Þjóðviljinn - 13.03.1981, Side 7

Þjóðviljinn - 13.03.1981, Side 7
Föstudagur 13. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Oþarfi aö sœkja vetrarupplyftingu til útlanda Hluti skiöalands Akureyringa I Hliöarfjaili. Efsta brekkan milli Strýtu og Stromps. Upp hana liggur spjaldalyftan. — Ljósm. vh. Suðurgötumenn sýna í Noregi 6 islenzkum listamönnum, sem kenndir eru viö Galleri Suöurgötu 7, hefur veriö boöiö að halda sýn- ingu á verkum sinum i Noregi hjá Bergens Kunstforening. Þeir sem þarna sýna verk sin eru listamennirnir Steingrimur Eyfjörö Kristmundsson, Margrét Jónsdóttir, Jón Karl Helgason, Halldór Asgeirsson, Friðrik Þór Friðriksson og Bjarni H. Þórar- insson. Verkin sem verða sýnd eru málverk, teikningar, þrivið verk, ljósmyndir, kvikmyndir og gern- ingar. Er þetta liður i kynningu Bergens Kunstforening á is- lenskri nútimalist, og má geta þess að á næstunni veröa sýnd verk eftir Erro á þessum sama staö. Sýningin verður opnuö i dag og fóru nokkrir listamannanna utan til þess að annast uppsetningu hennar. Bæði norska rikiö og menningarsjóður hafa lagt fram styrk til að standa undir kostnaði við flutning listaverkanna og ferðir listamannanna. Bæjarstjórn Selfoss: Harmar skrif um Sjúkrahús Suðurlands Nýlega samþykkti bæjarstjórn Selfoss einróma á fundi sinum þá tillögu, sem hér fer á eftir: „Bæjarstjórn Selfoss harmar þar blaöaskrif, sem nú fara fram um málefni Sjúkrahúss Suður- lands og ályktar, að slik skrif séu sist til þess fallin, að vinna mál- inu gagn. Skrif um einstaka starfsmenn eru aðeins til að skapa sundrungu og óeiningu heima fyrir, og tefja fyrir framgangi málsins”. v — mhg Því ekki að skreppa norður eða austur? Einsog undanfarna vetur hefur verið mjög mikið um heimsóknir 'til höfuðborgarinnar utanaf landi og er fólk í leikhús- ferðum, innkaupaferðum, f jölskylduheimsóknum eða öllu saman í bland. Sé nánar að gáð kemur oft í Ijós, að hér er verið að nota sér „helgarpakkana" svo- kölluðu sem Flugleiðir bjóða uppá í samvinnu við hótel i Reykjavík, en inni- falinn í þeim er verulegur afsláttur af bæði fargjöld- um og gistingum. Hinu hafa Reykvíkingar etv. ekki veitt athygli, að þeim stendur til boða sambæri- legur pakki ef þeir vilja skreppa helgarferð út á land. Varla er hægt að hugsa sér meiri upplyftingu frá vetrar- drunganum en að komast i annað umhverfi og njóta útivistar og skemmtana, enda láta margir sig dreyma um skiðaferðir til útlanda um þessar mundir. En ekki hafa allir fé né fri til sliks og reyndar þarf ekki að sækja svo langteftir tilbreytingu. Það er úr heilmiklu að velja fyrir þá sem vilja fara helgarferð útá land og miðað við venjulegt flugfargjald kemur hótelgistingin i helgar- pakka út á hlægilega lágu verði. Þessi sérstöku kjör gilda framað 18. mai, að undanteknu timabil- inu 6.-24. april. Velja má um Akureyri, Egilsstaöi, Hornafjörö, Sauðárkrók og Húsavik. Að sjálfu leiðir, að höfuðstaður Norðurlands Akureyri býður upp á fjölbreyttasta skemmtunina, þvi þar er jafnan mikið um að vera vetur sem sumar. Skiðaað- staða i Hliðarfjalli er mjög góð og brekkur þar við hæfi jafnt þeirra sem vanir eru og óvanir. Þar er 1000 metra stólalyfta sem flutt getur580manns á klst., 200metra há, og 520metra löng spjaldalyfta ofar i fjallinu, sem flytur 520 manns á klst. Auk þess eru kaðal- brautir fyrir lægri brekkurnar. Snjótroðarar eru i gangi alla daga og hluti af skiðabrekkunum flóð- lýstar á kvöldin. Skiðastaðir nefnist skálinn með veitingasöl- um, gistiherbergjum, salerni, gufuböðum osfrv. Auk hans er ofar i fjallinu þjónustuskálinn Strýta með veitingasölu og snyrtiaðstöðu. Þaðan er stjórnað skiðamótum i Hliðarf jalli. Gönguskiðabrautir eru aftur i skóglendinu Kjarna innan við Akureyrarbæ. Þeirsem ekki fara á skiði þurfa ekki að vera i vandræðum með sig. Þeir geta brugðið sér á skauta, i gönguferðir, nú eða stundað menninguna og skemmtanalifið. Margir góðir veitingastaðir eru á Akureyri. bæði þeir gömlu og góðu einsog Hótel KEA og Sjallinn, þar sem bæði er hægt að boröa og dansa, en einnig nýrri svo sem Smiðjan, litill notalegur staður með úrvals mat, en litlu dansgólfi, og H-100, þar sem fjöriö er jafnan i hápunkti á diskðinu hiá unga fólkinu. Akureyri er skólabær og ungt fólk setur þvi mikinn svip á bæjarlifið. Austur- og Suðausturland A Egilsstöðum er gist að Gistiheimilinu. Egilsstaðir eru samgöngumiðstöð á Austurlandi. Þarer aðalflugvöllurinn og þaðan greinast leiðir til allra átta. Egilsstaöir er mjög vaxandi stað- ur og með tilkomu nýja mennta- skólans er þar oröinn skólabær. A Egilsstöðum eru bilaleigur og hamli ekki færð er þvi mögulegt að heimsækja firðina og ferðast um Hérað, heimsækja Hallorms- stað o.s.frv. A Hornafirði er gist á Hótel Höfn. Hornafjörður er mikill athafnabær og ört vaxandi. Þaðan er viðsýnt og fagurt um að litast. Jafnan er snjólétt á suðausturhorni landsins og þvi fært bæði i Oræfi og út á Stokksnes. Marga fýsir að fylgjast með atvinnulifi þeirra Hornfirðinga. Þaðan hafa löngum róið harðduglegir sjómenn og er mikil gróska i bæjarlifinu. Norræna félagiö á Akranesi 25 ára Listsýning og afmœlishátið Norræna félagið á Akra- nesi verður 25 ára sunnu- daginn 15. mars n.k. Það var stofnað af Magnúsi Gíslasyni sem þá var framkvæmdastjóri Nor- ræna félagsins á íslandi. Fyrsti formaður þess var Hálfdán Sveinsson, sem lengi var forseti bæjar- stjórnar og bæjarstjóri um skeið. Félagið hefur staðið fyrir margskonar fræðslu- og kynn- ingarstarfi um norræn málefni og tvisvar staðið fyrir vinabæjamóti á Akranesi, 1957 og 1972. 1 tilefni af afmælinu hefur félagið opnað listsýningu i Bók- hlööunni dagana 8,—15. mars og er sýningin opin á hverju kvöldi kl. 20—22. Þá gengst félagið fyrir af- mælishátið i Rein laugardaginn 14. mars n.k. kl. 20.00. Þar veröur sameiginlegt borðhald og margt til skemmtunar. Þar mun m.a. verða formaður Norræna félags- ins i Bamble i Noregi, Reidunn Tollefsen, og maður hennar, en henni er boðið hingað i tilefni af- mælisins. Stjórn Norræna félagsins skipa nú, Þorvaldur Þorvaldsson for- maöur, en aðrir i stjórn eru Lilja Guðmundsdóttir, Þjóöbjörn Hannesson, Svandis Pétursdóttir og Sigurbjörn Guðmundsson. Sauðárkrókur A Sauöárkróki er gist að Hótel Mælifelli. A undanförnum árum hefur iðnaður þróast mjög ört á Sauðárkróki og auk þess sjávar- útvegur. Bærinn er þvi i örri upp- byggingu. Margt er hægt að gera sér til gamans á Sauðárkróki og I Skagafirði. Allir hafa heyrt getið um Sæluvikur þeirra Skagfirð- ing^enda eru heimamenn þekktir fyrir létta lund og gleðskap. Húsavik. Hótel Húsavik er nýjasta hótelið sem boðið er uppá i helgarferðunum. A Húsavik er oft mjög góð skiðaaðstaða. Skiða- lyfta er i Húsavikurf jalli rétt fyrir ofan hótelið og bærinn sjálfur aðlaðandi og skemmtilegur. Margir útlendingar dást mjög að höfninni á Húsavik og þvi athafnalifi sem þar er að sjá. A útmánuðum hefst hrognkelsa- veiði á Húsavik og mikið um að vera við höfnina. Frá Húsavik má skjótast i Mývatnssveit og jafnvel alla leið til Kröflu. Kisilvegurinn er jafnan fær þótt eitthvaö snjói og fegurð Mývatnssveitar er öll- um kunn jafnt að sumri sem vetri. Samvinnubankinn Sparivelta Nú getur þú stofnað verðtryggðan spariveltureikning í Samvinnubankanum. Um leið og þú verðtryggir pening- ana þina tryggir þú þér rétt til lántöku, - Samvinnu- bankinn skuldbindur sig til að lána þér sömu upphæð og þú heíúr sparað að viðbættum vöxtum og verðbótum! Sparivelta Samvinnubankans er jafngreiðslulánakerfi, sem greinist í þrennt: Spariveltu A, skammtímalán; Spariveltu B, langtímalán; og Spariveltu VT, verðtryggð lán. Láttu Samvinnubankann aðstoða þig við að halda í við verðbólguna. Fáðu nánari upplýsingar um spariveltuna hjá næstu afgreiðslu bankans. VERÐTRYGGÐ Sparivelta Fyrirhyggja í fjármálum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.