Þjóðviljinn - 10.11.1981, Side 3
Þriðjudagur 10. nóvember 1981 ÞJÓDVILJINN — StÐA 3
Hjörleifur Guttormsson í
samtali viö Þjóðviljann
frá Svíþjóð
Þjóðviljinn náði tali í gær af Hjörleifi Guttormssyni
iðnaðarráðherra, sem fór utan fyrir helgi til Svíþjóðar til
að sitja fund um iðnaðar- og orkumál, og innti hann eftir
viðbrögðum forystumanna og almennings i Svíþjóð
vegna kafbátamálsins. Þau eru mjög á einn veg sem
vænta má, sagði Hjörleifur. Hörð, afdráttarlaus for-
dæming á framferði stórveldisins gagnvart hinni hlut-
lausu Sviþjóð og það af talsmönnum allra stjórnmála-
flokka, sem fulltrúa eiga á sænska þinginu. Jafnframt
vekur athygli stiiling og æðruleysi í málf lutningi manna,
jafnt talsmanna ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu, sem
undirstrikað hafa samstöðu sína og sænsku þjóðarinnar
gegn þessum grófasta yfirgangi, sem Rússar hafa orðið
uppvísir að gagnvart Norðurlöndum frá því á dögum
vetrarstríðsins gegn Finnum 1939—40.
Torbjörn Falldin forsætisráöherra og Ola Ullsten utanrikisráöherra
eru báöir taldir hafa vaxiö af meðferö sinni á þessu máli, og Olov
Palme hefur sem leiötogi stjórnarandstööunnar staöiö þétt aö baki
þeirra. Palme talaði á fjöldafundi, sem jafnaðarmenn beittu sér fyrir á
Sergelstorgi, þ.e. Lækjartorgi Stokkhólmsborgar, i hádeginu sl. föstu- Sovéski kafbáturinn i sænska skerjagarðinum.
dag þar sem þilsundir söfnuðust saman undir rauöum og sænskum fán- ------------—-----------------------
Thorbjörn Falldin, forsætisráðherra Svfa greinir frá
þvi á fréltamannafundi, að kafbáturinn hafi verið
búinn kjarnorkuvopnum.
Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra talar á úti-
fundi i Stokkhólmi 6. nóv.
Hörð fordæming á tramferöi
Sovétmanna
Olof Palme ítrekaði krötuna um
Norðurlönd sem kjamorkulaust svæði
Um leið og Palme fór hinum hörðustu oröum um yfirgang Sovét-
manna og gerði gys aö skýringum þeirra um tæknileg mistök, sem leitt
höföu til siglingar sovéska kafbátsins inn i sænska landhelgi (,,ættu
menn að trúa slíku, væri þaö aumasta sigling frá dögum Sindbaös sæ-
fara” sagöi Palme). Itrekaöi hann kröfuna um Noröurlönd sem kjarn-
orkuvopnalaust svæöi og aö allar kjarnorkuvigvélar þyrftu aö veröa á
brott af Eystrasalti. Ef Sovétrikin vildu endurvinna sér eitthvert traust
væri ekki annað nærtækara en að losa Eystrasalt viö þessa ógn gegn
friöi. Olov Palme taldi strand kafbátsins i sænska skerjagarðinum
minna menn á, hversu nærri menn væru hengifluginu og hversu nálæg-
ur boöi kjarnorkustriösins væri. H; nn visaöi frá kenningum um ógnar-
jafnvægið sem leiö til friöar og mótmælti öllum hugmyndum um tak-
markað kjarnorkustriö i hjarta Evrópu.
Einnig Lars Werner formaöur Vinstri flokksins kommúnistanna
(VPK) hefur eindregið fordæmt framferöi Sovétrikjanna og lýst þeirri
sannfæringu sinni, aö um skipulegar njósnir hafi veriö að ræöa. Fram-
undan er flokksþing hjá VPK og þakkar flokksforystan sinum sæla fyr-
ir aö hafa tekið ákvörðun um aö bjóöa engum sovéskum fulltrúum til
þingsins, en sú ákvöröun var tekin áöur en kafbátinn bar upp á sker úti
fyrir Karlskrona.
Einstaka hjáróma rödd heyrist þó hér, sem beint eða óbeint reynir aö
afsaka framferöi Rússanna og draga i efa staðhæfingar um aö Kafbát-
urinn hafi haft kjarnorkuvopn um borð svo sem fullvist þykir. Raunar
hafa Sovétmenn sjálfir staöfest þá ásökun sjálfir með þögninni og þvi
aö neita hlutlausri rannsókn um borð i kafbátnum.
Táknrænt fyrir níðuriægmgu og
eymd stórveldisíns
Þetta mál hefur aö sjálfsögöu yfirskyggt allt annaö hér erlendis siö-
ustu tvær vikur og hlýtur að hafa viötæk áhrif á viöhorf manna og festa
i sessi tortryggni i garð Sovétrikjanna. Lakari auglýsingu en njósnir og
grófustu ihlutun gegn hinni hlutlausu Sviþjóö gátu Rússar ekki fengið
og er þaö vissulega maklegt sjálfskaparviti. Njósnakafbátur meö
kjarnorkuvopn á flæöiskeri i landhelgi Sviþjóðar á sama tima og elli-
hrumt öldungaveldi i forystu Sovétrikjanna raöar sér upp á grafhýsiö
á Rauöa torginu 7. nóv, þar sem skriödrekar skrölta framhjá er
táknrænt fyrir niburlægingu og eymd stórveldisins i austri, sem eitt
sinn kveikti vonir í hugum róttækra manna um betri tiö. Sú sýn hefur
fyrir iöngu snúist i andhverfu sina með grimulausu einræöi og sú efna-
hagskreppa sem nú riöur húsum einnig austantjalds bætir þar ekki úr
skák, sagði Hjörleifur aö lokum.
Ráöherrann situr nú fund iðnaöarráðherra Norðurlanda meö efna-
hagsmálanefnd Noröurlandaráðs og veröur siðan þátttakandi i sér-
stöku seminari um orkumál á Norðurlöndum og öryggi i orkumálum.
Blikkiöjan
Asgarói 7, Garóabæ
Önnumst pakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmlði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
*yg
Skipholti 7 sími 20080