Þjóðviljinn - 19.05.1981, Side 5
Þriðjudagur 19. maí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Ölafur Ragnar Grímsson sat þing Evrópuráðsins f
sl. viku fyrir hönd þingflokks Alþýðubandalagsins.
Við báðum hann að skýra frá hinum sögulega brott-
rekstri Tyrkjaaf þingi Evrópuráðsins.
„Á þingi Evrópuráðsins í janúar var ákveðiðað taka
á maif undi ráðsins ákvörðun um hvort f ulltrúar Tyrk-
lands fengju áfram seturéttá þingi Evrópuráðsins, og
hvort Tyrklandi skyldi vísað úr öllum öðrum stofnun-
um þess og þar með úr ráðherraráðinu.
verið þátttakandi i samtökum
eins og Evrópuráðinu, sem
byggði á fullgildu lýðræði og
skoðanafrelsi.
Hvað sem svo Natóhagsmun-
um liði yrði að visa Tyrkjum /
brott Ur ráðinu.
Hörð átök
A þingi Evrópuráðsins i sl.
viku urðu hörð átök milli þess-
ara andstæðu fylkinga og var
greinilegt að ýmsir ihaldsmenn
Evren, æðsti maður herforingjastjórnarinnar: ÞUsundir handtekn-
ir, fjölmargir pyntaðir.
Tyrkland rekið af
þingi Evrópuráðsins
Natóhagsmunir
Siðustu mánuði var greinilegt
að ýmsir fulltrúar Nato-hags-
muna lögðu gifurlega áherslu á
að Evrópuráðið breytti i engu
stöðu Tyrklands, þvi slik breyt-
ing fæli i sér fordæmingu á her-
foringjastjórninni i Tyrklandi.
Bandarikin og aðrir oddvitar
Nato telja að hernaðaritök
þeirra i Tyrklandi i gegn um
Nato séu mun meira virði en
lýðræðið i landinu.
Innan Evrópuráðsins mynd-
aðist hins vegar breiðfylking
þingmanna Ur öllum flokkum
sósialista, viðsvegar úr Evrópu,
bæði frá Norðurlöndum, Þýska-
landi, Frakklandi, Spáni og
PortUgal, auk ýmsra þing-
manna frjálslyndra og kristi-
legra flokka, sem vildu visa
Tyrklandi Ur Evrópuráðinu og
mótmæla þannig valdatöku her-
foringjanna og framferði þeirra
i landinu. Margvisleg dæmi
hafa borist til Evrópuráðsins
um fangelsanir þUsunda manna
stórfelldar pyntingar og jafnvel
aftökur vegna stjórnmála-
skoðana. Slikt riki gæti ekki
breittu sér i þágu Nató gegn þvi
að nokkuð væri ályktað um
Tyrkland. Ástandið þar i kjölfar
valdatöku herforingjastjórnar-
innar væri einfaldlega látið
liggja milli hluta að sinni.
Þetta vildum við sósialistar
alls ekki samþykkja, og fóru
fram viðræður milli okkar með
hvaða hætti yrði látið til skarar
skriða gegn herforingjastjórn-
inni. 1 stjórnmálanefnd þingsins
urðu miklar deilur og komst hún
ekki að niðurstöðu.
Siðdegis sl. fimmtudag hófst
svo sögulegur fundur á þinginu,
þar sem kom til afgreiðslu mik-
ill fjöldi breytinga- og viðauka-
tillagna við ályktun þingsins um
Tyrkland. Að loknum mörgum
atkvæðagreiðslum, sem komu i
kjölfar harðra umræðna, var
samþykkt að neita fulltrúum
Tyrklands setu á þingum
Evrópuráðsins með 51 atkvæði
gegn 48.
Þennan nauma meirihluta
mynduðu vinstri öflin ásamt
þorra frjálslyndra þingmanna
og einstaka þingmönnum
ihaldsflokkanna, sem gerðu
uppsteyt gegn foringjum sinum
á þinginu.
Hins vegar var stór hópur
þingmanna, milli 40—50, sem
þoldu ekki þrýstinginn i at-
kvæðagreiðslunni frá hinum
striðandi fylkingum og ýmist
gengu út eða sátu hjá þegar at-
kvæðagreiðslan um þessa ör-
lagariku tillögu fór fram.
Auk þess var samþykkt til-
laga þar sem krafist er endur-
reisnar lýðræðis i Tyrklandi og
harðlega gagnrýndar þær fang-
elsanir og pyntingar sem fram
fara ilandinu og sú vanvirðing á
lögum og rétti sem herforingj-
astjórnin hefur sýnt.
Stjórnmálanefnd og laga-
nefnd þingsins var falið að gefa
haustfundi þingsins skýrslu um
gang mála i Tyrklandi og siðan
verði tekin ákvörðun i árslok
Viðtal
við Ólaf
Ragnar
Grímsson
alþingis-
mann
hvort visa eigi Tyrklandi úr öll-
um stofnunum Evrópuráðsins
og þar með úr ráðherraráðinu.
Fyrsta skrefið
Akvörðun þingsins nú var
fyrsta skrefið á brottrekstrar-
brautinni og þóttNato-öflin gef-
ist örugglega ekki upp, má telja
vist að sá naumi meirihluti
vinstri og frjálslyndari afla,
sem myndaðist i sl. viku muni
halda áfram að vaxa og knýja
fram alger slit við herforingja-
stjórnina i Tyrklandi ef lýðræðið
verður ekki endurreist.
1 kring um þingið var mikið
um ýmiss konar áróður um
Tyrkland og hafði herforingja-
stjórnin ma. sent fyrrverandi
sendiherra og herhöfðingja i
gervi fréttamanna til að fá
aðgang að húsnæði Evrópu-
ráðsins, svo þeir gætu haft beint
samband við stuðningsmenn
sina i ráðinu. Samtök tyrk-
neskra verkamanna i Evrópu
sendu þingmönnum einnig upp-
lýsingar um fangelsanir og
pyntingar á leiðtogum verka-
manna i Tyrklandi. Á meðan
á hinni örlagariku atkvæða-
greiðslu stóð, fylkti hópur tyrk-
neskra útlaga liði fyrir utan
fundarhöll Evrópuráðsins með
fána og mótmælaspjöld, en
huldu andlit sin til að verjast
myndatöku útsendara herfor-
ingjastjórnarinnar.
— Bó.
Borgar- og sveitarstjórnarkosningar á Englandi:
V erkamannaf lokkurinn
náði góðum árangri
Fylgi breska ihaldsflokksins
minnkaði talsvert i borga- og
sveitastjórnarkosningunum sem
fóru fram i Wales og Englandi
fyrir skömmu, einsog Þjv. skýrði
frá. Verkamannaflokkurinn jók
fylgi sitt verulega, þrátt fyrir ill-
deilur á heimavigstöðvum og
brotthlaup harðasta hægri kjarn-
ans á útmánuðum. Aukningin
jafnokaði þvi, að hefðu kosningar
til þings verið samhliða, hefði
Verkamannaflokkurinn unnið 40
sæta meirihluta á þinginu. Þrátt
fyrir ágæt úrslit er þó enn illspá-
andi um lifdaga Thatchers og
hennar dáta — til þess eru óvissu-
þættir enn of margir. Sérilagi er
litið vitað um væntanlegt kjör-
fylgi hins nýstofnaða flokks sós-
ialdemókrata sem ekki bauð
fram i nýafstöðnum kosningum.
Össur
Skarphéðinsson
skrifar
frá Bretlandi
1 Lundúnum vann Verka-
mannaflokkurinn meirihluta sem
og á sex stærstu borgarsvæðun-
um utan höfuðborgarinnar.
Flokkurinn vann auk þess fjöl-
margar sýslur og héruð, og náði
óvæntum meirihluta á svæðum
einsog Avonog Cheshirg sem áð-
ur voru i Ihaldsfjötri.
Frjálslyndir unnu meira fylgi
en i nokkrum kosningum siðustu
25 árin, en náðu óviða mörgum
fulltrúum, t.d. einungis einu af 92
sætum i borgarráði Lundúna.
Frjálslyndir náðu þó hreinum
meirihluta á Isle of Wight, eyju
sunnan undir Bretlandi, sem nú
er einn mestur griðastaður gam-
alla hippa i álfunni.
1 kosningunum var áberandi,
að þar sem refsivöndur Thatcher
hafði komið harðast við hörund
manna, þar varsveiflan til vinstri
stærst. A atvinnuleysissvæðunum
i N-Englandi varð fylgisaukning
flokksins sums staðar yfir 30%,
meðan Ihaldið tapaði hins vegar
mun minna fylgi sunnan til i land-
inu, ss. i Lundúnum.
Þvi hefur verið haldið fram, að
úrslitin staðfesti, að England sé i
rauninni tviskipt, i iðnaðarhéruð
norðursins þar sem tiltölulega
snauð verkalýðsstétt er langfjöl-
mennust — og hinsvegar i suður-
svæðin umhverfis Lundúni, þar
sem auðævi landsins séu saman
komin. Á hinn bóginn er þó bent á,
að Verkamannaflokkurinn hafi
viða unnið óvænta sigra i suður-
beltinu. Þessar vinstri sinnuðu
eyjur, segja mannvitsbrekkurn-
ar, eru á svæðum þar sem verka-
fólk er fjölmennast. Þær vilja
túlka úrslitin þannig, að verka-
fólk sem fór y fir á bak Thatchers i
löngum röðum i þingkosningun-
um 1979, sé nú komið aftur i
heimahagana. Batnandi stéttar-
vitund og allt það.
Vinstri armur á uppleið
Verkamannaflokkurinn hefur
sjaldan brugðið upp jafn róttæku
andliti i kosningum af þessu tagi,
og nú. Itök vinstri armsins komu
viða i ljós, bæði i stefnunni og i
vali á frambjóðendum. Meirihluti
frambjóðenda flokksins i Lund-
MichaelFoot: Ef haida á þessum
árangri, þurfa flokksmenn að
kveikja sér i friðarpipu.
únum var tam. úr vinstn armin-
um. Þeir létu óspart uppi að þeir
teldu forystu flokksins i Lundún-
um alltof hægfara og vildu nýja
leiðtoga. Þeir buðu einnig fram
stefnu sem hefði i för með sér
aukna samneyslu. Ef þið kjósið
hana, sögðu þeir við kjósendur,
Framhald á 14. siðu
verðlækkun
á hvítöli.
Nú kostar lítrinn
aóeins C
Okn
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON