Þjóðviljinn - 07.02.1981, Side 25

Þjóðviljinn - 07.02.1981, Side 25
Helgin 7.-8. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 25 Afinœliskveöja Margrét Óttósdóttir A morgun, 9. febrúar, veröur hún Magga Ottós — eins og viö félagar hennar venjulega köllum hana, 80 ára. Starfsferill hennar i samtiScum sósialista er orðinn býsna langur. Þó verður ekki með sanni sagt að áhugi hennar fyrir málefnum verkalýðs og vinstri hreyfingar hafi dvinað með aldrinum. Ahuginn er sá sami og fyrr, en starfsþrekið að sjálfsögðu mihna. Störf Möggu eru orðin fleiri og meiri en rakið verður hér. Þó vil ég nefna starf hennar i Kven- félagi sósialista frá stofnun þess 1939, en þar hefur hún oftast verið i stjórn og einnig formaður um skeið. Þá hefur hún og gegnt ýms- um öðrum störfum fyrir félagið, t.d. verið fulltrúi þess i fastanefnd Kvennaráðstefnu Eystrasaltsvik- unnar, fulltrúi á aðalfundúm Bandalags kvenna i Reykjavik o.m.fl. Sérstaklega er mér minnisstæð forstaða hennar i mörg ár, fyrir kaffiveitingum og kvöld- skemmtunum á hátiðisdegi verkalýðsins, 1. mai, meðan Kvenfélag sósialista hafði að- stöðu i' Tjarnargötu 20. Þar var hún jafnan lifið og sálin. Þá má einnig geta þess að LAUFAS SÍMI 82744 Húsafell — Sumarbústaðir Höfum fengið til sölumeðferðar nokkur hús Kristleifs Þor- steinssonar i Húsafellsskógi. Húsin eru af ýmsum stærðum og fylgir þeim byggingarréttur á allt að 45 ferm. heildarstærð húss á hverri lóð. Húsunum fylgir allur búnaður sem i þeim er, s.s. húsgögn, rúmstæði, eldunartæki, búsáhöld o.s.frv.. Húsin eru tengd með rafmagni og rafmagn er til eldunar og ljósa. Hverju húsi fylgir leigusamningur um lóðarréttindi til 20ára. Grunnverðhúsanna er frá 63 þús. upp i 175 þús.. Húsin og sú aðstaða sem boðið er uppá er tilvalin fyrir félaga- samtök og starfshópa. Við höfum einnig fengið til leigumeðferðar land i næsta ná- grenni þjónustumiðstöðvarinnar i Húsafellsskógi ætlað undir bústaði, en leyft verður að hafa hjólhýsi á þessum lóðum til að byrja með. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir einstaklinga. Þessi þjónusta er nú þegar fyrir hendi á staðnum: Sundlaug, ljósaböð, sauna, verslun, bensinsala, flugvöllur, hestaleiga, veiðileyfi á Arnarvatnsheiði, merktar gönguleiðir, varðelda- svæði, eftirlit með sumarbústöðunum o.fl. o.fl.. A framkvæmdaáætlun er: Heilsuhæli, ráðstefnuaðstaða, mótel, bætt iþróttaaðstaða, golfvöllur, skiðalyfta o.fl. o.fl.. Það sem fjölmargar pantanir liggja fyrir um dvöl i húsunum næsta sumar er áskilinn réttur til að afgreiða þær pantanir ef sala hefur ekki farið fram fyrir febrúarlok og þá yrði afhend- inghúsanna til kaupanda ekki fyrr en i sept. n.k.. Uppdrættir og nánari uppl. á skrifstofunni. Guðmundur Reykjalin viðsk.fr.. Hreppsnefnd Egilsstaðahrepps auglýsir eftir mönnum, sem hugsanlega hefðu áhuga á að mynda samtök til þess að standa að byggingu Iðngarða á Egilsstöðum. Upplýsingar veita sveitarstjóri og oddviti Egiisstaðahrepps. Hitaveita Akraness og Borgarf jarðar óskar eftir að ráða tvo laghenta menn til starfa á Akranesi, annar þarf að hafa raf- suðuréttindi. Skrifstofumann i hálft starf á Akranesi. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Véivirkja vana rafsuðu til starfa i Borgar- nesi og nágrenni. Um framtiðarstörf getur verið að ræða. Upplýsingar um störfin veitir hitaveitu- stjóri i sima 93-2214. Umsóknir ásamt upplýsingum sendist til Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar Heiðarbraut 40, Akranesi, fyrir 20. febr. n.k.. Magga hefur lengi starfað i Mæðrafélaginu og verið þar i stjórn. En eins og ég sagði áður, þá verður þessi stutta kveöja ekki nein skrá yfir þau fjölmörgu störf, sem Magga hefur leyst af hendi utan þeirrar daglegu og oft hörðu li'fsbaráttu. Þessi orð eru fyrst og fremst þakklætisvottúr fyrir að hafa notið og njóta enn samstarfs við svo góðan félaga sem Magga er: dugandi, bjartsýna og með af- brigðumhlýja og létta i skapi. A afmælisdaginn verður hún á heimili Hrafnkels sonar sins. Elin Guðmundsdóttir. Vesturíslensk skáldsaga um ungan mann í leit ad sjálfum sér Sd var tið að verulegur hluti is- lenskra bókmennta varð til I Vesturheimi: það nægir að minna á skáld eins og Stephan G. og Guttorm Guttormsson. Nú eru bókmenntir á islensku úr sögunni þar vestra eða svo gott sem, en það þýðir vitanlega ekki, að eng- inn þarlendur maður af islensk- um ættum fáist tii að sýsla við bdkmenntir. t nýlegu hefti af The Icelandic Canadian er sagt frá skáldsögu eftir höfund sem heitir W.D. Val- gardson og fylgir þar með að hann hafi sýnt ágætar gáfur til að skrifa smásögur. „Gentle Sinn- ers”,heitir svo fyrsta skáldsaga hans, hún kom út i fyrra hjá Oberon Press. I umsögn hins kanadisk-is- lenska timaritssegirá þessa leið: „Gentle Sinners segir frá dreng á viðkvæmu skeiði ævinnar, hann á rúmt ár eftir til að verða full- veðja og sjálfstæður. Hann hleyp- ur að heiman frá meinum borgar- lifsins, frá sjálfumglöðum ofsa- trúarforeldrum sinum og leitar hælis á afskekktum slóðum i Manitoba hjá frænda sinum Sig- fúsi, sem skirir hann upp á nýtt á sinn einfalda en hátiðlega hátt og kallar hann Eric. Það er I þessu nýja umhverfi að Eric verður að komast að sam- komulagi við menn eins og Stóra Tré og Litla Tré, ágjarna óvini sálarinnar og við Larry, tvifara sinn, sem kemur út úr buskanum hvenær sem eitthvað bjátar á til að freista hans með þvi að skir- skota til frumstæðra ofbeldis- hneigða og ágirndar. Það er samt sem áður við i þessu hrjúfa um- hverfi, að Eric kynnist og lærir að meta frænda sinn Sigfús, Sam Pawles (Samúel Pálsson?) og Melissu, sem öll eru „bliðir synd- arar” (Gentle sinners). Samband hans við Melissu er sérstaiklega fallegt og endurleys- andi. Leynilegir fundir þessara elskenda eru dýrmætar flótta- stundir undan skuggalegum heimi hinna eldri. Undir lokin verður Eric að fara frá Melissu og snúa aftur til borgarinnar, en lesandanum er eftir skilið hugboð um að ekki hafi verið unnið fyrir gýg. I skáldsögunni lýsir höfundur á lifandi hátt innri baráttu hinnar ungu söguhetju við demónisk öfl. Hann vinnur enga ótviræða sigra, en hann hefur tekið nokkrar mikilvægar ákvarðanir. Frændi Erics orðar þetta vel á einum stað: „Það er ekki spurt um það hvort maðurinn muni eiga sér guði heldur hverja hann muni tigna”. Að lokum hefur Eric kosið sér þá sem helst geta orðið honum til bjargar.” áb. Félag bókagerðarmanna heldur félagsfund að Hótel Esju, 2. hæð, sunnudaginn 8. febr. 1981 og hefst hann kl. 14 stundvislega. Dagskrá fundarins er 1. A félagið að sækja um aðild að ASí? 2. önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórn FBM V»tu byggja Samtak h.f. hefur hafið framleiðslu á nýj- um einingahúsum, teiknuðum af Hróbjarti Hróbjartssyni, arkitekt. Húsin eru af stærðinni frá 100 ferm. til 150 ferm. úr vel viðuðum einingum með band- sagaðri, standandi klæðningu. ' Húsin eru auðflytjanleg hvert á land sem er. Sveitarstjórnarmenn athugið! Tökum einnig að okkur smiði á leikskólum, lausum skólastofum, byggingum fyrir aldraða og öðrum mannvirkjum. Leitið upplýsinga. SÍMI: 99-2333 AUSTURVEGI38 800 SELFOSSI fAtvinnumálanefnd Reykjavíkur minnir hér með á, að hún hefur lýst eftir aðilum, sem hafa áform um að brydda upp á nýrri framleiðslustarfsemi i borg- inni og hafa áhuga á að taka á leigu húsnæði með einhvers konar iðngarða- kjörum i þvi skyni. Umsækjendur skulu gera grein fyrir áformum sinum i skriflegum umsóknum, sem þurfa að hafa borist skrifstofu Atvinnumálanefndar Reykjavikur, Tjarnargötu 11, eigi siðar en 28. febrúar 1981. Væntanlegir umsækjendur eru beðnir að draga ekki til siðasta dags að leggja inn umsóknir sinar. Borgarhagfræðingur veitir allar nánari upplýsingar i sima 18800 á venjulegum skrifstofutima.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.