Þjóðviljinn - 10.09.1981, Side 7
Fimmtudagur 10. september 1981 ÞJÓDVILJINN — StÐA 7
Leikhús rauða hattsins
Nýstárleg sýning
sem hlotið
hefur lof
í Frakklandi
Næstkomandi laugardags-
kvöldið, 12. september, býður
Þjóðleikhúsið upp á fróðlcga og
nýstárlega leiksýningu. Þá kem-
ur hingað i gestaleik franskur
leikflokkur sem kennir sig við
rauðan hatt, með sýningu er kall-
ast Andspænis erfiðum degi, og er
að mestum hluta til látbragðs-
leikur.
Sýning þessi hefur vakið mikla
athygli i Frakklandi og verið á
leiklistarhátiðum. Hafa dómar
allir verið hinir lofsamlegustu,
enda er sýningin nýstárleg mjög.
Frakkar eiga sem kunnugt er
rika hefð i látbragðsleik og nægir
i þvi sambandi að minna á meist-
ara eins og Marcel Marceau sem
hefur tvisvar sýnt hér i Þjóðleik-
húsinu, en Yann Collette, sem fer
með eina hlutverkið i þessum
leik, þykir fara eigin leiðir og
vekur hlátur og grát áhorfenda,
en sumir gagnrýnendur hafa tal-
að um að andrúmsloftið i leiknum
minni á sumar bestu myndir
Chaplins. Þannig lýsti franska
stórblaðiö Le Monde leik Yann
Collette: „Þessi einkennilegi
leikari, sem lætur þögnina ókyrr-
ast”. Aðrir gagnrýnendur tala
um að gamansemi eins og hún
verður gráust falli þarna i faðma
viö elskulega hlýju.
Leikhús rauða hattsins hefur
aðsetur i Avignon og hefur ferðast
mikið um Frakkland og til ann-
arra landa með sýningar sinar.
Leikflokkurinn er reyndar harla
ungur, stof naður 1976 og er nafnið
þannig til komið að fyrstu sýning-
arnar litu dagsins ljós i húsi núm-
er 19 við Götu rauða hatt^ins. í
leikflokknum sem hingaö kemur
eru aðeins fjórir menn og i þeim
hópi er leikstjórinn Pierre Prad-
inas, en það er hann sem hefur
sett saman þessa sýningu ásamt
Yann CoIIette „lætur þögnina ókyrrast” I Þjóðleikhúsinu á laugardags- .
kvöldið
meö leikandanum Yann Collette.
En þessari sýningu hefur einn
svissneskur gagnrýnandi lýst á
eftirfarandi hátt: ... Þarna er
Gogol lifandi kominn séður með
augum Busters Keaton”. Leik-
flokkurinn hefur sýnt þessa sýn-
ingu m.a, i Belgiu, Sviss og á tr-
landi, en sýningin er hingað kom-
in fyrir milligöngu franska
menntamálaráðuneytisins og
franskasendiráðsins i Reykjavik.
Eins og áður segir þá sýna
Frakkarnir aðeins einu sinni i
Þjóðleikhúsinu, n.k. laugardags-
kvöld klukkan 20.00.
Franskur gestaleikur í Þjóðleikhúsinu
Færeyskt
bændasam-
félag og
skútuöldin
I anddyri Norræna hússins hef-
ur verið komið fyrir sýningu um
færeyska bátinn. Sýningin er f
tengslum við fund safnvarða frá
Grænlandi, Færeyjum og Islandi
sem stendur yfir þessa dagana. I
tengslum við sýninguna flytur
Arne Thorsteinsson þjóðminja-
vörður Færeyja fyrirlestur um
hið gamla færeyska bændasam-
félag og Jóan Pauli Joensen safn-
vörður ræðir um skútuöldina i
Færeyjum. Fyrirlestrarnir verða
i kvöld kl. 20.30.
Færeyski báturinn nefnist sýning sem nú stendur yfir I anddyri
Norræna hússins. Færeysk bátalag hafði á sinum tima töluverð
áhrif á bátasmiði hér á landi en það er önnur saga.
ListaskáLi ASÍ
Ágæt
aðsókn
Aðsókn hefur verið góð að lista-
sýningunni i Listaskála ASÍ,
Grensásvegi 16, sem opnuð var
miðvikudaginn 2. sept. Þar eru
sýnd 24 oliumálverk, 11 málm-
myndir (drifin verk) og 37 list-
munir úr keramik, tré og horni
eftir marga af fremstu mynd-
listarmönnum Sovétlýðveldisins
Georgiu (Grúsiu) I Kákasus.
Sýningin verður opin til sunnu-
dagskvölds 13. sept. á virkum
dögum kl. 14—19, en á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 14—22.
Aðgangur er ókeypis.
a,a:v. .-.srv: . * " • : ■ ■ ^ ^
Myndlist frá Grúsiu f Listaskála ASt
1X2 1X2 1X2
2. leikvika — leikir 5. sept. 1981
Vinningsröð: 111 — 121 — 122 — 211
1. vinningur: 12 réttir — kr. 8.565.-
5601 27225(4/11) 32281(4/11)+ 41751(6/11)
27084(4/11) 27927(4/11) 40008(6/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 231.-
1388 7024 25249 28463 31160 40166 41838
2329 7025 25622+ 28508 31224 40259 41231
2356 7642 25725+ 28680 31226 40680 42308
3747 8694+ 25791(2/11) 31228 40682 42450
4623 8695+ 26097(2/11) 31263(2/11) 43162+
4950 9053 26712 28922 31904 40691
5221 9854 27332 29346 31905 40853
5527 10683+ 27377 29518 32100 40854
5599 10838+ 27414+ 29555 32109 40988
5781+ 11472 27518+ 29857 32116 41034
5782+ (2/11) 27787 30130 32280 41505
5786+ 25222 27813+ 30351 40021 41624
6123(2/11) 27973 30446 40092 41774
Kærufrestur er tii 28. sept. kl. 12 á
hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á aðalskrifstofunni i Reykjavik. Vinn-
ingsupphæðir geta iækkað, ef kærur verða
teknar tii greina.
Handhafar nafniausra seðla ( + ) verða
að framvisa stofni eða senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — Iþróttamiöstööinni — REYKJAVIK
fAuglýsing
um afgreiðslutima
verslana i Reykjavik
Á timabilinu 1. september til 1. júni er
heimilt að veita 1 - 2 verslunum i hverri
grein leyfi til að hafa opið á laugardögum
milli kl. 12.00 - 16.00. Einnig er heimilt að
veita verslunum leyfi til að halda vöru-
sýningu utan venjulegs afgreiðslutima,
enda fari engin sala fram.
Umsóknir sendist til samstarfsnefndar
um afgreiðslutima verslana i Reykjavik,
Austurstræti 16.
Félagsmálaráð Garðabæjar óskar eftir starfsfólki I eftirtalin störf 1. Heimilishjálp. 2. Dagmæður. 3. Störf heimilisvina (starfið felst i félags- skap og umönnun barna og eða aldraðra á heimilum hluta úr degi). ATH: að sum ofangreindra starfa geta hentað skólafólki. Upplýsingar á skrifst. félagsmálaráðs i Garðabæ, og i sima 45022 á skrifstofutima. Félagsmálaráð Garðabæjar.
Þjóðviljinn
— Sandgerði
Ráðinn hefur verið nýr umboðsmaður fyr-
ir Þjóðviljann i Sandgerði. Hann heitir
Þorbjörg Friðriksdóttir Hólagötu 4 Sand-
gerði.
Þjóðviljinn