Þjóðviljinn - 03.07.1981, Síða 5
Föstudagur 3. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Af innanríkis-
ráherra Reagans:
James Watt heitir hinn nýi
innanrikisráðherra Reagans for-
seta. Valdamikill maður og fer
m.a. með nýtingu almenninga,
náttúruvernd, landnýtingu (og þá
stiflugerð, ,,opna” námavinnslu
o.fl.it ennfremur er hann settur
yfir indiánabyggðir landsins.
Hann er umdeildur maður, þvi
honum finnst að náttúrverndar-
menn hafi ráðið of miklu og er nú
talinn liklegur til að fórna
náttúrugæðum fyrir iðjuhölda og
gróðamenn, fyrir „lögmál
markaðarins”.
Innanrikisráðherrann fer með
æðstu stjórn yfir um það bil
þriðjungi bandarisks lands. Þjóð-
garðarnir og verndarsvæði fyrir
ýmsar dýrategundir eru undir
hans stjórn, hann leigir út land til
oliuborana, framkvæmir lög um
námagröft o.fl.
Nota, nota
James Watt er i bandariskum
blöðum kallaður ihaldsmaður og
mundu fáir efast um að satt væri.
En hann er ekki „ihaldssamur” i
þeim skilningi að hann vilji varð-
veita sem mest af þeirri óspilltu
„Reaganþjóðgarðurinn” i anda Watts: sú hugmynd er rikjandi að
náttúran sé eitthvaö sem á að nota og breyta i auð.
James Watt: Þegar Herrann kemur aftur leysastöll mál....
Náttúruvinlr mega
nú fara að vara sig
náttúru sem eftir er. Hann vill
„nota” hana sem mest. Hann vill
til dæmis ekki kaupa meira land
til að stækka þjóðgarðana, sem
eru margir hverjir illa farnir
vegna gifurlegrar aðsóknar,
heldur leggja peningana i að bæta
þjónustu við ferðamenn. Hann fór
sjálfur spottakorn niður Stóra-
gljúfur i Colorado á fleka og var
hundleiður orðinn á fjórða degi
þótt hann skemn^ti sér fyrst.
Þessvegna er hann á móti þeim
náttúruverndarmönnum sem
vilja banna vélknúnum farkost-
um að sigla niður eftir ánni i
gljúfrinu vegna hávaða og ann-
arra leiðinda. Watt vill leyfa vél-
væðingu til að menn komist niður
gljúfrið á 4-5 dögum I staöinn
fyrir tiu.
Að deila og drottna
Watt svarar ásökunum um-
hverfisverndarmanna um að öllu
sé fórnað fyrir gróða iðjuhölda
með þvi að saka þá sjálfa um að
vera „gráðugir landvinninga-
menn”, þröngur sérhagsmuna-
hópur.Hann er harður slagsmála-
hundur fyrir sinum viðhorfum og
ekki sist laginn við það, að tefla
saman ýmsum hópum — til
dæmis gerir hann hosur sinar
grænar fyrir fuglaskyttum og
stangarveiðimönnum til þess að
ná sér niður á hinum hrein-
ræktaðri umhverfisverndar-
mönnum.
FRÉTTASKÝRING
Hvað gerir hann?
Watt er þegar byrjaður að
fylgja fram stefnu sinni með
ýmsu móti. Hann hefur til dæmis
leyft að bora eftir oliu fyrir utan
strönd Kaliforniu, en stjórn
Carters hafði stöðvað slikar til-
raunir. Þar er ýmsu að tapa:
borunarsvæðin eru skammt frá
nokkrum vinsælustu baðströnd-
um fylkisins, þar eru og fiskimið
verðmæt, en jarðfræðingar segja
á hinn bóginn að ekki sé um ýkja
mikla oliu að ræða. Watt ætlar að
endurskoða afstöðu stjórnvalda
til námagraftar i fjöllum, sem fer
fram með þeim hætti að sniðiö er
ofan af f jalli til að ná i kol og tind-
inum hent i næsta dal. Hann ætlar
lika að draga allmjög úr strang-
leika ákvarðana laga um náma-
gröft, sem fer fram með þeim
hætti, að jarðvegi er svipt ofan af
t.d. kolalögum — en ætlast hefur
verið til þess, að yfirborði lands-
ins sé að vinnslu lokinni skilað i
svipuðu ástandi og það var. Ým-
islegt fleira er á döfinni hjá Jam-
es Watt, sem náttúruvinum
stendur stuggur af.
Þegar Drottinn kemur
Afstaða Watts til umhverfis-
mála blandast með einkennileg-
um hætti saman við trúar-
skoðanir hans. Watt telur að ekki
sé langt þar til Kristur snýr aftur
til jarðar og þar með verði öll mál
leyst, umhverfismál sem önnur.
Hann komst svo að orði þegar
bandarisk þingnefnd yfirheyrði
hann fyrir embættistöku, að hann
tryði á nauðsyn þess að leggja
ýmisleg náttúruverömæti til
hliðar fyrir næstu kynslóðir en
,,ég veit ekki hvort þær kynslóðir
verða svo margar áður en Drott-
inn kemur”....
AB. tók saman
Deilan um húsin auðu:
Barist var í
V estur-Berlín
Fyrir síðustu helgi bloss-
uðu upp á ný mikil átök
milli þúsunda ungra
manna og lögreglumanna í
Vestur-Berlin— mest út af
því húsnæði sem fólk, sem
ekki hefur þak yfir höfuð,
hefur lagt undir sig þar í
borg.
Það loguðu eldar á götu-
vígjum, táragasi var skot-
ið, vatnsfallbyssum var
beitt, kylfur gengu á mót-
mælendum, brotið var og
bramlað fyrir mikið fé.
Um sextíu lögreglumenn
særðust aðfaranótt föstu-
dagsins var og 55 menn
voru handteknir.
Fyrir þrem vikum tókst Rich-
ard von WeizsHcker, forystu-
manni Kristilegra demókrata i
Berlin, að mynda borgarstjórn
ásamt með nokkrum fulltrúum
frjálslyndra. Þessir aðilar hafa
ekki hreinan meirihluta eftir
borgarstjórnarkosningar þær
sem fram fóru nokkru fyrr, en
Kristilegir höfðu unniö verulega á
iþeim. Sósialdemókratar töpuöu,
og „öðruvisi” listi, sem m.a. er
studdur af húsatökufólki, fékk
verulegt fylgi eða um 8% at-
kvæða.
Stefna sósíaldemókrata
Húsnæöismálin höfðu verið eitt
af helstu deilumálum kosninga-
baráttunnar. Fyrr i vetur hafði
komið til átaka þegar lögregla
var send á vettvang til að ryðja
hús, sem höfðu staðið auð, en ungt
fólk lagt undir sig. Samsteypu-
stjórn sósialdemókrata og frjáls-
lyndra hafði svo farið til beggja,
farið samningaleiðina að hús-
næðisleysingjum, veitt þeim
stuðnmg í vissum tilvikum, og
ekki gripið til þess að ryðja húsin
nema i undantekningartilfelium.
Friður komst á til hálfs, en fleiri
og fleiri hús voru tekin. Þegar
kosningar fóru fram voru þau
orðin 163.
Harka
Kristilegir hétu þvi hinsvegar
fyrir kosningar að leggja til at-
lögu gegn húsnæðisleysingjum. A
fyrstu tveim vikum borgarstjórn-
ar þeirra var fólk rekið úr tiu hús-
um eða gerð i þeim húsum meiri-
háttar „leit að glæpamönnum”.
Lögreglan gerðist enn harðhent-
ari en fyrr. Þetta hvatti hluta
þeirra sem hafa tekið húsnæðis-
málin I sinar hendur til nýrrar
baráttu — en aðrir sýndu þreytu-
merki, enda erfitt að eiga von á
áreitni lögreglu hvenær sem er.
Sprenging
En i fyrri viku gerðist það svo,
að um 12 þúsundir manna gengu i
mótmælagöngu til ráðhússins þar
sem þessi mál voru til umræðu.
Þetta var friðsamleg ganga, en
við ráðhúsið tók hópur grimu-
klæddra manna sig út úr fylking-
unni og réðist inn á aflokað svæöi
við ráðhúsið — þá hófust mikil
slagsmál sem siðan breiddust út,
og voru heiftarlegust i Kreuz-
berg, þar sem flest hinna um-
deildu húsa standa.
Talsmenn hinnar nýju borgar-
stjórnar segjast ekki bera fram
nýja stefnu, heldur vilji þeir
koma á „röð og reglu”. Vogel,
fráfarandi borgarstjóri (sósial-
demókrati) hefur hinsvegar sak-
að borgarstjórnina nýju um að
hafa meðhörku sinni eyðilagt það
starf sem byrjað var á til að leysa
húsnæðismálin með friösamleg-
um hætti.
(ByggtáDN)
Ekkcrt þessu likt hafði sést siðan undir iok sjöunda áratugarins
Sumarferð Alþýdubandalagsins á Norðurlandi vestra 15.—16. ágúst:
Flateyj ardalur við Skjálfanda
Einn fegursti staðurinn á Norðurlandi er Flateyjardalur við Skjálfanda. Dalurinn er i eyði og þangað
hafa heldur fáir komið.
Flateyjardalur er girtur hömrum og háum fjöllum og gengur i norður út frá Fnjóskadal og Flateyjar-
dalsheiði. Þar er gróður mikill og kjarr fagurt, en úti fyrir liggur Flatey. Vegna fjölbreytileika i lands-
lagi og gróðri er dalurinn á náttúruminjaskrá Náttúruverndarráðs.
Þangað liggur leiðin helgina 15.-16. ágúst n.k. og verður lagt upp frá Varmahliö kL 10.00 á laugardags-
morguninn. Ferðir verða skipulagðar til Varmahliðar frá öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra.
Ekið verður á fjallabilum um Akureyri og Svalbarðsströnd til Grenivikur, en siðan haldið um Dals-
mynni yfir Flateyjardalsheiði og niður i dalinn.
Tjaldað verður á fögrum stað og efnt til kvöldvöku við varðeld. Frá Varmahlið á áfnagastað eru að-
eins tæpir 200 km og þótt leiðin sé torsót seinasta spölinn ætti góður timi að gefast til skoðunarferða. Að
sjálfsögðu þarf fólk að hafa viðlegubúnað með sér.
Eftir hádegi á sunnudag verður haldið heim á leið með viðkomu i V.aálajskógi'.
Þátttökugjald verður 200kr. Börn innan 14 ára aldurs greiða hálft gjald.
Þáttaka tilkynnist eftirtöldum, sem jafnframt veita nánari uppiýsingar:
Elisabet Bjarnadóttir, Asbraut 6, Ilvammstanga, simi 95-1435
Sturla Þórðarson, Blönduósi, simi 95-4356 og 4357.
Eövarð Hallgrimsson, Skagaströnd, simi 95-4685.
Hallveig Thorlacius, Varmahlið, simi 95-6128.
Rúnar Bachmann, Sauðárkróki, simi 95-5684.
Sigurður Hlöðversson, Siglufirði, simi 96-71161 (vinnusimi)
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, Siglufirði, simi 96-71310
Gisli Kristjánsson, Hofsósi, simi 95-6341.
Rut Konráösdóttir, Þórunnarstræti 83, Akureyri, simi 96-24987.
Þátttaka er öllum heimil.
Undirbúningsnefnd.