Þjóðviljinn - 29.09.1981, Side 15

Þjóðviljinn - 29.09.1981, Side 15
INy/J Hringið ísima 81333 kl. 9-5 alla xirka daga, eða skrifið Þjóðviljanum tfra Hulda vill að hafin verði almenn fjársöfnun til að kaupa uppsetta vinnustofu Kjarvals — Lifshlaupið. Söfnum fyrir Lífshlaupi Hulda Pétursdóttir hringdi til blaðsins og vildi koma eftir- farandi á framfæri: Hvers vegna i ósköpunum er ekki efnt til fjársöfnunar meðal almennings til að kaupa Lifs- hlaupið hans Kjarvals? Það gæti varla verið minna tilefni nú heldur en þegar þjóðin keypti geirfuglinn forðum. bað getur vartfariðá milli mála að þetta listaverk Kjarvals á að vera eign þjóðarinnar og má þvi ekki fyrir nokkurn mun verða selt úr landi. Auðvitaö er um óskaplega hátt söluverð að ræða, en er ekki einmitt sjáifsagt að eign þjóðarinnar sé keypt af þjóðinni sjálfri? Icsendum Brandara- smiðir á blaðinu Hefuröu heyrt um mann- inn sem var svo mjór að það komst bara ein rönd fyrir á náttfötunum hans? Molli mjói var svo mjór að hann varð að sofa í poka utanaf veiðistöng- inni sinni þegar hann fór í veiðiferðalög út úr bæn- um. Þetta eru strákarnir hérna á blaðinu. Þeir heita Stefán sendill Baldursson og Logi simasveinn Bergmann. Einn daginn tóku þeir sig til og sömdu nokkra brandara og senda ykkur hér með. Með þeim fylgir áskorun til ykkar um að senda Barnahorninu brandara: Þegar Molli stóð upp- réttur í skólanum þá fékk hann skróp! Veistu af hverju Molli hætti að skrifa til ham- ingju með afmælið á af- mælisterturnar? Svar: Af því að rjóminn klesst- ist svo mikið á ritvélina. Þegar Jón og Sigga kona hans fóru í flugferðina yfir Atlantshafið um árið/ heyrðist rödd flug- stjórans skyndilega: Ef þið lítið út á hægri væng þá sjáið þið að hann stendur í björtu báli. Ef þið lítið út á þann vinstri — þá sjáið þið að hann vantar. Ef þið lítið niður ögn til hægri, þá sjáið þið mig i gulum gúmmí- björgunarbát. — Bless, bless. Veistu hvernig áletrun- inni á botninum í Hafnar- f jarðariauginni var breytt? Þið getið fengið kveikjara að láni hjá bað- verðinum. Barnahornid Þriöjudagur 29. september 1981 ÞJÓÐ.VILJINN — SÍÐA 15 o Sjónvarp kl. 20.35 Að vestan í kvöld Finnbogi Hermannsson ræðir i kvöld kl. 22.35 í þættinum Aö vestan viö þá Reyni Adólfsson og Kristján Jónsson. Viö Reyni ræðir hann um ferðamál á Vestfjöröum en viö Kristján um rekstur djúpbátsins Fagraness. Útvarp kl. 23.00 Scherlock Holmes A hljóöbergi i kvöld veröur fluttur þáttur um Scherlock Holmes og Bæheimshneyksliö mikla eftir Artúr Conan Doyle. Sá sem leikur og les heitir Basil Rathbone. Þáttur- inn er aö vanda i umsjá Björns Th. Björnssonar. Þjóð- skörungur Indlands Myndin i kvöld er um frelsishetju Indverja. Mahatma Gandhi. Markmiö Gandhis og fylgismanna hans var sjálfstæöi Indlands. Hann stóö fremstur i flokki þeirra Indverja sem stóöu i ströngu gegn breska her- námsliðinu og breskum yfir- ráöum á Indlandi. Gandhi boðaöi andóf án ofbeldis og þótti mestur andans manna meöal þjóöarleiötoga á sinni tiö. Arangur Indverja i frelsis- Mahatma Gandhi leiötogi Ind- lands og boöandi hins ofbeldis- lausa andófs gegn nýlendu- stjórn Breta. baráttunni gegn Bretum gaf öörum kúguðum þjóðum byr undir báöa vængi i frelsisbar- áttu þeirra. Og af þvi viö höf- um svo gaman af ættfræöi hér á Þjóöviljanum, — þá skal þess getið aö gamli góöi Gandhi var tengdafabir Indiru Gandhi. Hún er hins vegar dóttir Nehrus sem tók viö leið- togatign af Gandhi á sinum tima. Sjónvarp o kl. 21.05 Óvænt endalok Þættirnir óvænt endalok eru oft harla spennandi og mein- laust skemmtiefni. Aöeins þaö besta heitir þátturinn i kvöld og fjallar eftir þvi sem viö höf- um best fregnaö hjá heimild okkar i sjónvarpinu, um Arthur nokkurn sem vill gift- ast dóttur yfirmanns sins. Til að ná þvi ráði fær hann sér til hjálpar Charley, flytur inn til hans til að þiggja góð ráö — og lánar honum pen- inga. Sá maður er hinsvegar Arthur reynir aö heilla dóttur yfirmannsins. Allt fær það mál óvænt endalok. undirförull og er á þeim bux- unum að hverfa án þess aö borga lánsféð til baka. Hinn er á biöilbuxunum og.... enda- lokin verða óvænt. Myndin er byggð á sögu eftir Stanley Ellin en Denis Cannon færöi i leikbúning. Aðalleikendur eru Jerney Clyde og Michael Kitschen. I kvöld verður umræöuþátt- ir i beinni útsendingu um breytingar á umferöarlögun- um. Þær breytingar, svo sem um bilbelti og hjólreiðabrautir hafa veriö mikiö I umræöu undanfarið. Umræöunum stýrir óli H. Þóröarson. Þátttakendur eru m.a. Ómar Ragnarsson, Bjarni Pálmarsson, leigubilstjóri, Halldór S. Rafnar frá öryrkjabandalaginu og Óskar Olason yfirlögregluþjónn. Auk þess koma fulltrúar annarra aðilja við sögu i þættinum. Þaö telst til tiöinda að i þættin- um verður sýnd fyrsta islenska leikna umferöarkvik- myndin. Ber hún nafniö Bildór og er um átta minútur að lengd.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.