Þjóðviljinn - 07.02.1981, Qupperneq 26

Þjóðviljinn - 07.02.1981, Qupperneq 26
26 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 7.— 8. febrúar 1981 vísna- mál t Umsjón: Adolf J. Petersen Forna rímið seiðir sál Það vill verða misvindasamt núna á þorranum, bæði hjá veðurguðunum og mönnunum, og áhöld um hvort betra er. Varla kæmi það neinum á óvart þo svo færi, að éljagangur veðurguðanna yrði með betri einkunnargjöf hjá almenningi en mannlifsþvargið, ef t.d. skoðanakönnun færi fram á þvi hjá Dagblaðinu. Sennilega hafa sumir, en aðr- ir ekki, haft gaman af að sjá einkunnargjöfina sem fram kom i skoðanakönnun Dag- blaðsins um daginn, þegar spurt var um afstöðuna til rikis- stjórnarinnar, en þá datt manni i hug visa Rannveigar Guðnadóttur i Keflavik, sem hún hefur sennilega gert á fimmta áratug vorrar aldar: Um þig harður stendur styr, stældu þrótt og vilja. Þvi ösnunum mun eins og fyr illa ganga að skilja. Éljagangur veðurguðanna hefur oftast fengið misjafna dóma hjá mönnum, að minnsta kosti hefur hið þekkta alþýðu- skáld Marius Ólafsson hvorki kosið að berja sér né blása i kaun, þó að éljagjóstur blési um dyr og glugga. Hann bara kveð- ur i sig hita við éljaganginn: fcljagrimur greipum slær gráan skýjahjúpinn. kuldabóistra haglihlær, hrannar bláu djúpin. Þegar tóninn tekur haust, taka aðspillast veður, einhver gömul islensk raust innan i mér kveður. Hetjusögur, het juljóð hljóma á fornum nótum. Þúsund vetra veðurhljóð. vaka i hjartarótum. Horfna timans stuölastál stökum máttinn gefur. Forna rimið seiðir sál, sama háttinn vefur. Hjartans yndið, móðurmál, máttarlind og gaman, það er mynd af þjóðarsál, þegna bindur saman. Mvndin breytist, ljóðalið lengur skeytir eigi um klið. Hugur veit ei hljómasvið. Hrörnun leitar inn á við. Erlend tildrar tiskan sér, talin snilldarmerki hér, því sem skyldu þjónað er, þjóðargildi úr minni fer. Vísna sinna veðraspil. Vetur karlinn rimar, gengur að með gadd og byl, gluggarúður hrimar. Það er hér ekki kunnugt, hvaða vetur það hefur verið, sem iJón Þorsteinsson á Arnar- vatni kvaö um i bréfi til vinar sins. Það kann að hafa verið veturinn 1881—'82, en i bréfinu segir Jón frá harðindum i sveit- inni á eftirfarandi hátt i hluta af bréfinu: Þunnt er efni um þetta blað, þóégsé aðleita. Hátt úr fjöllum f jórum aö fréttalaust má heita. Ekkier fyrirenda aðsjá enn að fari betur, þó er mesti munur á mörgu, eða i vetur. Dimman varðsvo djúp, af þvi dagurinn aldrei hitti, jafnafallin ófærð I oftast hné og mitti. Siðan, þegar býsnum brá, blika af stöðum hærri, netto-frosti alloft á át ján —og tuttugu nærri. Nefin voru bleik og blá, bólganhringa sæti, margur var, sem vissi þá hann var meðskó á fæti. Klepraði okkur kjálka og vör, kólu eyrnabörðin, hefði einhver hortug svör, heyr, hve drap i skörðin. Verst af öllu þótti þó, þarsem anda kólu, að fela bæði frost og snjó fósturlenska sólu. Feginn varð ég sól að sjá, svo það færi að hlýna'um, það hefur heldur húsað frá hjartastöðvum minum. Leyfi ég hverjum þiðuþyt þægum gott aö vita, tek cg sérhvert geislaglit og geri mér alltað hita. Þetta er lifsins leyndarmál, laust af öllum beislum, min in hinsta hestaskál, húrra öllum geislum! Ljóðabréfið búið er bóter aðloknum önnum. Hlýir geislar hlúi að þér, hlúi að öllum mönnum. Flestir eiga allt sitt undir veðurfarinu á hvaða árstið sem er. Samt er fleira sem valdið getur búsifjum ef grant er að gáð. Stephan G. Stephansson hefur I visnahópi sinum, sem hann kallar Eftirköst, lýst við- horfum sinum til veðurfarsins i fleirum en einum skilningi. Við skulum sjá hér nokkrar af þeim vísum: Kæri Hnýsinn minn, til min tniðinn spurning benti: hvort að bréf ið það til þin þyrði sjá á prenti. Ekki þarf i það að sjá — þér ég aftur gegni — ég er bóndi, allt mitt á undir sól og regni. Þó að einhver þykktist mér, það er smátt i tapi. Veðuráttin aldrei fer eftir manna skapi. Mér var heldur aldrei um að eiga nokkru sinni málsverð undirembættum eða lýðhyllinni. Örðug veröur úrlausn hér, illa stend að vigi. Hálfsannleikur oftast ér óhrekjandi lýgi. Það er satt, að menntun mér mislögð vist er fengin. Ef við hámark hana ber, hún er næstum engin. Ilámenntaða virðum vér vora lærdómshrdka, sem eru andleg igulker ótal skólabóka. En I skólum út um lönd er sú menntun boðin: fátter skeytt um hjarta og hönd, hausinn út er troðinn. Á ég að segja þér einn nýjan? Maður verður nú að brosa svona í kurteisisskyni I hvað hann er þreytandi Stjórnlyndi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.