Þjóðviljinn - 19.05.1981, Síða 16
DWÐVIUINN
Þriftjudagur 19. mai 1981
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i áfgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Þing Skáksambands Islands 30. maí:
Elnar S. og
Högni fara
hamförum
Uthlutun úr
Kvikmyndasjóði:
on
krónur
Úthlutað hefur veriö milj-
ón krónum úr Kvikmynda-
sjóöi og fer fé þetta til fimm-
tán verkeína.
Styrkur var veittur til
fimm leikinna mynda 150 þiis
kr. styrkur og 100 þils kr. lán
fara tjl myndar Isfilm um
Gisla Súrsson 100 þús og 50
þús króna styrkur fara til aö
gera mynd eftir sögunum um
Jón Odd og Jón Bjarna eftir
Guörúnu Helgadóttur.
Smærri styrkir til leikinna
mynda fara til Hrafns Gunn-
laugssonar. Lárusar Ýmis
óskarssonar og Sóleyjar h.f.
30—40 þús. króna styrkir
eru veittir til aö gera 10
heimmildarkvikmyndir.
Þær fjalla m.iT. um Brieti
Bjarnhéöinsdóttur og kven-
frélsishreyfinguna, sögu
herstöövar á Miönesheiöi,
fuglalif viö Mývatn, islenska
refinn, Sverri Haraldsson
listmálara, togveiöar, bann-
helga blettl og Þingvelii
— áb
Fiskverð:
Vísað til
nefndar
Verölagsráö sjávarútvegs-
ins náöi ekki samkomulagi
um nýtt fiskverö og þvi var
gripiö til þess ráös i gær aö
vfsa málinu til yfirnefndar.
Verölagsráö hefur veriö að
fjaila um nýja fiskveröið
siöan 7. mai sl. án þess aö
nokkur von væri til þess aö
samkomulagiö tækist og þvi
var ekki um annað aö gera
en visa málinu til yfir-
nefndar.
1 dag veröur tekin
ákvörðun um hvenær yfir-
nefnd kemur saman og sjálf-
sagt yerður þaö heldur ekki
þrautalaust að ná samkomu-
lagi þar.
— S.dór
Flugvél
hlekktist á
Litil flugvél úr Reykjavik
lenti i óhappi i lendingu á
laugardaginn. Véiin var aö
lenda á túni viö bæinn
Broddanes á Ströndym og
rakst annaö aöalhjóliö i
ójöfnu og brotnaði þaö af.
Engan af fjórum sem i vél-
inni voru sakaöi og aö sögn
Skúia J.- Siguröarsonar hjá
Loftferðaeftirlitinu er vélin
litiö skemmd og stendur til
aö fljúga henni suöur ein-
hvern næstu daga.
_____________________/
Nota Sjálfstæðis-
flokkinn og Fram-
sóknarflokkinn
í baráttu sinni
— smalað inní
taflfélögin
Þing Skáksambands Islands
verður haldið 30. mai nk. Það
hefur legið ljóst fyrir um nokkurn
tima, að mikil átök yrðu á
þinginu, en nú er ljóst að þau
verða meirien menn ætluðu. Þeir
Einar S. Einarsson fyrrverandi
forseti St og Högni Torfason
fylgisveinn hans, fara nú ham-
förum i að reyna að ná sam-
bandinu aftur og nota til þess
st jórnm álaflokka sina, Sjálf-
stæðisflokkinn og Framsóknar-
flokkinn. Eru flokksskrifstofur og
félagsskrár þeirra notaðar i
þessu skyni og mönnum sópað
inni taflfélög. Þeir Einar og
Högni eru dyggilega studdir i
þessum látum af Halldóri
Blöndal alþingismanni. Einar
hefur gefist upp á að bjóða sig
fram til forseta, vegna óvinsælda,
en kompaniið hefur fengið Pétur
Eiriksson, forstjóra Alafoss h.f.
til að bjóða sig fram á þinginu.
Og mikið skal til mikils vinna.
íhaldið gerir sér ljóst að til þess
að ná meirihluta verður það að
smala inni taflfélögin til að f jölga
fulltrUum þeirra á þinginu, en
félögin fá 1 fulltrúa á þingið fyrir
hverja 20 félagsmenn. Til þess nú
að efla Taflfélag Seltjarnarness
hefur verið smalað i félagið. Eft-
irtaldir hafa verið skráðir þar
inn:
Anders Hansen blaðamaður á
Mbl.m,Þráinn Eggertsson, Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson, Þór
Whitehead, Inga Jóna Þórðar-
dótör starfsmaöur Sjálfstæðis-
flokksins, Sighvatur Blöndal
blaðamður á Mbl., Agúst Asgeirs-
son blaöamaður á Mbl., Árni
Bergur eiriksson heildsali, Asgeir
Hannes Eiriksson pylsusali, Frið-
rik Friðriksson frjálshyggju-
maður, Benedikt Blöndal lög-
fræöingur, Kjartan G.
Kjartansson, Hreinn Loftsson,
Jón MagnUsson, MATTHIAS JO-
HANNESSEN ritstjóri Mbl., og
Gunnlaugur Snædal. Þetta fólk,
og fjölskyldur þess, hefur verið
skráö í félagið á Seltjarnarnesi.
Af þeim sem gengið hafa i
Taflfélag Reykjavikur undan-
farið má nefna: Arna Sigfússon,
formann Heimdallar, Svein
Framhald á 14. siðu
Gjörningar á Lækjartorgi. — Ljósm. —eik—
Atvinnumálanefnd Reykj avíkurborgar:
Erfitt um vinnu
fyrir skólafólk
segir Guðmundur Þ. Jónsson
formaður nefndarinnar
Um síðustu helgi hélt at-
vinnumálanefnd Reykja-
vikurborgar almennan
fund um atvinnumálin í
borginni. Að sögn Guð-
mundar Þ. Jónssonar for-
manns nefndarinnar var
þetta hinn gagnlegasti
ifundur, þar sem menn úr
hinum ýmsu starfsstéttum
héldu erindi um ástand og
horfur i atvinnumálum.
Að sögn Guðmundar
hefur atvinnuástandið í
Reykjavík verið viðunandi
i vetur, en með vorinu
hefur spennan minnkað.
Verst horfir með atvinnu
skólafólks og hafa fleiri
nemendur látið skrá sig
hjá Ráðningastofu
Reykjavíkurborgar nú en í
fyrra, sem bendir til þess
að færri nemendur hafi
fengið atvinnu nú en þá.
— Við höfum alltaf fengið
ákveðna fjárveitingu frá borginni
til að reyna að leysa þetta mál og
munum fá það lika að þessu sinni.
En við bíðum fram að mánaðar-
mótunum og sjáum til hvernig
ástandið verður þá, enda ekki full
ljóst um ástandið fyrr en allir
skólar eru búnir, sagði Guð-
mundur Þ. Jónsson.
Varðandi fundinn um siðustu
helgi, sagði Guðmundur að þar
hefði margt komið fram sem
gagnlegt má telja fyrir atvinnu-
málanefndina þegar til lengri
tima er litið.
— S.dór
Skeggrætt i fundarhléi. Frá vinstri: Sigurður Hallmannsson, Guö-
mundur Bjarnleifsson, Eðvarð Sigurðsson, Haukur Már Haraldsson,
Erlingur Viggósson og Guðmundur Jónsson.
Vinnings-
númerí vor-
\happdrætti
i Alþýöu-
'bandalags
Eftirtalin númer komu upp
er dregið var i vorhappdrætti
Alþýðubandalagsins i
Reykjavik:
Nr. 990. Ferð að eigin vali
með Ferðaskrifstofu
stúdenta að verðmæti kr.
6.000.-
Nr. 813. Sólarlandaferð i
leiguflugi til Mallorka með
ferðaskrifstofunni Úrval að
verðmæti kr. 6.000.-
Nr. 2208. Sólarlandaferð i
leiguflugi með ferðaskrif-
stofunni Samvinnu-
ferðir/Landsýn að verðmæti
kr. 5.000,-
Nr. 1628. Sólarlandaferð i
leiguflugi með ferðaskrif-
stofunni Útsýn að verðmæti
kr. 5.000.-
Alþýðubandalagið i
Reykjavik færir velunnurum
sinum kærar þakkir fyrir
góðar undirtektir við happ-
drættið.
Vinningshafar snúi sér til
skrifstofu félagsins að
Grettisgötu 3 simi: 17500.f
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins:
Sókn tll aukins kaupmáttar
Bylting hefur orðið í félagslegum réttindamálum verkafólks
Aöalfundur Verkalýösmálaráös
Alþýöubandalagsins var haldinn
sl. llaugardag I Hreyfilshúsinu I
Reykjavík. Fundinn sóttu 60
manns.
Megin fundarefnið voru kjara-
málin og undirbúningur komandi
kjarasamninga. Auk þess urðu
miklar umræöur um þróun efna-
hagsmála og rikisstjórnarþátt-
töku Alþýðubandalagsins.
Framsögumenn á fundinum
voru þeir Asmundur Stefánsson,
Svavr Gestsson, Guðmundur J.
Guðmundsson og Ólafur Ragnar
Grimsson. Fundarstjóri var
Guöjón Jónsson, formaöur ráðs-
ins.
Að loknum framsöguræðum
urðu mjög fjörugar umræður.
Kom það fram i máli manna aö
mikið lægi við að hefja nú sókn til
aukins kaupmáttar i komandi
samningum. Jafnframt var lögð
mikil áhersla á aö halda áfram
þeirri þýðingarmiklu byltingu i
félagslegu umbótum sem náðst
hefur fram i stjórnartið Alþýðu-
bandalagsins. Þær umbætur
verða ekki mældar i visitölu og
eru ekki sist merkar fyrir þá sök
að á sama tima hefur félags-
legum réttindum hrakað i ná-
lægum löndum vegna þeirrar
kreppu sem nú hrjáir auðvalds-
heiminn.
Engin ályktun var gerð á fund-
inum, en i lok hans var kosin 27
manna stjórn ráðsins. Sú stjórn
heldur reglubundna fundi og voru
þeir alls 28 á sl. ári. Stjórnin mun
skipta meö sér verkum á fyrsta
fundi Sinum.
Bó