Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVlLJINN Helgin 7.— 8. febrúar 1981 *mér datt það i hug Hafþór Guðjónsson skrifar Hann nagar okkur. Oftast ósýnilegur. Vakir með okkur. Sefur með okkur. Meövitað eða ómeðvitað. Eins og svört hola i innstu afkimum sálarinnar. Við reynum að bægja honum frá okkur. Kannski tekst þaö um stundarsakir. En hann kemur bara alltaf aftur. Og heldur áfram að naga okkur. Ottinn. Við lifum í heimi sem er gagn- tekinn af ótta. Við lifum i heimi á heljarþröm. Kjarnorku- sprengjan. Möguleikinn á kjarnorkustyrjöld verður æ meiri. í valdamesta embætti heims situr fyrrverandi kúreki. (Eftirlikingar af kúrekastig- vélum hans ku vera vinsæl sölu- vara i fyrirmyndarrlki frjáls- hyggjunnar). 1 hinum herbúö- unum eru hámenntaðir siða- postular, litlir brésnevar, látnir útbreiða nyjan sannleik um konuna. Hún á ekki að stjórna jarðytu lengur, heldur fara heim og ala börn. Þaö vantar fleiri börni Sovét. Meöal annars til að framleiða vopn. Þegar þau eru orðin stór náttúrulega. Það verður að viðhalda hinu hern- aðarlega jafnvægi. Þaö verður að framleiða betri sprengjur, öflugari sprengjur, tæknilega fullkomnari sprengjur. Til þess þarf fólk. Og þá er konan i Sovét mmnt á það til hvurs hún er eíg- inlega. Samt er til nóg af sprengjum til að þurrka út mannkynið 30 — þrjátiu sinnum. Herma skýrslur. Nótt eina skömmu eftir að nýr áratugur bjartra vona var runn- in upp, vaknaði ungur maður i vesturbænum af órólegum svefni. Kannski voru það hrot- urnar f konunni sem vöktu hann (skyldi þessi setning sleppa gegnum ritskoöun?) eða var það þögnin? Þrúgandi þögn — aðeins rofin af fyrr- nefndum hrotum, sem þó voru fljótlega bældar meö ,,klipa-i— nefið” aðferðinni. Kiukkan? Alltaf fyrsta hugsunin, sem gripur mann ef maður vaknar um miðja nótt. Hvað skyldi klukkan vera? Nú verð ég ábyggilega andvaka. Og ég sem veröað vakna klukkan sjö. Próf I fyrsta tima. A eftir að fjölrita. Verö að ná strætó klukkan tiu minútur fyrir átta. Já og stelp- an. HUn má alls ekki mæta of seint i skólann, rétt einu sinni. Komin með fimmtán — eða var það átján? — refsipunkta. Má ekki ske. Hugsa sér ef stelpu- greyinu yrði nú visað úr skóla af þvi að pabbi drap á vekjara- klukkunni oghéltáfram aðsofa. Af þvi að hann lá andvaka. Óttinn. En hvað? Vekjarakiukkan suðaði ekki eins og hún var vön. Og heldur ekki heyrðust úr henni hálf- bælda, aumkunarverða hljóðið, sem hún annars var vön að gefa frá sér með kortérs millibili. Eins og hana langað ofsalega mikið að hringja en hætti viö af tillitssemi við eigendur sina. Hálfkæft, tregaþrungið ang- istarvein og svo ekkert meir. Klukkan var stopp. Ef svo óliklega hefði borið við, að tekið hefði verið hjartalinurit af þessum unga manni i vestur- bænurri þarna um nóttina, hefði hvur mannskepna getað séð ónáttúrulega sveiflu I linuritinu. Svona eitthvað I likingu við sveifluna stóru, sem ég sá koma útúr minum mælitækjum, þegar ég var að paufast viö að fá brottnumið hjarta úr elskulegri litilli rottu (sem þá var auðvitað steindauð sjálf) til að byrja að slá á nýjan leik. Þvilik sveifla, maður. Skrifarinn langt útaf blaðinu, sem honum annars bar að halda sig við. Skruðningur og læti i appirötunum. Hjartað spriklaöi oni næringarbaðinu eins og það gerði Itrekaðar til- raunir til að losa sig frá öllum slöngunum og klemmunum, sem það var átengt eftir vis- indalegri forskrift. Eftir nokkrar mínútur steinhætti það þessum látum. Hjartað sló ekki lengur. Það hafði fengiö hjartaáfall. Hjartað i unga manninum hætti ekki að slá — nema þá ef til vill eitt andartak. En það tók kipp eins og sagt er. Mikinn kipp. Vegna þess að honum brá. Óttinn. En hvers vegna? Hvað var M05ÍAW7/ svona dttalegt við það aö vakna um miðja nótt og uppgötva, að rafmagnsvekjaraklukka gengur ekki lengur? Var það þögnin? Af þvi að maður i borg er óvanur þögn? Eöa var þettabara óttinn við hið óþekkta? Hann veit ekki ástæð- una fyrir þvi aö vekjaraklukkan er stopp. Hann liggur áfram i rúminu. Hlustar á ekkert. Heyrir ekk- ert — nema djúpan draum- þungan andardrátt konunnar við hliðina (alltaf getur hún sofiö). Af hverju er svona mikið myrkur? Af hverju engiri birta frá götu- ljósinu? Rafmagnslaust. Auðvitað. Asni get ég verið. Um sinn hæg- ist um andardráttinn og hjart- sláttinn hjá unga manninum i vesturbænum um nótt. Skyringin var komin! Honum léttir. Heldur barasta aö hann geti nú sofnað alsæll, dreymt fagra veröld og vaknað á réttum ti'ma. Ekki fleiri refsi- punktar hjá telpunni i bili. Borð- um morgunverðinn i ró og næði. Ekkert stress. Vaknað!!!! Bannsett vekjaraklukkan! Hvurnin i heitasta helviti á vekjaraklukka sem gengur fyrir rafmagni aö fara að þvi aö vekja mannskapinn ef hún fær ekkert rafmagn??? Ný sveifla. Nýr kippur. Helm- ingi kröftugri en þessi áðari: Bang-dong,bang-dong. Úff.Sviti. Málið liggur ljóst fyrir: Máttarvöldin — hver sem þau annars eru — hafa gert sam- þykkt um að leyfa honum ekki að sofa í nótt. En hvers vegna rafmagnslaust? Hvað ætli sé að? Og af hverju þessi undar- lega þögn? Hvað var þetta? Flugvél? Millilandavél? Þota? Orrustu- þota? Nei, þetta hljóð var ekki eins og i venjulegri þotu. Eins og — eins og hvinur. Einna lik- ast þvi þegar hvin i bildekkjum á þurru malbiki. Hvaö skyldi þetta vera? Nei, nei. Bara i myndum Edlflaug? Þvilik fá- sinna! Hvað ættu eldflaugar að vera að gera þarna uppi um há- nótt? Strið? Nei, nú læt ég Imyndunarafliðhlupa með mig i gönur. Strið. Fáránleg hug- mynd. Ætli maður hefði nú ekki fengið að vita það með nokkra daga fyrirvara. Ekki var að heyra i sjónvarpsfréttunum að ástandið væri neitt sérstaklega alvarlegt.Aðvisumikilspenna i Póllandi. Já og þessar erjur þarna suðurfrá. En ekkert svona grafalvarlegt. Ekkert i likingu við Kúbudeiluna. Nei, nei. Alls ekki. Skyndiárás? Það er engu likara en þetta orö hafi allt i einu umbreyst, hlutgerst i griðarmikinn svamp sem er troöið uppi hann. Honum liggur við köfnun og þornar upp i munninum af þvi ao svampur- inn sýgur i sig hvern einasta munnvatnsdropa. Kannski Keflavikurflug- völlur? Djöfuls hugarórar eru þetta. Held bara ég sé að verða vitlaus. Best að fá sér vatn að drekka. Kikir út um svefnher- bergisgluggann. Nú, þaö er bara myrkur i allri borginni. En hvaða reykur er þetta? Aburðarverksmiðjan? Nei. Ekki er hún i þessari átt. Ætli það hafi kviknaö i? En þetta er svo langt i burtu. Og svona mikill mökkur. Eldgos? Sakar ekki að hringja i lögg- una og athuga málið. „Nei okkur er ekki kunnugt um að neitt alvarlegt sé á seyði. Þaö eru einhverjar rafmagns- truflanir hjá þeim. Kviknað i? Nei, okkur er ekki kunnugt um það. Reykur? Nei, við höfum ekki heyrt neitt. Allt I lagi, ekk- ert að þakka”. Einar Karl Haraldsson skrifar Fjaörafok út af n f 1, , í 4 í n w w n „ 1 i Anl feitum bita Þrátt fyrir margra dálkkiló- metra níð i málgögnum stjórn- arandstööuhluta Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks um Al- þýöubandalagið hefur gengið illa að koma höggi sem dugar á flokkinn. En þegar heilbrigöis- ráðherra veitir einn af feitustu bitum landsins þykir liðleskjum stjórnarandstöðunnar auðsætt að formaður Alþýðubandalags- ins liggi vel við höggi, og hafin er flokkspólitisk breiðsiðuárás á hann undir yfirskini jafnréttis- áhuga. Það er afskaplega fróölegt til þess aö vita að áhugi Jóhönnu Sigurðardóttur þingmanns og ritstjóra Morgunblaösins á jafn- réttismálum skuli vakna þegar um er að tefla eitt af ábatasöm- ustu verslunarleyfum landsins. Þessum sálufélögum hefur varla þótt taka þvi aö fjalla um önnur jafnréttismál, sem snerta ekki sist þá sem skaröastan hlut bera i þjóðfélaginu, svo sem fæöingarorlofiö, sem gildi tók um áramótin og aðgerðir i dag- vistarmálum. Það gæti lika ver- ið að hlutur formanns Alþýðu- bandalagsins i þeim málum sé of góður til þess aö taki því að nefna þaö. Slik er hin flokkspóli- tiska blinda og slikur er hinn raunverulegi áhugi á þeim jafn- réttismálum sem varða hinn breiða fjölda i landinu, allan al- mcnning og ekki sist iáglauna- fólk. Mismunandi hefðir Athyglisvert er einnig, að i offorsi sinu við að sverta Al- þýðubandalagið koma hinir ný- vöknuðu jafnréttissinnar upp um raunverulegan tilgang sinn með þvi að lita nær alveg fram- hjá veitingu menntamálaráð- herra i prófessorsembaétti við Háskólann. Ingvar Gisíason var þó að brjóta nokkuð fastmótaða hefð með þvi að ganga fram hjá úrskurði læknadeildar. Til þess þykist ráðherrann hafa rök, en um langt skeið hafa mennta- málaráðherrar viðurkennt sjálfstæði Háskólans með þvi aö fara nær undatekningarlaust að tillögum háskólaráðs og deilda i stöðuveitingum. Um slika hefö er ekki að ræða i sambandi við veitingu lyfsölu- leyfa. Matthiás Bjarnason gekk á árunum 1974 til 1978 i fimm skipti af tólf á snið við tillögu stöðunefndar og landlæknis við veitingu lyfsöluieyfa, og lá undir nokkru ámæli fyrir flokkspólitiskar stöðuveitingar. Svavar Gestson er ekki sakaöur um flokkspóiitik að þessu sinni, heldur um að hafa brotið gegn jafnréttislögunum frá 1976. Þegar skoðaðar eru embættis- veitingar heilbrigðisráöherra aftur i timann er ljóst, að þeir hafa litið svo á, og talið sig hafa til þess lagastuðning, að þeim beri að leggja sjálfstætt faglegt mat á stöðuumsóknir, enda eru umsagnir embættisnefnda að- eins ráðgefandi. Jafnrétti karla og kvenna Samkvæmt núgildandi jafn- réttislögum er konum ekki tryggður meiri réttur en körlum við embættisveitingar. Þing- menn Alþýðubandalagsins lögðu til á sinum tima að lögin yrðu þannig úr garði gerð, að þau jöfnuðu ekki aðeins stöðu kvenna og karla, heldur veittu konum timabundin forréttindi meðan á sókninni til fulls jafn- réttis stæði. Þessi tillaga var felld með atkvæðum allra þing- manna nema Alþýöubandalags- ins. Fróðlegt væri að kanna hug þingsins til þessa máls i kjölfar þeirra umræðna sem nú eiga sér stað. Karlar geta ekki siöur en kon- ur leitað til jafnréttisráðs og dómstóla telji þeir að konur hafi óverðskuldaö verið teknar fram yfir þá við embættisveitingar. Samkvæmt núgildandi iögum hefur ráðherra þvi ekki heimild til þess að taka konur fram yfir karla við stöðuveitingar ef hann kemst að þeirri faglegu niður- stöðu að karlmaður sé hæfari til starfs en kona. Mismunandi mat á embættisreynslu Úr þvi að árásir á Svavar Ritstjórnargrein Gestsson eru á dagskrá má skoða tvö dæmi um embættis- veitingar hans, sem nú eru orðnar um 30 talsins og hafa ekki sætt gagnrýni fyrr. Fyrir skömmu skipaði ráðherra i tvær stöður heilsugæslulækna við Heilsugæslustöðina i Borgar- spitalanum. Umsækjendur voru átta og voru allir úrskurðaðir hæfir af stööunefnd lækna, en einu konunni i umsækjanda- hópnum raðað neðst i forgangs- röðina. Það var faglegt mat ráðherrans, að enginn mark- tækur munur væri á hæfni um- sækjenda til starfans, og þvi var Katrin Fjeldsted læknir skipuð til starfans, enda réttlætanlegt og jafnréttissjónarmiö kæmi til álita úr þvi að ráðherra lagði umsækjendur að öðru leyti að jöfnu. Um lyfsöluleyfið á Dalvik sækja þrir og eru allir úrskurð- aðir hæfir af umsagnaraðilum, en Freyju Frisbæk Kristensen raðað efst i forgangsröð. Ráð- herra hafði hins vegar það mat, að vegna meiri reynslu óla Þ. Ragnarssonar i starfi og rekstri lyfjabúða skyldi veita honum starfið. Enda þótt lengra sé liðið frá þvi Freyja lauk embættis- prófi taldi ráðherra, að embætt- isstörf hennar i danska innan- rikisráðuneytinu bæri ekki að meta til jafns við starfsreynslu i lyfjabúðum i þetta tiltekna em- bætti. Ef hins vegar um hefði verið að ræða deildarstjóra- stöðu i lyfjadeild heilbrigðis- ráðuneytisins hefði hann vænt- anlega metið Freyju hæfasta til þess starfa. Hér snýst málið um mismunandi mat á ráðuneytis- störfum og rekstri lyfjabúða. Hvar eru /,f lokksvinirnir"? Um það hefur mikið verið fjasað í málgögnum stjórnar- andstöðuhluta Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks að Alþýðu- bandalagið stundi það nú grimmt að koma „sinum mönn- um” i embætti i krafti valdaað- stöðu sinnar. Athyglisvert er, að engar ásakanir eru uppi hafðar um að Svavar Gestsson sé að hygla flokksvinum sinum i þeim tveimur málum sem hér hafa verið rakin. Hvernig má það vera? Er ekkert að marka fjasið i stjórnarandstöðunni? Enda þótt að i Dalvikurmálinu sé aðeins um að ræða „mismun- andi mat á embættisreynslu tveggja hæfra manna”, eins og landlæknir segir i blaðaviðtali, þá er það afar skiljanlegt að stjórnarandstaðan vilji gera sér mat úr þvi eins litil og mat- björgin er um þessar mundir á þvi heimili. Það er á allra vit- orði, að þingmenn Alþýðu- bandalagsins hafa um langt árabil haft forystu i jafnréttis- málum á Alþingi og unnið að þeim málum af einurð og með töluverðum árangri. Einmitt þess vegna riöur á að sverta formanns flokksins og Alþýðu- bandalagiö i augum almenn- ings. En það mun verða fylgst grannt með þvi hversu hann dugar hinn nývaknaði jafnrétt- isáhugi á þingi, þegar að þvi kemur, að fylgja fram raun- verulegum jafnréttismálum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.