Þjóðviljinn - 16.10.1981, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 16.10.1981, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. október 1981 Frá Blindravinafélagi Ingóifsstræti 16 Um næstu helgi laugardag 17. og sunnudag 18. okt. seljum við happdrættismerki Blindravinafélags Islands. Vinningar i happdrættinu eru fimm, eitt reiðhjól i vinning. Takið vel á móti sölufólki okk- ar. Styðjið okkur i starfi á ári fatlaðra. Blindravinafélag islands. Blaðberabió! Tengdafeðurnir Ein sprenghlægileg meö Bob Hope i aðalhlutverki. Sýnd i Regnboganum á laugardag kl. 1 e.h. I litum og auðvitað með isl. texta. Góöa skemmtun! DJOÐVIUINN Blaðbera vantar strax Kársnesbraut, efri hluti. Háteigsvegur — Skipholt. Melhagi — Neshagi. UOÐVIUINN Siðumúla 6 s. 81333. r Islands, HJÁLPIÐ BLINDUH BLINDRAVINAFÉLAG ÍSLANDS Herstöðvaandstæðingar i Borgarnesi Herstöðvaandstæðingari Borgarnesi haldafund að Kveld- úlfsgötu 25, þriðjudaginn 20. október kl. 20.30. Guðmundur Georgsson læknir kemur á fundinn og kynnir starf og stefnu Samtaka herstöðvaandstæöinga. llerstöðvaandstæðingar i Borgarnesi. Áskrifendur, sem greiða áskriftargjald sitt i giró á tveggja mánaða fresti, eru vin- samlega beðnir að greiða fljótt og reglu- moanuiNN SfOUMÚLA 6, SfMI 81333 ....... Skagf jörðsskáli ✓ Ferðafélag Islands: Myndakvöld og kvöldvökur Myndakvöld og kvöldvökur hafa undanfarin ár veriö stór þáttur i vetrarstarfi Ferðafélags Islands og verður svo enn. Siöast- liðið miðvikudagskvöld var fyrsta myndakvöld vetrarins að Hótel Heklu, Rauöárárstig 18, en þar verður þessi starfsemi til húsa i vetur. Ferðafélag Akureyrar sér um fyrsta myndakvöldið en siðan verða slík kvöld haldin annan miðvikudag hvers mánaðar til mai i vor. Þrjár kvöldvökur verða haldnar i vetur. Verður sú fyrsta 25. nóvember en þá verður tekið fyrir efni um byggð i Viðidal i Skaftafellsf jöllum. A myndakvöldunum sýna félagsmenn myndir frá ferðum um landið og er þeim valið frjálst. En á kvöldvökunum er tekið fyrir eitt ákveðið efni, sem tengist sögu, náttúru eða jarðfræði Is- lands. Allir eru velkomnir á þessi kvöld og er enginn aðgangseyrir, en veitingar eru seldar i hléi á vegum hússins. Samkomur þessar munu verða auglýstar i „félagslifi” dagblað- anna með hæfilegum fyrirvara. — mhg Aðalfundur Stéttarsambandsins: Úr ýmsum Hér i blaðinu hefur nú verið birtur allvænn slurkur af þeim ályktunum, sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi Stéttar- sambands bænda. Hefur sú þjónusta mælst vel fyrir. Og til þess að hún verði ekki endaslepp þá koma hér þær ályktanir fundarins, sem óbirtar voru. Jarðakaupa lán Fundurinn beinir þvi til stjórnar Stofnlánadeildar land- búnaðarins að stórhækkuö verði lán til jarðakaupa þannig að lán fari i 60% af matsverði við- komandi jarðar. Ennfremur verði unnið að þvi að Byggingar- sjóður rikisins láni út á eldri ibúðarhús á lögbýlum á sama hátt og i þéttbýli og að nýlega sett lög um verkamannabústaði verði lagfærð þannig að þau nái án alls efa til fólks i strjálbýli, sem hefur tekjur innan þeirra marka, sem lögin annars kveða á um. Hlutverk landbúnaðarins Fundurinn telur brýnt að kynna almenningi ýtarlega hlutverk landbúnaðarins, starfshætti hans og gildi fyrir þjóðarheildina. Sér- stök ástæða er til að auka slika kynningu i skólum og meðal ungs fólks. — Fundurinn felur stjórn Stéttarsambandsins að vinna a6 þvi að gert verði öflugt átak á þessu sviði i samvinnu við Upplýsingaþjónustuna og aðrar félagsstofnanir landbúnaðarins og heimilar nauðsynleg fjárútlát i þvi sambandi. Tollar og skattar Fundurinn itrekar áður gerðar samþykktir um að skora á Al- þingi að fella niður tolla, vöru- gjald og söluskatt af vélum og tækjum til landbúnaðarins. Er þess vænst, aö landbúnaðurinn njóti sama réttar og almennur iðnaður og sjávarútvegur búa við i þessu efni. Áburður í stórsekkjum Fundurinn felur stjórn Stéttar- sambandsins að vinna að þvi að á næsta vori fáist áburður frá Aburðarverksmiðju riksins af- greiddur i stórsekkjum. Jarðræktarlög Fundurinn samþykkir að beina þvi til næsta Búnaðarþings, að það beiti sér fyrir þeirri breyt- ingu á jarðræktarlögunum, að jarðabótaframlag fáist til upp- setningar vökvunar- og frost- varnarkerfis i kartöflugörðum. Vaxtalækkun Fundurinn beinir þvi til stjórn- valda að lækkaðir verði vextir á verðtryggðum skuldabréfum rikissjóðs til samræmis við lána- kjör i bönkum þar sem háir vextir verðtryggðra rikisskuldabréfa hafa afgerandi áhrif á lánakjör fjárfestingarlánasjóðanna i land- inu. Jarðræktarstyrkur Fundurinn skorar á Búnaðar- félag Islands að beita sér fyrir þvi aö jarðræktarstyrkur út á græn- fóöur og endurræktun túna i ár verði greiddur fyrir áramót. Skattalög Fundurinn felur stjórn sam- bandsins að láta kanna hvernig núgildandi skattalög koma við bændur, sér i lagi við þá, sem skuldugir eru vegna mikilla fjár- festinga og beita sér fyrir breyt- ingum á lögunum ef sú athugun leiðir i ljós óeðlilega skattlagn- ingu á bændur með erfiða fjár- hagsafkomu. Lífeyrismál Fundurinn felur stjórn sam- bandsins aö beita sér fyrir breyt- ingu á lögum um Lifeyrissjóð bænda, sem tryggi jafnan rétt hjóna. Jafnframt verði athugaðir áttum möguleikar á að tekin veröi upp skylduaðild þeirra launþega, sem vinna að búum bænda. — Enn- fremur verði athugaö hvort tima- bært sé aö lækka aldursmark vegna töku iifeyris, enda komi til aöstoð rikisins á sama hátt og gerðist við tilsvarandi breytingu eftirlaunaaldurs hjá sjómönnum. Feldgærur Fundurinn hvetur til ræktunar og framleiðslu á feldgærum með uppboðsfyrirkomulag i huga sem aöalsöluaðferð. Fundurinn telur brýnt að hver gæra sé sérmerkt framleiðanda i verkun og sölu, svo unnt sé að greiöa hverjum framleiðanda eftir gæðum. Fundurinn felur stjórn Stéttar- sambandsins aö vinna að fram- gangi þessa máls i samvinnu við ráðunauta Búnaðarfél. Islands. Forgangsréttur Fundurinn felur stjórn sam- bandsins að athuga hvernig unnt sé að tryggja betur en nú er forgangsrétt bænda á lögbýlum til framleiöslu á búvörum til sölu. Niðurstöður verði lagðar fyrir næsta aðalfund. Vöruvöndun Fundurinn leggur áherslu á að við framleiðslu, vinnslu og aöra meðferð búvara sé itrustu vand- virkni gætt og vöruvöndun sitji ávallt i fyrirrúmi. — Fundurinn leggur áherslu á, að það er ein af undirstöðum þess að land- búnaðinum farnist vel, að allir, jafnt framleiðendur sem aöilar vinnslu- og sölukerfisins og opin- berir eftirlitsaðilar gæti skyldu sinnar og tryggt sé, að gölluö vara fari ekki á almennan markaö. — Fundurinn beinir þvi til Framleiðsluráðs landbúnaðar- ins aö það beiti sér fyrir nánu samstarfi þeirra, sem hér eiga hlut að máli svo að sem best verði tryggðir hagsmunir bæöi fram- leiðenda og neytenda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.