Þjóðviljinn - 18.02.1981, Side 11

Þjóðviljinn - 18.02.1981, Side 11
10 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 18. febrúar 1981. Miðvikudagur 18. febrúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Árni Tryggvason, Gunnar Eyjólfsson og Róbert Arnfinnsson f hlut- verkum sinum. Næsta firum- sýning í Þjóðleikhúsinu: Sölu- maöur deyr Laugardaginn 21. febrúar næstkomandi frumsýnir Þjóð- leikhúsið hið viðfræga leikrit Sölumaður deyr, eftir Arthur Milier. Það er dr. Jónas Krist- jánsson sem þýðir leikritið, Þór- hallur Sigurðsson er leikstjóri, leikmynd gerir Sigurjón Jóhanns- son, búninga sér Dóra E.inars- dóttir um og Kristinn Danielsson annast lýsinguna. Gunnar Eyjólfsson leikur sölu- manninn Willy Loman, Margrét Guðmundsdóttir leikur Lindu konu hans, Hákon Waage og Andri örn Clausen leika Biff og Happy syni þeirra. Andri leikur nú sitt fyrsta hlutverk á fjölum Þjóðleikhússins eftiraðhann lauk leiklistarnámi frá Webber Douglas Academy i London á sið- astliðnu sumri. — Þá eru stór hlutverk ennfremur i höndum Randvers Þorlákssonar, Bryn - disar Pétursd., Árna Tryggva- sonar og Róberts Arnfinnssonar. önnur hlutverk eru i höndum Jóns S. Gunnarssonar, Þórunnar Magneu Magnúsdóttur, Bessa Bjarnasonar, Sigriðar Þorvalds- dóttur og Eddu Þórarinsdóttur. Arthur Milier er i hópi fremstu leikritahöfunda samtimans og hefur Þjóðleikhúsið okkar áður sýnt fimm af verkum hans. Sölu- maðurinn var á fjölunum fyrir réttum 30 árum, frumsýnt i april 1951, með Indriða Waage og Reginu Þórðardóttur i aðalhlut- verkinu. Arið 1955 sýndi leikhúsið verk hans í deiglunni (The Crucible), 1957 kom siðan Horft af brúnni á fjalirnar og naut mikilla vinsælda, haustið 1965 var Eftir syndafallið frumsýntog árið 1970 var á fjölunum vinsæl sýning á leikritinu Gjaldið (The Price). Þá má og geta þess að Leikfélag Reykjavikur sýndi leikritið Allir minir synir (All My Sons) eftir Miller árið 1958. Leikritið Sölumaður deyr var frumsýnt i New York árið 1949 og vakti þá gifurlega og verðskuld- aða hrifningu allra jafnt almenn- ings og leikhúsgagnrýnenda, en skoðanir þessara tveggja aðila fara ekki ætið saman. Hafa fá leikritsnert kviku samtima sins á jafn áhrifarikan hátt og Sölu- maður deyr. Á þeim rösku 30 árum sem iiðin eru frá fyrstu frumsýningu verksins, hefur það veriðsviðsett og sýnt margoft um allan heim og telst eiga öruggan sess i hópi sígildra leikrita þess- arar aldar. Leikritið fjallar um Willy Loman sem hefur verið farand- sali allt sitt lif, konu hans, Lindu, og syni þeirra Biff og Happy. — Willy er tekinn að reskjast og gerir sér ljóst að nú dregur að þvi að þjóðfélagið fari að hafna honum og losa sig við hann eins og hvern annan úrgang. Honum finnst ennfremur að hann hafi brugðist, og þá fyrst og fremst vonum sinum og draumum. Leik- ritið fjallar sem sé um allt lif þessa manns og gerist atburða- rásin að talsverðu leyti i hugar- heimi hans. Skilin milli nútiðar og fortiðar eru mikið til horfin úr vit- und Willy Loman og hann upplifir atvik úr fortið sinni eins og þau væru að gerast i nútiðinni, þvi hann hefur þessa miklu þörf fyrir að réttlæta lif sitt áður en þvi lýkur. Kennarar við Austurbæjarskólann: Skólinn gegnir hlutverki sínu A kennarafundi i Austurbæjar- skólanum, sem haldinn var I gær voru samþykkt hörð mótmæli vegna tillögu um að breyta skóla- húsnæðinu i langlegudeild fyrir aldraða. Sagði Alfreð Eyjólfsson, skólastjóri i samtali við Þjóðvilj- ann i gær að fregnir af þessum til- löguflutningi hefðu vakið ótta hjá nemendum skólans og foreldrum þeirra og hefðu sér borist margar fyrirspurnir og athugasemdir vegna þessa máls. Samþykkt kennarafundarins er svohljóðandi: „Kennarar Austurbæjarskól- ans mótmæla harðlega tillögu Al- berts Guðmundssonar í borgar- stjórn Reykjavíkur um að skólan- um verði breytt i hjúrkunarheim- ili fyrir langlegusjúklinga. Aust- urbæjarskólinn gegnir sist minna þjónustuhlutverki en honum er ætlað. 1 skólanum eru nú um 500 börn og ekki fyrirsjáanlegar breytingar á barnafjölda skólans i náinni framtið. Furðuleg verður sú afstaða að teljast að leggja beri niður skóla þegar nemendafjöldinn loks er i samræmi við hönnun húsnæðis- ins. Ætlast verður til þess að borgarfulltrúar kynni sér málið af eigin raun en hlaupi ekki eftir gróusögum svo að ályktanir og tillögur þeirra verði ekki til að vekja öryggisleysi og óánægju nemenda skólans og aðstandenda þeirra.” Alfreð Eyjólfsson sagði að á siðasta hausti og árið þar áður hefði fjölgað á nýjan leik i Aust- urbæjarskólanum, hverfið væri að yngjast upp og full þörf væri fyrir skólann sem fyrir 50 árum hefði verið hannaður fyrir 600 börn. —AI Um það bil 150 miljónir barna í veröldinni eiga við alvarlega fötlun að búa. Oft má rekja orsakir fötl- unarinnar til atvika er gerðust á meðgöngutima móðurinnar. Stundum er orsakanna að leita í ein- hverju er gerðist á fyrstu mánuðum eftir að barnið fæddist, eða við fæðing- una. James P. Grant, framkvæmdastjóri Barna- hjálparsjóðs Sameinuðu þjóðanna, hefur látið svo um mælt, að ef unnt væri að útbreiða þekkingu um það hvernig koma megi í veg fyrir atvik eða óhöpp sem hafa fötlun í för með sér á þessu afdrifaríka tímaskeiði, þá myndi þeim börnum, sem eiga við fötl- un að búa, fækka mjög verulega á skömmum tíma, einkum í þróunar- löndunum. Grein eftir Jörgen Larsen, Upplýsingaskrif - stofu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 1 þróuðu löndunum eru það einkum slysin sem eru fötlunarvaldurinn, en fjölmargar orsakir aðrar svo sem smitnæmir sjúkdómar, eiturefnanotkun og annað sem veldur meðfæddri fötlun koma þar til. Þriðjungur fatlaðra eru börn Fátæktin er oft aðalorsök þess að tii fötlunar kemur hjá börnum i þróunarlöndunum. 80% allra barna sem búa við fötlun, eiga heima i þróunarlönd- unum. Þar er yfirleitt ekki nokk- ur kostur endurhæfingar eða ann- arrar aðstoðar. Þegar rætt er um þarfir þriðja heimsins á sviði heilbrigðismála, gerist það ærið oft að vandamál fatlaðra verða útundan og er þá gjarnan til þess visað, að það myndi verða óheyrilega dýrt að gera verulegt átak i þessum efn- um i þróunarlöndunum, m.a. vegna þess, hversu tiltölulega fáa fatlaða einstaklinga er þar um að ræða, segir i ársskýrslu fram- kvæmdastjóra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Hagur barna um viða veröld 1980. Mikiö fæst fyrir lítiö fé t skýrslunni er þvi haldið fram, að eitt af mikilvægustu verkefn- unum á ári fatlaðra 1981, sé að kveða þessa skoðun i kútinn. Þessi skoðun er sem sé alröng. i fyrsta lagi eiga langtum fleiri við fötlun að búa en menn al- mennt halda. Talið er að um það bil 450 miljónir manna eigi við að búa einhvers konar likamlega eða andlega fötlun. Um það bil þriðj- ungur þessa stóra hóps eru börn undir 15ára aldri, bæði i þróuðum löndum og þróunarlöndum. Tölur sýna, að það er næstum sama til hvaða þjóðar er litið, um það bil 10% ibúanna eiga við einhvers konar fötlun að striða. i öðru lagi er kostnaðurinn við það annars vegar að koma i veg fyrir fötlun og hins vegar að hjálpa þeim sem eiga við fötlun að búa, til að lifa nokkurn veginn eðlilegu Hfi, dkki svo mikill að slikt sé óyfirstiganlegur þrösk- uldur, jafnvel i þróunarlöndun- Alþjóðaár fatlaðra 1981 um. Rannsókn, sem nýlega fór fram á vegum Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar (WHO) i Mexico, i samvinnu við heil- brigðismálasamtök Ameriku- rikja, leiddi í ljós að 80% þess sem til var talið þurfa, var yfir- leitt til staðar á hverjum einstök- um stað. Til dæmis leiddi athugunin það i ljós, að margs konar hjálpartæki fyrir fatlaða er hægt að framleiða i borgum, bæjum og þorpum til sveita, með tiltölulega litlum til- kostnaði. Fátækt kemur í veg fyrir aðgerðir Ágætt dæmi um það hversu mikið er hægt að gera fyrir til- tölulega litið, er hvað það myndi kosta að bjarga sjón þeirra 250 þúsund barna, sem árlega verða blind vegna skorts á A-vitamini. Kostnaðurinn við þetta er innan við 30aurar á barn á ári. Ef i við- komandi þorpi eða byggð er hjúkrunarkona eða starfsmaður á sviði heilbrigðismála, sem annast gæti frumþjónustu á þessu sviði. Slik undirstöðu-, eða frumþjón- usta krefst ekki mikillar fjár- festingarog gæti i mörgum tilvik- um ráðið bót á veikindum eða þjáningum áður en afleiðing þeirra verður fötlun. Vannæring verðandi mæðra i fátæku löndunum er oft orsök þess, að börn fæðast með sjúk- dóma, sem valda fötlun. Það er þess vegna staðreynd að fátæktin er oft aðalorsök þess að til fötl- unar kemur hjá börnunum. Það sem hér þarf því til að koma fyrst og fremst, er örari efnahagsleg og félagsleg þróun i sveitahéruð- um þróunarlandanna. Samt sem áður heldur fram- kvæmdastjóri barnahjálpar- sjóðsins, James Grant, þvi fram, að mjög mikið sé unnt að gera fyrir fátækustu þjóðfélagshóp- ana, m.a. með betri heilbrigðis- þjónustu og leiðbeiningum um skynsamlegt mataræði. Fötlun í þróuöu löndunum Orsakir fötlunar hjá jafnt börn- um sem fullorðnum geta verið ó- tal margar. Þegar um er að ræða meðfædda fötlun, má ekki gleyma þvi, aö hún kann að hluta til aö hafa gengið að erfðum og slikt er auðvitað oftast erfitt að koma i veg fyrir. Aðrar tegundir fötlunar eiga sér rætur i smitnæmum sjúk- dómum eða slysum, á vinnustað, heima eða i umferðinni. I þróuðu löndunum eru það einkum slysin sem eru fötlunarvaldurinn. En einnig kemur hér til misnotkun deyfilyfja, áfengis og annarra eiturefna. Enn bætist það við að fötlun, sem i þróunarlandi myndi talin tiltölulega litilvæg, getur talist langtum alvarlegri i iðn- væddu og þrautskipulögðu riki, vegna þess að sá sem að við fötl- unina á að búa, á erfiðara með að lifa eðlilegu lifi i sliku þjóðfélagi. Slik fötlun, — til dæmis mál- helti, tornæmi, eða „taugaveikl- un” virðist þó ennþá útbreiddari i þróuðu löndunum. Bandarisk rannsókn þar sem m.a. er fjallað um ofangreint, leiddi til þeirrar niðurstöðu, að i Bandarikjunum ætti eitt barn af hverjum tiu við einvers konar fötlun aö búa. Hvaö er fötlun? Bæði i Bandarikjunum og i Vestur-Evrópu hafa menn talið sig taka eftir þvi að þvi er varðar börn, sem komið er með á stofn- anir, — i upphafi e.t.v. aðeins til skammrar dvalar, vegna litils háttar fötlunar eða aðlögunar- erfiðleika, — að oft gerist það, að fötlunin eykst og i vissum tilvik- um kemur einnig til ný fötlun. Ástæða þessa virðist vera að dvöl á stofnun og hin mannlegu tengsl þar dragi úr getu barnanna til að lifa eðlilegu lifi. Að mati sérfræðinga er hér vissulega um meginatriði að ræða, að þvi er varðar stöðu fatlaðra. Það geta verið kringumstæðurnar sem gera heilsubilun, sjúkdóm eða geðræn vandamál að fötlun. Fötl- un er ekki sjálfur sjúkdómurinn eða þjáningarnar, heldur það að sá sem á við fötlun að búa getur ekki lifað eðlilegu lifi. Að þvi er börn varðar, þá getur þetta þýtt það að þau geta ekki stundað venjulegt skólanám, notið sam- vista við félaga: eru svipt þeirri ánægju sem önnur börn geta not- ið. Afleiðingin verður sú, að barnið einangrast, fötlunin eykst og verður til lifstiðar. Nema þvi að- eins, að kringumstæðurnar, bæði hinar næstu og i þjóðfélaginu i heild breytist, komið sé til móts við hina fötluðu, og þeim gert lifið léttbærara, þvi aðeins getur þetta breyst. Það er lika,— og ekkí sist i þróuðu löndunum — þetta, sem ár fatlaöra 1981 snýst um. Jörgen Larsen, Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna i Kaupmannahofh. á dagskrá Þetta ómanneskjulega launakerfi bónusinn hefur fyrir löngu gengið sér til húðar og er óhætt að fullyrða að bónusinn hafi alltof lengi haldið niðri almennu tímakaupi í landinu Jón Kjartansson, Vestmannaeyjum: Bónus — Bónus Timamæld ákvæðisvinna er eitt hinna svo kölluðu afkastahvetj- andi launakerfa og hefur veriö við lýði i u.þ.b. 20 ár i frystihúsum hér i Eyjum og gengur i daglegu tali undir nafninu bónus. Atvinnurekendur riðu fyrst á vaðið hér i Vestmannaeyjum við að koma þessu launakerfi á i fisk- iðnaðinum. En bónusinn er hing- að kominn frá Noregi og er þetta launakerfi raunar gert fyrir aðrar aðstæður en hér tiðkast við vinnslu sjávarafla, þ.e. 8 klst. vinnudag 5daga vikunnar,enda er bónusgrunnur miðaöur við dag- vinnukaup á klst. (þ.e. umfram- afköst greidd á dagvinnukaupi). Jafnframt þessu var þak sett á afköst (170—180) og er það gert með vinnuverndarsjónarmið i huga. En þvi hefur litt verið sinnt hér i Eyjum. I sjávarplássum hér á landi hefur það frá ómunatið veriö lenska og talið eðlilegt og sjálf- sagt að vinna langan vinnudag við björgun sjávarafla og hefur sá hugsunarháttur litið breyst við tilkomu nýrra vinnubragða og nýrra launakerfa. Við slikar að- stæður var fyrir 20 árum reynt að aðhæfa afkastahvetjandi launa- kerfi byggt á 40 stunda vinnuviku, aðstæðum þar sem 98 stunda vinnuvika var algeng a.m.k. hluta úr hverju ári og 40 stunda vinnuvika var óþekkt fyrirbæri. Verkalýösfélögin voru ekki i stakk búin að gera samninga um bónusinn, þar sem þau höfðu enga þekkingu á sliku launakerfi og áhrifum þess; hið sama má reyndar segja um atvinnurek- endur, enda hafa bónussamn- ingar i Vestmannaeyjum boriö þess merki til þessa. Til dæmis var I upphafi ekkert gert til að setja hömlur á vinnutimalengd eða afköst og þó að stéttar- félögunum hafi á sumum sviðum tekist aö slipa nokkra vankanta af bónusnum, er enn langt i land að vinnuverndarsjónarmiðum sé fullnægt og er þar ekki um að sak- ast viö atvinnurekendur eina. Eins og áður er getiö er bónus- grunnur miðaður við dagvinnu- kaup, það þýðir að öll umframaf- köst, hvort sem þau eru innt af hendi i dagvinnu, eftirvinnu eöa næturvinnu eru reiknuð sem dag- vinnuigildi. Vegna hins langa vinnudags hér hafa verið i gildi s.k. 90% staðlar i stað 100% staðla, sem i gildi eru annars- staðar á landinu, en með 90% stöðlum er átt viö að áætlaður timi til að skila ákveðinni vinnu- einingu er 11% lengri en annars og hafa atvinnurekendur i þessu talið sig koma til móts við langan vinnudag fiskvinnufólks. Launakerfi þessu hefur verið fundið margt til foráttu: t fyrsta lagi hve það er flókið i útreikningi og að fæstir þeirra sem eftir þvi vinna eöa sjá um skráningar og eftirlit með þvi skilja þaö. I öðru lagi skapar það launa- misrétti á vinnustað og þar með úlfúð og óánægju með sifelldan samanburð á milli starfshópa. t þriðja lagi hefur bónusinn i mörg- um tilfellum mjög skaðleg áhrif á heilsu fólks, vegna mikils vinnu- álags og þeirrar streitu, sem þvi fylgir og er það til litils hróss fyrir verkalýöshreyfinguna og lækna- stéttina, hve þvi máli hefur verið litill gaumur gefinn. Það hefur verið sagt að ekkert kerfi sé það fullkomið að ekki sé unnt að spila á það, sé vilji fyrir hendiog hefur þaðsannast á bón- usnum. Þess eru dæmi að verk- þættir, sem litla tekjumöguleika gefa, séu hækkaöir upp með þvi að falsa bónusskýrslur meö vit- und atvinnurekanda, ekki svo að skilja að það hækki tekjur þessara hópa að neinu marki — ,, heldur tit að gefa þeim blóð á tenn- urnar”, eias og einn hag- ræðingurina orðaði það svo smekklega. Jafnframt er i sum- um frystihúsunum ekki viöhöfð meiri nákvæmni en svo við skrán- ingu á framleiddu magni að á sumar fiskvinnsluvélarnar vantar teljara og er þá slumpað á afköst starfsfólksins við gerð bónusskýrslna og sá slumpa- reikningur notaður við útreikn- inga á kaupauka þess. t mörgum tilfellum er engu lik- ara en að þeir, sem sjá eiga um útfærslu og framkvæmd bónusins i frystihúsunum, hafi litinn eða engan skilning á þessu launa- kerfi, eða taki það ekki allt of há- tiðlega (nema hvorttveggja sé) og skráningar og eftirlit með framkvæmd oft i litlu samræmi við verklýsingar. Allt orsakar þetta skekkju i útreikningi bónus- ins. Það má þvi segja að launa- kerfi þetta sé löngu sprungið hér vegna vanþekkingar og óstjórnar annarsvegar og þess launamis- réttis, sem það felur I sér hins- vegar. Annarsstaðar á landinu er þróun þessa launakerfis skemmra á veg komin,en þó hafa stéttarfélögin og atvinnurek- endur lært af mistökunum, sem hér voru gerð á sinum tima, með þvi að setja skorður á vinnutima og afköst. Þó virðist viðasthvar gæta sömu tilhneigingarinnar og áður er getið um, launaskriðs, ónákvæmni og vanþekkingar á launakerfinu. Atvinnurekendur hér i Eyjum hýggjast nh reyna að lappa upp á þetta launakerfi með þvi að segja upp gildandi samningum viö stéttarfélögin hér og taka i þess staö upp svo kallaöan landssamn- ing sem gefur u.þ.b. 20% rýrari tekjumöguleika. Þessu visa verkalýðsfélögin algjörlega á bug, en hafa i þess stað bent á margt, sem betur mætti fara i stjórnun og framkvæmd bónus- ins. Jafnframt hafa félögin sett fram kröfur um aö ýmislegt mis- rétti verði lagfært. Mikill skoðanaágreiningur er á milli deiluaðila og allt útlit fyrir að slitnað sé upp úr samningavið- ræðum a.m.k. i bili. Eins og áður hefur verið getið, þá er þetta ómanneskjulega launakerfi, bónusinn.löngu gengið sér til húðar og er óhætt að full- yrða að bónusinn hafi allt of lengi haldið niðri almennu timakaupi i landinu. Það er þvi löngu orðiö timabært að leita eftir öðru launakerfi, sem leyst gæti bónus- inn af hólmi, launakerfi þar sem meira tillit væri tekið til vinnu- verndar og hinna mannlegu þátta en nú er. Það er ljóst að þegar af- kastahvetjandi launakerfi á borð við bónusinn er einu sinni komið á, er ekki unnt að leggja það niður nema annað komi i staðinn. En meðan þetta nýja launakerfi ekki finnst væri hugsanlegt að lappa upp á það sem fyrir er. En þar sem launahækkanir virðast vera bannorð, hvort sem i hlut eiga at- vinnurekendur eða rikisstjórnir, þá mætti hugsa sér að upp væri tekin e.k. „bónusuppbót”, sem greidd væri í hundraðshluta af timalaununum, meðan unnið er i bónus, en staðlar lækkaðir i sama hlutfalb og „bónusuppbótinni” nemur. Jafnframt yrðu settar strangari skorður á vinnutima- lengd og afköst. Eitt af feimnismálunum, sem sjaldan er minnst á er, að vöru- gæði eru yfirleitt I öfugu hlutfalli við aukin afköst. Til að hamla gegn þessu hafa atvinnurekendur komiö sér upp ströngu eftirlits- kerfi, sem þó er aöeins haft með einum verkþætti, borðavinnunni, og eru ströng viðurlög við, sé ein- hver staöinn að þvi að skila gall- aðri vöru. Viðurlögin eru endur- vinnsla á tilteknu magni og sums- staðar er enn við lýöi hinn ill- ræmdi refsibónus. Óréttlætið sem er samfara þvi aö aðeins einn verkþáttur er háður eftirliti er svo augljós að hann verður ekki tiundaður hér. En þrátt fyrir þetta stranga eftiriit berast stöð- ugt kvartanir frá kaupendum fiskafurða okkar erlendis frá, svo augljóst er að hin ströngu refsi- ákvæði duga ekki. Við eigum i harðnandi samkeppni á fisk- mörkuðum okkar og kröfur um gæöi framleiðslunnar fara sifellt vaxandi. Er ekki oröið timabært að leggja niður refsibónus og aðrar hirtingar á verkafólki, en verðlauna það heldur fyrir vel unna vöru með þvi að taka upp n.k. gæðabónus?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.