Þjóðviljinn - 07.02.1981, Page 29
Helgin 7,— 8. febrúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 29
um hclgina
Talía sýnir:
Gum og Goo
i Menntaskólanum við Sund
stendur nú yfir árleg
menningarhátíð, sem að þessu
sinni nefnist Þorravaka. Einn
liður hátiðarinnar er sýning
Taliu, leiklistarsviðs MS, á ein-
þáttungnum Gum og Goo eftir
breska leikskáldið Howard
Brenton.
Þetta er annað verkefni Taliu
i vetur, og æfingar eru hafnar á
þvi þrið.ia. Auk þess fá nem-
endur i leiklistarsviði tilsögn i
leiklist tvisvar i viku, og er
Rúnar Guðbrandsson kennari
þeirra og leikstjóri i vetur.
Hann hefur einnig þýtt Gum og
Goo.
Höfundur verksins, Howard
Brenton, er i hópi þekktustu
leikskálda Bretlands. Hann
hefur þó jafnan verið umdeildur
og verk hans þótt djörf og
nýstárleg. Gum og Goo er leikrit
sem skrifað var fyrir þrjá leik-
ara og með það fyrir augum að
hægt væri að setja það upp hvar
sem er. Leikendur i sýningunni
eru örbrún Guðmundsdóttir,
Sigriður Anna Ásgeirsdóttir og
Soffia Gunnarsdóttir. Sýningar
eru i Skálholti, samkomusal
Skólafélags MS, og er gengið inn
um kjallaradyr frá Ferjuvogi.
Miðar eru seídir i skólanum á
virkum dögum kl. 12—2 og við
innganginn. Verð miða er 5 kr.
fyrir meðlimi L.M.F. en 10 kr.
fyrir aðra. Sýningin tekur 40
minútur. Sýningar verða sunnu-
dag 8. febrúar, þriðjudag 10.
feb., sunnudag 15. feb.,
mánudag 16. feb. og þriðjudag
17. feb. og hefjast kl. 20.30 öll
kvöldin. —ih
Mjóafjarðarskessan — ein af þjóðsagnateikningum Asgrims Jóns-
sonar.
Skólasýning í
Ásgrímssafni
Á morgun, sunnudag, verður
opnuð 17. skólasýning Ásgrims-
safns. Sýndareru oliu- og vatns-
litamyndir auk fjölda þjóð-
sagnateikninga. Guðmundur
Benediktsson myndhöggvari og
Páll Guðmundsson myndlistar-
nemi aðstoðuðu við val mynda
og upphengingu. Skólasýningar
Ásgrimssafns hafa átt vaxandi
vinsældum að fagna á undan-
förnum árum.
Sólveig Georgsdóttir, fil.
cand. i safngreinum annast i
vetur safnkynningu á vegum
Reykjavikurborgar. Hún hefur
verið búsett I Sviþjóð um árabil
og starfað i 3 ár við Nordiska
Museet i Stokkhólmi en vinnur
nú á Fræðsluskrifstofu Reykja-
vikur. Hún mun skipuleggja
ferðir barna úr skólum Reykja-
vikur i Ásgrimssafn og tekur við
sértimapöntunum á mánu-
dögum kl. 9—11 i sima 28544.
Sértima fyrir skóla utan
Reykjavikur er hægt að panta i
Asgrimssafni, simi 13644 á opn-
unartima safnsins sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
1.30—4. Sýningin er öllum opin.
Aðgangur er ókeypis.
Upplyfting á Þorranum:
Skálað í lýsi!
i dag kl. 15 veröur opnuö sam-
sýning tveggja listamanna i
Djúpinu og stendur hún til
isunnudagsins 22. febrúar.
Þaö eru þeir Einar Þorsteinn
Asgeirssonhönnuöur og Haukur
Halldórsson teiknari, sem sýna
þar. Þeir hafa áður sýnt verk
sin m.a. nokkrum sinnum á
haustsýningum FIM og á sam-
sýningum á Kjarvalsstöðum
vegna Listahátiöar 1976. Einar
Þorsteinn hefur einnig sýnt að
Kjarvalsstööum i boði List-
iðnar. Aö þessu sinni sýna
þeir félagarnir um þrjátiu
myndverk: Teikningar, mál-
verk, konsept og skúlptúr.
Ætlunin er að hafa opnunina
svolitið þjóðlega og verður gest-
um boöið upp á lýsi i tilefni
Þorrans.
Síðustu
sýningar á
Könnu-
steypinum
Næstsiðasta sýning Þjóðleik-
hússins á gamanleik Holbergs,
Könnusteypinum pólitiska,
veröur annað kvöld, sunnudag
kl. 20, og sú siðasta laugardag-
inn 14. febrúar.
Aðalhlutverkin i leiknum
leika Bessi Bjarnason, Guðrún
Þ. Stephensen og Þórhallur
Sigurðsson, en önnur hlutverk
eru i höndum þeirra Baldvins
Halldórssonar, Sigurðar Skúla-
sonar, Þráins Karlssonar og
Viðars Eggertssonar.
Thorstein
Bergman
á Akureyri
Einsog sagt var frá hér i biað-
inu á fimmtudaginn er Thor-
stein Bergman, einn fremsti
visnasöngvari Norðurlanda, i
heimsókn hér á landi á vegum
MFA og Norræna hússins. Hann
heldur tónleika í Norræna hús-
inu i dag kl. 16, og i Amtsbóka-
safninu á Akureyri á mánudag-
inn kl. 20.30.
Tónleikarnir á Akureyri eru
haldnir i samvinnu milli Tón-
listarfélagsins á Akureyri og
Menningar- og fræðslusam-
bands alþýöu. Aðgöngumiöa-
sala fer fram við innganginn á
Amtsbókasafninu og hefst salan
einni klukkustund fyrir tónleik-
ana á mánudaginn.
A miðvikudaginn kl. 21 heldur
Thorstein Bergman svo siöustu
tónleika sina hér á landi. i Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi.
—ih
FEF fundur
um skóla-
dagheimili
Félag einstæöra foreldra efnir
til fundar um skóladagheimili,
starf þeirra og skipulag, að
Hótel Heklu við Rauðárárstlg
kl. 14 i dag, laugardag.
Gerður Steinþórsdóttir formað-
ur Félagsmálaráðs og Bergur
Felixson framkvæmdstjóri
Dagvistar mæta á fundinum.
Einnig segir Hrafn Jökulsson
frá reynslu sinni af skóladag-
heimili. —ih
Söngur á Hlíðarenda
Hjónin Hjálmtýr E. Hjálm-
týsson og Margrét Matthlas-
dóttir syngja við undirleik
Steinunnar B. Ragnarsdóttur á
veitingastaðnum Hliðarenda viö
Nóatún annað kvöld frá kl. 20.
Þau Hjálmtýr og Margrét
munu syngja lög úr ýmsum
söngleikjum, óperuaríur og
einnig lög af nýútkominni plötu
sinni.
—ih
Ballett og Dostojefskí
Kl. 15 I dag veröa sýndar tvær nýlegar, sovéskar heimildamyndir
i MtR-salnum, Lindargötu 48. önnur myndin er um Fjodor Dosto-
jéfski, en á mánudaginn verður liðin öld frá andláti hans.
Hin myndin er um nokkra unga sovéska listamenn á sviði tónlist-
ar og danslistar, m.a. hina frægu ballerlnu Nadesdu Pavlovnu.
Skýringatal er með myndunum á ensku og norsku. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Guðmundur Armann
Vinnan -
Við kynntumst fyrst þegar við
vorum sendlar hjá Eddunni
hérna I gamla daga, — sögðu
my ndlistarmennirnir Guð-
mundur Armann og Siguröur
Þórir, sem opna sýningu á verk-
um sinum að Kjarvalsstöðum
kl. 16 I dag, og nefna hana
„Vinnan — fólkið — landið”.
Þeir félagar eiga nokkuð
svipaðan feril að baki, luku
báðir námi við Myndlista- og
handiðaskólann og fóru siðan
utan til frekara náms. Sigurður
- landið
— Hugmyndin að þessari
sýningu varð þannig til, — sagði
Sigurður Þórir, — að ég var á
leið til Húsavikur á bil, en bill-
inn neitaði að fara yfir Vaðla-
heiði, þannig að ég leitaöi á
náðir Guðmundar á Akureyri og
fékk gistingu hjá honum. Við
fórum að spjalla saman og sýna
hvor öðrum myndir, og það
endaði með þvi að við ákváðum
að fara út I þetta.
Sýningin verður opin kl. 2—10
daglega til 22. febrúar.
11 myndir um helgina
Það er i dag, laugardag, sem
Kvikmyndahátið 1981 verður
opnuð með pompi og prakt I
Regnboganum. Egill Skúli Ingi-
bergsson borgarstjóri setur
hátíöina kl. 14.30, og siöan verð-
ur sýnd franska myndin Perce-
val frá Wales, eftir Eric
Rohmer. Opnunarathöfnin er
eingöngu fyrir boðsgesti.
Nú um helgina verða syndar
samtals ellefu kvikmyndir á
hátiðinni. 1 dag verða þessar
myndir sýndar: Stjórnandinn
(Dyrygent) eftir Andrzej
Wajda, rokkmyndin Cha Cha
með Ninu Hagen, danska
myndin Johnny Larsen, Solo
Sunny eftir Austur-Þjóðverjann
Konrad Wolf, egypska myndin
Hversvegna Alexandria? og
Dekurbörn eftir Frakkann
Tavernier.
A morgun hefst Buster Keat-
on hátiðin og verða sýndar 2
langar myndir og 3 stuttar eftir
Keaton. Auk þess bætast við
myndirnar Perceval frá Wales,
Xala eftir Sembene, og Haust-
maraþoneftir Danelia.
Nánari upplýsingar er að
finna i bióauglýsingadálkinum
og i blaðinu i gær.
—ih
- fólkið -
Þórir var i Kaupmannahöfn i
rúm 4 ár, og Guðmundur
Ármann i Gautaborg i 5 ár. Þeir
hafa ekki sýnt saman áður, en
báðir hafa þeir haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt i
fjölda samsýninga hér heima og
erlendis.
A sýningunni eru um 90 verk,
málverk, grafik og teikningar.
Meginþema sýningarinnar er
fólk i atvinnulifinu, en einnig á
Guðmundur allmargar lands-
lagsmyndir.
Kvikmyndahátíð 1981:
Sigurður Þórir
Úr opnunarmyndinni „Perceval frá Wales”.