Þjóðviljinn - 05.08.1981, Side 4

Þjóðviljinn - 05.08.1981, Side 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 5. ágúst 1981 UOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóófrelsis (Jtgcfandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ölafsson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir úmsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Siguröardóttir Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Ástgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son.Jón Guöni Kristjánsson. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson . Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir Skrifstofa : Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Kristin Pétursdóttir, Bára Siguröardóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: SigrUn Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavík, simi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf.. Viðrœður við Alusuisse • Viðræður ísiensku ríkisstjórnarinnar og Alusuisse um súrálsmálið og önnur ágreiningsefni aðilanna hef j- ast í dag. • Fyrir hönd íslands veitir iðnaðarráðuneytið þessum viðræðum forystu. I þessu skyni hefur iðnaðarráðherra skipað sérstaka viðræðunefnd. Formaður hennar er Vil- hjálmur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsóknar- ráðs rikisins. Þá sitja í nefndinni sérfræðingar á vegum iðnaðarráðuneytisins auk annarra sérfróðra aðila, sem líta má á sem fulltrúa stjórnmálaflokkanna. • Viðræðunefnd Alusuisseer undir forystu E. Weibels eins af núverandi aðalforstjórum Alusuisse. Nokkra at- hygli vekur, að í þessum viðræðum íslensku ríkis- stjórnarinnar og Alusuisse, sem Isal á ekki aðild að, hef- ur Alusuisse kosið að setja þrjá starfsmenn (sal, auk stjórnarformannsins, í viðræðunef ndina fyrir sína hönd. • Viðræðurnar í dag fjalla ekki um endurskoðun samninga Islands og Alusuisse. Samkvæmt aðalsamn- ingi þessara aðila getur Islands ekki krafist endurskoð- unar þessara samninga fyrr en 1994. Eins og önnur f jöl- þjóðleg fyrirtæki er Alusuisse aðili að fjölmörgum samningum við ríkisstjórnir og ýmsa aðra aðila víðs- vegar um heiminn. Alusuisse hefur augljósa hagsmuni af því að viðurkenna ekki opinberlega, að það fáist til að taka slíka samninga til endurskoðunar fyrr en þeir eru útrunnir. • Á hinn bóginn eru forráðamenn Alusuisse nægilega raunsæir til að fallast óformlega á slíka endurskoðun, þegar það þjónar hagsmunum fyrirtækisins. Slíkar aðstæður voru fyrir hendi, þegar samningarnir um ál- verið í Straumsvík voru endurskoðaðir árið 1975. Þá féllust forráðamenn Alusuisse á hækkun raforkuverðs til Isal gegn því að skattar fyrirtækisins yrðu lækkaðir verulega. • Það er því forsenda þess, að komandi viðræður við Alusuisse verði árangursríkar, að forráðamenn fyrir- tækisins sannfærist um það, að hagsmunir Alusuisse felist í því að ganga til heiðarlegra samninga um þau atriði, sem íslenska ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á. • I þessu samhengi gegna rannsóknir iðnaðarráðu- neytisins á súrálsviðskiptum (sal og Alusuisse og fleiri atriðum lykilhlutverki. Þessar rannsóknir hafa nú þegar leitt að því óyggjandi rök, að Alusuisse haf i ekki staðið við samningsbundnar skuldbindingar sínar gagnvart íslandi. • Þessar niðurstöður eru þó næsta veigalitlar í tog- streitunni við Alusuisse nema því aðeins að forráða- mönnum Alusuisse sé það Ijóst, að íslenska þjóðin sé reiðubúin til að verja rétt sinn í málinu til hins ítrasta. • Því ber sérstaklega að fagna þeim einhug, sem skapaðist í ríkisstjórninni í súrálsmálinu og þeim föstu tökum, sem hún tók það mál þegar í upphafi. Með hinni skeleggu ályktun sinni, þegar staðreyndir málsins lágu fyrir, skipaði þingf lokkur Alþýðuflokksins sér eindregið í sömu fylkingu. • Afstaða þess hluta Sjálfstæðisflokksins, sem lýtur forystu Geirs Hallgrímssonar, olli hins vegar verulegum vonbrigðum. I ályktun þessa hóps um súrálsmálið var mestu rúmi variðtil að gagnrýna málsmeðferð iðnaðar- ráðuneytisins. Jafnframt var reynt að gera sem minnst úr því undirstöðuatriði í samningsstöðu (slendinga, að Alusuisse hefði ekki staðið við samningsbundnar skuld- bindingar sínar. Næstu daga var Morgunblaðið síðan helgað því meginhlutverki að halda uppi málsvörn fyrir Alusuisse á fslandi. • Sem betur fer hefur atburðarásin orðið til þess, að Geir Hallgrímsson og hans lið hef ur nú endurskoðað af- stöðusína. Þessi hluti Sjálfstæðisf lokksins hefurnúfall- istáað vera iðnaðarráðherra og hinum stjórnmálaf lokk- unum samferða í viðræðum við Alusuisse án þess að setja nokkur skilyrði. Þessum sinnaskiptum ber að fagna. • Það er verkef ni hinnar íslensku samninganef ndar á fundinum í dag að reyna að sannfæra Alusuisse um það, að hagsmunir fyrirtækisins felist i því að ganga til samninga við íslensku ríkisstjórnina um meginatriði í samstarfi þessara aðila. Þetta verk verður vafalaust erfitt og seinunnið. Standi þjóðin hinsvegar einhuga að þeim sanningslegu markmiðum, sem ríkisstjórnin hef ur markað, þarf enginn að efast um það, að þau markmið munu nást. EKH Vilmundur Gylfason. Vilmundur sem skóp fylgi krata áriö 1978 get- ur sagt um Alþýöuflokkinn eins og hetja I frægri skáldsögu sagöi þegar hún leit fránum augum á son sinn I miöjum andskotaflokki: Þighef éggetið—-þigskal égdrepa. Hlrippt | Þeir fáu sem lesið hafa Al- þýðublaðið fram að lokun i sið- ustu viku, hafa ekki komist hjá þvi að veita athygli maóiskum áhrifum i pólitik blaðsins. Maóistarhafa veriö i lausu lofti siöan á hinstu dögum fjórmenn- ingaklikunnar i Peking, en hér á landi virðast þeir hafa fundið fótfestu á ný i borgaralegum fjölmiðli. Vinstri sósialdemokratar um hinn vestræna heim hafa nú undanfarið verið að reyna að þrýsta á flokksforystur landa sinna um andóf gegn vigbúnaði Nató eins og kunnugt er. Hér á Islandi hefur allt farið eftir gamalli kommagrýlu hægri krata, og flokkurinn markað sér bás með afturhaldinu i kjarn- orkuvigbúnaði. Það á vonandi eftir að breytast, þegar flokks- félagar fara að skipta sér af pólitik á ný. Hér á eftir veröur reynt að skilgreina sameigin- lega pólitik hægri krata og maó- ista i afstöðinni til sovélrikj- anna. En áður en lagt er i hann er rétt að geta þess aö i afstööunni til verkalýðshreyfingarinnar virðast linur krata og maóista skarast einnig. í laugardags- leiðaranum 25. júli sl. er vitnað þannig i Ara Trausta Guð- mundsson leiðtoga maóista á Is- landi að Alþýðublaðið gerir skoðanir AraTrausta að sinum. Nú vitum við ekki hvort maóist- ar eru að taka Alþýðuflokkinn yfir eða hvað er eiginlega að gerast í þessu framboðsviga- hreiðri krata. En að hætti gamansamra sósialista langar okkur til að skyggnast ögn undir yfirborðið... Rússinn er að koma Maóistar hafa komið sér inn á gafl hjá krötum. Það er i sjálfu sér býsna skondin uppákoma en við hverju getum við ekki búist úr þeim herbúðum. Söguleg og pólitisk tilurð þessarar nýju samfylkingar nokkurra krata og örfárra maóista liggur hins vegar á borðinu. Maóistar hafa leynt og ljóst verið á þeirri kinversk-amrisku hernaðarlinu, að Nató væri þröskuldur gagn- vart heimsyfirráðum Sovétrikj- anna. Þvi ætti ekki að amast við Natóog amrikönum — en einsog kunnugt er telja þeir Sovétrikin höfuðóvin verkalýðsins. Tii að klekkja á erkióvininum heyri þvi til góðri hernaðarlist sam- kvæmt að mynda bandalag við hvern sem er. Hægri kratar í alþýðuflokkn- um eru á sama meiði. Þeir telja að ekki megi „raska valdajafn- væginu”, ekki megi styöja ein- hliöa yfirlýsingar um kjarn- orkuvopnalaus Norðurlönd og þar fram eftir götum. Þarna eru þvi skapaður pólitiskur grund- völlur fyrir bandalag maóista og hægri krata um sameigin- lega heimsýn, úlfur, úlfur, rúss- inn er að koma. Hannaðir þingmenn Alþýðuflokkurinn hefur meðal annarra nýjunga i islenskri póli tik komið sér upp „opnum próf- kjörum”. Þau fara þannig fram að fyrst er haft samband við auglýsingastofu og hún beðin um að hanna heppilegan fram- bjóðanda. Það kom fram i við- tali sem Ingólfur Margeirsson hafði við forstjóra auglýsinga- stofu hér i borginni fyrir nokkr- um árum, að stofan hafði fengið sem verkefni að búa út fram- bjóðendur fyrir kosningar. For- stjóri auglýsingastofunnar vildi ekki nefna nöfn, enda þurfti ekki frekar vitnanna við. Eftir aö prófkjörsfarsi krat- anna hófst hafa menn ekki tek- ist á um annað en „vinsældir” ogkosningar i þeim flokki. For- ystukratarnir eiga i innbyrðis striði hver við annan um sæti lista i flestum kjördæmum. Þvi vega þeir i góðsemi hver ann- an. En um leið og hausarnir fjúka — þá er höggvið skarð i fylgið — en meir að segja það gleymist þeim i íramboðsstrið- inu. Kjartan vó Benedikt, Sig- hvatur Karvel, Karvel Jón Hannibalss. Einbjörn togar i Tvibjörn, Tvibjörn i Þribjörn — niður i pólitiska sandkallaleik- inn og fylgishrun.... Og nú siðast hafa kratarnir unnið það afrek að reka eina manninn sem hefur náð að höfða til kjörfylgis á undanförn- um árum. Þvi auðvitað var út- gáfubannið á Vilmundármál- gagni ekki annaö en brott- rekstur Vilmundar frá völdum og áhrifum i flokknum. Von menn spyrji hver sé næstur. Vil- mundur sjálfur hefur ekki látið sitt eftir liggja i þessum gráa gamanleik flokksins. Og nú stendur hanneinn uppi vinalaus og áhrifalaus i flokknum, þvi það hafa fleiri „svikið” en Héð- inn um árið. Þá er að minnast á hápunkt gamanleiksins þegar öxin var látin vaöa i siðustu viku. Verkalýösmálin Alþýðuflokkurinn hefur ekki verið til á undanförnum árum, nema sem framboðsflokkur. Það er sama hversu mikils maður væntir af sögunni og sósialdemókratiskum uppruna flokksins. Verkalýðsflokkur er það ekki. Bæði er það að flokk- urinn datt upp fyrir i verkalýðs- sögunni þegar Alþýðubandalag- ið varð til sem flokkur sósial- ista, sóslaldemókrata og kommúnista og svo hitt að Al- þýðuflokkurinn valdi sér þá leið til glötunar sem sist skyldi verða, áratuga pólitiskt vændi ------------og með borgarastéttinni með til- heyrandi fjandskap við sósialisk verkalýðsöfl i þessu þjóðfélagi. ■ Þeir uppskera eins og til hefur verið sáð. Fyrir einhvern sögu- legan misskilning hafa hinsveg- ar nokkrir verkalýðssinnar orð- • ið eftir á þessum hripleka bát I vonleysisins. Aumingja Alþýðu- blaðið hafði siðustu vikurnar , bölvað eins og naut i ílagi (i ■ bókstaflegri merkingu) út af lýðræðinu i verkalýðshreyí- ingunni. I sjálfu sér mesta t þarfamál, að styrkja verkalýðs- ■ hreyfinguna og halda sér vak- andi i verkalýðsmálum, að efla lýðræðið i vérkalýðshreyfing- t unni, að halda áfram að reyna . virkja sem flesta i hreyfingunni. Þetta hafa allir vitað og flestir verkalýðsleiðtogar eru að fást t við þetta verkefni. Alþýðublaðið tók hins vegar á málinu eins og hér væri um þátt i innanflokks- farsa Alþýðuflokksins að ræða, — og engu var likara en verka- . lýðshreyfingin ætti að taka sér „lýðræðið” i Alþýðuflokknum til fyrirmyndar. Vilmundurkynntist J þvi i verki i sl. viku og almenn- , ingur i landinu hefur fylgst með þvi úr fjarlægð; hvernig væri ef verkalýðshreyfingin tæki nú sama háttinn upp að auglýs- , ingastofur hönnuðu verkalýðs- leiðtoga, að prófkjörin yrðu að veruleika i verkalýðshreyfing- J unni, — þá yrði skammt að biða innreiðar auðvaldíins i verka- lýðshreyfinguna. Eða verka- I lýöshreyfingin yrði svipuðum örlögum að bráð og Alþýðu- , flokkurinn. Forði þvi allar góð- ar rauðar vættir. Og fólkið i verkalýðshreyfingunni. —óg J skorrið

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.