Þjóðviljinn - 10.11.1981, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 10. nóvember 1981 ÞJÓDVILJINN — StÐA 7
Leiktækjastofan
fær ekki leyfi
Nýlega hafnaði borgarráð um-
sókn um leyfi til að reka leik-
tækjastofu á Bankastræti 9 (á
horni Ingólfsstrætis.) Þarna hef-
'ur verið rekin leiktækjasalur en
nokkuð er siðan hann lokaði.
Stóðu eigendaskipti fyrir dyrum
og þvi var sótt um rekstrarleyfi
að nýju. Að fenginni umsögn
barnaverndarnefndar og úti-
deildar hafnaði .borgarráð um-
sókninni sem fyrr segir, — með
öllum greiddum atkvæðum.
Vildu ekki skoða
umsókn frá
Aiþýðuleikhúsinu
Þegar félagasamtök og stofn-
anir sækja til borgarinnar um
fjárstuðning er venja að umsókn-
irnar séu settar i bunka og
geymdar þar til fjallað er um
fjárhagsáætlun næsta árs. A
borgarráðsfundi fyrir skömmu
greiddi Albert Guðmundsson hins
vegar atkvæði gegn þvi að litið
yrði á umsókn um styrk frá Al-
þýðuleikhúsinu og þegar i borgar-
stjórn kom bættist honum liðs-
auki, skátahöfðinginn Páll Gisla-
son læknir greiddi lika atkvæði
gegn þessari afgreiðslu málsins.
Engu að siður var hún samþykkt
með 12 atkvæðum.
Fræðsluráð vill ekki
auglýsingar
í skólana
A fundi fræðsluráðs 26. október
s. l. var samþykkt með 6 atkvæð-
um að ekki skuli framvegis dreift
i grunnskólum borgarinnar aug-
lýsingum eða kynningu á starf-
semi og þjónustu frá félögum eða
fyrirtækjum eins og tiðkast hefur
t. d. i formi eyðublaða undir
stundaskrár. Er öll fyrirgreiðsla i
sambandi við kynningu á starf-
semi félaga eða fyrirtækja i skól-
unum hér eftir bundin þvi að
samþykki fræðsluráðs liggi fyrir.
Bragi Jósepsson sat hjá við þessa
afgreiðsluog telur hann að skóla-
stjórar eigi sjálfir að taka
ákvörðun um það hvort gögnum
af þessu tagi sé dreift til nem-
enda. Eræðsluráð hefur áður svo
og einstaka skólastjórar leyft
dreifingu slikra gagna m.a. frá
Sambandi isl. samvinnufélaga en
hafnaði á þessum sama fundi er-
indi frá Bandalagi islenskra
skáta.
Sérakrein fyrir
Strætó?
I stjórn Strætisvagna Reykja-
vikururðu nýlega miklar umræð-
ur um tafir sem vagnarnir verða
fyrir á mestu umferðargötum
bæjarins, einkum á Laugavegi. Á
fundinum kom m.a. fram að um-
ferð um Laugaveg hefur litið
breyst siðustu 20 ár, þar fara
" 7—8000 bilar um á hverjum sólar-
hring. Þá kom fram hjá fulltrúa
lögreglunnar, Óskari Ólasyni, að
brýnt væri að fá heimild til að
flytja burtu bfla sem væri lagt
ólöglega 'svo og efla löggæsluna
m.a. með þvi að létta af lögreglu
ýmsum smærri skyldustörfum,
svo sem i sambandi við smá-
árekstra. Starfsmenn SVR sem
sátu fundinn töldu að mikið hag-
ræði yrðu af þvi að afnema bila-
stæði frá Helmmi niður að
Bankastræti og gera sérstaka
akrein fyrir SVR á þeim kafla
Laugavegar. 5 manna nefnd var
kosin til að fjalla nánar um þessi
mál. —AI
HEIMSMEISTARAEINVÍGID
14. einvigisskákin i gær:
Karpov er með
gjörunna biðskák
Kortsnoj manni undir i biöstööunni
Það verður ekki betur séð enn
að áskorandinn sé að vonast eft-
ir kraftaverki, þvi aí óskiljan-
legum ástæðum setti hann 14.
einvigisskákina i bið með kol-
tapað tafl.
Heimsmeistarinn tók sér fri á
laugardaginn, eftir tapiö i 13.
skákinni á fimmtudag, en mætti
hress i gær i nýjum fötum, enda
hermir sagan að það sé vani
hans að mæta ávallt i nýjum
fötum eftir tapskákir. Eins gott
fyrir buddu hans að þær eru
sárafáar!
Karpov hvildi nú italska leik-,
inn sem hann notaði með hvitu i
8. og 10. skákinni og sneri sér
aftur að hinni fræðilegu baráttu
þeirra félaga i opna afbrigði
leiksins.
Hvitt: Anatoly Karopv
Svart: Viktor Kortsnoj
Spænskur leikur, opna af-
brigðið.
1. e4-e5 3. Bb5
2. Rf3-Rc6
(Karpov er þess albúinn að tefla
spænska leikinn á ný, en hann
hefur legið i láginni frá þvi i 6.
skák, sem Kortsnoj vann).
3. ,..-a6 7. Bb3-d5
4. Ba4-Rf6 8. dxe5-Be6
5. 0-0-Rxe4(!) 9- Rbd2
6. d4-b5
(1 6. skákinni lék Karpov 9. c3,
en nú velur hann framhald sem
varð uppi á teningnum i Baguio
fyrir þremur árum i tveimur
skákum þeirra, en út úr þeim
náði heimsmeistarinn einum og
hálfum vinningi.)
9...-RC5 u- Bxe6
10. c3-d4
(1 10. einvigisskákinni i Baguio
lék Karpov dúndurleik, sem
margir töldu ættaðan frá Tal,
nefnilega 11. Rg5. Þá hugsaði
Kortsnoj sig um i 40 minútur, en
siðan þá hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar og haldbærar varnir
fundist fyrir svartan).
11. ..-Rxe6 13. Re4
12. cxd4-Rcxd4
(Vikur frá troðnum slóðum.
Aður hefur verið leikið 13.
Rxd4-Dxd4 14. Df3 eða 14. Dc2).
13. ..-Be7 14. Be3-Rxf3+?
(Betra var 14. — c5, en e.t.v.
hefur Kortsnoj óttast 15. b4).
abcdefgh
17. Rf6+!-Bxf6
(17. — gxf6 strandar á 18.
exf6-Bd6 19. Hd4-Kh8 20. Hh4 og
. svartur er varnarlaus. T.d. 20.
— Hg8 21. Hxh7+! og mát i
næsta leik).
18. exf6-Dc8 20. Ö4-C5
19. fxg7-Hd8 21. Hacl (?)
(21. Hxd8-Dxd8. 22. Hdl-De8 23.
Hd5 leiðir beint til vinnings,
þannig að 21. Hacl virkar nokk-
uð máttleysislegt. Varnarleysi
Kortsnojs á áttundu reitaröðinni
hlýtur þó fyrr eða siðar að leiða
til ósigurs hans).
21. — Dc7
22. h5 De5
23. h6-Dxb2
24. Hd7-Hxd7
25. Dxa8+-Hd8
26. Dxa6-De2
(Karpov hefur
vinningsstöðu).
27. Hfl-Hdl
28. Da8+-Hd8
29. Dc6-b4
30. Da4-Dd3
31. Hcl-Dd5
32. Db3
nú tryggt sér
32. — De4 35. Í4-KÍ7
33. Dc2-Dxc2 36. g4!-Hd5
34. Hxc2-f5
(36. — fxg4. 37. f5 er vonlaust
framhald).
37. gxf5-Hxf5 40. f5!-Hxf5
38. Hd2 Hf6 41. He7
39. Hd7 + -Kg8
(Hér hefði Kortsnoj átt að
gefast upp!).
41. — Rxg7 44. Bxc5-Hg5+
42. Hxg7 + -Kh8 45. Kf2-Hg6
43. Hc7-Kg8 46. Be3
Hér fór skákin i bið.
Staða Kortsnojs er auövitaö
gjörtöpuð og furöu vekur að
hann skuli halda þessu áfram.
Öiþróttamannslegt?
—eik—/hól
15. Dxf3-0-0 16. Hfdl-De8 Allt úttit er nú fyrir að Karpov hafi náð fimmta vinningnum gegn
(Til greina kom 16. — Dc8) aðeins tveimur vinningum Kortsnojs.
Norðurlandamót framhaldsskóla
X ---_
Hamrahlíð sigraði
Sveit Menntaskólans við
Hamrahlið sigraði á Norður-
landamóti framhaldsskóla i
skák, sem fram fór i Reykjavik
um helgina. A fyrsta borði fyrir
Hamrahlið tefldi Jóhann Hjart-
arson, fyrrum islandsmeistari
þótt ungur sé, og vann hann all-
ar sinar skákir, fimm að tölu.
Hamrahliðarskólinn var
reyndar B-sveit íslands þar sem
Menntaskólinn i Reykjavik
hafði sigrað framhaldsskóla-
keppnina hér heima á sinum
tima.
Lokastaðan á mótinu varð
þessi:
Sveil:
1. Hamrahliðarskóla ... 13.5 vin.
2. Noregs............12.0 vin.
3. Finnlands.........11.0 vin.
4. Mcnntaskólans i
Reykjavik.......... 9.0 vin.
5. Sviþjóðar......... 9.0 vin.
6. Danmerkur......... 5.5 vin.
Fjögurra manna sveitir tefldu
fyrir hvern skóla.
Fyrir siðustu umferð stóð
keppnin um fyrsta sætið á milli
sveita Hamrahliðar og norsku
strákanna, sem áttust við i sið-
ustu umferö. Þá viðureign sigr-
uðu þeir úr Hamrahliöinni með
3.5 vin. gegn 0.5, og innsigluðu
þar meö fimmta sigur Hamra-
hliðarskóla i keppni þessari,
sem fram hefur farið alls átta
sinnum, en islensku sveitina
vantaði i eina af þessum átta
keppnum.
Sigursveitina skipuðu þeir Jó-
hann Hjartarson, Róbert Harð-
arson, Arni A. Arnason, Stefán
G. Þórisson og Páll Þórhallsson.
-eik-
Kvenna-
meistaramót
/
Islands
Þremur umferðum af niu er
lokið á Kvennameistaramóti Is-
lands i skák, sem teflt er þessa
dagana i húsnæði Skáksam-
bands Islands við Laugaveg.
Svana Samúelsdóttir hefur unn-
iðallarsinar skákir til þessa, en
næstar koma þær ólöf Þráins-
dóttir, Birna Nordal og Sigur-
laug Friðþjófsdóttir, allar með
tvo vinninga. Alls eru þátttak-
endur á mótinu 9, þar af þrjár
yngismeyjar að norðan.
Tvær af sterkustu skákkonum
okkar i dag gátu ekki verið með,
Aslaug Kristinsdóttir og
Guðlaug Þorsteinsdottir.
— eik —
Reyklaust haustmót
Góðír lelklr
í góðu lofti
Um siðustu helgi lauk sam-
eiginlegu haustmóti Taflfélag-
anna i Kópavogi, Hafnarfirði og
á Seltjarnarnesi, sem að þessu
sinni var haldið i Valhúsarskóla
á Seltjarnarnesi. Eins og vera
ber, þegar teflt er i húsnæði þar
sem æskan er uppfrædd, var
þegar i upphafi tekin sú
ákvörðun að leyfa ekki reyk-
ingar yfir reitunum 64. Þegar
upp var staðið reyndust allir
ánægðir með þetta fyrirkomu-
lag, þrátt fyrir nokkurn óróleika
ýmissa keppenda i upphafi!
Úrslit mótsins komu nokkuð á
óvart, þar sem kempan Óli
Valdimarsson sigraði mótið
naumlega, hlaut 6,5 v. af 9.
Jafnir honum að vinningum i 2.
og 3. sæti urðu þeir Jón A. Hall-
dórsson og ögmundur Kristins-
son.
Efstu menn frá hverju félagi
um sig hlutu titilinn haust-
meistari viökomandi félags.
Þannig varð ögmundur Krist-
insson haustmeistari taflfélags
Seltjarnarness, Einar Karlsson
varð haustmeistari Taflfélags
Kópavogs og Grimur Arsælsson
varö haustmeistari skákfélags
Hafnarfjarðar.
Hraðskák mótsins og verð-
launaafhending verður i Val-
húsarskóla á fimmtudagskvöld
n.k.
Stórbmgó
Skáksambands
✓ *
Islands
A fimmtudaginn kemur verð-
ur Skáksamband Islands með
stórbingó i Sigtúni, við Suður-
landsbraut. Margt stórglæsi-
legra vinninga er á boðstólum,
og má til nefna utanlandsferðir
með meiru.