Þjóðviljinn - 12.03.1981, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.03.1981, Blaðsíða 1
UOmiUINN Fimmtudagur 12. mars 1981 —59. tbl. 46. árg. / SIS heldur upp á körfuboltann Samband islenskra samvinnufélaga hefur ákveöiö aðveita 90 þúsund krónum til Körfu- knattleikssambands Islands. Styrkur þessi er veittur landsliðinu i körfuknattleik vegna þátttöku i C-riðli heimsmeistarakeppninnar i þessari iþrótt. I > , Arni Reynisson framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs: Okkar að meta náttúru- minjar ,,Þa,ð er utan við verksvið Náttúruverndarráðs að meta atriðisem varða landnýtingu og auðlindir. Okkar hlutverk var að kanna hvort sér- stæðar náttúruminjar væru á svæðinu sem fer undir vatn ef af virkjun Blöndu verður. Náttúruverndarráð fól þeim Helga Hallgrimssyni og Herði Kristinssyni náttúru- fræðingum að kanna svæðið og umsögn Náttúruverndar- ráðs var byggð á niðurstöð- um þeirra.” Þannig fórust Arna Reynissyni orð i sam- tali við Þjóðviljann i gær. Náttúruverndarsjónar- Imið, skert landnýting, og röskun lifrikis eru þau rök sem andstæðingar Blöndu- virkjunar hafa haldið á lofti, andstætt þeim rökum sem norðanmenn báru fram og kynnt voru i blaðinu i gær. Náttúrufræðingarnir sem áður voru nefndir birtu grein i Mbl. sl. laugardag þar sem þeir halda þvi fram að virkjun Blöndu i núverandi hönnunarformi verði álitin meiri háttar slys i framtið- inni frá vistfræðilegu sjónar- miði. Þá vaknar sú spurning á hverju Náttúruverndarráð byggði þá umsögn sina að ekki bæri að leggjast gegn virkjunaráformunum, þar sem ekki væri i húfi sérstæð eða fágæt vistkerfi. t umsögn Náttúruverndar- ráðs sem samin var i mars 1978 segir: „Almennt séð virðast framkvæmdir þær sem frumáætlunin gerir ráð fyrir ekki þurfa að raska þeim svæðum eða stöðum sem frá náttúrufræðilegu sjónarmiði bæri helst að varðveita á virkjunarsvæð- inu og ekki virðast heldur vera i húfi sérstæð eða fágæt vistkerfi. Á hinn bóginn er ljóst að mjög mikil eftirsjá er i þvi viðfeðma gróðurlandi og beitarlandi sem fer undir vatn á stæði hins fyrirhugaða miðlunarlóns”. Þá er bent á að almennt sé óæskilegt að ganga stöðugt á náttúruleg og frjósöm lifkerfi vegna umsvifa mannsins. Stungið er upp á þvi að jafnframt verði horft til annarra virkj- unarkosta i landshlutanum, sem kalla á minni skerðingu lifrikis. Náttúruverndarráð benti einnig á ýmis vanda- mál sem virkjunin kynni að skapa eins og jarðvegsfok, áhrif langra veituskurða, rask vegna vegargerðar, áhrif á veðurfar, isstiflur og flóð neðar i ánni eins og gerst hefur við Þjórsá. Meginniðurstaðan varð sú að leggjast ekki gegn virkjuninni. Árni Reynisson tók fram að álit náttúrufræðinganna sem fram kom i grein þeirra væri þeirra eigið mat; Það lyftist á mönnum brúnin I gær við vorlegt veður. Þessir ungumenn hafa bersýnilega ekki farið varhluta af bjartsýninni og viðra farkosti sem áður komust ekki úr húsi (Ljósm.: eik). Norðanmenn og fulltrúar RARIK ræða Blönduvirkjun Leitum friðsamlegra lelða — Ekki samningar, sagði Tryggvi Sigurbjarnarson Viö erum að reyna aö finna virkjunar- leiöir sem skapa frið og veröa ekki allt of dýrar" sagði Tryggvi Sigurbjarnar- son í samtali viö Þjóðviljann í gær. Tryggvi á sæti í viðræðunefnd þeirri sem nú f jallar um kosti og galla Blönduvirkj- unar. Tryggvi. og rækilega. Þá var Tryggvi spurður álits á þeirri fullyrðingu náttúrufræðinganna Helga Hallgrimssonar og Harðar Kristinssonar sem fram kom i grein Mbl. sl. laugardag að frá vistfræðilegu sjónarmiði yrði seinna meir litiö á Blönduvirkjun sem slys. Tryggvi sagðist ekki hafa kynnt sér rök þeirra, en minnti á að Náttúruverndarráð hefði lagt blessun sina yfir virkj- unaráformin. Tryggvi bætti þvi við að þaö væri ekki rétt að samn- ingar færu fram i nefnd norðanmanna og fulltrúa RARIK; þeirra hlutverk væri að finna friðsamlegar leiðir og leggja álit sitt siðan fyrir þann aðila sem nefndin vinnur fyrir, iðnaðar- ráðuneytið. Nefndin heldur áfram störfum i dag og mun vinna áfram að könn- un virkjunarkosta viö Blöndu. — ká Viðræðunefndin sem skipuð er sex fulltrúum hreppanna sem eiga land að Blöndu og fjórum fulltrúu-m RARIK virkjunar- aðilans, kom saman til fundar i gærmorgun. Tryggvi sagði að á fundinum hefði verið farið i gegn- um ýmsar skýrslur og álit sér- fræðinga t.d. frá Landgræðslunni, Rannsóknarstofnun landbúnað- arins og verkfræðingum þeim sem unnið hafa að hönnun virkj- unarinnar. Mestur hluti fundarins fór i að kanna gögnin, en siðdegis fóru norðanmenn austur að Búrfelli til að kynnast virkjuninni og til að ræða við sveitarstjórnar- menn þar eystra um áhrif Búrfellsvirkjunar á sveitirnar og reynslu heimamanna af nábýli við orkuverið. Tryggvi var að þvi spurður hvort öll sjónarmið kæmu fram i nefndinni og svaraði hann þvi til að norðanmönnum væri fullljóst um hvað þeir væru að fjalla. Það væri margt að athuga og skiljan- legt að bændum væri sárt um landið. Spurningar eins og þær hvort hægt væri að minnka það landsvæði sem færi undir vatn og hvort hægt væri að græða upp land i staðinn yröu kannaöar vel ; Björgun skipa og skipshafna: n Hin miklu peninga- sjónarmið hvimleið Segja 4 þingmenn sem vilja breyta ákvæöum siglingalaga um þessi efni L Þingmenn úr öllunt flokkum hafa lagt fram á Alþingi tiltögu þar sem skorað er á rikisstjórn- ina að undirbúa breytingu á þeim ákvæðum siglingalaga, sem lúta að björgun skipa og skipshafna, með það að mark- miði, að skipstjórnarmenn þurfi aldrei að veigra sér við, kostn- aðarins vegna, að biðja um þá aöstoö, sem þeim sýnist að mestu gagni mætti koma I hverju tilviki. 1 greinargerð með tillögunni benda flutningsmenn á að ákvæöi siglingalaga um greiðslur vegna björgunar skipa og skipshafna séu á margan hátt úrelt orðin, enda margra áratuga gömul. Akvæðin leiði oft til þess, að skipstjórnarmenn þurfi að hugsa sig um oftar en einu sinni áður en beöið er um aðstoð, sem þeim sýnist að mestu gagni mætti koma i hverju tilviki. Þá segja flutn- ingsmenn að hin miklu peninga- legu sjónarmiö, sem i málin blandast að óbreyttum lögum, séu mjög hvimleið, að ekki sé meira sagt. Flutningsmenn tillögunnar eru Magnús H. Magnússon, Guðmundur Karlsson, Garðar Sigurðsson og Halldór As- grímsson. d

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.