Þjóðviljinn - 10.09.1981, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 10. september 1981 ÞJóÐVILJINN — StÐA 11
iþróttir(2 íþróttir
íþróttirfg
Lárus Guömundsson skorar fyrsta mark islands i leiknum gegn Tyrkj um i gærkvöldi. Varnarmennirnir fá ekkert aö gert þrátt fyrir mikla
tilburöi I þá átt. Ljósm. —gei.
Island - Tyrkland 2:0
ÞRIÐJI SIGUR
ÍSLANDS í HM
íslendingar unnu sinn
þriöja sigur í heims-
meistarakeppni í gær-
kveldi gegn köldu og
hröktu landsliði Tyrkja. (s-
lenska liðið hafði tögl og
haldir í leiknum og sigur-
inn raunar sist of stór, því
tækifærin voru mýmörg.
Það vérður auðvitað að
segja tyrknesku leikmönn-
unum til vorkunnar, að
þeir léku við afar fram-
andi aðstæður, kulda-
gjóstur og strekkingsvind á
köf lum.
Raunar var þaö aðeins á upp-
hafsminútum leiksins sem Tyrk-
irnir náðu aö sýna einhverja
knattspyrnu af viti. Sköpuðust oft
hættuleg tækifæri og svo sannar-
lega vildi þaö islenska liðinu til
happs að Guðmundur Baldursson
i markinu var geipilega öruggur,
bæöi varöi hann hættuleg skot og
að auki greip hann vel inn i. Eftir
að mesti broddurinn var úr leik
Tyrkjanna fóru islensku leik-
mennirnir aö ná betri tökum á
leiknum. Pétur Pétursson, sem
átti stórleik, vann hvern boitann á
fætur öðrum og sendingar hans
voru stórhættulegar. Upp úr einni
slikri kom fyrsta markiö á 20.
minútu. Pétur vann boltann á
miðjunni meö miklu haröfylgi og
sendi gullfallegan stungubolta á
Lárus sem skyndilega var á auö-
um sjó og sá þurfti ekki að hafa
mikiö fyrir hlutunum, óð i átt að
marki og skoraði af öryggi undir
tyrkneska markvörðinn, 1:0.
Övænt forysta þvi Tyrkirnir léku
undan sterkum vindi i fyrri hálf-
leik. Eftir markið lifnaði heldur
betur yfir islenska liöinu. Pétur
komst tvisvar i hættuleg færi og
litlu munaði að Lárus næði að
leika sama leikinn og áöur þegar
Pétur gaf stórfallega sendingu
framhjá svifaseinum varnar-
manni Tyrkja sem greip til þess
örþrifabragðs að henda sér á
Lárus og hreinlega keyra hann i
völlinn. Rauða spjaldiö virtist öll-
um eini rétti dómurinn en þaö
gula var látiö nægja.
Þegar blásið var til leikhlés
voru menn vongóðir um að is-
lenskur sigur næðist, ekki sist
fyrir þá sök að islenska liðsins
beið meðbyr i seinni hálfleik.
Ekki virtist þaö þó hafa mikiö að
segja þvi framan af hálfleiknum
rikti hin mesta lognmolla og
frekar aö Tyrkirnir sýndu eitt-
hvað. Heppnin var þó Islands-
megin. A 22. minútu tekur Pétur
Ormslev innkast frá hægri, bolt-
inn hittir fyrir Sigurð Lárusson
sem skallar fyrir og Atli, eins og
svo oft á réttum stað nikkar inn.
Eftir markið hreinlega gáfust
Tyrkirnir upp og leikurinn var
heldur leiðinlegur á að horfa þaö
sem eftir var, fá markatækifæri
og Tyrkirnir sem reyndust heldur
skapstiröir i fyrri hálfleik voru
hinir prúöustu, sem sýnir e.t.v.
best hversu viðnámiö var lltiö.
Sigur Islands, 2:0 varö staöreynd.
1 islenska liöinu átti Pétur
Pétursson afbragðs leik, en i heild
barðist liöiö vel. Guömundur var
afar öruggur i markinu og Lárus
var stórhættulegur þegar sam-
vinnu frá Pétri naut við. Sigurinn
var sætur og fjögur stig i þessum
riðli er e.t.v. meira en menn áttu
von á þegar haldiö var af staö.
Tyrkneska liðiö var lélegt, enda
aöstæöur þeim erfiöar. Varnar-
mennirnir voru veikasti hlekkur-
inn en úti á velli mátti oft sjá
skemmtilegan og nettan samleik.
Margir voru þeir skapstirðir og
létu litt alvarleg atvik æsa sig
upp úr öllu valdi. 1 sérflokki var
þó nr. 4 Bælgetay sem átti svo
sannarlega skilinn reisupassann
fyrir brotið áðurnefnda á Lárusi.
Dómarinn O’Sullivan frá Ir-
landi dæmdi yfirhöfuð vel þó hon-
um mistækist nokkrum sinnum.
Sá var helstur ljóður á ráöi hans
að hann leyfði Tyrkjunum aö
komast upp með leiöindar rudda-
skap. Ahorfendur voru um fjögur
þúsund.
— hól
Staðan
Staðan i 2. riðli undan-
keppni HM er nú þessi:
Wales 5 4 10 10:0 9
Tékkósl. 4 3 0 1 11:2 6
Sovétrikin 3 2 1 0 7:1 5
lsland 5 2 0 3 6:12 4
Tyrkland 6 0 0 6 1:15 0
Noregur vann
England
I gær fóru fram nokkrir
leikir i undanrásum H.M i
knattspyrnu. Úrslit þeirra
urðu m.a. þessi:
Noregur-England 2-1
Tékkóslóvakia-Wales 2-0
Danmörk-Júgóslavia 1-2
Belgia-Frakkland 2-0
Skotland-Sviþjóð 2-0
„Anægður með
strákana”
,,Ég er ánægður meö
strákana. Þeir börðust vel i
leiknum og gáfu aldrei eftir.
Mér fannst þeir allir ieggja
sig mjög vel fram”, sagði
Guðni Kjartansson, iands-
iiðsþjálfari léttur I lund.
„Auðvitað vil ég alltaf
fleiri mörk, en þetta var al-
veg sanngjarnt miöaö viö
gang leiksins. Þaö verður að
taka með í reikninginn, aö
þaö er ekkert betra aö spila
undan svona miklum vindi”.
— Unnum viö kannski á
rokinu og kuldanum?
,,Þaö vil ég ekki meina.
Viö lentum i miklum hita hjá
þeim, þeir i kulda hjá okkur
og rokið kom báöum jafnilla.
— Hvernig lýst þér á næstu
leiki viö Tékka og Wales?
,,Meö sama leik og viö
sýndum i kvöld, þá leggjast
þessir leikir vel i mig. Viö
eigum alltaf möguleika,”
sagöi Guöni Kjartansson.
-lg-
Fyrsti sigur i
landsleik
„Ég hef aidrei unnið
landsleik áður og hef þvi
miklu að fagna”, sagði Pétur
Pétursson að leik loknum.
„Þessir dómarar eru allir
eins. Þaö er yfirleitt sá sem
brýtur sem hagnast. Ég gat
engan veginn skiliö hvaö
sumir þessir dómar áttu aö
þýöa.”
— Hvaö fannst þér um
leikinn?
,,Þaö er algjörthappdrætti
að leika hérna heima á
tslandi. Veöriö er óút-
reiknanlegt. Hins vegar
fannst mér okkur takast bet-
ur upp á móti rokinu i fyrri
hálfleik. Varnarmenn
Tyrkjanna fóru oft of
framarlega og viðnáöum þá
góöum upphlaupum og
gátum skapaö okkur færi.”
— Attum viö aö skora
fleiri mörk?
„Viö áttum oft ágætis færi,
en mér finnst 2-0 alveg nóg,
viö hirtum bæði stigin”,
sagöi Pétur Pétursson. - lg
„100% barátta”
,,Það var 100% barátta I
liðinu ailan timann, og það
gerði út um þennan leik
sagði Marteinn Geirsson,
fyrirliði landsliðsms.
„Fótboltinn var ekki
merkilegur, en baráttan hjá
okkar mönnum var meiri en
hjá Tyrkjunum, og á þvi
unnum viö. Þaö var erfitt aö
hemja boltann, jafnvel erf-
iöara þegar viö spiluöum
undan rokinu, en viö tókum
miöjuna vel. Mér fannst
Tyrkirnir spila betur núna,
en í leiknum úti I fyrra. Þeir
spiluöu stutt og nett, en
auövitaö voru aðstæðurnar
nú gjörólikar.
— Hvaö um dómarann?
,,Mér fannst hann leyfa
full mikla hörku”, sagöi
Marteinn Geirsson. — lg.