Þjóðviljinn - 07.10.1981, Síða 16
DJOÐVIUINN
Miövikudagur 7. október 1981
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
hlaösins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroí
8iz85, ljósmyndir 81257. Lauyardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Lífshlaupinu
var pakkað
niður í gær
,,Til geymslu innan lands eða utan,”
Halldór B. Runólfsson ræöir viö blaöamann Þjóöviijans igær en eins og sést á myndinni faldi Guömund-
ur Axelsson sig vandlega bak viö skiliriin. Ljósm. — eik.
Guömundur Axelsson kaup-
maður i Klausturhólum pakkaöi i
gær saman Lffshiaupi Kjarvals
sem geymt hefur veriö á Kjar-
vaisstöðum eftir aö sýningu á þvi
lauk, — „þar sem óþarfi viröist aö
flytja það ef borgin ætlar að
kaupa”, eins og Guömundur orö-
aði það i samtali við Þjóöviijann
fyrir skemmstu. Sem kunnugt er
bar mikið f miili í samningavið-
ræðum um kaup borgarinnar á
verkinu og má Ifla á fiutning
verksins frá Kjarvaisstööum sem
siit á þeim.
Lagt til að stjórnun fiskveiða verði hert:
Fækkun skipa, leyfis-
binding og aflakvóti
Fækkun fiskiskipa, leyfisbinding allra veiöa og kvótaskipting á skip
eru þau róttæku ráö sem starfshópur um sjávarútveg á vegum
Rannsóknarráös rfkisins vill aö tekin veröi til bjargar útveginum.
Telur hópurinn aö núverandi aðferöir viö stjórnun fiskveiöanna nægi
hvorki til aö tryggja æskilegt aflahámark né til aö halda niöri kostnaöi
viö sjósókn.
Frumskilyröi fyrir betri stjórnun telur hópurinn aö leyfisbinda allar ,,
veiöar og skipta aflanum niöur á skipin. Gætu þá leyfishafar veriö
einstök skip, útgeröir, vinnslustöövar eöa hafnir. Kvótum væri úthlutaö
ókeypis, en gert ráö fyrir sveigjanleika t.d. meö aö heimila framsal,
leyfa eöa bjóöa aukakvóta til kaups.
Bent er á, aö frá þvi aö álika úttekt var gerö á sjávarútveginum 1975,
meö Bláu skýrslunni svokölluöu, hefur fiskiskipaflotinn stækkaö og
sérstaklega hefur skuttogurum fjölgaö meir en til var ætlast. 1 Bláu
skýrslunni var gert ráö fyrir, aö þáverandi floti gæti aflaö 950 þús. tonn
af bolfiski miöaö viö ástand fiskistofna um 1970, en þrátt fyrir stækkun
flotans hefur hann samt ekki náö nema 60—70% af þessum afla-
brögöum.
Búist er viö aö fækkun skipa á næstu árum, einkum litilla báta, en aö
rúmlest..4.-tala flotans kunni þó aö vaxa m.a. vegna bætts aöbúnaðar
áhafna og aukinnar kassavæöingar. Þá álitur hópurinn, aö sérhæfni i
veiöum fari vaxandi vegna aukins útgeröarkostnaöar, en ekki er búist
viö stökkbreytingum I veiöitækni. —vh
Þegar blaðamann og ljósmynd-
ara bar að á Kjarvalsstöðum i
gær voru þeir Guðmundur og
Halldór B. Runólfsson að taka
myndirnar niður. Neitaði Guð-
mundur að segja til sin eða ræða
við blaðamann og Halldór vildi
ekkert segja um það hvert förinni
væri heitið nú þegar Lifshlaupið
erfluttfrá Kjarvalsstöðum. „Þaö
fer I geymslu til að byrja með,
innan lands eða utan”, sagði
hann.
Um samningaviðræður við
borgina og fréttaflutning af þeim
var Halldór þungorður. Þessir
menn reikna Guðmundi það til
gróða sem rikið hirðir i skatta,
sagði hann. Allt sem Guðmundur
hefði viljað fá fyrir sinn snúð
væru 1700 þúsund krónur og þar
af færi miljón i útlagðan kostnað.
Skattar rikisins af slikum við-
skiptum væru skv. útreikningum
borgarinnar 1400 þúsund og þann-
ig væri komin sú tala sem blöðun-
um hefði verið gefin upp, — 3,1
miljón. Sagði Halldór fátitt að
sala á lausafé eins og málverkum
væri skattlögð upp i topp eða gef-
in upp að fullu og reyndar efaðist
hann um að Kjarvalsstaðir gerðu
það i sinum viðskiptum.
A móti þessu býðst borgin til að
greiða Guðmundi 400 þúsund
krónur, sagði Halldór og krefst
reikninga fyrir útlögðum kostnaði
eins og hann hafi verið i vinnu hjá
þeim s.l. þrjú ár. Af þessum 400
þús. á hann siðan að greiða 256
þúsund i skatta, þannig að allt og
sumt sem hann á að fá fyrir verk-
ið skv. tilboði borgarinnar er 144
þúsund krónur, — rétt ríflega ein
rauðkritarmynd sem Kjarvals-
staðir keyptu i vor! — AI
HVAÐ SEGJA SKIPSTJÓRARNIR UM TILLÖGUR STARFSHÓPSINS?
Guðjón Kristjánsson,
Páli Pálssyni ÍS:
Ekki hrifinn
ai að bæla
niður ein-
staklings-
framtakið
— Ég er hræddur um, að þetta
veröi nokkuð mikill tölvuút-
reikningur ef það á aö fara að
skipta hverri tegund á hvert
skip, sagði Guöjón Kristjánsson
skipstjóri á Páli Pálssyni 1S um
boðskap Rannsóknaráös um
kvótaskiptinguna á skipin. Svo
er þaö mannlegi þátturinn I
þessu. Þaö verður ekkert sér-
stakt til aö keppa aö og ég er
ekki hrifinn af þvl aö bæla niöur
einstaklingsframtakiö á þessu
sviöi.
Sumir telja að þetta leiddi til
að keppnin snerist þá fremur
um aflaverðmætið og nýting-
una, en það held ég að séu hlutir
sem menn keppast við nú þegar.
1 sambandi við minnkun flotans
er á ýmislegt að lita. Ef við för-
um aftur i timann, t.d. til 1920,
má sjá að 200 lesta skip þá gat
komið með að landi 200 - 300
tonn, þvi það var litið annað en
lestin, en nú þarf til þess sama
400 rúmlesta skip, þegar hver
maður er kominn með sinn
klefa.
Sé þetta rætt í botn hlýtur lika
að vera spurning hvernig á að
skipta. Eiga útgerðirnar i dag
að hafa einhvern framtiðarrétt,
sem kannski gengur i erfðir? Og
hvernig eiga þá nýir menn að
komast að, ef búið er að skipta
öllu niður? Ég held að fram-
kvæmdin yrði nokkuð flókin og
heillavænlegra að frekar ein-
falda kerfið en flækja það
meira. Nær væri að taka van-
kantana af skrapdagaskipulag-
inu og t.d. fara að hugsa i 200
milum og nýta svæðið allt skyn-
samlega en ekki binda sig alltaf
við gömlu 12 milurnar og 50 mil-
urnar. Það er bent á, að allt sé
fullnýtt i bolfiskinum, en það
má benda á það á móti, að mun
betri nýting fengist t.d. á stein-
bitsafla ef togurunum væri leyft
að veiða hann á sumrin innan
við 12 mílurnar, nú og skarkoli
og fleiri stofnar nálægt landi eru
alls ekki fullnýttir. —-vh
/
Arsæll Egilsson, Sölva Bjarnasyni, BA:
Erfitt að skera niður skipastólinn
— Mér llst vel á þá hugmynd
aö hafa ákveöinn kvóta á hvert
skip og held aö þaö sé mun
heppilegra en þaö fyrirkomulag
sem nú tiökast og er fyrir neöan
allar hellur, sagöi Ársæll Egils-
son útgeröarmaöurog skipstjóri
á Sölva Bjarnasyni BA, Tálkna-
firöi.
Aflaskipting á hvert skip
þýöir aö ekki þarf aö vera að
berjast úti I hvaöa veöri sem er
einhverja ákveöna daga, heldur
er hægt aö haga sjósókninni
eins og hverjum hentar best,
sagði Ársæll Ég veit að margir
hér á Vestfjörðum eru mér
ósammála og andstæöingar
aflaskiptingarinnar tala um
meöalmennskustefnu og halda,
að með þessu mótifái ekki þeir,
aö skara framúr meö að veiða
einhver önnur kvikindi en
þorsk?
Hitt list mér ver á þegar talaö
er um aö skeröa niöur skipastól-
inn um helming og held, að þaö
sé hægar sagt en gert. Ekki er
ég búinn aö sjá, að togari sem
fiskar nú 5000 tonn á ári sé strax
kominn meö 10 þúsund tonn af
þvi aö skipum fækkar.
Auövitaö er skipastóllinn of
stór ef útreikningar fiski-
fræöinganna eru réttir, en þaö
er ekkert nýtt og litiö veriö gert
til aö mæta þvi til þessa. Svo má
nú benda á, aö þaö er raunveru-
lga varla hægt aö gera út nýtt
skip I dag og láta þaö bera sig,
vextirnir eru svo gifurlegir fyrir
utan sivaxandi ollukostnaö. Hjá
okkur á Sölvanum fóru t.d. yfir
26% af aflanum 8 mánuöi i fyrra
i oliukostnað. Og nú á aö láta
okkur greiöa 20% i stofnfjársjóö
i staö 10% áöur auk 5% I
tryggingarsjóðinn.
Ég hef enga patenf'lausn
fremur en aörir, en þaö er ljóst
aö eitthvaö mikiö er aö i
stjórnun málanna. Þegar skut-
togarnarnir komu fyrst var
taíað um að þeir þyrftu aö afla
3000 tonna á ári til aö standa
undir rekstrinum, slöan hefur
aflinn alltaf verið aö aukast, en
dugir samt ekki til. Hinsvegar
er mér sagt frá Færeyjum, aö
þar telji þeir sig geta rekið
togara meö 2500 tonna afla á
ári. — vh.
Gunnar Jónsson, Isleifi VE:
Þeim Ijölgar sem eru fylgjandi kvóta
- — Mér list bara vel á þetta,
sagði Gunnar Jónsson skipstjóri
á loðnubátnum lsleifi VE, — og
mér heyrist á kollegum minum
á togaraflotanum, aö þeim sé að
fjölga sem eru fylgjandi þvl að
settur verði almennur kvóti á
hvert skip.
— Þú óttast þá ekki, að þetta
drepi niður sóknarhugann i
mönnum?
— Kannski eitthvað, en þegar
ástand stofnanna er ekki skárra
en raun ber vitni held ég að all-
flestir muni sætta sig við þetta.
Það er búið að gera þetta með
loðnuna og það var náttúrlega
erfitt fyrst fyrir þá sem fiskuðu
kannski meira áður en þeir
fengu svo úthlutað, einsog við á
Isleifi t.d. En nú erum við sáttir
viö þetta, enda hægt að stunda
veiðarnar af meiri skynsemi
svona. Sama held ég að verði
uppá hjá togarasjómönnunum,
einkum eftir að aflinn fór að
minnka úti fyrir Vestfjörðum og
færast lengra austur.
Fækkun skipanna hika ég
meira við að samþykkja. Sjálf-
sagt getum við tekiö afla á ódyr-
ari hátt með færri skipum, en
hverja á þá að skera niður og
hverja ekki? Það eru margir
búnir að berjast fyrir þvi að
koma skipunum upp, — hvað
eiga þeir að gera? Og sú aðferð
að hætta að endurnýja skipin
einsog loðnubátana er býsna
erfið. Um það get ég dæmt á 14
ára báti sem óvist er um hvort
ég fæ að endurnýja. —-vh I
• mmmmmmm ■ m tmmmmmmmm m