Þjóðviljinn - 22.07.1981, Blaðsíða 1
DJuÐVILJINN
Miðvikudagur 22, júli 1981 —163. tbl. 46. árg.
Aiusuisse neitaöi um upplýsingar.
Bandamenn eriendra hagsmuna
i gær var mikil veisla á vegum Vinnuskólans i Kópavogi meö pylsugrilli og leikjum og annarri skenunt-
un^Hér er barist með koddum. Ujósm. gel)
Kvenuaframboð var
ákveðið á Akureyri
Allar likur benda til þess að
kvennaframboð verði að raun-
veruleika á Akureyri i bæjar-
stjórnarkosningum að ári. Á
fundi sem haldinn var i fyrra-
kvöld að Möðt'uvöllum i Mennta-
skólanum á Akureyri var sam-
þykkt að stefna að kvennaiista. Á
næstu vikum verður unnið í hóp-
um að undirbúningi og skiptu
fundarmenn sér niður eftir
áhugasviðum.
Að sögn Hólmfriðar Jónsdóttur
mættu milli 50 og 60 manns á
fundinum þar af nálægt 10 karl-
menn. Fundurinn samþykkti eft-
irfarandi ályktun: „Fundur hald-
inn á Akureyri 20. júli 1981 telur
réttað bjóða fram kvennalista við
bæjarstjórnarkosningar á næsta
ári. Teljum við nauðsynlegt að
auka þátttöku kvenna i stjórnun
bæjarfélagsins, til að jafnrétti nái
fyrr fram að ganga i reynd. Einn-
ig álitum við að i stjórnun bæ jar-
ins hafi viðhorf og reynsla
kvenna, ekki komið nægilega
fram.”
Hólmfriður sagði að stefnt yrði
a? hreinu kvennaframboði og að
undirbúningurinn næði til allra
bæjarmála allt frá - rafveitu og
hilaveitu til dagvistar- og félags-
mála. „Okkur kemur allt við”
sagði Hólmfriður.
En hvaða rök liggja að baki
kvennaframboðs?
Hólmfriður svaraði að á Akur-
eyri væri 11 manna bæjarstjórn,
þar af aðeins einkona. Það væri
vilji þeirra er að framboði stefna
að koma fleiri konum inn i bæjar-
stjórnina og komakonum á fram-
færi. önnur rök, eða hvernig unn-
ið verður að málum er enn á um-
ræðustigi og það liggur ekkert
fyrir um það hvaða konur taka
sæti a listanum. Listinn verður
óbundinn pólitiskum flokkum, en
það gefur auga leið að konurnar á
Akureyri telja að flokkarnir séu
ekki rétti staðurinn til að hasla
sér völl á.
Hólmfriður tók fram vegna
blaðaskrifa um Soffiu Guðmunds-
dóttur og afstöðu hennar til
kvennaframboðs, að Soffia hefði
ekki gefið neina yfirlýsingu, hún
hefði verið á fundinum og tekið til
máls. Þær framboðskonur myndu
senda frá sér fréttatilkynningu i
samráði við Soffiu vegna blaða-
skrifanna.
Stefnt er að næsta fundi i
september, en fram lil þess tima
starfa hópar og einnig voru konur
kosnar til trúnaðarstarfa fyrir
hópinn. Svava Aradóttir og Val-
gerður Sveinsdóttir eru fjármála-
stjórar. Gunnhildur Bragadóttir
er húsnæðisfulltrúi, Ragnheiður
Benediktsdóttir og Þórlaug Bald-
ursdóttir sjá um samskipti við þá
sem vilja slást i hópinn og Ragn-
hildur Bragadótlir verður yfir
hópnum. Auk þess sjá Dóra
Ingólfsdóttir og Rósa Júliusdóttir
um fjölmiðlamál. —ká
r
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
i
■
L
II. hluti skýrslu Inga R. í dag
50% regla í Astralni
„Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu
um að sækjast eftir erlendu
fjarmagni, þá var sú megin-
stefna mörkuð á þingi í Astraliu
1973, þegar stjórn Verkamanna-
flokksins var við völd, að inn-
lendir aðilar skyldu eiga að
minnsta kosti 50% i öllum
meiriháttar a tvinnufyrir-
tækjum i Ástraliu. Þessi laga-
stefna cr enn formlega við lýöi
og liafa tilraunir til að breyta
henni ekki tekist, en þó má vikja
frá henni þegar sérstaklega
stendur á og fyrir liggur að ekki
reynist unnt að ná saman ást-
rölsku fjármagni.”
Þannigsegir Ingi R. Helgason
m.a. frá i'skýrslu sinni um ferð
til Astralíu og Englands i nóv-
ember 1980, sem Þjóðviljinn
helduráfram aðbirta i dag. 1II.
hluta fjallar Ingi R. Helgason
um Astraliu og súrálsfram-
leiöslu þar, og umsvif Alusuisse
iAstraliu. —ekfc
Sjá síðu 7
I
i
■
I
■
I
■
B
i
■
I
■
J
segir Hjörleifur
Guttormsson
um afstöðu
Geirsarms
Sjálfstæðis-
flokksins til
súrálsmálsins
• „Með þessu gerist Geirsarm-
urinn bandamaður og málsvari
hinna erlendu hagsmuna þegar á
mestu vcltur að heilsteypt sam-
staða geti tekist um málið hér
heima fyrir" segir Hjörleifur
Guttormsson, iðnaðarráðherra
um ályktun þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins i súrálsmálinu,
sem gerð var án þátttöku ráð-
hcrranna Gunnars, Pálma og
Friðjóns, og einnig án Albcrts
Guðmundssonar.
• Tilboði rikisstjórnarinnar um
samráð við stjórnarandstöðuna i
málinu er svarað af Geirsliðinu
með svo skilyrtum hætti að það
jafngildir að stjórnarandstaðan
sé að dæma sig úr leik i frekari
mcðferö málsins.
• Alusuisse hefur skuldbundið
sig til að sjá isal fyrir súráli, ckki
aðeins mcð armslength kjörum
heldur með bestu fáanlegum
kjörum skv. aðstoðarsamningi.
Verðlagning á súráli verður ein út
af fyrir sig að standast þetta próf,
eins og aðrir þættir aöfanga.
• Það strandar á öðrum en is-
lenskum stjórnvöldum að gera
alhliða athugun og fara ofan i
saumana á rekstri ísal og við-
skiptum þcss og móðurfyrir-
tækisins Alusuisse. Nægir i þvi
sambandi að minna á ncitun for-
ráöamanna Isal að veita iðnaðar-
ráðuneytinu umbeðnar
upplýsingar um kaupsamninga
og sölusamninga fyrirtækisins —
og neitun Alusuisse gagnvart
Coopcrs & Lybrand að fá aðgang
að fruingögnum varðandi við-
skiptin við tsal.
Sjá baksíðu
Cargolux:
Hlutafé
aukíð
um
þriðjung
A aðalfundi Cargolux, sem
haldinn var i Gautaborg fyrir
tæpum hálfum mánuði var hluta-
fé félagsins aukið um þriðjung.
Að sögn Björns Theódórssonar
hjá Flugleiðum bættist þá inn nýr
eignaaöili, arabiskt fyrirtæki,
skráð i Luxemburg. Eru þá
eignaraðilar orðnir fjórir og á
hver þeirra 25% hlutafjár.
„Reksturinn hefur verið
erfiður, nánast staðiö i járnum”,
sagði Björn, ,,og það er verið að
reyna að bæta úr þvl með að auka
eigiö fjármagn fyrirtækisins með
þessum hætti”. Eins og áður segir
er um arabiskt fjármagn að ræöa
i aukningunni, þótt fyrirtækið sé
skráð i Luxemburg. —j.
n
Opnunartími
sölubúða:
Borgin
að brjóta
il
lög?
Jón G. Tómasson, borgar-
lögmaður, hefur mælt mcð
þvi að borgary firvötd taki til
endurskoðunar nýjar reglur
sem borgarstjórn setti i
vetur um laugardagslokun
verslana en reglurnar hafa
verið mjög umdeildar
undanfarið. Segir I bréfi
borgarlögmanns að með þvi
að banna laugardagsverslun
i þrja inánuði á ári og setja
eftirmiðdagsverslun á
laugardögum aðra mánuði
mjög þröngar skoröur ,,sé
óncitanlega gengið nærri
rétti inanna til atvinúu-
frelsis” og heimild sveitar-
stjórnar tii setningar slikra
reglna „verði tæplega sótt til
vinnuverndarsjónarmiða
cingöngu.”
7. júni s.l. óskaði
Verslunarráö Islands eftir
þvi við borgarráð að reglu-
gerð um aígreiðslutima
verslana i Reykjavik, sem
staðfest var 26. janúar i ár,
yrði endurskoðuð. Var i bréfi
Verslunarráðs bent á að
borgarstjórn hefði ekki laga-
heimild til að takmarka af-
greiðslutima á virkum
dögum nema að næturlagi og
að bann við verslun á laugar-
dögum takmarkaði atvinnu-
frelsi manna. Þessu erindi
var visað til umsagnar Jóns
G. Tómassonar og var fyrr-
greind niðurstaða hans til
umræðu iborgarráði i gær. 1
umsogninni rekur Jón G.
Tómasson aðdragandann að
þvi að lög voru sett um
lokunartima sölubúða i
kaupstöðum árib 1917. i þeim
er ákvæði sem heimila
bæjarstjórnum að setja sam-
þykktir um lokunartima
hver á sinu svæði.
Fyrsta reglugerðin var
staðfest i Reykjavik áriö
1918, en þá var lokunartimi
ákveöinn kl. 19 virka daga en
þó kl. 16. á'laugardögum á
timabilinu 20. júli til 31.
ágúst. Allar breytingar sem
siðan hafa verið geröar á
reglugerðinni hafa verið til
þrengingar. Bendir borgar-
lögmaður á að allt frá fyrstu
tið hafi verslun á laugar-
dögum verið settar þrengri
skorðuryfirsumartimann og
sé þvi viss hefð komin á þaö
enda i samræmi við breyt-
ingar sem orðið hafa á al-
mennum dagvinnutima
samkvæmt kjarasamn-
ingum. Hins vegar virðist
honum erfitt að rökstyðja
heimildir borgarstjórnar til
að banna alfarið almenna
verslun á laugardögum til-
tekinn tima á ári.
Borgarráð tók ekki i gær
afstöðu til óska Verslunar-
ráðs og tillögu borgarlög-
manns en samþykkti hins
vegar ósk verslunarinnar
„tsullar” um laugardags-
opnun og hefur áður sam-
þykkt aö minjagripaversl-
anir mættu vera opnar.—AI
La:
'j