Þjóðviljinn - 22.07.1981, Side 14
I 4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 22. júli 1981
Enn finnast mannabein
Mannabein fundust aö Hofi i
Hjaitadal laust fyrir siöustu
helgi, þegar veriö var aö grafa
þar fyrir hitaveitulögn. Var þjóö-
minjaveröi þegar gert aövart um
fundinn og fór Guðmundur Ólafs-
son. fornleifafræöingur noröur aö
Hofi i gærmorgun i þvi skyni aö
athuga nánar beinafundinn.
Kunnugt er, aö kirkja var á
Hofi til forna en hefur trúlega
lagst niöur fljótlega eftir aö
kirkja reis á Hólum, enda Hof
næsti bær viö Hóla, austan
Hjaltadalsár. Hof var landnáms-
jörö Hjalta þess, er dalurinn
dregur nafn sitt af. Byggöust Hól-
ar úr landi Hofs og skyldi vera
biskupssetur.
Ekki er þetta fyrsti beinafund-
urinn á Hofi. Fyrir um það bil 30
árum fundust þar bein, sem talin
voru tilheyra 6 mönnum. Forn-
minjar eru á Hofi, friölýstar,
leyfar af hofi og Skála.
Guðmundur Ólafsson sagöi aö
hitaveituskuröurinn hefði snert
við fjórum gröfum. Ein fór alveg
en hinar eru i skurðbökkunum.
Beinin eru mjög heilleg en fremur
grunnt var á þeim. Guðmundur
Ólafsson sagði, aö lik þeirra, sem
þarna hlutu hvilurúm, virtust
hafa verið kistulögð þvi litilshátt-
ar viðarleyfar fundust i gröfun-
um.
Guðmundur geröi ráð fyrir þvi
að fara til Reykjavikur i dag og
hafa þá beinin með sér. —mhg
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið i Kópavogi.
fer sina árlegu sumarferð dagana 14,—16. ágúst. Lagt verður af stað
kl. 19 stundvislega föstudaginn 14. Ekið verður að Heklu við Selsund,
farið hjá Næfurholti, Rangárbotnum og Tröllkonuhlaupi, austur með
Skjólkvium og gist i tjöldum við Landmannahelli. A laugardeginum kl.
9 verður lagt af stað i Hrafntinnusker, þar sem jarðhitinn bræðir 'jökui
isinn. Þaðan verður svo haldið aftur á Dómadalsleið, hjá Frostastaöa-
vatni i Landmannalaugar þar sem gerður verður stuttur stans. Siðan
verður ekið austur yfir Jökulgilskvisl, hjá Kýlingum um Jökuldali að
Herðubreið við Eldgjá. Hjá Ljónstindi verður Ófærufoss i Eldgjá skoð-
aður.Tjaldað verður i efstu grösum austan Grænafjallgarðs. A sunnu-
deginum kl. 9 veröur siðan lagt af stað á Sveinstind sem ris 1090 m hár
við suðvesturenda Langasjávar og Fögrufjalla. Um hádegið verður
haldið heimleiðis um Landmannalaugar, Sigöldú og Þjórsárdal en þar
verður ekið hjá Gjánni og komiö við i Stöng. Litið verður á Hjálp og
siðanfariðniður Gnúpverjahrepp og Skeið og áætluð heimkoma um kl
21.
Upplýsingar og miðar fást hjá Lovisu Hannesdóttur i sima 41279 og
Gisla ól. Péturssyni i sima 42462.
Ferðafólk! Þetta er sannkölluð draumaferð! Látið ekki happ úr
hendi sleppa.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi
Hin árlega sumarferð verður íarin helgina 7.—9. ágúst i Kerlingar-
fjöll. Nánar auglýst siðar.
Vesturland—Sumarferð
Sérkennslufulltrúi
Starf sérkennslufulltrúa við fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur er laust til umsóknar.
Umsóknum, er greini menntun og fyrri
störf, skal skila til fræðsluskrifstofu
Reykjavikur fyrir 14. ágúst n.k.
Fræðslustjóri.
Laus staða.
Staða bókavarðar i Háskólabókasafni er laus til umsókn-
ar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik, fyrir 15. ágúst nk.
Menntamálaráðuneytið, 16. júli 1981.
Áskrift -
kynning
VBíTVANfflllV
LUIMFOLILS
vid bjóóum nýjum lesendum okkar
ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta.
Kynnist blaóinu af eigin raun, látió ekki
aóra segja ykkur hvaó stendur í
Þjóóviljanum.
sími 81333
DJOBVIUINN
Oft meira
kal á
Austur-
landi
en nú
Sumartónleikar
í Skálholti
Eins og undanfarin sex sumur
verður efnt til sum artónleika i
SkálhoRskirkju.
Tónleikar þessir, sem standa
yfiri'um það bil klukkustund, eru
á laugardögum og sunnudögum
og hefjast kl. 15.00. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis pn að
þeim loknum er hægt að fá kaffi-
veitingar i mötuneyti Lýð-
háskólans. A sunnudögum er
messaðf Skálholtskirkjukl. 17.00.
Að venju verður efnisskrá
sumartónleika mjög fjölbreytl.
Fluttverða verk frá 16., 17., og 18.
öld en einnig ný verk eftir islensk
tónskáld.
Sumartónleikar hófust að þessu
sinni með samleik Manuelu
Wiesler flautuleikara og Helgu
Ingólfsdóttur semballeikara.
Fyrstu tónleikahelgina voru flutt
eingöngu ný i'slensk tónverk.
Aðra tónleikahelgina er verður
1.2. og 3. ágúst munu þær
Manuela og Helga flytja verk
eftir Johann Sebastian Bach. 8. og
9. ágúst verða flutt tónverk fyrir
blokkflautu, lútu og vfola da
gamba og eru flytjendur Camilla
Söderberg, Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir og Snorri örn Snorrason,
Siðasta tónleikahelgin er svo á ný
helguð tónverkum Johann
Sebastians Bachs. Flutt verða
verk fyrir cello og orgel og eru
flytjendur Inga Rós Ingólfsdóttir
og Hörður Askelsson.
— Sláttur er aðeins byrjaður
hér á svæði Búnaðarsam-
bands Austurlands, en þó
óviða, sagði Jón Atli, ráðu-
nautur á Egilsstöðum i viðtali
við blaðið i gær (föstudag).
— Helst er það þá á Upp-
héraðinu, á Völlum og i Skrið-
dal, enda spretta einna best
þar, en yfirleitt er hún engan
veginn góð ennþá. Mér er nú
ekki eins kunnugt um ástandið
niðri á fjöröunum, sagði Jón
Atli.
— Eitthvað hefur náðst upp
af heyjum en þó mun það vera
i smáum stil, enn sem komið
er. Spretta hefur verið treg
þar til i siðustu viku en þá
komu góðir dagar og gróöur
tók við sér. Jón Atli taldi trú-
legt að sláttur byrjaði nokkuð
almennt i næstu viku a.m.k. ef
heyskapartið yrði þá hagstæð.
Kal er ekki mjög mikið á Aust-
urlandi og sagði Jón það oft
hafa verið meira. Einna mest
er það i Borgarfirðinum.—mhg
ÞORVALDUR ARI ARAS0N m
Lögmanns- og fyrírgreiöslustofa
Eigna- og féumsýsla
Innheimtur og skuldaskil
Smiðjuvegi D-9, Kópavogi
Sími 40170. Box 321 - Rvk
Riðuveikin
breiðist út
Eins og frá hefur verið skýrt
hér i blaöinu fóru þeir Sigurður
Sigurðarson, dýralæknir og
Kjartan Blöndal, framkvæmda-
stjóri Sauðfjárveikivarna ný-
lega austur á land til viðræðna
við bændur vegna riðuveiki,
sem upp hefur komið I fjárstofni
þeirra. Er hér um að ræða
bæina Hrafnabjörg I Jökulsár-
hlið og Teigasel og Eiriksstaði á
Jökuldal.
— Eins og ýmsir muna sjálf-
sagt þá var fénu á Brú á Jökul-
dal fargað 1978, sagði Kjartan
Blöndal. A sinum tima var
ákveðið að hafa þar fjárlaust i 3
ár en var stytt niður i tvö ár; þvi
næst kom veikin upp á
Hrafnabjörgum i Jökulsárhlið
en ekki I nágrenni Brúar, eins
og kannski mátti þó frekar
vænta. Siðan gerist það, að
veikinnar verður vart á Teiga-
seli og Eiriksstöðum á Jökuldal,
reyndar aðeins á öðru býlinu
þar, enda féð á þeim ekki gengiö
neitt saman. Eiriksstaðir og
Teigasel eru sitt hvoru megin
Jöklu. Sauðfjársjúkdómanefnd
hefur óskað heimildar til niður-
skurðar og rikisstjórnin samþ.
t ráði er einnig niðurskurður
sauðfjárá bæjunum Tungumúla
og Innri-Múla á Barðaströnd.
Þar er veikin búin að vera siöan
1953 en hefur ekki breiöst út.
Hún hefur hinsvegar verið
nokkuð athafnasöm á þessum
tveimur býlum og þvi er stefnt
að niðurskurði þar.
Enn hefur ekki verið gengið
frá samningum um bætur til
viðkomandi bænda, en Kjartan
Blöndal er nú að vinna að upp-
kasti að þeim.
Kjartan Blöndal sagöi riðu-
veikina breiðast alltaf heldur út
og taldi við vonum voveiflegt.
—mhg
SteypusÉin hf
Sími: 33 600
Skýrsla Inga R.
Framhald af 7. siðu.
föllum var breytt. Þetta hlutafé-
lag heitir Gove Aluinina Ltd. og
var stofnað árið 1968. Áströlsku
aðilarnir eiga hlutaféð hér i sömu
hlutföllum og innbyrðis i Nabal-
co, sbr. 22. hér að framan. Þetta
hreina ástralska fyrirtæki, Gove
Alumina Ltd., fékk skv. Nabalco-
samningnum einkarétt á útflutn-
ingi á 4C milljónum tonna af báx-
iti á 20 ára samningstimanum.
Fyrirtækið er nú búið að flytja ilt
um 12 milljónir tonna. Talsvert
magn hefur Alusuisse fengið á
mjög góðu verði.
LamjtímasamninEíur
óskvldra afSila
28. A grundvelli Nabalcosamn-
ingsinsgerði Grove Alumina Ltd.
sölusamning til 20 ára við Alu-
suisse um það súrálsmagn, sem
fyrirtækinu tilheyrði eða 30%.
Sölusamningur þessi tilgreinir
ákveðið upphafsverð og hefur
einnig að geyma verðhækkana-
reglu, sem að mestu er miðuð við
innlendar kostnaðarverðhækkan-
iri Ástraliu. Þessi sölusamningur
skiptir mjög miklu i okkar máli,
þar sem hér er um að ræða lang-
timasamning milli óskyldra aðila
um súrálskaup Mér reiknast til
að verðið samkvæmt þessum
samningi sé 1975 18% hærra en
verðið á súrálinu, sem Alusuisse
kaupiraf Auslraswiss (70%), sbr.
þá útreikninga, sem eru á öörum
stað i' skýrslu þessari, eða 39.
grein.
29.1 þessum sölusamningi milli
Gove Alumina Ltd. og Alusuisse
eru einnig ákvæði, sem veita
Gove Alumina Ltd. heimildir til
að draga Ur sölunni á sUráli til
Alusuisse eftir vissum reglum og
tilteknum fyrirvörum. Þetta
ákvæði virttst Gove Alumina Ltd.
nU vera farið að notfæra sér og
selja sjálfstætt framhjá Alu-
suisse.
Alusuisse samþvkkir 20
US mills
30. Gove Alumina Ltd. hefur frá
upphafi haft þau markmið að
koma upp álbræðslu og komast
þannig inn i' aðild að öllum fram-
leiðsluferli áliðnaðarins. Hefur
fyrirtækið þar i huga, að nýta eig-
ið sUrál. I þessu skyni efndu Gove
Alumina Ltd. og Alusuisse til enn
nýrrar samvinnu. Var stofnað
nýtt samlagsfélag (Consorlium)
til að reisa nýja álbræðslu i Nýja
Suður-Wales i Astraliu. Þetta fé-
lag fékk nafnið The Nabalco Al-
uminium Ptv. Ltd.og var Austra-
swiss þar minnihlutaaðili (40%)
og Gove Alumina Ltd. 60%. Þetta
félag fékk hins vegar ekkert raf-
magn til bræðslunnar i Nyja Suð-
ur-Wales og rann þvi þessi fyrir-
ætlun út i sandinn. Aðilarnir eru
þó ekki af baki dottnir og eru að
reyna fyrir sér annars staðar, og
má þarbenda á NýjaSjáland, þar
sem þeir eru saman með þriðja
aðila i nýrri álbræðslu, þar sem
Alusuisse hefur samþykkt raf-
magnsverð upp á 20USmills fyrir
kílóvattstundina.
Siálfstæftir aðilar
31. Hins vegar hafði franska
fjölþjóðafyrirtækið Pechiney
fengið raforkusölusamning hjá
stjórnvöldum i Nýja Suður-Wal-
es. Tók þvi' Gove Alumina Ltd.
höndum saman við Frakkana og
nýtt félag var stofnað, sem heitir
Tomago Aluminum Project og
eru Astrali'umennimir þar með
meirihluta eða með 65% hluta-
fjár. Aætlanireru uppi um, að ál-
bræðslan hefjist 1983, fyrst 100.000
tonn og önnur 100.000 tonn árið
1985.
32. Ljóslega liggur fyrir, að
Astrali'umennirnir í Gove Alum-
ina Ltd. eru sjálfstaxRr aðilar,
þóttþeirséu i samvinnu viðýmsa
erlenda aðila, svo sem Alusuisse.
Gove Alumina Ltd. er þvi að minu
vitióskvldur aðili i skilningi 27.03
i aðalsamningi.
Fréttaskýring
Framhald af bls. 5
stjórnvöld hafa sett fram eru
mjög róttækar miðað við fyrra
ástand, en Samstööumenn hafa
r^tgróna vantrú á einlægni
ráðamanna og vilja ganga
lengra. Helst mun litið til verka-
mannaráðanna i Júgóslaviu til
fyrirmyndar — þótt svo allir
komi sér saman um að allt skuli
lagað að pólskum aöstæðum og
kröfum.
Mörgu er enn ósvarað, en hitt
er vist, að það flokksþing sem
nýlokið er i Varsjá er allt annað
en hefðbundin hallelújasam-
koma: þar fór fram raunveru-
leg kappræöa og þar var kosið
um ágreiningsefni og skoöana-
strauma. Þingiö var staöfesting
á þvi, aö allt er Pólland komiö á
mikla hreyfingu og afdrifarika.
AB.