Þjóðviljinn - 30.10.1981, Page 2
4* 't*-> t , ■ \ t , r , • t .« .*•« ; t i » ? » í é •*
2 StÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Föstudagur 30. október 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
viðtalið
£.
Sjáðu! Nýjugallabuxurnar mínar eru með nafla.
Frá Klúbbi NEFS:
/
Astir samlyndra hjóna
Tómas Þurs meö Þey iifangi. Ljósm <T-Þeyr) Sævar Guöbjörns-
son.
,/Helstu tón-dónar lands-
ins, þursar og þeysarar,
gera 'hitt' f klúbbi NEFS
helgina 30. og 31. okt."
Yfirskrift þessara tónleika —
fengu aö láni úr samnefndri bók
Guðbergs Bergssonar — á eink-'
ar vel viö aö þessu sinni. Þótt
tiltölulega fáir mánuöir séu
liönir frá þvi aö leiöir þessara
hljómsveita lágu fyrst saman
hafa tekist meö þeim miklir
kærleikar og veröur ávöxtur
þessa sambands opinberaöur á
tónleikum i NEFS.
Leiöir þursa og þeysara hafa
legiö alloft skemmtilega saman
undanfarna mánuöi og nægir
þar aö nefna ’rafmagnsdUlliö’
eftirminnilega meö BARA-
FLOKKNUM á Akureyri. Er þvi
ekkert eölilegra en þessar
hljómsveitir haldi sameiginlega
tónleika og þá ekki slika tón-
leika aö hvor hljómsveitin um
sig haldi sig i sinu horni og spili
sitt prógram og bUIÖ. NEI, ástir
samlyndra hjóna eru ekki meö
slikum hætti og munu hljóm-
sveitirnar sýna þaö I verki.
Auk hins sérstaka prógrams
sem hvor hljómsveit um sig
veröur meö munu þær leika,
syngja og kveöa saman undir
einni sæng siöasta hluta tónleik-
anna. Og er viö bUiö aö Utkoman
veröi eitthvaö sem hvorki sést
né heyrist á hverjum degi. Er
þvi vissara aö mæta og þaö tim-
anlega....
Rætt við Guðbjörgu
s
Arnadóttur formann
Skagaleikflokksins
Uppselt
á allar
sýningar
„Við erupi öll mjög ánægð
með þær undirtektir, sem við
höfum fengið. Ég held að það sé
einsdæmi hér að það hafi selst
upp miðar á allar þrjár fyrstu
sýningarnar, eins og gerist nú,”
sagði Guðbjörg Arnadóttir for-
maður Skagaleikklúbbsins er
blaðamaður hafði samband við
hana i gær.
Skagaleikflokkurinn er nú aö
sýna barnaleikritið Litla Kláus
og Stóra Klaus. Herdis Þor-
valdsdóttir hefur annast leik-
stjórnina.
,,Vegna þessara ágætu við-•
taka ætlum viðað halda sýning-
um áfram af fullum krafti, við
veröum með sýningar annað
kvöld og á laugardag og sunnu-
dag. Þá stendur til aö bjóöa
Fyrstu
landamæri
Reykja-
víkur
Það var i febrúarmánuði 1787
sem kaupstaðarlóð Reykjavikur
var fastákveöin. Var þaö gert
samkvæmt mælingum Rasmus-
ar Lievog stjörnumeistara á
Lambastöðum. Takmörk lóðar-
innar voru ákveðin þannig:
Aö vestan: Grjótabrekka frá
UllarstofutUni og til sjávar. Að
sunnan: Norðurendi Tjarnar-
innar. Að austan: Vikurlækur
frá Tjörn til sjávar. Stærö þess-
arar lóðar var alls 30.462 fer-
faðmar. En auk þessa var svo
12.600 ferfaðma spilda af landi
Arnarhóls, norðan og norðaust-
an Arnarhólstraöar, lögð til
kaupstaðarins. Þá var og Eff-
ersey afhent kaupstaðnum. Var
sú ákvörðun byggð á þremur
megin forsendum: Að eyjan
hentaði vel til fiskverkunar,
lægi vel við uppskipun og loks
hversu auðvelt væri að reisa þar
virki til varnar Reykjavikur-
höfn, ef til þess þyrfti að taka á
ófriðartimum. Effersey var tal-
in vera 13 þús. ferfaðmar. Gefið
var i skyn að kaupstaðnum yrði
lagt til meira land ef nauðsyn
krefði en ekki var búist við að
þörf yrði á þvi i bráð.
Utmælingu þessa undirskrif-
uðu þeir VigfUs Thorarensen,
sýslumaður i Brautarholti,
Guðmundur Jónsson, hrepp-
stjóri i Skildinganesi og Pétur
Bárðarson vefari. mhg
Frá sýningu Skagaleikflokksins.
skólunum hér i nágrenninu upp
á skólasýningar á næstunni.
Lika er ætlunin að bjóða eldra
fólki hér á sýningu.”
Hve lengi hefur Skagaleik-
flokkurinn starfað?
„Hann var stofnaður árið
1974. NU eru um 130 manns i
félaginu. Þeir eru náttúrulega
misjafnlega virkir, það hafa
veriö mikil skipti á leikendum,
fólk er meö einn vetur, en tekur
sérsvo fri og kemur siðan aftur
til starfa. Aö æfa upp leikrit er
eins og að vera i sild, allir eru á
fullu meðan á þessu stendur.
Þetta er sex vikna törn, og svo
eru sýningarnar.”
„Við byrjum þannig á haust-
in,að þaðer haldinn félagsfund-
ur, þar sem verkefni eru rædd
og kynnt, siðan er fólk fengið til
að taka að sér hlutverkin.”
Hvar hafið þið sýningarað-
stöðu?
„Við höfum afnot af Bióhöll-
inni, við fáum hana viku fyrir
frumsýningu og siðan um helg-
ar. Við tökum hana á leigu og
borgum 60 biómiðaverð fyrir
hvert kvöld. Styrkur frá bænum
nemur kr. 10.000,- og hann nægir
ekki fyrirleigunni á Bióhöllinni.
Iþróttafélögin fá styrk frá bæn-
um I formi ókeypis afnota af
iþróttahúsinu og okkur þætti
gott, ef við fengjum fyrir leig-
unni.”
,,Annars er aðstaðan i hUsinu
afar erfið, við verðum að taka
allt niður á milli sýninga, og
búningsaðstaðan er léleg, t.d.
eru engin böð.”
Hvernig hefur reksturinn bor-
ið sig?
„Þetta hefur verið slétt, þeg-
ar allt er talið. Við vorum i fyrra
ihæsta styrkskala, af þvi að viö
sýndum þá innlend verk, Storm-
inn eftir Sigurð Róbertsson og
Atómstöðina eftir Halldór Lax-
ness. Siöan bættust við aðgangs-
eyrir og félagsgjöld og þá var
staðan á siéttu. Aðsjálfsögðu er
öll vinna unnin i sjálfboða-
vinnu.”
Eruð þið farin að hugsa um
verkefni eftir áramót?
,,Nei, viö munum gera það um
miðjan nóvember, þannig að
hægt veröi að hefja sýningar
sem fyrst eftir áramót,” sagði
Guðbjörg Arnadóttir að lokum.
Svkr.
Fjölbrautaskólanemar á Suðurnesjum:
Rokk, klassík, djass
Nemendafélag Fjölbrautarskóla Suðurnesja gengst fyrir tónleik-
um i Félagsbiói i Keflavik kl. 20,30 I kvöld. Margir listamenn koma
þarna fram. Má þar nefna hljómsveitirnar Mezzoforte, Box, Jonee-*
Jonee, Vébandið og danshljómsveit Kristjáns Logasonar. Ýmsir
fleiri listamenn munu einnig koma þar fram og sýna snilld sína.
Miöaverð mun vera 50 kr. á mann. A myndinni er keflviska hljóm-
sveitin Box.
■<
Q
O
Skritiö! Þaö er alveg
sama hvaö ég held fast
utan um sandinn hann
bara rennur strax á milli /
fingranna.
Þetta gengur
ekki, — hann
bara hverfur!
\
Ekkert eftir nema
smá korn!
HÆTTUM Þú minn-'
ir mig á kaupið
mitt!