Þjóðviljinn - 29.09.1981, Qupperneq 15
INy/J Hringið ísima 81333 kl. 9-5 alla xirka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
tfra
Hulda vill að hafin verði almenn fjársöfnun til að kaupa uppsetta
vinnustofu Kjarvals — Lifshlaupið.
Söfnum fyrir
Lífshlaupi
Hulda Pétursdóttir hringdi til
blaðsins og vildi koma eftir-
farandi á framfæri:
Hvers vegna i ósköpunum er
ekki efnt til fjársöfnunar meðal
almennings til að kaupa Lifs-
hlaupið hans Kjarvals? Það
gæti varla verið minna tilefni
nú heldur en þegar þjóðin keypti
geirfuglinn forðum. bað getur
vartfariðá milli mála að þetta
listaverk Kjarvals á að vera
eign þjóðarinnar og má þvi ekki
fyrir nokkurn mun verða selt úr
landi. Auðvitaö er um óskaplega
hátt söluverð að ræða, en er ekki
einmitt sjáifsagt að eign
þjóðarinnar sé keypt af þjóðinni
sjálfri?
Icsendum
Brandara-
smiðir
á blaðinu
Hefuröu heyrt um mann-
inn sem var svo mjór að
það komst bara ein rönd
fyrir á náttfötunum
hans?
Molli mjói var svo mjór
að hann varð að sofa í
poka utanaf veiðistöng-
inni sinni þegar hann fór í
veiðiferðalög út úr bæn-
um.
Þetta eru strákarnir hérna á blaðinu. Þeir heita Stefán sendill
Baldursson og Logi simasveinn Bergmann. Einn daginn tóku þeir
sig til og sömdu nokkra brandara og senda ykkur hér með. Með
þeim fylgir áskorun til ykkar um að senda Barnahorninu brandara:
Þegar Molli stóð upp-
réttur í skólanum þá fékk
hann skróp!
Veistu af hverju Molli
hætti að skrifa til ham-
ingju með afmælið á af-
mælisterturnar? Svar:
Af því að rjóminn klesst-
ist svo mikið á ritvélina.
Þegar Jón og Sigga kona
hans fóru í flugferðina
yfir Atlantshafið um
árið/ heyrðist rödd flug-
stjórans skyndilega: Ef
þið lítið út á hægri væng
þá sjáið þið að hann
stendur í björtu báli. Ef
þið lítið út á þann vinstri
— þá sjáið þið að hann
vantar. Ef þið lítið niður
ögn til hægri, þá sjáið þið
mig i gulum gúmmí-
björgunarbát. — Bless,
bless.
Veistu hvernig áletrun-
inni á botninum í Hafnar-
f jarðariauginni var
breytt? Þið getið fengið
kveikjara að láni hjá bað-
verðinum.
Barnahornid
Þriöjudagur 29. september 1981 ÞJÓÐ.VILJINN — SÍÐA 15
o
Sjónvarp
kl. 20.35
Að vestan í kvöld
Finnbogi Hermannsson ræðir i kvöld kl. 22.35 í þættinum Aö
vestan viö þá Reyni Adólfsson og Kristján Jónsson. Viö Reyni
ræðir hann um ferðamál á Vestfjöröum en viö Kristján um
rekstur djúpbátsins Fagraness.
Útvarp
kl. 23.00
Scherlock Holmes
A hljóöbergi i kvöld veröur
fluttur þáttur um Scherlock
Holmes og Bæheimshneyksliö
mikla eftir Artúr Conan
Doyle. Sá sem leikur og les
heitir Basil Rathbone. Þáttur-
inn er aö vanda i umsjá Björns
Th. Björnssonar.
Þjóð-
skörungur
Indlands
Myndin i kvöld er um
frelsishetju Indverja.
Mahatma Gandhi. Markmiö
Gandhis og fylgismanna hans
var sjálfstæöi Indlands.
Hann stóö fremstur i flokki
þeirra Indverja sem stóöu i
ströngu gegn breska her-
námsliðinu og breskum yfir-
ráöum á Indlandi. Gandhi
boðaöi andóf án ofbeldis og
þótti mestur andans manna
meöal þjóöarleiötoga á sinni
tiö. Arangur Indverja i frelsis-
Mahatma Gandhi leiötogi Ind-
lands og boöandi hins ofbeldis-
lausa andófs gegn nýlendu-
stjórn Breta.
baráttunni gegn Bretum gaf
öörum kúguðum þjóðum byr
undir báöa vængi i frelsisbar-
áttu þeirra. Og af þvi viö höf-
um svo gaman af ættfræöi hér
á Þjóöviljanum, — þá skal
þess getið aö gamli góöi
Gandhi var tengdafabir Indiru
Gandhi. Hún er hins vegar
dóttir Nehrus sem tók viö leið-
togatign af Gandhi á sinum
tima.
Sjónvarp
o kl. 21.05
Óvænt
endalok
Þættirnir óvænt endalok eru
oft harla spennandi og mein-
laust skemmtiefni. Aöeins þaö
besta heitir þátturinn i kvöld
og fjallar eftir þvi sem viö höf-
um best fregnaö hjá heimild
okkar i sjónvarpinu, um
Arthur nokkurn sem vill gift-
ast dóttur yfirmanns sins.
Til að ná þvi ráði fær hann
sér til hjálpar Charley, flytur
inn til hans til að þiggja góð
ráö — og lánar honum pen-
inga. Sá maður er hinsvegar
Arthur reynir aö heilla dóttur
yfirmannsins. Allt fær það
mál óvænt endalok.
undirförull og er á þeim bux-
unum að hverfa án þess aö
borga lánsféð til baka. Hinn er
á biöilbuxunum og.... enda-
lokin verða óvænt. Myndin er
byggð á sögu eftir Stanley
Ellin en Denis Cannon færöi i
leikbúning. Aðalleikendur eru
Jerney Clyde og Michael
Kitschen.
I kvöld verður umræöuþátt-
ir i beinni útsendingu um
breytingar á umferöarlögun-
um. Þær breytingar, svo sem
um bilbelti og hjólreiðabrautir
hafa veriö mikiö I umræöu
undanfarið. Umræöunum
stýrir óli H. Þóröarson.
Þátttakendur eru m.a.
Ómar Ragnarsson, Bjarni
Pálmarsson, leigubilstjóri,
Halldór S. Rafnar frá
öryrkjabandalaginu og Óskar
Olason yfirlögregluþjónn. Auk
þess koma fulltrúar annarra
aðilja við sögu i þættinum.
Þaö telst til tiöinda að i þættin-
um verður sýnd fyrsta
islenska leikna umferöarkvik-
myndin. Ber hún nafniö Bildór
og er um átta minútur að
lengd.