Þjóðviljinn - 24.06.1981, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 24.06.1981, Qupperneq 1
moðvhhnn FRAKKLAND: Samstjórn sósíalista og kommúnista Miðvikudagur 24. júni 1981 139. tbl. 46 árg. Sósialistar, sigurvegarar frönsku kosninganna, Leikjamót skóladagheimilanna I Reykjavlk stendur yfir þessa dagana á Fellavelli i Breiðholti og er þar att kappi I hinum óliklegustu greinum sem sjaldan sjást á iþróttavöllum hinna eldri. Mótið heldur áfram f dag. — Ljósm — eik — W 'V: Wsk SBt §£&> , tw&BsSí '4 1 |jjj 8 ,.§» mm f )H ; HHl ii 0* .... ássBá _ r . 7 * * * * íMb&fyZ /-VV WBtz » V| J sömdu i gær viö Kommún- istaflokk Frakklands um aöild að rikisstjórninni. Mauroy, forsætisráöherra hefur þegar gengið frá ráðherralista sinum. Ráð- herrar eru 40, allt sósíalist- ar eða vinstri radikalar nema 4 sem eru Kommún- istar. Þeir fara m.a. með heilbrigðis- og samgöngu- mál. I fyrrinótt komust samninganefndir flokk- anna að samkomulagi um stefnuskrá fyrir stjórnina, og er þar vikið bæði að efnahagsmálum, félags- málum og utanríkismálum en því hafði verið spáð að siðasti málaf lokkurinn yrði flokkunum erfiðastur viðureignar. Miðstjórnir flokkanna samþykktu síð- an þennan málefnagrund- völl og þá var Mauroy ekk- ert lengur að vanbúnaði. Eins og komið hefur fram i fréttum þurfa sósialistar ekki á stuðningi hinna 44 þingmanna kommúnista að halda til að koma fram málum. Hinsvegar er það talinn sterkur leikur af þeirra hálfu, að fá kommúnista til ábyrgöar, ekki sist vegna þess aö Mitterrand forseti þarf á vinnu- friöi að halda til aö komast yfir væntanlega efnahagsöröugleika næstu mánaða. Mun dæmið þá reiknað þannig, aö kommúnista- ráöherrar i rikisstjórn muni tryggja að stærsta verkalýös- samband landsins, CGT, sem er óbeint undir stjórn kommúnista, fari sér hægt i kjarabaráttu til aö trufla ekki framkvæmd þeirra umbótamála sem flokkarnir hafa komið sér saman um sem lág- markssamnefnara á vinstri armi franskra stjórnmála. Fundað framá nött: Lsekna- deilan CSlJP leysast? Fundurinn sem hófst kl. 5 i gærdag með deilu- aðilum i læknadeilunni stóð enn laust fyrir mið- nætti, þegar blaðið fór i prentun. Þá hafði verið fundað linnulitið frá þvi kl. 11 um morguninn. Sagði Arnmundur Backman, aðstoðar- maður Svavars Gests- sonar, félags- og trygg- ingamálaráðherra að fundurinn myndi standa eitthvað fram eftir nóttu og miklar likur væru á að samkomulag næðist. Þegar fundurinn hófst voru fulltrúar deiluaðila ekki sérlega bjartsýnir á að samkomulag næð- ist. Að sögn Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns fjármálaráð- herra strandaöi þá aðallega á kröfum lækna um fastar yfir- vinnugreiðslur fyrir undirbún- ingsvinnu vegna fræðslufunda sem þeir halda að jafnaði viku- lega með starfsfólki sjúkrahús- anna. — hs Norska hafrannsóknarstofnunin varar við ofveiði á vorgotssíldinni: Heildaraflmn líklega 200 þús. hektól. í ár Norska rikisstjórnin hefur ný- lega samþykkt að leyfa veiðar á 100 þús. hektolitrum af vorgots- síld úr norsk-islenska stofninum á þessu ári. Jóhann Kúld umsjónarmaður Fiskimála Þjóðviljans sagði i samtali við blaðið, að aflaskipt- ingin væri sú að snurpunótaskip fengju 60 þús. hektólitra i sinn hlut, en reknetabátar 40 þús. Til viöbótar þessari veiöi mega Norðmenn veiöa sild með hand- færum án takmörkunar til matar. Þá getur Fiskimálastjórnin leyft veiöar með lagnetum til að afla beitu, til eigin nota. Reiknað er með aö þessi viðbótarveiöi verði um 50 þús. hektólitrar auk þess sem 20 þús. litrar af sild komi hér á land frá öðrum veiðum, aðrir 20 þús. frá handfærum og netum til eigin nota og 10 þús. hektólitrar af sild verði veiddir af rannsókn- arskipum, samtals 200 þús. hektólitrar. Aö sögn Jóhanns mælti norska Hafrannsóknarstofnunin gegn allri sildveiði i ár. Eftir aö fram- angreind ákvörðun var tekin af rikisstjórninni, samkvæmt tillög- um sérstakrar fiskveiöinefndar, þá lagði norska hafrannsóknar- stofnunin á það mikla áherslu að veiöin úr vorgotssildarstofninum fari ekki fram úr 150 þús. hektó- litrum. Lagning bundins slitlags: Nær 150 km verða lagðir á þessu sumri Þjóöviljinn sló i gær á þráðinn til Vegageröarinnar og spuröist fyrirum heistu framkvæmdir við lagningu bundins slitlags á veg- um landsins i sumar. Helgi Hallgrimsson verkfræöingur varð fyrir svörum og sagði að stikar framkvæmdir væru nú að fara i gang i einhverjum mæli i öllum landsfjórðungum. Stærsta einstaka framkvæmdin i grennd viö Reykjavik veröur i Þrengslaveginum, hann veröur allur lagður bundnu slitlagi i sumar, alls 14 kiiómetrar. Einnig veröa heimreiðar til Stokkseyrar og Eyrarbakka lagðar bundnu slitlagi. Þá verða lagðir með sama hætti um 6 km milli Hvols- vallar og Hellu og i Hvalfirði milli Hvamms og Fossár. Sömuleiöis verða lagðir 8 km á Akranesvegi og 9 km á Ólafsvikurvegi. A Isafiröi verður lagt bundið slitlag á veginn aö flugvellinum og hliöstæöar framkvæmdir verða við Bolungavik og Súðavik. Alls veröa lagðir um 8 kilómetrar á Vestfjörðum. A Norðurlandi eru aðalfram- kvæmdirnar i Húnavatns og Þingeyjarsýslum. Lagt verður slitlag frá Reykjaskóla og suður fyrir Stað i Hrútafirði, 6 km við Þingeyri og 10—12 i Langadal. Þá veröa lagöir 10 km i Aðaldals- hrauni. Á Austfjörðum eru aðalfram- kvæmdirnar viö Noröfjarðarveg i Reyöarfiröi og við Norðfjörö, alls 9 km. Þá veröa lagðir 11 km viö Höfn i Hornafirði og styttri vega- lengdir viö Kirkjubæjarklaustur og Vik i Mýrdal. ógetiðer um smærri lagningar, en ljóst er að hægt er aö tala um nokkurt átak i þessum efnum i sumar og lætur nærri að alls veröi lagðir 150 km með bundnu slit- lagi. -j

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.