvl var það aö þegar hjúkr-
unarkonan stakk hana I fingur-
inn steinleið yfir hana.
Hjúkrunarkonan varö dauð-
hrædd. HUn haföi aldrei orðið
fyrir því að liði yfir fólk við
blóðtöku. HUn hljóp Ut Ur her-
berginu til aö ná I hjálp. Af til-
viljun varö læknakandidat
gengið fram hjá skoðunarher-
berginu og kom auga á frú
Bergström þar sem hún lá i öng-
viti á gólfinu. Kandidatinn, stór
og kraftalegur strákur, hélt að
hUn væri dáin. Hann kastaði sér
yfir hana og hóf þegar hjarta-
hnoð. Það gerði hann af svo
miklu afli að hann braut rifbein
I frU Bergström. HUn vaknaöi til
llfsins, hinum unga kandidat til
mikillar gleði.
„Hvurn andskotann eruð þér
að gera”, spurði hún.
Einmitt í þvl kom hjúkrunar-
konan til baka og hafi náð i
lækni, og var sá I för með henni.
FrU Bergström kvartaði sáran
um verk í hinu brotna rifbeini.
Læknirinn gaf skipun um að
taka til sprautu með kvalastill-
andi efni. HjUkrunarkonan náði
I sprautuna, og fyllti hana með
stórum skammti af kvalastill-
andi, og gaf konunni. En þvi
miður hafði frú Bergström of-
næmi fyrir þessu lyfi. Það leið
yfir hana. Læknirinn fyrirskip-
aöi þegar I staö að henni yröi
gefin önnur sprauta með mót-
efni við hinu lyfinu. Við þá
sprautu vaknaði frú Bergström
til lifsins aftur. HUn varö meira
aö segja svo hress að hún stóð
upp af gólfinu . og tók nokkur
skref á riðandi fótunum. Slðan
datt hún I gólfið aftur. I fallinu
sló hún höfðinu i skoðunarbekk-
inn og rotaðist.
FrU Bergström var flutt á
gjörgæsludeild þar sem hUn
varð aðdveljast I þrjá daga. Er
heim kom ákvað hún að slá
manninn sinn aldrei aftur,
þ.e.a.s. með hnefunum. Hún
varð sér Uti um góðan lurk I
staðinn.
Herra Bergström iiggur nU á
stofu átta deild ellefu á sjúkra-
húsinu.