Þjóðviljinn - 03.07.1981, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 2. júli 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
frá
Hringíð í síma 81333 kl. 9—5 alla
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Konur í sókn í kaupfélögunum
Konur kvarta gjarna undan
þvi að þær séu sniðgengnar á
félagsmálasviðinu. Auövitað er
það rétt. En orsakir eru til alls.
Konur, sem bundnar eru viö
heimilisstörf, eiga aö sjálfsögðu
erfiðara um vik við að starfa
,,út á við” en karlar. Fram hjá
þvi' verður ekki horft. En
ým islegt fleira kemur til. Ég hef
stundum dregið það i efa, svona
með sjálfum mér, aö konur
almennt kæri sig sjálfar nokkuð
um breytingu. Skortir ekki á
samstöðu þeirra sjálfra? Gætu
þær ekki, þrátt fyrir allt.látið
meira aö sér kveða i félags-
lifinu, ef þæryfirleitt vildu það?
Mér kemur i hug samvinnu-
hreyfingin. Kaupfélögin eru
öllum opin. Samt mun það svo,
að tiltölulega fáar konur hafa
verið i kaupfélögunum. Þær
hafa látið karlmennina um það.
Nokkur breyting hefur þó á
þessu orðið i seinni tið. Til
dæmis voru 18 konur fulltniar á
aðalfundi SIS i vor. Þaö er svo
sem engin feikna fylking, en þó
hafa þær aldrei fyrr verið svo
margar á þeirri samkomu. Af
þessum 18 konum voru 7 frá
KRON, 2 frá Kf. Suðurnesja, 2
frá KEA, og ein frá hverju eftir-
talinna félaga: Kf.
Hafnfirðinga, Kf. tsfiröinga,
Sölufélagi A-Húnv., Kf,
HUnvetninga, Kf. Skagfirðinga,
Kf. Arnesinga og Kf.
Svalbaröseyrar. Þetta er góð
þróun þvi svo sannarlega eiga
konur ekki siður erindi i
kaupfélögin en karlmenn.
„Afram, stelpur”.
Hjólið endilega
á gangstéttunum
Ungur kennari hringdi og
kvaðst ekki skilja sjónarmið
gamals kennara sem komu
fram i lesendabréfi i blaöinu i
gær. Sá gamli var að fjand-
skapast Ut i hunda og hjólreiða-
menn á gangstéttum einkum og
sér i lagi ef þetta tvennt færi
saman, hundur og hjól. Kvaðst
kennarinn ungihafabdið i Nor-
egi undanfarinár og hafa hjólað
þará gangstéttum sér og öörum
aö skaölausu eins og annað fólk i .
bænum þar sem hann bjó. Þetta
var i Lillehammer en þar var
leyft aö hjóla á gangstettum i
fyrra. Gaf það mjög góða raun,
slysum á hjólreiðamönnum
stórfækkaði og nú eru allir
ánægðir með fyrirkomulagið. I
fyrstu var aö visu rekið upp
ramakvein, sagöi kennarinn, en
þær raddir hafa algjörlega
hljóönað.
Kennarinn vildi eindregið
hvetja fólk til að hjóla á gang-
stéttum, vitaskuld með tilhlýði-
legri aðgát og samkvæmt að-
stæðum imerju sinni. Það væri
miklu ör ?ara og betra.
Saga
flamenco-
tónlistar
Söngur djUpsins nefnist
fyrsti þáttur Guöbergs
Bergssonar af þremur þar
sem hann mun i tali og tónum
fjalla um sögu flamencotón-
listarinnar, uppruna hennar
og eðli. Þættirnir verða meö
vikumillibili, stundarfjórðung
i hvert sinn.
Sem kunnugt er hefur
Guðbergur dvalist langtimum
á Spáni og hefur mörgum
íslendingum betur lagt sig eft-
ir þjóðlegri menningu þar-
lendra einsog oft hefur komið
fram i fyrra efni sem hann
hefur komiö fram með i fjöl-
miðlum, þám. Þjóðviljanum.
Guðbergur útskýrir eðli
flamencotónlistarinnar.
Útvarp
P kl. 21.00
Hjalti Jón
Ragnar tsaldursson
í Kína
og Frans
A dagskrá kl. 21.00 i kvöld er
þáttur HjaltaJónsSveinssonar
„Það held ég nú.” Hjálti segist
ætla að koma viða við i þættin-
um i kvöld og halda sig mest
fyrir utan landsteinana. Hann
ætlar meðal annars að kynna
fyrir hlustendum franska
söngvarann Renaud og fjalla
um dansmennt Fransmanna.
Þá mun hann ræöa við Ragnar
Baldursson sem undanfarin 5
ár hefur dvalist i Austurlönd-
um, 3 ár i Kina og 2 i Japan.
Mun Ragnar segja hlustend-
um frá dvöl sinni þar eystra og
hvernig sé að vera tslendingur
á þeim slóðum.
• Útvarp
kl. 21.25
Umsjón: Ellý Ármannsdóttir
og Eik Gísladóttir
KARTÖFLUÞRYKK
Skerðu í sundur stóra kartöflu og búðu til
stimpil. Dýfðu sfðan kartöflunni f lit, best er
að hella litnum á svamp sem látinn er á undir-
skál, þar sem verður hæfilega mikill litur á
kartöflunni. Hægt er að nota þekiuliti, en
gaman er að nota tauþrykks-liti sem fást í
sumum málningarvöruverslunum (því miður
dýrir), en með þeim er hægt að þrykkja á nær-
boli, sem má síðan þvo án þess að myndin þín
hverfi. Einnig má nota lauk.
Barnahorniö