Þjóðviljinn - 07.10.1981, Síða 14

Þjóðviljinn - 07.10.1981, Síða 14
1 4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mibvikudagur 7. október 1981 Blaðbera vantar strax! Alfhólsvegur— Þverbrekka Kársnesbraut, efri hluti. Efstasund— Skipasund. DJOÐVIUINN Siðumúla 6 s. 81333. ALÞÝÐUBAND ALAGIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavik FÉLAGSFUNDUR Alþýöubandalagið i Reykjavik boðar til félagsfundar á Hótel Esju mið- vikudaginn 14. október kl. 20.30. Nánar auglýst siðar. —Stjórn ABR Aiþýðubandalagið i Reykjavik: innheimta félagsgjalda Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavik hvetur alla þá sem enn hafa ekki greitt gjaldfallin árgjöld að greiða þau nú um mánaðamótin. —• Stjórn ABR Alþ^ðubandalag Selfoss og nágrennis Aðalfundur Alþýðubandalags Selfoss og nágrennis verður haldinn sunnudaginn 11. október nk.kl. 2 e.h. að Kirkjuvegi 7,Selfossi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund. 3. Forvaisreglur fyrir bæjarstjórnarkosningar. 4. önnur mái. Stjórn Alþýðubandalags Selfoss og nágrennis Viðtalstimar þing- manna og borgarfull- trúa Laugardaginn 10. október verða til viðtals fyrir borgarbúa á Grettisgötu 3 milli kl. 10 og 12: Adda Bára Sigfúsdóttir Svavar Gestsson Eru borgarbúar hvattir til að nota þennan viðtalstima. — Stjórn ABR. Alþýðubandalagið i Hafnarfirði Bæjarmálaráð Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins i Hafnarfirði heldur fund i Skálan- um mánudaginn 12. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Páll V. Bjarnason arkitekt fjallar um miðbæjarskipulag og sýnir uppdrætti. Félagar fjölmennið. Bæjarmálaráö Alþýðubandalagið i Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Hafnarfirði verður i Skálanum fimmtudaginn 15. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf sbr. lög félagsins. 3. Onnur mál. — Stjórnin. Alþýðubandaiagsfélagar i Vesturbæ Félagsfundur um borgarmálefni. 1. deild Alþýðubandalagsins i Reykjavik boðar til félagsfundar um borgarmálefni með sérstakri áherslu á málefni vesturbæjar fimmtu- daginn 8. október kl. 20.30. Fundurinner að Grettisgötu 3. Stuttar framsögur flytja: Sigurður G. Tómasson Sigurjón Pétursson Þórunn Klemenzdóttir. Eru félagar Alþýðubandalagsins i vesturbæ sérstaklega hvattir til að fjölmenna. Stjórn 1. deildar ABR. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjanesi. Aðalfundur Aöalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Reykjanesi verður haldinn sunnudaginn 11. október n.k. kl. 13.30 i félagsheimilinu Festi, Grindavik (efri sal). Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Flokksstarfið og hlutverk kjördæmisráðs. Framsögumaður: Baldur Óskarsson fram- kvæmdastj. ABL 4. önnur mál. Formenn félaga eða stjórnir þeirra boða fullti úa sinna félaga á fund þennan eins og venja hefur verið. Þá eru formenn félaga vinsamlegast beðnir um að leggja fram á fundinum skrá yfir fulltrúa sinna félaga I kjördmæmisráði. Stjórnin. Alþýðubandalagið 1 Reykjavík: Innheimta félagsgjalda Stjórn Alþýðubandalagsins i Reykjavík hvetur alla þá sem enn hafa ekki greitt gjaldfallin árgjöld að greiða þau nú um mánaðamótin. — Stjórn ABR Nýtt fargjaldastríð í uppsiglingu? Fargjöld lækka um helming — Pan American flugfélagið boðar lækkun, Þetta hefur ekki bein áhrif á okkar markað, sagði Gylfi Sigur- linnason fulltrúi hjá Flugleiðum, um fyrirhugaða lækkun Hugfar- gjalda Pan American flugfélags- ins á leiðinni frá London yfir At- lantshafið til New York. Pan American hefur tilkynnt að frá 1. nóvember muni flugfar- gjöld félagsins á leiðinni London- New York lækka um 50%. Þá kemur þetta fargjald til með að kosta 261 Bandarikjadal. Það eru flugfélögin Laker og British Air- ways sem eiga aðallega í sam- keppni við Pan Am á þessari leið. Þegar Carter þáverandi Banda- rikjaforseti gaf „frjálsri sam- keppni” lausan tauminn harðnaði samkeppnin meðtilboðum um lág fargjöld þannig að flest flugfélög hafa siðan veriðrekin með miklu tapi, einsog Islendingar ráku sig einnig harkalega á. Pan Americ- an hefur hingað til haft forgöngu um að hækka flugfargjöld enda félagið i miklum peningavand- ræðum. Hins vegarhefurnú tekið við nýr forstjöri, sem að sögn um- boðsaðilja Pan Am hér á landi hefur gjörbreytt um stefnu hvað þetta varðar. Þegar hafa flugfar- gjöld í Bandarikjunum verið lækkuð og nú fylgir þetta á eftir. Með þessu reynir flugfélagið að auka markaðshlutdeild sina sem hafði farið minnkandi undanfar- ið. Gylfi Gunnlaugsson hjá Flug- leiðum sagði að enn hefði ekki verið farið i saumana á þessari lækkun, en hún gæti hugsanlega átt eftir að hafa áhrif á öðrum leiðum yfir Atlantshafið. „Menn vita aldrei hvað gerist næst i flug- fargjaldamálum,” sagði Gylfi. — ög Frá v.: Hlynur Arnason formaður nefndarinnar, sem sá um útgáfu hulstursbókarinnar, Þröstur Lýðs- son og Arni Atlason samstarfsmenn Hlyns og Guömundur Rúnar Lúðvlksson. blaðafulltrúi J.C. á is- landi. Mynd: — eik. Húlsturbók J. C. í Mosfellssveit: Hvernig skal bregðast við slysum? J.C.-félagið i Mosfellssveit hef- ur gefið út ýtarleg upplýsingakort um skyndihjálp er slys bera að höndum. Kortin eru i nýstárleg- um og handhægum umbúðum, sem eru plasthulstur, á stærð við venjulegan spilastokk. Hulsturbókin er 48 bls. að stærð og i henni er að finna upplýsingar um flest þau óhöpp og slys, sem henda kunna i daglegu lifi, ásamt leiðbeiningum um hvernig bregð- ast eigi við þeim. Útgefendur leggja áherslu á að rétt viðbrögð i upphafi fyrirbyggja að afleiðing- ar slysa verði alvarlegri en á horfist i fyrstu. Það er þvi nauð- synlegt fyrir hvern og einn að hafa þekkingu á skyndihjálp og upplýsingar og leiðbeiningar við , Er sjonvarpið bi,aÓ?^ Skjarinn Sjónvarps'ÆrkskSi Bergstaðasíroti 38 simi 2-1940 hendina, þvi enginn veit fyrir-. fram hvenær til þeirra þarf að gripa. Forráðamenn útgáfunnar sögðu á fundi með fréttamönnum, að þeir hefðu eiginlega fengið þetta verkefni upp i hendurnar 1978 og verið að vinna að þvi sið- an. Fyrirmyndin er norsk og þurfti þvi að afla útgáfuréttar og þýðingarréttar, útvega þýðanda o.fl. Tók Bogi Arnar Finnbogason að sér að þýða textann en Haukur Kristjánsson, læknir á Slysadeild Borgarspitalans, las handritið yf- ir. Hulsturbókin fer i dreifingu nú eftir helgina. Er að þvi stefnt að bókunum verði komið i hvern ein- asta bil á Islandi. Til að byrja með hefur bifreiðaumboðunum verið boðin bókin til kaups. Er hugmyndin að þau láti eina slika bók fylgja hverjum nýjum bil, sem seldur er. Þá hafa lyfjabúðir sýnt bókunum áhuga og til greina Krakkar krakkar! Hér er bók til að lesa, skoða og segja frá Fœst í nœstu bókabúð kemur, — og er raunar sjálfsagt, — að ein svona bók verði meðal annarra nauðsynja i sjúkraköss- um. Verð bókarinnar er kr. 35.00. Meðal þeirra slysatilfella, sem fjallað er um, eru: brunasár, drukknun, eitrun, eldsvoði, gas- eitrun, lost, kal, ofkæling, skor- dýrabit, umferöarslys og margt fleira. Þessar upplýsingar eru þannig úr garði gerðar, að auð- velt er að gripa til þeirra og fljót- legt að fletta upp á hverju efnis- atriði. Þær varðveitast einnig vel, t.d. i bil, þar sem búast má við að þær verðifyrirhnjaski. Framan á kortunum er að finna nákvæmar leiðbeiningar um hvert tilfelli. Eitt eða tvö kort fjalla um hvert slysatilfelli og oftast fylgir mynd með. Ef ágóði verður af útgáfunni mun hann fyrst og fremst renna til verkefnisins: Leggjum öryrkj- um lið. Hulsturbókin lætur ekki mikið yfir sér en það þarf góða bók til þess að taka henni fram um nyt- semd. — mhg Leiðrétting Litið rúm var fyrir leið- réttingar i blaðinu I gær svo i dag birtist athugasemd við frétt Ur körfuboltanum á föstudaginn. Þar voru þau orð höfð eftir Einari Bolla- syni að árangurínn ’64 - ’65 væri sprengjan i islenskum körfuknattleik. Af einhverj- um astæðum brenglaðist merkingin, þvi hér var átt við árgangiim ’64 - ’65. Leiðréttist þetta hér með.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.