Þjóðviljinn - 10.11.1981, Qupperneq 5
Njósnamálið í Danmörku
ÞriOjudagur 10. nóvember 1981 ÞJóDVILJINN — SIÐA 5
Reynt er að koma höggi
á dönsku friðarhreyfinguna
með sovéskum rúblum
Nýtt ..njósnamál” hefur nú
skotið upp kollinum i Danmörku.
Danska öryggislögreglan iét á
miðvikudaginn var handtaka rit-
höfundinn Arne Herlöv Petersen
og var hann ákærður fyrir að hafa
þegiðsamtals um 20 þúsund krón-
ur frá sovéskum sendiráðsmanni,
sem hann átti m.a. að hafa notað
til þess að greiða fyrir auglýs-
ingu, sem birt var i tveim dönsk-
um dagblöðum, þar sem 150
danskir litamenn skrifuðu undir
kröfuna um kjarnorkuiaus Norð-
uriönd. Jafnframt er rithöfundur-
inn grunaður um að hafa þegið
hljómflutningstæki að gjöf frá
sama sendiráðsmanni.
Arne Petersen og kona hans
hafa bæði neitað öllum ákærum,
en hafa staðfest að þau hafi þekkt
viðkomandi sendiráðsstarfsmann
auk þess sem þau hafi haft góð
tengsl við starfsfólk i’ sendiráðum
Norður-Kóreu og Libýu. Sam-
kvæmtdanska blaöinu Informati-
on mun danska öryggislögreglan
hafa hlerað simtal hjá Arne Pet-
ersen i mai s.1., þar sem hann á að
hafa gefið i skyn, að „velviljað
sendiráð” hafi séð um fyrr-
greindan auglýsingakostnað.
Má þetta hefur af eðlilegum
ástæðum verið notað af andstæð-
ingum hinngr öflugu friðarhreyf-
ingar i Danmörku til þess að
sverta hreyfinguna og bera það á
hana að hún sé kostuö af sovéksu
leyniþjónustunni. Eins og áður
hefur verið minnst á hér i blaðinu,
þá er þess að vænta þegar um
jafn öíluga fjöldahreylingu er að
ræða og evrópsku íriðarhreyfing-
una, að umboðsmenn sovéksra og
bandariskra hagsmuna reyni að
koma ár sinni þar íyrir borö. Það
breytir hins vegar ekki mikilvægi
þess málstaðar, að berjast gegn
vigbúnaðarkapphlaupinu.
En hvernig er þessu danska
njósnamáli þá háttað?
Þáttur
Morgunblaðsins
Morgunblaðið birtir á laugar-
dag grein um málið, þar sem
nefnd, sem heitir Samarbejds-
komiteen for fred og sikkerheder
lyst sem „dönsku friðarnefnd-
inni” i einu orði og „dönsku frið-
arhreyfingunni” i hinu. 1 frétt
þessari er gerð grein fyrir aðild-
arsamtökum nefndarinnar, sem
eru öll i nánum tengslum við
Sovétrikin og Austurevrópurikin.
Þessi frétt er dæmigerð fyrir það
hvernig upplognar sakir eru not-
aðar til þess að styðja vondan
málstað. Þvi verður ekki frekar
haldið fram að nefnd þessi sé
samnefnd dönsku friðarhreyfing-
unni en að MIR og Samtök her-
stöðvaandstæðinga séu ein og
sömu samtökin. Danska friðar-
hreyfingin Nej til Atomvaben er
fjöldasamtök, sem gengur þvert á
alla stjórnmálaflokka og hún
byggir á grunneiningum, sem
ekki eru i 'neinum tengslum við
vináttufélög austurevrópurikj-
anna eða hliðstæð samtök.
Dönsku friðarsamtökin, Nej til
atomvaben, voru stofnuð i árs-
byrjun 1980 og þau hafa það á
stefnuskrá sinni að berjast gegn
kjarnorkuvigbúnaði i austri og
vestri, og þá fyrst og fremst þvi
herta vigbúnaðarkapphlaupi sem
núá sérstaðá milli stórveldanna.
„Nej til
atomváben”
Við hringdum i fulltrúa sam-
Ilanski rithöfundurinn Arne
Herlöv Petersen: ásakaður um aft
hafa greitt fyrir auglýsingu 150
danskra listamanna meft sovésku
gjafafé.
takanna i Kaupmannahöfn til
þess að spyrjast lyrir um, hvern-
ig mál þetta viki að þeim.
— „Við höfum litiðum málið að
segja, við höfum ekki verið
ákærðir fyrir neitt og þurfum þvi
ekki að þvo hendur okkar af
neinu,” sagði fulltrúi samtak-
anna. „Þetta heíur ekki áhrif á
starf okkar að öðru leyti en þvi að
þetta er notað af andstæðingum
okkar til þess að gera okkur tor-
tryggileg. Það er eins og Oryggis-
lögreglan hafi valiö timann til
handtökunnar með sérstöku tilliti
til þessa, á meðan sovéksa kaf-
bátsmálið var i hámæli. Við erum
hinsvegar grasrótarsamtök sem
byggð eru upp af sjálfstæöum
einingum, og ég hef ekki fleira
um máliðaðsegja. En við höldum
laundsfund um næstu helgi og þá
heyrið þið kannski frá okkur.”
Nauðsyn
sjálfstæðis
Þess verður alltaf að vænta aö
friðarhreyfingar séu ásakaðar
fyrir að ganga erinda Sovétrikj-
anna á sama hátt og Samtök her-
stöðvaandstæðinga hafa veriö
borin þessum sökum frá upphafi.
Það er hins vegar lifsnauðsyn
fyrir slikar hreyfingar að varð-
veita sjálfstæði sitt gagnvart
ÖC, S.7/CRPI
F/.£<(!( oCí f&W 1
"liin viftkvæmu göt” f vigbúnaðarkapphlaupinu.
Halli er fyrirs j áanlegur
á f járlögum Bandaríkjanna
Svo viröist sem Reagan
Bandarikjaforseti hafi
gefiö upp á bátinn
kosningaloforð sin um að
skila hallalausum fjár-
lögum í lok kjörtímabilsins
1984, jafnframt því sem
stóraukin eru útgjöld til
hermála og dregið úr
skattheimtu.
Fjárlagaráðherrann i stjórn
Reagans hefur nýlega farið fram
á 80 miljaröa dollara skatta-
álögur á næstu þrem árum, er
brúað gætu bilið. Svar forsetans
var afgerandi nei, og heimildir
innan stjórnarinnar hafa látið i
ljós, aft forsetinn muni frekar
skila fjárlagahalla en leggja á
aukna skatta. Forsetinn mun hins
vegar þrýsta á þingift um niður-
skurð á fjárlögum, en talift er að
fjárlagahallinn geti numið allt að
90 miljörðum árið 1982 og 150
miljörðum 1984, ef ekki verður
gripið til nýrra sparnaðarráðstaf-
ana. Efnahagsráðgjafar
stjórnarinnar hafa játað að hin
stórauknu útgjöld til hermála geti
ekki orði samhlifta þeirri skatta-
lækkun, sem stjórnin hefur boðað
án þess aö til stófellds halla komi
á fjárlögum.
Fyrr á árinu samþykkti Banda-
rikjaþing niðurskurð á skatt-
heimtu, er átti að nema 280 milj-
örðum dollara á timabilinu fram
til 1984. Meöal nyrra skattheimtu-
aðgerða, sem stungið hafði verið
upp á voru stórauknir skattar á
áfengi, tóbak og bensin og minni
skattafrádráttur vegna vaxta-
kostnaðar og sjúkratrygginga.
Ráðgjafar stjórnarinnar kenna
þvi um að hagvöxtur hafi látiö á
sér standa og vextir hafi haldist
hærri en búist hafi verið við. Halli
á fjárlögum Bandarikjanna mun
væntanlega auka á þá kreppu,
sem nú hrjáir hinn kapitaliska
heim og einkennist af verðbólgu
og atvinnuleysi. aig. — Inf.
stórveldunum. Kjarnorkuvopna-
laus Evrópa á ekki að leiða til
aukinna valda Sovétrikjanna,
þvert á móti á hún aö virka til
aukins sjálístæðis austantajdls-
rikjanna. Það eru einungis boð-
berar kalda striðsins sem halda
öðru fram, hvort sem þeir telja
sig halla undir Sovétrikin eða
Bandarikin. Það er reyndar at-
hyglisvert, að málsvarar banda-
riskrar vigbúnaðarstefnu hala
ávallt túlkað friðarhreyfingarnar
sem sovésk hagsmunasamtök á
meðan Sovétrikin hafa oft og tið-
um tekið undir slik sjónvarmiö.
Staðreyndin er hins vegar sú, aö
Sovétrikin hala tekið dræmt undir
þá tillögu Ceauceseu Rúmeniu-
forseta, að Mið-Evrópurikin taki
upp samstarí i afvopnunarmálum
utan hins heíöbundna forræðis
Sovétrikjanna og Bandarikjanna.
Sá mótvilji á mikiö skylt viö hatur
Morgunblaðsins á friðarhreyfing-
unni i Evrópu, vegna þess að hug-
myndin um sjálfstæða evrópska
friðarsteínu ógnar þeirri blindu
forræðishyggju, sem aðdáendur
vigbúnaðarkapphlaupsins á
Morgunblaðinu eru haldnir.
Strand sovéska kafbátsins við
Karlskrona helur undirstrikað
nauðsyn þess að Eystrasaltiö
verði gert kjarnorkuvopnalaust
svæði. Njósnamáliö i Danmörku
hefur undirstrikað nauösyn þess
að friðarhreylingin varðveiti
sjálfstæði sitt gagnvart stórveld-
unum. Yfirlýsing Haigs utanrik-
isráðherra Bandarikjanna um að
NATO hafi uppi áform um að
sprengja kjarnorkusprengju i
Evrópu að fyrra bragði i viðvör-
unarskyni sýnir að barátta irið-
arhreyíingarínnar hefur aldrei
verið mikilvægari en nú.
— ól-g.
\kraft/
---
Jbmato
^tchup
SMU HMW.VWKOMR. ***•
NfT Wr. 14 OZS. (39?e>
’*C> OlST. OHiCAGÖ. It 606#
Bragogoo gæoavara
frá einum þekktasta
matvœlafnamleiðanda Bandaríkjanna
Gerið verðsamanburð
SKAUPFElAdD