Þjóðviljinn - 03.07.1981, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 03.07.1981, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. júli 1981. Simi 86220 FöSTUDÁGUR: Opið frá kl. 10-03. Hljómsveitin Glæsir og diskó. LAUGARDAGUR: Opiö frá kl. 19-03. Hljómsveitin Glæsir og diskó. SUNNUDAGUR: Opið frá kl. 19-01. Gömlu dansarnir. Bragi Hllöberg og hljómsveit leika und- ir af alkunnu fjöri. klubtainn Borgartúni 32 SirnL 35355. Borgartúni 32, simi 35355. Föstudagur: Opið frá kl. 22.30—03. Hljómsveitin Hafrót og diskótek, Laugardagur: Opið frá kl. 22.30—03. Hljómsveitin Hafrót og diskótek. Sunnudagur: Opið frá kl. 21—01. Dúndrandi diskótek. HÓTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 Blómasalur: Opiö alla daga vik- unnar frá kl. 12-14.30 og 19-23.30 Vínlandsbar: Opiö alla daga vik- unnar kl. 19-23.30 nema um helg- ar, en þá er opið til kl. 01. Opið I hádeginu kl. 12-14.30 á laugardög- um og sunnudögum. Veitingabúðin: Opiö alla daga vikunnar kl. 05.00-20.00. $kálafeirsim\ 82200 FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01. Organleikur. l.AUG ARDAGUR: Opið kl. 12—14.30 og 19—23.30. Organleik- ur. SUNNUDAGUR: Opið kl. 12—14.30 og kl. 19—01. Organleik- ur. Tiskusýningar alla fimmtu- daga. ESJUBERG: Opið alla daga kl. 8—22. Sigtún Sigtún FÖSTUDAGUR: Opið frá kl. 22—03. Hljómsveitin Radius frá Vest- mannaeyjum og „Video-show '. Grillbarinn opinn. LAUGARDAGUR: Opiö frá kl 22—03. Hljómsveitin Radius og „Video-show”. Grillbarinn opinn. Bingó kl. 14.30 á laugardag. FÖSTUDAGUR: Opiö frá kl. 21-03. Hljómplötutónlist viö allra hæfi. LAUGARDAGUR: Opið frá kl. 21-03. Hljómplötutónlist við allra hæfi. SUNNUDAG: Opiö frá kl. 21-01. Jón Sigurösson, og hljómsveit leika sjómannadansa af alkunnu fjöri. Arni Arnason Austurbakka hf. og Birgir Guðmundsson kynna nýjan búnað til bilastillinga. — Ljósm. —eik— Tvær leiðréttingar við Kleifarvegsgrein Tvær meinlegar Urfellingar urðu f grein Þorsteins Sigurðs- sonar sérkennslufulltrúa um Kleifarvegsmálið i blaðinu I gær. SU fyrri var að afloknu bréfi for- stöðumanns Kleifarvegsheimilis- ins, sá lfræðiráðgjafa, forstöðu- manna sálfræðideitda og sér- kennslufuIltrUa til fræðsluráðs 23. november 1979. Greinargerðn sem á eftir kom birtist formálalaust en átti að hafa þennan formála til þess að samhengi og málavextir skildust: ,(Fræðsluráðið fór að tilmælum bréfritara og skipaöi fjölmenna nefnd til að endurmeta með hlið- sjon af reynslu undanfarinna ára skipulag og framkvæmd sér- kennslu, ráðgjafar- og sálfræði- þjónustu og sérstofnana i Reykjavik.” Nefndin var skipuö tveim full- Umfjöllun í Skálholti: Norrænar konurá miðöldum Nýlokið er ráðstefnu sem hald- in var i Skálholti um breytingar á högum og stöðu norrænna kvenna á miðöldum. Voru þátttakendur 28 frá öllum Norðurlöndum og Grænlandi. Ellefu fræðimenn fluttu crindi en auk þess hlýddu ráöstefnumenn á frásagnir dr. Kristjáns Eldjárns og Heimis Steinssonar, rektors um Skái- holtsstað. Haustið 1979 var haldin ráð- stefna af svipuðum toga i Kung- alv i Sviþjóð og fyrirhugað er aö halda aðra áþekka meö ööru um- ræðuefni i Noregi að tveimur ár- um liðnum. Norræni menningarsjóðurinn veitti styrk til ráðstefnuhaldsins og nokkurt framlag fékkst af op- inberu fé. 1 undirbúningsnefnd sátu Anna Sigurðardóttir, Gunnar Karlsson og Helgi Þorláksson en ritari nefndarinnar var Silja Aöal- steinsdóttir. trúm Ur fræðsluráði (Herði Berg- mann og Elínu Pálmadóttur), fulltrúa fræðslustjóra (Þorsteini Sigurðssyni), fulltrúa sálfræði- deilda skóla, yjrétari Marinós- syni), fulltrúa Félags skólastjóra og yfirkennara i Reykjavfk (As- laugu Friðriksdóttur), fulltrúa Félagsísl. sérkennara (Hólmfriöi Árnadóttur) og fulltrúa stéttar- félaga grunnskólakennara i Reykjavi'k (RUnari Björgvins- syni). Þann 18. april 1980 skilaði nefndin álii til fræðsluráðsins. HUn klofnaði i afstöðunni til skipulags sálfræðiþjónustunnar, en skilaði einróma tillögum um fkipan sérkennslunnar, þ.á.m. Kleifarvegsheimilisins og ann- arra sérstofnana. Hér fer á eftir tillaga nefndarinnar um Kleifar- vegsheimilið: „E. Meðferðarheimili handa 4 börnum (Kleifarvegsheimilið) A- ætlaður kostnaöur á ári kr. 53.338.980.- Greinargerð:” . Og svo framvegis ... 1 f jórða dálki efst á siðu fjórtán féllu niður h'nur á eftir tilgreindu svari ráðuneytisins með tilheyr- andi undirskriftum. Upphaf næstu málsgreinar þar á eftirátti að vera: „Þetta svar ráðuneytisins kom ekki á óvart þeim starfsmönnum Fræðsluskrifstofunnar sem um málið höfðu fjallaö, og I Kleifar- vegsnefnd fræðsluráðsins hafði undirritaður þá þegar reifað hug- myndir um samvinnu Fræðslu- skrifstofu og Félagsmálastofn- unar um úrræði er tæki við hlut- verki Kleifarvegsheimilisins; en dagskóla fyrir taugaveiklaða unglinga yrði komið á fót á Kleifarvegi...” o.s.frv. Þjóöviljinn biðst velvirðingar á þessum textaúrfellingum. —ritstj.. EYJAFLUG Brekkugötu 1 — Slmi 98-15 A flugvelli 98-1464 Nota tölvu við stlllmgu bíla Tölvur eru notaðar til æ fleiri hluta sem kunnúgt er og nýlega var hérlendis tekin i notkun fyrsta töivan til bílastillinga, sem einfaldar mjög verkið og eykur þar aö auki nákvæmnina. Tölvan er að gerðinni „Sun” frá Bandarikjunum og er i notkun hjá Bilastillingu Birgis i Skeifunni 11, en það er Austurbakki hf, sem hefur umboð fyrir búnaðinn. Blaðamönnum var nýlega boðið aö skoða tölvuna i notkun, en hún birtir á skermi upplýsingar um ástand vélar bilsins og tilgreinir i hvaða röð þurfi að framkvæma stillinguna og nákvæmlega hvað þurfi að gera. Tölvuna má nota við stillingu bila af öllum gerðum og stærðum. Innan tiðar er von á fleiri slikum tölvum til landsins, og er þvi spáð, að tölvan komi brátt algerlega i stað tækja sem nú tiðkast, bæði vegna hagræðinga við stillinguna sjálfa og vegna minnkaörar eldsneytiseyðslu, sem vinnst við nákvæmnina, að sögn Birgis Guðmundssonar bila- stillingamanns. Mun Austurbakki bjóða upp á kennslu i notkun tölvubúnaðarins á næstunni. Húsmœðravika i Bifröst Árleg húsmæðravika Sambandsins og kaupfélaganna var haldin að Bifröst i Borgarfirði dagana 5. - 12. júni sl. Þátttakendur voru 57 frá 12 kaupfélögum viðsvegar um landið. Forstöðumaður húsmæðravikunnar var Guðmundur Guðmundsson, fræðslufulltrúi Sambandsins. Húsmæðravikan er fræðslu-, skemmti- og hvildarvika fyrir þátttak- endur. A dagskrá voran.a. fræðsluerindi, kynnisferðir, vörukynning- ar og kvöldvökur. Þátttakendur létu i ljós mikla ánægju með vikuna sem og allan að- búnað að Bifröst og færöu þeir forstöðumanni húsmæðravikunnar og starfsfólki sumarhótelsins að Bifröst sérstakar þakkir i lok vikunnar. Fyrsta húsmæðravikan að Bifröst var haldin árið 1960. Hún hefur verið haldin á hverju ári siðan og var þessi þannig sú 22. i röðinni. — mhg Vinabæjamót á Sauðárkróki A sl. ári tók Sauðárkrókur þátt i norrænu vinabæjamóti i Esbo i Finn- landi en bærinn hafði ekki áður veriö þátttakandi i sliku samstarfi. Vinabæir Sauðárkróks eru, auk Esbo, Kongsberg i Noregi, Kristian- stad i Sviþjóð og Köge i Danmörku. A mótinu i Esbo var ákveðið að Sauðárkrókur byði til næsta móts og stóð það yfir dagana 24.-28. júni. Mættu þar fullt.rúar allra vinabæja Sauðárkróks. Voru gestunum kynnt helstu atvinnufyrirtæki i bænum og starfsemi bæjarins og stofnana hans. Farið var i kynnisferðir um Skagafjörð, til Drangeyjar, i Byggðasafnið i Glaumbæ, Viðimýrar- kirkju og heim að Hólum. Aö lokinn Skagafjaröardvölinni fóru gestirnir til Reykjavikur en þar var þeim sýnd borgin og merkir staðir i nágrenni hennar svo sem Þing- vellir, Hitaveita Suðurnesja i Svartsengi o.fl. Létu gestirnir i Ijós mikla ánægju með þessa heimsókn. —mhg Sumarbúöir fyrir aldraða Vikurnar 23. - 30. júli og 3. - 10. ágúst verða starfræktar dvalarbúðir fyrir aldraða að Vestmannsvatni í Aðaldal. Kostar dvölin fyrir vikuna 700 kr. fyrir einstaklinginn en 1200 kr. fyrir hjón. Verður þar margt sér til gamans gert, m.a. kvöldvökur á hverju kvöldi, mikið sungið, tekið i spil, stiginn dans undir dillandi harmon- ikkutónlist, bátsferðir á Vestmannsvatn, stuttar gönguferðir eftir getu hvers og eins o.s.frv. Vestmannsvatn er ákjósanlegur sumardvalarstaður fyrir þá, sem vilja i notalegu umhverfi og hverfa burt frá öllum ys og þys daglegs lifs. — Upplýsingar og innritun er i sima (96) 4-35-53. Gjafir til Listasafns íslands Dr. Selma Jónsdóttir forstöðumaður Listasafnsins tekur við gjöfunum af utanrikisráðherra. Fyrir skömmu afhenti utanrikisráðherra, Ólafur Jóhannesson, Listasafni islands að gjöf tvö ágæt islensk listaverk, gifsmyndina Móð- ir og barn cftir Einar Jónsson myndhöggvara, gerða árið 1905, og oliu- málverk eftir Jóhannes S. Kjarval, landslagsmynd, sennilega gerða i Danmörku á námsárum hans. Listaverkin eru gjöf frá Jörgen B. Strand, aðalræðismanni i Kaup- mannahöfn, og ákvað utanrikisráðherra að þau skyldu afhent Lista- safni Islands til varðveislu og sýningar. Safninu er mikill fengur i þess- um verkum og kann Ólafi Jóhannessyni alúðarþakkir fyrir þá velvild sem felst i afhendingu gjafarinnar segir i fréttatilkynningu þess. Verk- unum hefur nú verið komið fyrir i sýningarsölum safnsins. Evensen Framhald af l. siöu 10. aukafundar allsherjarþings Sameinuðu þjdðanna um afvopn- unarmál frá 30. júni 1978, og til Tlatelolco-samningsins um Suð- ur-Ameríku sem kjarnorku- vopnalauss svæðis. I lokasamþykkt 10. aukafundar SÞ koma fram ákveðin skilyröi fyrir þvi að svæöi og landhópur geti talist kjarnorkuvopnalaus, og i Tlatelolco-samningum er að finna fordæmi um framkvæmd- ina. Segjamá að skilyrðin séu aöal- lega þrjú: i fyrsta lagi að við- komandi ríki skuldbindi sig meö lagasetningu til þess að hafa hvorki atómvopn i striöi né friði. i öðru lagi að rikj ahópurinn geri sameiginlega eöa hvert land fyrir sig samninga við atómveldin að þau viröi kjarnorkuvopnalausa svæðið, beiti það ekki atómvopn- um né atómvopnaógn o.s.frv. i þriðja lagi aö komið verði á al- þjóðlegu eftirlitskerfi með þvi að allir aðilar virði samninginn. Evensen taldi að vel mætti hafa hliðsjón af kjarnorkuvopnalausa svæðinu i Suður-Ameriku, en þar hefur veriö komið á fót eftirlits- stofnun, sem er þriþætt: I fyrsta lagi allsherjarþing aðildarrikja einu sinni á ári, i öðru lagi fasta- nefnd með tveimur frá kjarn- orkuvopnalausu löndunum og tveimur frá atómveldunum. Oddamaöur væri alþjóðlega við- urkenndur einstaklingur. Og i þriðja lagi skrifstofa með fram- kvæmdastjóra sem sæi um tengsl og upplýsingastarfsemi. Fyrir ut- an eigið eftirlit með þessum hætti er í Tlatelolco-samningnum ákveðið aö Alþjóða kjarnorkuvis- indastcínunin i Vin skuli hafa heildareftirlit með þvi að ákvæði hans séu haldin. — ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.