Þjóðviljinn - 12.03.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 12. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
járniönaðarmanna:
\Óvenju \
\liflegt !
I félagslíf !
1 nær öllum stéttarfélögum I
I hefur félagslif verið með I
I daufasta móti undanfarin ár, I
, jafnvel svo að sum hafa lagt *
■ út i dýrar sjónvarpsauglýs- I
I ingar til að minna fólk á I
I vilvist sina. Þessu virðist •
, vera talsvert öðru visi farið J
■ hjá járniðnaðarmönnum i I
I Félagi járniönarmanna.
Þjóðviljanum hefur borist •
i skýrsla stjórnar félagsins, J
| sem lögð var fram á siðasta I
I aðalfundiþess27. feb. sl. Þar I
| kemur fram að félagslif hef- *
■ ur verið hið blómlegasta hjá J
l járniðnaðarmönnum.
í skýrslunni kemur fram, I
| að fyrir utan aðalfund 1980 ■
> voru haldnir 8 almennir .
I félagsfundir og 23 bókfærðir I
| stjórnar. og trúnaðarráðs- I
| fundir á árinu. Þá voru og J
• haldnir fjölmargir fundir .
I með félagsmönnum á vinnu- I
I stöðum.
Þá hefur félagið keypt J
• nýja húseign að Suðurlands- >
I braut 30 en húseignin að I
| Skólavörðustig 16 seld. Þá á |
I félagið 7 orlofshús á fjórum
■ stöðum á landinu og að auki
I á félagið jörðina Kljá á
I Snæfellsnesi þar sem unnið
• hefur verið að endurbótum á
’ húsnæðinu, sem verður 8.
I orlofshúsið, auk þess sem
| félagar geta dvalist þarna i
I töldum eða i húsvögnum.
J Hefur aðsókn að orlofs-
I húsum Félags járniðnaðar-
I manna verið mjög góð yfir
■ orlofstimann.
J Margt fleira mætti nefna
| sem kemur fram i skýrslunni
I sem sýnir hve félagslif hjá
' járniðnaðarmönnum virðist
J standa með miklum ágæt-
I um.
— S.dór
| Afmœlisrit
i til heiðurs
Lúðvík
Kristjáns-
syni
I Sfðla þessa árs verður hinn
I kunni fræðimaður Lúðvik
• Kristjánsson, rithöfundur,
I sjötugur. Af þvi tilcfni hefur
I Sögufélagið ákveðið að gefa
I út afmælisrit honum til
' heiðurs og tjá með þvi nokk-
I urn þakklætisvott fyrir mik-
I ilsvert framlag hans i þágu
• isienskrar sagnfræði.
Meginefni bókarinnar
I verða ritgerðir eftir Lúðvik,
I sem birst hafa á við og dreif,
• einkum i blöðum og timarit-
J um, undanfarna áratugi og
I telja má ótviræðan feng að fá
I safnað saman á einn stað.
' Enn fremur munu veröa i
J ritinu grein um Lúðvik, ævi
| hans og störf, skrá um rit-
I smiðar hans, svo og heilla-
' óskalisti (tabula gratulat-
J oria). Útgáfuna annast
I Bergsteinn Jónsson dósent
I og Einar Laxness cand.
J mag.
Þeir, sem vilja heiðra
| Lúðvik Kristjánsson með þvi
I að láta skrá nafn sitt á
J heillaóskalista og gerast þar
> með áskrifendur að ritinu
I (verð kr. 200.-), eru vinsam-
I lega beðnir fyrir 1. júni n.k.
J að tilkynna það á afgreiðslu
■ Sögufélags að Garðastræti
I 13b (gengið inn frá Fischer-
I sundi), opið virka daga kl.
J 14—18, simi 14620. *
ÞEGAR VORIÐ KOM...
Veðrið var það vorlegt i gær, að
þaö er ástæða til að mæra það á
fleiri en einum stað i dagblaði.
Allir árgangar fóru á kreik,
ekki sist þeir yngri. Það var loks
ástæða til að sleikja is undir beru
lofti og ekki hætta á þvi lengur að
það væri i leiðinni tilræði við
heilsuna. Og það er lika hægt að
totta vorið i sig blygðunarlaust
um túttur, rétt eins og maður
vildi framlengja frumbernsk-
una... (ljósm. eik)
Barnabókadagar
5% ágóðans
rennur til Félags
heyrnarlausra
Barnabókadagar verða i
Markaðshúsi Bókhlöðunnar við
Laugaveg 39 dagana 13.—28.
mars. Þar verða á boðstólum
gamlar og nýjar barnabækur, en
cigcndur verslunarinnar hafa
ákveðiðað 5% af sölunni renni til
Félags heyrnarlausra i tilefni af
ári latlaðra.
Jafnframt bókamarkaðnum
verður efnt til kynninga á
baðstofuloftinu uppi yfir mark-
aðnum, þar munu höfundar lesa
úr eigin verkum, en ekki er ljóst
enn hverjir koma þar fram.
Þeir Eyjólfur Sigurðsson
eigandi Bókhlöðunnar og
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson
formaður Félags heyrnarlausra
kynntu barnabókadagana og
sagði Vilhjálmur að félagið
myndi nota peningana sem til
þess rynnu til þess að ljúka við
innréttingar félagsheimilis að
Skólavörðustig 21. Vilhjálmur
sagði að mjög greinilegt væri að
skilningur væri að aukast á fötiun
heyrnarlausra, sérstaklega eftir
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson form. Félags heyrnarlausra og Eyjólfur
Sigurösson eigandi Bókhlöðunnar kynna Barnabókadaga.— Ljósm:eik.
að sjónvarpiö hóf útsendingar
frétta á táknmáli.
Eyjólfur minnti á að það vildi
oft gleymast að heyrnarleysi er
ein tegund fötlunar og þetta
framtak Bókhlöðunnar væri til
þess ætlað að minna á það.
Vilhjálmur bætti þvi við að i
sinum augum væri heyrnarleysi
þreföld fötlun, engin heyrn, skert-
ur málþroski og allt öðruvisi
raddbeiting en hjá þeim sem
heyra. Félagheyrnarlausra hefur
að undanförnu beint kröftum sin-
um að félagsheimilinu, verið með
happdrætti i gangi og er þökk að
öllum þeim stuðningisem fólk vill
veita neyrnarlausum. — ká
Fjölbrautaskóli
Suðurnesja:
Námsferðir,
kvikmynda-
hátíð og
fyrirlestrar
Vikuna 16.—20. mars
verður haldin starfsvika i
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
(F.S.) og fellur öll formleg
kennsla niður i þeirri viku af
þeim sökum. I stað
venjulegrar kennslu mun
neniendum m.a. verða boðiö
upp á átthagaferðir um
Reykjanes, svo og ferðir i
ýmis fyrirtæki og stofnanir á
Suðurnesjum og
stór-Reykjavikursvæðinu
sem tengjast námi þeirra á
einhvern hátt.
Þá verður efnt til
fyrirlestrahalds i skólanum
um hin ýmislegustu efni er
tengjast jafnt skóla og
menntamálum, svo og
þjóðmálum og byggðamál-
um Suðurnesja. Munu
fyrirlestrarnir verða haldnir
á milli kl. 15 og 17 alla daga
vikunnar og verður hægt að
velja milli þriggja fyrir-
lestra samtimis. Fyrirlestr-
ar þessir eru opnir
nemendum jafnt sem öðrum
ibúum Suðurnesja.
Nemendafélag skólans
mun i tilefni starfsvikunnar
gangast fyrir kvikmynda-
hátið i Félagsbiói ofan-
greinda daga og hefjast sýn-
ingarnar kl. 17 dag hvern.
Meðal mynda þeirra er
sýndar verða eru ýmsar
mestu perlur kvikmynda-
gerðarlistarinnar svo sem
myndir eftir Chaplin, Buster
Keaton, Roman Polanski
o.fl. Aðgangur að kvik-
myndasýningunum er öllum
heimill.
A mánudagskvöldið kl.
20.30 verður sýnt leikritið
KONA eftir Dario Fo i flutn-
ingi Alþýðuleikhússins i
Félagsbiói, og starfsvikunni
lýkur svo á föstudagskvöld i
Félagsbiói kl. 20.30 með
tónlistarhátið sem nemenda-
félagið gengst fyrir.
Stofna Félag
íslenskra
safnamanna
Nýlega hefur verið stofnað
Félag islenskra safnmanna,
þe. þeirra sem vinna i fag-
legu starfi við lista-, minja-
og náttúrufræðisöfn og lokið
hafa námi i greinum sem
nýtast i starfsemi þessara
stofnana.
Islenskir safnmenn, sem
eru nokkuð fjölmennur hóp-
ur, hafa ekki fyrr bundist
formlegum samtökum. en
félagsstofnunin kemur i kjöl-
far ráðstefnu um safnmál,
sem safnmenn i Árbæjar-
safni gengust fyrir á sl. vori
og sótt var af fyrirsvars-
mönnum og safnvörðum
viðsvegar að af landinu.
Tilgangur félagsins er ma.
eins og segir i lögum þess
,,að efla samstarf og kynni
milli safna og safnmanna,
fjalla um «afnamál og ýmsan
vanda þeim tengdan. og
annast samskipti við safn-
menn og hliðstæð samtök
erlendis.” A stofnfundinum
var samþykkt að félagið
skyldi fyrst um sinn standa
að útgáfu timaritsins Ljóra
sem hóf göngu sina i árslok
1980 og er meðal annars
ætlað að fjalla um safnmál
og minjavernd.
Um 30 manns hafa þegar
óskað inngöngu i félagið.
Fyrirhugað er að halda
fyrsta almenna félags-
fundinn i Arnagarði stofu
423, laugardaginn 21. mars
1981 kl. 14.00 og verður tekið
þar til umræðu efnið: Tengsl
safnanna i nútið og framtið.