Þjóðviljinn - 22.07.1981, Síða 15

Þjóðviljinn - 22.07.1981, Síða 15
Miövikudagur 22. júll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 mmii Grimms ævintýri Eitt af þekktustu söfnum þjóösagna og ævintýra er án efa safn bræöranna Jakobs og Wilhélms Grimm. Þeir voru þýskir og báöir prófessorar I Berlin og Göttingen. Grimms ævintvri hafa veriö þýdd á ótölulegan fjölda tungumála, allmörg þeirra hafa veriö þýdd á islenskuaf Theódór Arnasyni og fleirum. A dagskránni kl. 11.15 les bor- steinn Ó. Thorarensen þýö- ingu sina á ævintýri úr safni Grimms bræöra „Garöabrúö- an.” •Útvarp kl. 11.15 I hverju felast hin umtöluöu skattfríöindi sjómanna? er spurt I þætt- inum sjávarútvegur og siglingar. Skattamál sjómanna Þátturinn „Sjávarútvegur og siglingar” er á dagskrá kl. 10.30 Umsjónarmaöur aö þessu sinni er Ingóifur Arnar- son. Ilann mun I þættinum fjalla um skattamál sjómanna fyrr og nú. Ingólfur sagði i samtali viö Þjóöviljann aö þarna væri far- ið inn á nokkuö umdeilt mál, en tilefni þess aö hann tæki þaö fyrir nú væru fullyröingar um aö það skapaöi aöstööu- mun að sjómenn heföu skatt- friöindi en iönverkafólk ekki. Eg velti þvi fyrir mér i hverju þessi umræddu friöindi sjó- manna séu fólgin og skoöa bæði hlutina eins og þeir eru i dag og eins hvernig þessum málum hefur veriö háttað i gegnum söguna. Þar kemur ýmslegt fróölegt i ljós. Útvarp kl. 10.30 frá Eg kaupi Þjóðviljann vegna gamals loforðs Hringii) i sima 81333 kl. 9-5 a/la virka daga, cda skrifu) Þjóöviljanum lesendum J.S. skrifar: Aöeins nokkur orö um eitt og annað sem viö kemur þessu blaði. Ég er búinn að kaupa og láta mikla peninga i þetta blaö i 55 ár eða meira og eins og þiö sjáiö orðin nokkuö gömul og kannski markleysa þaö sem viö, gömlu kommagreyin, segjum. En við erum lika oröin fá sem þorum aö kannast vió þaö ljóta orö i okkar blaöi nú orðiö. Ég kaupi samt enn þetta blað vegna gamals loforös sem ég gaf Katrinu heitinni Thorodd - sen fyrrum alþingismanni. Hún sagði sem svo viö mig og okkur fleiri sem hún vissi aö hún mátti, treysta: „Ég bið ykkur aö kaupa þetta blað þó að ég viti að þaö muni bregöast vonum ykkar siðar,” og það er allt komið fram, „en móðir min gaf þessu blaði nafniö sem það nú h.eitir, Þjóðviljinn”. Þetta sagði sú góöa kona, Katrin Thoroddsen. og þess vegna kaupi ég blaöiö en væri annars löngu hætt aö kaupa það þvi aö ég hef aldrei verið hrifin af krötum. Fyrir mér er þetta blað kratablað núorðið. Mig langar til að lofa ykkur að heyra álit þó nokkuö margra, sem ég þekki áður en ég er öll. Einnig ætla ég að biðja ykkur að birta nokkrar athugasemdir sem ég og fleiri höfum rætt um. Fyrst er þaö um þennan makalausa Viktor Kortsnoj. Þaö voru bara heilar opnur i Þjóðviljanum sem einhver Gunnar Steinn romsar úr sér viö hann. Mér er spurn: Hvaö vitiö þiö um feril og fortiö þessa manns annaö en þaö sem hann sjálfur segir fólki? Eöa er þaö talinn kostur aö bera óhróður um sitt fósturland þó eitthvaö útaf beri og um allt þetta fólk? Þar á ég viö gislafólkiö sem er að biðja um hæli 1 Bandarikj- unum. Ég hitti mjög vel menntaöan mann sem hefur veriö viö nám bæöi austan hafs og vestan og held hann sé laus viö þaö sem þiö kalliö komma- dekur. Hann sagöi sem svo: „Já, þaö er von þeir falli fyrir þeim þúsundum dala sem þeim eru boðnir til að svikja sitt land.” Það er margur ósóminn geröur i skjóli peningavaldsins eða þá alíur áróðurinn sem haföur er I frammi um A - Evrópurikin daglega meöan verið er aö búa okkur undir næstu heimsstyrjöld. Morgun- blaöiö er þar fremst i flokki sem vera ber og öll hin blöðin lika aö mörgu leyti. Mér dettur helst i hug þegar Hitler ætlaöi aö afmá alla gyðinga i einu saman hasti sem honum tókst ekki nema aö hluta. 4 Um Alþýöubandalagiö er sagt að allt illt sé þvi aö kenna. Þar gauia þeir hæst Geir, Karl Steinar, Kjartan Jóhannsson og Jón Baldvin og fleiri. Mér skilst helst að þeir séu réttdræpir hvar sem er og þvi mátti ekki Asa Ottesen flytja þáttinn tJt og suöur nýlega. Valborg Bents- dóttir gerði þaö þokkalega en það vantaöi i hana meira lif. Var Asa Ottesen of róttæk? Ekki sparar Sjónvarpið heldur aö hella yfir okkur ihaldsáróðri, enda flest íhalds- fólk sem þar vinnur og þegar þessir trettamenn eru meö spurningar i beinni útsendingu eru hægri menn oftast látnir hafa siðasta oröiö. FELUMYND Hvaö er Kalli kanina búinn aö safna sér mörgum gulrótum? — Hvernig stendur á því að þú ert í svörtum skó á öðrum fætinum og brúnum á hinum? — Já, ég var líka að undrast þetta. En það allra skrýtnasta er, að heima á ég annað alveg eins brúnt og svart skópar! Barnahornid

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.