Þjóðviljinn - 10.11.1981, Blaðsíða 16
UOÐVIUINN
Abalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfsmenn Aðalsími . Kvöldsími Helgarsími
hlaðsins I þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot afgreiðslu 81663
8i285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaösins i slma 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og ’ eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld 81333 81348
Guftmundur J.
Þröstur Ólafsson
Alþýðubandalagið
í Reykjavik
Félagsfundun
um efnahags-
og kjaramál
Alþýðubandalagið
Reykjavík
Félagsfundur
um efnahags-
og kjaramál
Alþýöubandalagið i Reykja-
vik boðar til félagsfundar á
Hótel Esju, fimmtudaginn
12. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Kjör fulltrúa á flokksráðs-
fund.
2) Efnahags og kjaramál.
Krummælendur: Guðmund-
ur J. Guðmundsson, og
Þröstur Ólafsson.
Felagar fjölmennið.
ABR.
Þorskaflinn
20 þúsund
lestum meiri
Sýning
Þórðar
Ben að
Kjarvals'
stöðum
Þórður Ben Sveinsson mynd-
listarmaður hefur opnað sýningu
að Kjarvalsstöðum þar sem hann
fjallar um skipulagsmál og fram-
tiðarmöguleika byggðar á
Reykjavikursvæðinu. Hér er um
óvenjulegt framtak af myndlist-
armanni að ræða.
A sýningunni er bæði lesmál og
teikningar, þar sem bórður Ben
setur fram hugmyndir sinar um
yfirbyggð „ylstræti” og nýtingu
jarðvarmans til upphitunar garö-
húsa undir gleri á þaki ibúðar-
húsa. Tilgangur sýningarinnar er
fyrst og fremst að vekja umræöu
um þessi mikilvægu mál, en einn-
ig eru myndir á sýningunni til
sölu.
Myndin sýnir hugmynd Þórðar
aö tvilyftu stöðluðu raðhúsi meö
hvolfþaki úr gleri er myndar
garðhýsi með fjölbreyttum
gróðri. Sýningin veröur opin alla
daga frá 14 til 22 og stendur hún i
tvær vikur. Nánar verður fjallað
um sýninguna hér i blaðinu siöar.
Húsnæðismál geðdeildar Hvitabandsins leyst:
Dagspítaliim flyst
í TemplarahöUlna
t siðustu viku var undirritaður
leigusamningur um nýtt húsnæði
fyrir dagdeild geödeildar Borgar-
spítalans sem veriö hefur i Hvita-
bandinu við Skólavörðustig. Flyst
dagspitalinn cinhvern næstu daga
á 1. hæð I Templarahöllina á
Skólavörðuholti þar sem skrif-
stofur rikisspitalanna voru áöur
til húsa. Hvitabandið verður sið-
an tekið undir langlegudeild aldr-
aðra.
Þegar borgarstjórn samþykkti
i haust að nýta Hvitabandið fyrir
aldraða sjúklinga var það skilyðri
sett aö gott húsnæði fyndist fyrir
dagspitalann sem verið hefur i
Hvitabandinu. Páll Eiriksson yf-
irlæknir geðdeildarinnar sagði i
gær að um þetta nýja húsnæði
væri allt gott að segja, það væri
minna en það sem deildin er i nú,
en mestu skipti að öruggt húsnæði
hefði fengist. Sagði Páll að óviss-
an i húsnæðismálum deildarinnar
heföi valdið miklum erfiöleikum
og m.a. hefði deildin misst fólk úr
starfsliðinu þess vegna. Það er
strax bót að búið er að festa nýtt
húsnæði, sagði Páll, og grundvöll-
ur að áframhaldandi starfsemi
lagður.
Haukur Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Borgarspitalans
sagði að ekki yrðu geröar miklar
breytingar á Templarahöllinni
áður en geödeildin flytti inn. Hins
vegar þyrfti nokkru að breyta I
Hvitabandinu svo og þyrfti að
panta tæki og búnað. Það yrði þvi
nokkur biö á aö langlegudeild fyr-
ir aldraða yrði opnuð þar en menn
gerðu sér samt vonir um að þaö
yröi fyrir áramótin. A Hvitaband-
inu verður rúm fyrir 19 langlegu-
sjúklinga svo og göngudeild fyrir
aldraða.
— AI
Þorskaflinn fyrstu 10 mánuði
ársins varð411.036 lestir, en var á
sama tima i fyrra 389.959 lestir.
Hætt cr þvi við að þorskaflinn fari
eitthvað yfir þau mörk sem sett
voru fyrir árið 1981, en það voru
450 þúsund lestir.
Heildaraflinn fyrstu 10 mánuði
ársins varð 1.093.208 lestir, en var
á sama tima i fyrra 1.254.580 lest-
ir og liggur munurinn eingöngu i
minni loðnuveiði þaö sem af er
þessuári. —S.dór
Netavelði-
bann?
Sjávarútvegsráöherra, Stein-
grimur Ilermannsson sagði i
ræöu á Fiskiþingi I gær, að ein-
ungis 50% af vertiðarafla sunnan
og suö-vestanlands færi I 1. gæða-
flokk. Mest væri þetta áberandí
þegar gæftir væru slæmar. Siöan
sagði hann:
Mér sýnist þvi koma til greina
að leyfa ekki netaveiöar i janúar
og e.t.v. byrjun febrúar, enda
verði netavertiöin lengd i mai i
staöinn. Einnig mun ég leggja
áherslu á að enn veröi reynt eins
og til stóð i fyrra aö svipta þá báta
veiðileyfi, sem endurtekið koma
meöléleganaflailand. —S.dór.
Steingrímur Hermannsson í Ræðu á Fiskiþingi:
Miklir aimmaikar
eru á kvótakerfi
í ræðu sem Steingrimur Her-
mannsson sjávarútvegsráðhcrra
flutti við upphaf 40. Fiskiþings I
gær kom hann m.a. inná hið við-
kvæma og umdeilda mál, fisk-
veiðistefnuna. Ljóst er af skýrsl-
um frá Fjóröungsþingum fiski-
deilda sem fréttamenn fengu á
þinginu i gær, að allir, nema
Vestfirðingar eru nú fylgjandi
einhverskonar kvótakerfi á
þorskveiðum. Vestfirðingar vilja
aftur á móti hafa sama fyrir-
komulag á takmörkun þorskvciða
og verið hefur i ár, skrapdaga-
kerfið.
Steingrimur Hermannsson
sagði i ræðu sinni að hann teldi
mörgu ábótavant i stjórnun fisk-
veiða og að við séum viðsfjarri
þvi að ná settum markmiðum.
Taldi hann þá hugmvnd að hafa
Allir nema
Vestfirðingar
vilja nú
einhverskonar
kvóta á
þorskveiðar
aflahámark á löndunarsvæði með
heimastjórn veiða athyglisverða.
Siðan kom hann inná kvótakerfið
°g taldi á þvi mjög mikla ann-
marka. Hann taldi kvótakerfinu
flest til lasts og sagði siðan orð-
rétt:
„Eins og þið heyrið sé ég mikla
annmarka á þvi, að setja kvóta,
eins og sagt er, á þorSkveiðiflot-
ann, hvort sem um er að ræða
togarana eina eða flotann i heild.
Eg vil þvi taka fram, að ég mun
ekki taka upp kvótakerfi við
þorskveiðar, nema um það sé við-
tæk samstaða og útgerðarmenn
komi sér saman um skiptingu.
Minniðurstaðaerþvisú.að rétt
sé enn að leita leiða til þess að
lagfæra núverandi kerfi”.
Fastlega má gera ráð fyrir þvi
að fiskveiðistefnan og þá um leið
hugmyndin að kvótakerfinu,
verði eitt aðal mál þess Fiski-
þings sem nú stendur og veröur
fróðlegt aö sjá hver niðurstaðan
verður.
Patreks-
firðíngar
fá togara
í fyrrakvöld kom til
Patreksfjarðar 493 rúm-
lesta skuttogari/ Sigurey/
smíðaöur i Frakkalndi árið
1973. Var áður i eigu Tog-
skips hf. á Siglufirði.
Núverandi eigandi er
Hraðf rystihús Patreks-
f jarðar.
Hraðfrystihúsið er að visu ekki
alveg undir þaö búið að taka á
móti fiski en þess vænst, að svo
verði seinnipartinn i þessum
mánuði eða um þaö leyti, sem
togarinn kemur úr sinni fyrstu
veiðiför, sagði Úlfar Thoroddsen,
sveitarstjóri á Patreksfirði okk-
ur.
Úlfar sagði atvinnuástand hjá
fiskvinnslufólki á Patreksfirði
hafa veriö fremur erfitt i haust.
Nokkuð bætti þó úr skák vinna i
nýju sláturhúsi á Patreksfirði,
sem Kaupfélagið hefur komið þar
upp. A Patreksfirði fór sauðfjár-
slátrun nú fram i fyrsta sinn en
áður var slátrað bæði i Barða-
strandar- og Rauöasands-
hreppum. Nú hefur svæðið sam-
einast um eitt sláturhús á
Patreksfirði.
Með komu togarans er þess að
vænta að birta taki yfir atvinnu-
lifinu á Patreksfirði. —mhg
VBorgara-
fundur
' íbúa
! Breið-
! holtsJII
j
j Framfarafélag Breiðholts
I III gengst fyrir almennum
I borgarafundi i Hólabrekku-
| skóla i kvöld þriðjudag, 10.
■ nóvember, kl. 20.30. Borgar- I
I fulltrúum og borgarverk-
I fræðingi hefur verið boðið I
J sérstaklega á þennan fund.
■ Eftirfarandi mál veröa á
I dagskrá:
' 1. Skipulagsmál
Guðrún Jónsdóttir, arki- I
I tekt og forstöðumaður
| borgarskipulags Reykja- '
, vikur flytur framsöguerindi.
i í fréttatilkynningu Fram-
I farafélagsins segir, að rætt
I verði um veginn, sem tengja
, mun hið nýja Seláshverfi við
■ Breiðholt III og félagið spyr:
I Hvaö hefur þessi tenging i
I för með sér? — aukna
, umferð? — meiri slysa-
i hættu? — meiri ásókn i þjón-
I ustustofnanir hverfisins? —
I Hverra hagur er þessi teng-
. ing?
I 2. Heilsugæslustöðin
I Leifur Dungal, læknir
* Heilsugæslustöðvarinnar
I flytur framsöguerindi.
I Framfarafélagið bendir á,
I að húsnæði stöðvarinnar að
■ Asparfelli 12 sé allt of litið og
I ekki sé ljóst hver verði fram-
| tiöarþróun heilsugæslumála
I hverfisins.
• Fundarstjóri verður Vil-
I helm G. Kristinsson, og
I fundurinn er að sjálfsögðu
I opinn öllu áhugafólki.
—S.dór