Þjóðviljinn - 10.09.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. september 1981
Þorskaflinn:
30 þús.
lestum
meiri en
í fyrra
Jakob
og Bubbi
✓
í Arseli
Annað kvöld, fimmtudag.koma
kapparnir Jakob Magnússon og
Bubbi Morthens i Arsel og flytja
þar rafmagnaða tónlist, — e.k.
„sjó”, sem Jakob er á förum með
tii Evrópu. Húsið verður opnað
klukkan átta og hefst „sjóið” kl.
niu. Valgeir Guðjónsson for-
stöðumaður Ársels sagöi i gær að
aðsókn hefði verið mjög góð s.l.
sunnudag, þegar húsið var kynnt.
„Nú stendur yfir umfangsmikil
söfnun á pottaplöntum hér i
húsinu”, sagði Valgeir, „og
tónleikagestir á morgun eru
hvattir til að flytja nokkur slik
með sér!”
Bíndindls-
menn þinga
Norræna bindindisþingið var
nýverið haldið á Jamtaralandi i
Sviþjóð. 300 fulltrúar hvaðanæva
af Norðurlöndum sóttu þingið,
þaraf ellefu Islendingar.
Þingið var liflegt og umræöur
fróðlegar um ýmis mál tengd
áfengis og fikniefnum. Formaður
Norræna bindindisráðsins var
kosinn Sviinn Valeri Surell. Af
hálfu fslendinga sitja i Norræna
bindindisráðinu þeir Ólafur
Haukur Arnason og varamaður
hans i stjórn Jóhann E. Björns-
son. —óg
ólafur
Adda Bára
Guðjón
Skdli
Guðmundur J.
I_____________
Svavar
| Ráðstefna Alþýðubandalagslns um húsnæðlsmál
Leysum
húsnæðisvandann
Hreyfilshúsinu við Grensásveg
sunnudaginn 13. þessa mánaðar
Alþýðubandalagið i Reykjavik boðar til
ráðstefnu um ástand húsnæðismála i
Reykjavik sunnudaginn 13. september i
Hreyfilshúsinu við Grensásveg.
Ráðstefnan hefst klukkan 13 og er áætlað
að henni ljúki um klukkan 19. Fundar-
stjóri er Adda Bára Sigfúsdóttir.
Að lokinni setningu ráðstefnunnar verða
flutt stutt framsöguerindi.
Málefni leigjenda
Jón Ásgeir Sigurðsson
Hlutverk félagsmálastofnunar Reykja-
vikurborgar i húsnæðismálum
Þorbjörn Broddason
Framkvæmd húsaleigulaga
Skúli Thoroddsen
Húsbyggingar í Reykjavik og atvinnumál
Guðmundur Þ. Jónsson
Framkvæmd nýju húsnæðislaganna
Ólafur Jónsson
Þáttur verkaiýðshreyfingarinnar i bygg-
ingu húsnæðis á félagslegum grundvelli
Guðmundur J. Guðmundsson
Félagslegar ibúðarbyggingar sem fram-
tiðarlausn
Guðjón Jónsson
Hlutverk rikisins og stefnumótun i hús-
næðismálum
Svavar Gestsson
Stefnumótun i húsnæðismálum og hlut-
verk Reykjavíkurborgar
Sigurjón Pétursson
Að loknum framsöguerindum, sem áætlað
er að standi i 2—3 klst., munu frummæl-
endur taka þátt i pallborðsumræðum. Þar
gefst ráðstefnugestum kostur á að beina
til þeirra spurningum og athugasemdum
bæði skriflegum og munnlegum.
Alþýðubandalagið i Reykjavik
1
Sigurjón
Guðmundur Þ.
Jón Asgeir
Þorbjörn
Þorskafli Islendinga var i lok
ágúst orðinn 373 þúsund lestir
samkvæmt tölum frá Fiskifélagi
Islands. Fyrstu 8 mánuði ársins i
fyrra var þorskaflinn 343 þús.
lestir og er aflinn nú þvi orðinn 30
þús. meiri en i fyrra. Haf-
rannsóknastofnunin gerði tillögu
um að heimilaöar yröu 400 þús.
lestir árið 1981, en af hálfu
sjávarútvegsráðuneytisins hefur
markiö veriö sett við 430 þús. lest-
ir eða þar um bil,
Búast má við þvi að þorskaflinn
fari nálægt þvi hámarki sem
ráðuneytið hefur miðað við, en
litlu er auðvitað hægt aö spá um
aflann til áramóta. Taka verður
þó meö i reikninginn, aö fram-
undan er 40 daga þorskveiðibann
hjá togurunum. —j
Starfsfólk Innréttingahússins við eina af hinum smekklegu, dönsku innréttingum. — Sigurður Karlsson
er lengst til vinstri, þá Sigurður Lyngdal og Snjólaug Jóhannesdóttir. Ljósm.: —gel—
Danskar innréttingar
Hjá Innréttingahúsinu, innréttingar frá danska fyrir- hefur fengið einkaleyfi á sölu
Háteigsvegi 3,eru tilsýnis og sölu tækinu HTH. Innréttingahúsið þessara innréttinga og hefur nú
verið sett upp i rúmgóðum
sýningarsal fyrirtækisins úrval
af eldhús-, baðherbergja- og
svefnherbergjainnréttingum.
Innréttingar þessar eru úr
ýmsum viðartegundum, en ber þó
mestá ljósum viði svo sem beyki,
eik og furu. Óhætt er að segja að
aðgengilegt sé að skoða sig um i
sýningarsalnum og öll aðstaða
fyrir viðskiptavini góð.
Að sögn Sigurðar Karlssonar,
framkvæmdastjóra, eru gerð til-
boð i innréttingar og veitt ráðgjöf,
viðskiptavinum fyrirtækisins að
kostnaðarlausu. Verð á inn-
réttingunum mun vera sambæri-
legt og á svipaöri framleiðslu
innlendri.
Til 15. október eru inn-
réttingarnar seldar með 20%
kynningarafslætti.
—ugk
Kartöfluverksmiðjan
á Svalbarðseyri:
Unnið að
stækkun
Sala á kartöflum I neytenda-
pokum hefur orðiö talsvert minni
I ár en undanfarin ár. A því finna
menn einkum tvær skýringar. 1
fyrsta lagi er gert ráð fyrir þvl, að
kartöfluræktun hjá einstakling-
um (neytendum) hafi veriö með
mesta móti. Þær kartöflur hafa
vissan forgang i neyslu, þdtt sií
reynsla komiekki inn I sölukerfið
meö venjulegum hætti. 1 annan
stað að orðin sé breyting á
neysluvenjum, eiknum hjá ungu
fólki. Það kjdsi nú orðið fremur
steiktar kartöflur.
Slikar kartöflur hafa eingöngu
verið fluttar inn þar til i mars-
mánuði sl. vetur. Þá var farið að
steikja kartöflur i nýrri verk-
smiðju, sem til þess var reist á
Svalbarðseyri. Þessi verksmiðja
hefur nú framleitt 155,2 tonn af
steiktum kartöflum frá þvi hún
tók til starfa og til 1. ágúst sl..Hef-
ur hún unnið úr 497,5 tonnum af
hrákartöflum.
Þessi framleiðsla hefur þó ekki
fullnægt innlendri eftirspurn og
hefur töluvert oröið að flytja inn
af steiktum kartöflum. Nú er i
ráði að stækka verksmiðjuna á
Svalbarðseyri og aö sú stækkun
komi I not á næstunni.
— mhg
Akureyri:
Tflboð
opnuð
í byggingu
verkmennla-
skólans
I gær átti að opna tilboð i bygg-
ingu fyrsta áfanga hins nýja
verkmenntaskóla á Akureyri,
sem Ingvar Gislason mennta-
málaráðherra tók fyrstu skóflu-
stunguna að á dögunum. Að sögn
Hauks Arnasonar formanns
byggingarnefndar skólans er
stefnt að þvi að ljúka þessum
áfanga fyrir næsta haust og er þá
meiningin að taka i notkun verk-
námshúsnæði málmiðnaðardeild-
ar. Reiknað er með að fram-
kvæmdir hef jist eftir hálfan mán-
uð, en jarðvinnsla stendur yfir.
Þegar verkmenntaskólinn á
Akureyri verður kominn i gagnið
flyst þangað allt verknám i heil-
brigöis-, hUsstjórnar-, viðskipta-
og tæknisviðum. Við það rýmist
húsnæði iðnskólans og jafnframt
flytjast framhaldsdeildir Gagn-
fræðaskólans i verkmenntaskól-
ann. Bóknámsgreinar verða sið-
an að mestu kenndar við Mennta-
skólann á Akureyri og starfa
þessir tveir skólar þvi i nánum
tengslum hvor við annan i fram-
tiðinni. I sameiningu munu þeir
veita þá menntun sem fjölbrauta-
skólarnir hér syðra hafa á sinni
könnu.
Verkmenntaskólinn mun út-
skrifa stúdenta i ákveönum
greinum, en að sjálfsögöu verður
þar einnig um að ræða styttra
nám og námsáfanga sem veita
ákveðin réttindi.
NU er áætlað aö skólinn yerði
tilbúinn i endanlegri mynd eftir
6—8 ár. Kostnaðaráætlun frá i
sumar hljóðar upp á 58 miljónir
króna.
Haukur Arnason tjáði Þjóðvilj-
anum i gær að ekki hefði verið
ákveöiö hvarlistasviði yröikomið
fyrir innan framhaldsskólanna á
Akureyri, en til greina kæmi að
nýta Iðnskólahúsiö undir þaö,
þegar hann losnar. Gifurleg
þrengsli eru hins vegar i gamla
Gcignfræðaskólahúsinu og veröur
það fullnýtt eftir sem áður þótt
framhaldsdeildirnar flytji það'an.
— j