Þjóðviljinn - 10.09.1981, Page 5
Fimmtudagur 10. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Papandreú: hefur veriö andvigur Nató, Efnahagsbandalaginu og bandariskum herstöðvum
Vinir herforingjanna, sem sitja f fangelsi fyrir glæpi sfna, kveiktu
snemma i ágúst, i runnum og húsum i hverfi þvi i Aþenu, þar sem
helstu stjórnmálaforingjar landsins búa. Þeir vildu knýja fram náðun
og gera loft lævi blandið fyrir kosningarnar.
í bessu siósra binöi Eræðrabandaerfrírrúr-
aratai yfir aúa þá sem gerst ha’a frimúrarar
frá 1960 tii síðustu áramóta. vióarnikií saman-
tekt ii(n stoðu frlmúrara i þjóóféiaginu. éhrif-
og. völd. hrasamr og fyrirgefningu yfírvatöa
■o.fi. o.fí. Gréirt er frá álþjóðafélagsskapnurn
Qldungar Zions og hugsanlegum tengsium
frímúrara vió hann. Einrig er i bessu bindi Sér-
stakur kafli um leynifélög ems oa Rósen-
kross, Sam-frimúrara. Oddfellowa. oc kiúbba
einsogRotary.Lionso.fi.
Kosningabarátta hörð er nú háð
i Grikklandi og benda likur tii
þess, að Hellenski sósialistaflokk-
urinn, Pasok, undir forystu Adre-
asar Papandreú, vinni mikinn
sigur — ef til vill nægan til að
steypa stjórn borgaraflokksins
Nýtt lýðræðisem farið hefur með
völd siðan herforingjaklikunni
var steypt af stóli fyrir sjö árum.
Bandarikjamenn iáta þegar uppi
áhyggjur af þessari væntanlegu
vinstrisveiflu.
Pasok hefur verið að sækja i sig
veðrið jafnt og þétt alllengi. 1
fyrstu kosningunum eftir að
fasistastjórnin hrundi fékk flokk-
urinn 13% atkvæða, en árið 1977
fékk hann svo 25% atkvæða.
Nýlegar skoðanakannanir benda
til þess, að hann sé nú vinsælli
meðal Grikkja en Nýja lýðræðið
sem hefur nú að oddvita Georg
Rallis forsætisráðherra. Kosn-
ingarnar verða um næstu
mánaðamót. Kosningakerfið er
með þeim hætti aö þaö ýtir undir
stærstu flokkana.
óánægja
Rallis er fremur nýr maður á
forsætisráðherrastóli, tók við af
Karamanlis i mai i fyrra þegar
sá gamli refur lyfti sér i forseta-
stól. Rallis þykir duglegur skrif-
finnur en litlaus persónuleiki i
samanburði við Papandreú, sem
er ræðumaður góður og laginn við
að láta taka eftir þvi sem hann fer
með.
Vitaskuld kemur fleira til en
mismunur á persónuleikum
helstu oddvita stjórnmálabarátt-
unnar. Flokkur Rallisar státar
sig af þvi, að lifskjör hafi batnað
siðan Nýja lýðræðiö tók við af
herforingjunum, en fáum þykir
það lengur séríega þakkarvert.
Menn hafa eins og að likum lætur
meir hugann við vandamál eins
og 25% verðbólgu og sáralitinn
hagvöxt. Þá hefur fjárfestingar-
pólitik verið i þvi skötuliki að hún
hefur ýtt undir gifurlega öran
vöxt höfuðborgarinnar meðan
ýmsir landshlutar telja sig af-
skipta. 1 Aþenu hefur safnast
saman um þriðjungur lands-
manna, umferðarhnútar og loft-
mengun eru þar verri en i flestum
borgum öðrum. Gömul lög og
forneskjuleg skriffinnska standa
landinu fyrir þrifum — og gifur-
legtdjúp er staðfest milli rikra og
fátækra.
Pasok hefur byr
Það er þvi ekki að undra þótt
boðskapur sósíalistaflokksins
finni góðan hljómgrunn: boðuð er
ný efnahagsstefna, ný félags-
málastefna, þjóönýtingar og
róttækar breytingar á utanríkis-
stefnu. Flokkurinn á sér góðan
stuðning meðal menntamanna
(Melína Merkúri leikkona er
þingmaður fyrir Pasok), og hann
nýtur góðs af vinfengi við franska
sósialista, sem hafa unniö stór-
sigra fyrr á árinu.
Bandariska vikuritiö News-
week segir, að boðskapurinn um
þjóðnýtingar hafi valdið mikUli
ókyrrö I viðskiptaheimi Grikkja, I
heimi Onassisa og Njarkosa og
þeirra lika. Enn meiri áhyggjur
hefur bandariska blaðið af utan-
rikismálastefnu Papandreús,
sem hefur haft illan bifur á
Næsta vinstrisveifla
verður á Grikklandi
Bandarikjamönnum siðan her-
foringjaklikan hrifsaði til sin vöid
i landinu. Papandreú hefur sakað
bandarisku leyniþjónustuna um
aðild að þvi valdaráni og hann
gagnrýndi stjórn Nixons
harðlega fyrir vinskap við herfor-
ingjana. Þá hefur það og gert
stöðu Bandarikjamanna i Grikk-
landi enn lakari, að Grikkjum
finnst sem erfðaféndur þeirra og
bræður i Nató, Tyrkir, njóti of
mikils skilnings og umburðar-
lyndis I Washington.
Burt með Nató!
Papandreú vill helst hlutleysis-
stefnu sem tæki mið af næstu
grönnum i Júgóslaviu. Vigorð
hans hafa verið: Burt með Nató,
burt með Efnahagsbandalagið og
burt meö Amerikana — sem hafa
herstöðvar i Grikklandi.
Newsweek er á dögunum að
hugga sig við það, að Papandreú
sé farinn að linast i þessu tali
vegna þess aö hann vilji ekki
styggja frá sér miðjukjósendur.
Hann krefjist ekki lengur tafar-
lausrar úrsagnar úr Nató, eða
tafarlausrar brottfarar
bandariska hersins. Sagt er að
hann sé fús til að leyfa amerikön-
um að vera um kyrrt ef þeir láti
Grikkjum i té nýtisku vopn, sem
dugi til að þeir hafi i fullu tré við
Tyrki — en það eru reyndar
hrossakaup, sem Reaganstjórnin
ætti erfitt með, þvi hún á enn erf-
iðara með að styggja Tyrki en
Grikki.
Papandreú hefur reyndar fyrr
og siðan fengiö aö l.eyra það, bæði
frá vinstri (I Grikklandi eru tveir
kommúnistaflokkar, annar hollur
Moskvu, hinn „evrópskur”) og
hægri, að hann sé hentistefnu-
maður, sem muni mjög fara eftir
þvi hvernig vindar blása. En
hreyfingin sem að honum stend-
ur, er, hvað sem þvi liður, meira
en nógu róttæk til þess að vekja
áhyggjur þungar jafnt með inn-
lendum skipakóngum sem
bandariskum hershöfðingjum.
— AB.
I o ksins
er seinna bindið komið
Frímúraratal Hveriir eru þeir ? Hvar eru þeir ?