Þjóðviljinn - 07.02.1981, Blaðsíða 15
Helgin 7,— 8. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Skólaskákmót Noröurlanda:
Bolvíkingurinn sigrar enn
Fyrir u.þ.b. hálfum mánuði
héldu sjöungmenni frá íslandi til
Sviþjóðar, nánar tiltekið Eksjö,
þarsem fram fór Skólaskákmót
Norðurlanda. Hér var ekki um að
ræða sveitakeppni, heldur ein-
staklingskeppni þar sem kepp-
endum var skipt niður i 5 riðla
eftiraldri. 1 A-riðliþar semkepp-
endur voru fæddir á árunum 1960-
’63 áttu íslendingar einn fulltriia,
Elvar Guðmundsson. Elvar
skrapp Ur Skákþingi Reykjavikur
á þetta mót og er skemmst frá þvi
að segja, að hann skipaði sér þeg-
ar i hóp þeirra sem börðust um
efsta sætið. Þegar ein umferð var
til loka, en tefldar voru 6 umferðir
i hverjum riðli, var hann i efsta
sæti ásamt einum fulltrúa Svia,
Gösta Svenn. Hann tefldi i siðustu
umferð við Kivistö frá Finnlandi,
sem var heldur aftarlega á mer-
inni þegar skákinfór fram. Elvar
virtist eiga alls kostar við and-
stæðinginn en heilladisirnar voru
ekki á hans bandi og eftir að hafa
leikið niður vinningsstöðu mátti
hann þola tap. Varð hann að gera
sér að góðu 2. sætið en sigurveg-
ari varð helsti keppinautur hans
Gösta Svenn. I B-riðli, þar sem
keppendur voru fæddir 1964-’65,
tefldi Jóhann Ragnarsson fyrir
Islands hönd. Þar eins og i öðrum
riðlum voru tefldar 6 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Jóhanni gekk
ekki sem skyldi og hafnaði i
neðsta sæti i 10 keppenda hópi.
í C-riðli áttu Islendingar tvo
þátttakendur, Halldór G. Einars-
son frá Bolungarvik og Hannes
Gunnarsson frá Hellu. Keppendur
iþessum riðli voru alls 12 talsins,
fæddir 1966-’67. Halldór sem
vakið hefur mikla athygli fyrir
sigra i skólaskákkeppnum hér
heima svo og á Unglingameist-
aramóti íslands 1979 svo ekki sé
minnst á það afrek þegar hann
gerði jafntefli við Friðrik ólafs-
son i einu af helgarmótum tima-
ritsins Skákar. Keppnin um efsta
sætið þarna var geysihörð og svo
fór að lokum, að Halldór bætti
einni skrautfjöörinni enn i safnið
og deildi sigrinum með Simon
Agdenstein frá Noregi. Þeir hlutu
báðir 4 1/2 v. af 6 mögulegum.
Það er ekki litið afrek hjá þessum
pilti að sigra á móti sem þessu
þegar þess er gætt að hann er að
miklu leyti einangraður frá þeim
skákkeppnum sem mesta þroska-
möguleika gefa.
A Bolungarvik stendur skáklif
með blóma og þar vestra eru
margir bráðefnilegir skákmenn.
Annan pilt má einnig nefna,
Július Sigurjónsson,' en hann eins
og Halldór skaut mörgum þekkt-
um meisturum skelk i bringu
þegar helgarmót Skákar fóru
fram siðastliðið sumar og haust.
Hinn islenski keppandinn i riðlin-
um, Hannes Gunnarsson, lenti i
11. sæti i riðlinum, hlaut 1 1/2
vinning.
í D-riðli (keppendur fæddir
1968-’69) áttu Islendingar tvo
keppendur, Davið Ólafsson og
Tómas Björnsson. Davið náði 4.
sæti og Tómas varð nr. 9 i 10
manna hópi.
I E-riðli tefldi Arnaldur Lofts-
son (keppendur fæddir 1970 og
siðar) og hafnaði hann i 6. sæti.
Allir þeir keppendur sem tefldu
fyrir Islands hönd stóðu sig með
mestu prýði og voru landi og þjóð
tii sóma.
Alls tóku 50 unglingar þátt i
keppninni i Eksjö. Sviar áttu eðli-
lega flesta þátttakendur eða 16
talsins, Danir og Norðmenn áttu
10 keppendur hvor þjóð og tslend-
ingar og Finnar 7 keppendur.
Fararstjdri islensku unglinganna
var Þorsteinn Þorsteinsson.
Margar fjörugar og skemmti-
legar skákir voru tefldar á mót-
inu og á mótsblaðinu má sjá að
flestir þátttakenda eru einlægir
kóngspeðsmenn. En ekki er
framþrýstingur þess peðs ailtaf
sigurvænlegur eins og eftirfar-
andiskák sýnir. Það er Vestfjarða
undrið semsannarþað mætavel:
Hvítt: Jesper Jensen (Danmörk)
Svart: Halldór G. Einarsson
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 4. Rxd4-Rf6
2. Rf3-Rc6 5. Rc3-e6
3. d4-cxd4 6. Bg5
(Kennisetningamenn mæla með
6. Rdb5 eða 6. Rxc6.)
6...Bb4! 8. e5-Da5
7. Rxc6-bxc6 9. Dd4-Rg4
(Góður leikur. Einnig var mögu-
legt að leika 9. — Re4.)
10. f4-Bc5
11. Dd2-Bf2 +
12. Kdl-h6
(Annar möguleiki var 12. — Be3,
þvi 13. Dd6 strandar á 13. — Bc5
ásamt 14. — Rf2+.)
13. De2-Dc5 15. Bd3-hxg5
14. Dxg4-Dd4+ 16. Re2
(Betra var 16. Dxg5. Svartur
heldurþó frumkvæðinu með 16. —
Ba6.)
16....Dxb2 18. c3-Db2+
17. Kd2-Db4+ 19. Bc2-Ba6
(Biksupar svarts ráöa lögum og
lofum.)
C
3
£.
o-
3
X
«
o
skák
20. Hhbl-Da3 N
(Annar möguleiki var 20. —
Be3+. SU leið sem svartur velur
er einnig góð.)
21. Hb3-Dc5
22. c4-Bxc4
23. Hc3-Bxe2
24. Dxe2-Dd4 +
25. Bd3-Dxf4 +
26. Kc2-Bd4
27. Hc4-Bxe5
(Hvfta staðan eru rústir einar.)
28. Hbl-Hxh2
29. Df3-De3
30. Dg3
(Leik þennan ber fyrst og fremst
að skoða sem skákfræðilegt
sjálfsmorð).
30...Dxg3
— Hvitur gafst upp.
Lausn á skákþraut þriðjudags:
1. Hc7 (hótar 2. Rc4 mát) Hxc7 2.
c4 (hótar 3. Rc2 mát) Hxc4 3.
Rxc4 mát.
Hvftur leikur og vinnur
Lausn f næsta sunnudagsþætti.
„Comfort“ kallast
Lágvær er
og hljóöur i
truflar ekki með
hávaðamengun.
Aksturinn verður
þvl öruggur og
áreynslulaus.
iýníð 1
afbragðsgott. Aó stjórna
honum í þrengslúm er þvl
leikur einn.
l dúnmjúka
fjöðrunarkerfi, sem Ifkja má
vió flugskeið og svo rás-
fastur er hann, að honum
verður ekki haggað af þeirri
braut, sem þú velur honum.
þægindi þau og
veilíðan, sem vel
hönnuð sæti hans,
ásamt nægu rými
til höfða og fóta,
veita farþegum.
nl erfl-s+
ekki f hans anda,
hann er f rauninni
mesta nánös við
sjálfan sig bæði á
bensfn og vara-
hluti.
, f , J
--------_
gagnvart fai
enda er farangurs-
geymslan sérlega vel
hönnuð og rúmgóð.
A
MITSUBISHI
MOTORS_
Komið, skoðið og reynsluakið
LANCER frá Mitsubishi.
MJÖG
HAGSTÆTT VERÐ