Þjóðviljinn - 05.08.1981, Page 1
UOÐVIUINN
Miðvikudagur 5. ágústl981. —169. tbl. 46 árg.
Ófremdarástandið
aðeins tnnabundið
Verkalýðshreyfingin getur ráðið úrslitumhúsnæðismála
„Við erum nálægt þvi að leysa aðalvandann i húsnæðismálum á höfuðborgarsvæðinu. Það ófremdar-
ás't’and scm nú rikir er aðeins timabundið”, segir ólafur Jónsson, formaður Húsnæðismálastjórnar, i
viðtali viðblaðið. ,,En sveitarfélögin verða að sýna meiri lit, og ekki siður verkalýðshreyfingin, sem nú
eins og áður er úrslitaaðilinn i þessum málum.”
Viðtal viö Ólaf Jónsson stjórnarformann
Húsnæöisstofnunar ríkisins Sjá opnu
Álviðræðurnar hefjast í dag
tslenska viðræðunefndin frá v. Þóroddur Th. Sigurðsson (frá Sjáifstæðismönnum i rikisstjórn), Haildór
V. Sigurðsson, rikisendurskoðandi, Guðmundur G. Þórarinsson, (frá Framsóknarflokki), Pétur G.
Thorsteinsson ritari ncfndarinnar, Vilhjálmur Lúðviksson formaður, Páll Flygenring ráðuneytisstjóri,
Ingi K. Helgason (frá Alþýðubandalagi), Hjörtur Torfason (frá Sjáifstæðisflokki), og Sigþór Jóhanncs-
son (frá Alþýðuflokki). A myndina vantar Stefán Svavarsson löggiltan endurskoðanda og Ragnar Aðal-
stcinsson lögmann.
V iðræðunefndin
hittist í gær
Weibel og Wolfsberger koma frá Sviss
i dag klukkan tiu árdegis hefj-
ast i Ráðherrabústabnum við
Tjarnargötu viðræður milli full-
trúa Alusuisse og islenskra
stjórnvalda um súrálsmálið og
skoðanaágreining aðila. Gert er
ráð fyrir að f jallað verði um þessi
atriði og um næstu skref i fram-
vindu málsins. Ibnaðarráðherra
opnar viðræðurnar i dag en Páll
Flygenring ráðuneytisstjóri situr
fundinn að öðru leyti fyrir hans
hönd. Viðræðurnar fara fram á
vegum iðnaðarráðuneytisins og
er Vilhjálmur Lúðviksson for-
maður islensku viðræðunefndar-
innar.
1 islensku viðræðunefndinni eru
þrir skipaðir af aðilum rikis-
stjórnarinnar, tveir af hálfu
stjórnarandstöbunnar og fjórir
tilnefndir af iðnaðarráðherra. Is-
lenska viðræðunefndin kom
saman til undirbúningsfundar i
gær i bankarábsherbergi Alþýðu-
bankans.
1 viðræðunefnd Alusuisse eru
tveir sem koma frá aðalstöðvum
auðhringsins i Sviss, Edwin
Weibel, einn af aðalforstjórum
Alusuisse og Wolfsberger, fjár-
málastjóri áldeildar Alusuisse.
Með þeim við samningaborðið
sitja fjórir fulltrúar Alusuisse hér
á Islandi, þeir Kagnar Halldórs-
son forstjóri Isal, Halldór H.
Jónsson, stjórnarformaður, Dr.
Franke tæknilegur framkvæmda-
stjóri ISAL og Bjarnar Ingimars-
son.
—ekh
Norski iðnaðarráðherrann Finn Kristensen og Hjörleifur Guttorms-
íon iðnaðarráðherra á blaðamannafundinum i gær.
(ljósmynd Ari)
Heimsókn iðnaðarráðherra Noregs
Norsk-íslensk sam-
yinna til umræðu
Meðal annars fjallað um hráefnis-
öflun, markað og úrvinnslu úr áli
I tilefni af opinberri heimsókn
Finn Kristensen iðnaðar-
rábherra Noregs hingað til
landsvar bobað til blaðamanna-
fundar i gær. Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra
og norski kollegi hans haía átt
fundi saman til ab ræða sam-
vinnu landanna i orku- og
iðnaðarmálum.
Auk ráðherranna hafa tekið
þátt i viðræðunum embættis-
menn úr ráðuneytum beggja
landanna. Heimsókn Finn
Kristensen er i boði Hjörleifs
Guttormssonar en hann var i
opinberri heimsókn i Noregi i
janúar sl. Ráðherrarnir voru
sammála um að efla og halda
áfram samvinnu á sviði iðnaðar
og orkumála. Hala þeir þá i
huga orkufrekan iðnað: hráefni
til iðnaðar, markaðsmál, gagn-
Framhald á blaðsiðu 14.
Norðurlanda-
mótínu lokið
Skákþingi Norðurlanda lauk
nú um helgina. Sigurvegari i úr-
valsflokki varð Norðmaðurinn
Knut Helmers sem hlaut 7 1/2
vinning af 11.
Sigurvegari i kvennaflokki
varð Sigurlaug Friðþjófsdóttir
Sjá síðu 12
senj fékk 5 1/2 vinning af 6
mögulegum.
Unglingameistari Norður-
landa varð Jóhannes Gisli Jóns-
son cn hann varð efstur ung-
linga innan 20 ára i meistara-
flokki.
Arnór Björnsson, sem er að-
eins >1 ára, vann það fáheyrða
afrek að sigra alla andstæðinga
sina niu aðtölu i opna.flokknum.
Hart í bak á ný?
Alþýðublaðið
ekki út í dag
Alþýðublaðið kemur ekki út i
dag, og var óvitað um ástæður
þegar siðast fréttist. Eins og
kunnugt er var útgáfa þess
stöðvuð siðasta mibvikudag, en
blaðið barst þó fregnþyrstum les-
endum á laugardaginn og fylgdi
þá með hið umdeilda miðviku-
dagsblað.
Haft var eftir Vilmundi Gylfa-
syni ritstjóra blaðsins i tiu frétt-
um útvarps i gær, að „þetta væri
ekki hans mál, heldur mál flokks-
forystunnar”. —m
Opinberum starfsmanni neitað um
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna
Sjá bls. 3