Þjóðviljinn - 19.05.1981, Qupperneq 12
v v.'iV.’V ?.«, i;íí t ’ti.i .%) i.'.i .u1i ;
12 StDA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. mai 1981
AUGLÝSING
Stjórn Verkamannabústaða í Garðabæ augiýsir
eftir væntanlegum umsækjendum um ibúðir í
Verkamannabústöðum f Garðabæ.
Þeir einir hafa rétt til kaupa á íbúð í Verka-
mannabústöðum, sem uppfylla eftirtalin skil-
yrði:
a) Eiga lögheimili í Garðabæ miðað við 1. maí
s.l.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í
öðru formi.
c) Hafa haft í meðaltekjur þrjú s.i. ár eigi hærri
fjárhæð en sem svarar 5.952 milj. í gömlum
krónum fyrir einhleyping eða hjón og 526 þús. í
gömlum krónum fyrir hvert barn á framfæri
innan 16 ára aldurs.
Greiðslukjör: Umsækjandi, sem fær úthlutað
ibúð, skal inna af hendi greiðslu sem nemur 10%
af verði íbúðar og greiðist í tvennu lagi. Fyrri
helmingurinn greiðist innan átta vikna frá dag-
setningu tilkynningar um úthlutun íbúðar, en
seinni helmingurinn ekki fyrr en átta vikum áður
en íbúð er tilbúin til afhendingar.
Eyðublöð fyrir væntanlega umsækjendur liggja
frammi á Bæjarstjórnarskrifstofum Garðabæj-
ar, Sveinatungu v/Vífilsstaðaveg,á venjulegum
skrifstof utíma.
Umsóknum skal skilað á Bæjarstjórnarskrif-
stofur Garðabæjar Sveinatungu v/Vífilsstaða-
veg fyrir 15. júní n.k. í lokuðu umslagi merkt
stjórn Verkamannabústaða í Garðabæ.
Garðabæ 17. maí 1981.
Stjórn Verkamannabústaða Garðabæ.
Frá Grunnskólanum
á Akranesi
Nokkra kennara vantar að Grunnskólan-
um á Akranesi.
Aðalkennslugreinar: Stærðfræði og sam-
félagsfræði i 7. og 8. bekk, enska, danska,
liffræði, eðlisfræði, sérkennsla og almenn
kennsla.
Umsóknarfrestur er til 5. júni. Upplýsing-
ar i simum 93-1388 og 93-2012.
Athygli skal vakin á að i haust tekur til
starfa nýr skóli, Grundaskóli, i nýju hús-
næði.
Skólanefnd
Veist þú
um lausa ibúð i Mið- eða Vesturbænum til
leigu. Ef svo er, elskan min, láttu okkur þá
vita þvi okkur vantar eina slika. Við erum
i sima 75983.
Ferðastyrkur til rithöfundar
1 fjárlögum 1981 er 4 þús. kr. fjárveiting til að styrkja rit-
höfund tii dvaiar á Norðuriöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rit-
höfundasjóðs tsiands, Skóiavörðustig 12, 191 Reykjavfk,
fyrir 10. júnl 1981. Umsókn skal fylgja greinargerð um
hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum.
Reykjavik, 11. mai 1981.
RITHÖFUNDASJÓÐUR ÍSLANDS
Styrkur til háskólanáms
i Frakklandi
Laus er til umsóknar einn styrkurtilnáms i raunvisindum
við háskóla i Frakklandi háskólaárið 1981—82.
Umsóknum um styrkinn, ásamt staðfestum afritum
prófsklrteina og meðmælum, skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 3. júnl
n.k. — Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
13. mai 1981
Laus staða
Staða lektors i hjúkrunarfræði við námsbraut I hjúkrunar-
fræði I Háskóla tslands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vlsindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo
og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik
fyrir 15. júni nk.
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ,
11. mai 1981
| Góð rekstrarafkoma Iönaöarbankans:
Einstök samvinna
í bankakerfínu
200hluthafar sátu aðalfund Iðnaðarbankans á Hótel Sögu. Fundarstjóri
var Sigurður Kristinsson, forseti Landssambands iðnaðarmanna og
fundarritari Gísli Benediktsson skrifstofustjóri Iðnlánasjóðs.
Sú samvinna rikis og einstak-
linga sem fram kemur I fjórðungs
eign hlutafjár rlkisvaldsins I
Iðnaðarbankanum er einstök I
bankakerfinu, sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaöarráðherra
m.a. á aðalfundi Iðnaðarbankans
nýlega og kvaðst trúa þvl, aö
hvorum aðila væri stuðningur af
hinum.
Innlánsaukning um 76% á sl,
ári sýnir ljóslega að hann nýtur
trausts og virðingar, sagði ráð-
herra. Flokkun útlána er-með liku
sniði og undanfarið. Hlutur iðnað-
arins er yfir 40% og einstaklinga
25%. Hlutföll þessi virðast eðlileg
og skapa bankanum hagkvæmar
þróunaraðstæður. bótt bankinn
beri nafn með rentu sem banki
iðnaðarins I landinu má hann ekki
einhæfast, heldur verður hann,
einsog hann gerir, að stunda al-
hliða bankastarfsemi og veita al-
menningi nauðsynlega þjónustu,
sagði Hjörleifur Guttormsson.
Fram kom I ræðum formanns
bankaráðs, Gunnars J. Friðriks-
sonar og Braga Hannessonar
bankastjóra að árið 1980 var
Iðnaðarbankanum mjög hag-
stætt, hvort sem litið er á innláns-
þróun, rekstrarafkomu eða
lausafjárstöðu. Heildarinnlán
bankans I lok ársins voru 22.1
miljarðar króna, eftir 76% aukn-
ingu á árinu. Er það mesta inn-
lánsaukning milli ára i sögu
bankans. Lausafjárstaðan batn-
aði á árinu, og nam meðalinni-
stæða á viðskiptareikningi bank-
ans i Seðlabankanum 340 m.gkr.
samanborið við 114 m.gkr. árið
áður. Tekjuafgangur til ráðstöf>
unareftir afskriftir var 442 m.gr.,
samanborið við 81 m.gkr. árið áð-
ur. Á aðalfundinum var ákveðiö,
að auka hlutafé bankans um 60%
með útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
úr 1.037.5 m.gkr. i 1.66 m.gkr.
Gunnar J. Friðriksson ræddi
ma. um nýju 6 mánaða verð-
tryggðu innlánsreikningana og
taldi að þá marka timamót á
islenskum peningamarkaði. Þeir
væru einfalt og aðgengilegt form
sparnaðar er tryggöi örugga
ávöxtun og væri bundiö til tiltölu-
lega skamms tlma. Nú þyrfti að
finna þessum innlánum farveg I
verðtryggðum útlánum og finna
leiðir til að mæta þeim vanda sem
skapast af litlum vaxtamun inn-
lána og útlána og sveiflum á láns-
kjaravisitölu.
Ragnar önundarson aðstoöar-
bankastjóri gerði grein fyrir
starfsemi Iðnlánasjóðs sem af-
greiddi árið 1980 352 lán samtals
að fjárhæð 5.579.7 m.gkr. Nemur
aukning 72% milli ára.
Samþykkt var að greiða hlut-
höfum 4% arð af hlutafé bankans
I árslok 1980. Einnig að auka
hlutafé bankans um 60% með út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
I bankaráð voru kjörnir Gunnar
J. Friðriksson, Gunnar Guð-
mundsson og Sveinn S. Valfells.
Varamenn: Magnús Helgason,
Sveinn Sæmundsson og Leifur
Agnarsson. Iðnaðarráðherra
skipaði þá Sigurð Magnússon og
Kjartan ólafsson sem aöalmenn i
bankaráðið og Guðjón Jónsson og
Guðrúnu Hallgrimsdóttur vara-
menn. Endurskoðendur voru
kjörnir Haukur Björnsson og Þór-
leifur Jónsson, einnig Sveinn
Jónsson, löggiltur endurskoðandi.
Bankastjórar Iðnaðarbankans
eru Bragi Hannesson og Pétur
Sæmundsen og aðstoðarbanka-
stjóri er Ragnar önundarson.
Moskvu-mótið:
Sovétmeistarinn tek-
1 ■fl M ■ (Ekki bætir þessi leikur Ur skák
illli I Kdi jJllllalU
Alþjóðlega skákmótið I Moskvu
á dögunum veröur að telja einn
merkasta viðburð ársins á skák-
sviðinu. Með örfáum undantekn-
ingum leiddu saraan hesta sina
allirbestu skákmenn veraldar og
úr varð geysilega hörð og um leið
skemmtileg keppni. Sá sem þess-
ar linur ritar hefur I hyggju að
fara nokkuð i saumana á þessu
móti, umferð fyrir umferð, en
með þvi móti er hægt að fá
greinargóða hugmynd um gang
mála. Þó að úrslit séu kunn þá
var það langt frá þvi að vera ljóst
mál að Anatoly Karpov myndi
bera sigur úr bytum með svo
miklum yfirburðum sem raun bar
vitni:
staða þar sem Beljavski er öllum
hnútum fullkunnugur.)
13. Rd5-b5!
(Einkennandi fyrir hinn unga
meistara. Hann hugsaði sig um i 1
klst og 8 minút.ur fyrir þennan
leik sem i raun býður uppá
skiptamunsfórn.)
14. Bbli-DdV 16. Rxe8-Dxe8
15. Rc7-llb8 17. Be3
(Eftir 17. cxb5 hefur svartur tvc
vænlega möguleika, 17. —Hxb6
18. bxc6 d5 19. exd5 e4 o.s.frv. eða
17. axb5 18. Be3 d5 með tvisýnni
stöðu. í báðum tilvikum hefur
svartur öflugt frumkvæði fyrir
hið fórnaða lið.)
17. ..-bxc4 19. Be2
18. Rc3-Be6
1. umferð:
Polugajevski-Geller 1/2-1/2
Karpov-Balashov 1-0
Beljavski-Kasparov 0-1
Torre-Smyslov 0-1
Gheorghiu-Smejkal 1/2-1/2
Portisch -Petrosjan 1/2-1/2
Timman-Anderson 1/2-1/2
i þessari umferð var það skák
Sovétmeistarans, Beljavskis við
ungstimið Kasparov sem átti
hugi manna og hjörtu:
livitt: Alexander Beljavski
Svart: Harry Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4-Rf6 5. 13-0-0
2. c4-g(i 6. Be3-Rc6
3. Rc3-Bg7 7. Dd2-a6
4. e4-d(i 8. Rge2-IIe8
(GegnTimman siðar i mótinu lék
Kasparov 8.-e5 og lauk skákinni
með jafntefli eftir harða baráttu.)
9. Rcl-e5 ll.Rle2-c5
10. d5-Rd4 I2.dxc6-Rxc6! ?
(Nýjung. Hér var áður leikið 12.
— bxc6 en eftir 13. Rxd4 exd4 14.
Bxd4 d5 er ugglaust komin upp
skák
Umsjón Helgi Ólafsson
(Eftir langa umhugsun. Hvitur
áræddi ekki að leika 19. Rd5 þvi
svarturá. 19. Rxd5 20. exd5e4! 21.
dxe6 Dxe6 með ýmsum möguleik-
um eða það sem einfaldara er 19. -
Bxd5 20. exd5 c3! 21. bxc3 Rd4!
o.s.frv.)
19. ..-Rd4 22. Rxd5-Bxd5
20. 0-0-d5 23. II12-h5!
21. exd5-Rxd5
(Svartur hefur rifandi spil fyrir
skiptamuninn. Hann notfærir sér
alla möguleika stöðunnar. H-peð-
ið t.d. á eftir að veikja varnir
hvits tilfinnanlega.)
24. Hcl-De6 26. Hel-Dc6
25. Bfl-h4 27. Bh6-Bh8
(Það væri fásinna að skipta upp á
þessum sterka biskup.)
28.f4 (?)
(Reynir að opna linur en svarta
staðan er geysilega höggþétt og
sóknarmáttur hennar eykst með
hvérjum leiknum.)
30. .,-Rxf5 34. Dg5-Kh7
31. I)f4-He8 35. Hd8-Hxd8
32. Hfd2-Dc5- 36. Hxd8-Df2
33. Khl-Be5
(Það var ekkert að þvi að leika 36.
— Rxh6 en Kasparov hefur aðrar
hugmyndir. Hann stefnir rakleið-
is á mátsókn.)
37. Hdl-Rxh6 39. Dc3-h3!
38. Dxe5-e3 *«• Del-Rg4!
Einnig var hægt að leika 40.
e2! Hér átti skákin að fara i bið en
Beljavski gafst upp án frekari
taflmennsku. Hann ræður ekki
við hinar fjölmörgu hótanir t.d.
41. HcKhótunin var 41. -e2!) Bd5!
42. Dxf2 exf2! og við fyrsta tæki-
færi leikur svartur Rg4-e3 og
hvitur verður mát. Glæsileg skák
hjá hinum unga meistara. Það
voru margir sem spáðu honum 1.
sætinu i mótinu eftir þetta afrek,
en Karpov var ekkert á þeim bux-
unum að gefa neitt eftir, þvi hann
vann aðstoðarmann sinn frá
Baguio, Balshov, á næsta auð-
veldan hátt.