Þjóðviljinn - 03.03.1982, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.03.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. mars 1982 Kaflar úr ræðu Hjörleifs Guttormssonar, iðnaðarráðherra, á þingi Norðurlandaráðs: Sköpum evrópskt mótvægi við afl rísaveldaima A sama tima og við ræðum hér takmarkanir og vanda vel- ferðarsamfélaga þrengir að i efnahagsllfi iðnrikja og þá ekki siður að mannréttindum viða um heim. Þetta er kviðvænleg þróun. Afk er þörf gegn. jafnvægislist gereyðingarinnar Nærtækast er að lita til þess flokkseinræðis og skeröingar mannréttinda sem þjóðir Aust- ur-Evrópu mega þola og sem nú hefur breyst i hernaðareinræði i Póllandi. Á áhrifasvæðum risa- veldanna gætir vaxandi hörku og óbilgirni, með stórauknum vigbúnaði, nú siðast af hálfu Bandarikjanna og stuðningi þeirra við fasiskar morðsveitir i E1 Salvador. A hinu leytinu eru Sovétrikin i blóðugri hernaðarihlutun gegn Afganistan og með njósnakaf- báta uppi i landsteinum hlut- lausra rikja. Orð megna litið gegn siðleysi slikra stórvelda, sem telja sig sjálfkjörin til að deiia og drottna. Þó eru það orð sem eiga við á þessum vett- vangi og Evrópu er mikil þörf á að losna úr þessum greipum til að brenna ekki fyrr en varir i eldi kjarnorkustriðs. Til þess þarf afl, sem aðeins fæst með öflugri samstöðu gegn jafnvæg- islist gereyðingarinnar. öflug friðarhreyfing i Vestur- Evrópu og baráttan gegn kjarn- orkuvopnum þar og á Norður- löndum visar i rétta átt. En slik baráttu getur þvi aðeins orðið markviss, að hún sé laus við áhrifavald störveldarisanna i austri og vestri og falslaus I for- dæmingu á einræði og ofbeldi hvarvetna. Norðurlönd geta haft mikil- vægu forystuhlutverki að gegna á þessu sviði, og nái framsækin og lýðræðisleg öfl i Evrópu sam- an til mótvægis við risaveldin getur það skipt sköpum. Við sem andvigir erum herstöðvum Bandarikjanna á Islandi viljum stuðla að slikri þróun og gerum kröfu til þess að önnur Noröur- lönd, sem ekki hafa viljað taka við bandariskum herstöðvum, virði þá afstöðu og vinni ekki gegn henni. Ég tel að aukin áhersla á samstarf Noröurlanda á sviði orkumála, sem ákveðið var i Reykjavik i mars 1980, hafi þeg- ar skilað veruiegum árangri fyrir lönd okkar, ekki sist á sviði orkusparnaðar og i verkaskipt- ingu varðandi orkurannsóknir. Sú starfsáætlun sem orku- og iðnaðarráðherrar Norðurlanda urðu sammála um á fundi i Hel- sinki 9. febrúar s.l. ber vott um þennan ásetning að efla sam- starf á þessum mikilvægu svið- um. Varðandi iðnaðarmálin vil ég sérstaklega árétta þýðingu þess að efla Norræna iðnaðarsjóðinn og aðra starfsemi til að styðja við rannsóknir og þróun, einnig á vegum Nordforsk. Island hef- ur á margan hátt notið góðs af þessu samstarfi og i áætlunum um iðnþróun á tslandi, þar á meðal um hagnýtingu orkulinda landsins, getum við haft gagn af reynslu og margháttuðu sam- ' starfi á norrænum vettvangi, einnig i tvihliða samvinnu milli landa og einstakra fyrirtækja. i slíku samstarfi hljóta is- lensk stjórnvöld hins vegar að undirstrika sérstöðu okkar litla samfélags, þar sem ekki þarf nema eitt stórfyrirtæki á alþjóð- legan mælikvarða til að vega þungt I efnahagsstarfseminni. I þessu efni höfum við þegar nokkra reynslu, sem ástæða er til að læra af fyrir framtíðina. Norðurlönd standa eins og aðrar þjóðir frammi fyrir mikl- um umbreytingum i efnahags- og atvinnulifi. Island hefur á undanförnum árum megnað að halda uppi fullri atvinnu, halda i horfi með tekjur launafólks, og færa út hinn samfélagslega þátt á mörgum sviðum. En einnig okkar litla samfélag á við margháttaða erfiðleika að etja, bæði heimatilbúin og innflutt vandamál. Fiskum hafsins fjölgi en kafbátum fækki Einnig Island þarf á meiri fjölbreytni og sveigjanleika að halda i atvinnuþróun, öflugri nýsköpun og skipulegri auð- lindastefnu, bæði til lands og sjávar. Með nágrönnum okkar, Grænlendingum og Færeying- um, ráðum við i vaxandi mæli yfir gjöfulum fiskimiðum Norð- Hjörieifur Guttormsson ur-Atlantshafsins og það forða- búr þurfum við að nýta og vernda af framsýni og tillits- semi. Þessar smáþjóðir i út- norðri hafa mörg sameiginleg hqgsmunamál og tengsl þeirra eru smám saman að styrkjast, þótt úfið haf skilji þær að. Það haf viljum við nýta I friðsam- > legum tilgangi. Við skulum stuðla að þvi að fiskum þess fjölgi en kafbátum stórveldanna fækki. Það væri góður skerfur til norrænnar samvinnu og þess friðar sem þjóðir okkar eiga rétt á að njóta. Frumvarp um rekstur fóðurverksmiðjanna: Gert ráð fyrir nýtlngu hrá- efna sem nú fara forgörðum Kolbeinsey Hér á landi eru nú starf- ræktar fimm grænfóður- verksmiðjur og þrjár eru nú í undirbúningi. Allar þessar verksmiðjur nema ein eru f ríkiseign. Heildar- framleiðsla þeirra á árinu 1980 var 12.848 tonn og 1981 9.986 tonn. A sama tíma hefur dregið úr innflutn- ingi kjarnfóðurs frá 70 þúsund tonnum í 60 þúsund. I bígerð er að at- huga nýtingu á ýmsum hráefnumsem nú fara for- görðum en gætu nýst í fóðurbæti. Þykir því rétt að víkka verksvið þeirra verksmiðja sem nú eru reknar og þeirra sem reistar kunna að verða meðaðild rikisins umfram það að vinna aðeins úr grasi og grænfóðri. Meðal annars þess vegna hefur nú verið lagt fram frum- varp á alþingi um fóður- verksmiðjur. Þær verksmiðjur sem nú eru starfræktar eru aö Gunnarsholti á Rángárvöllum, á Stórólfsvelli, að Flatey á Mýrum, i Saurbæ i Dala- sýslu og að Brautarholti á Kjalar- nesi. Allar þessar verksmiðjur nema sú siðastnefnda eru i eigu rikisins. þingsjá I athugasemdum með frum- varpinu segir m.a.: „Mikill áhugi hefur verið fyrir þvi á undanförnum árum að efla innlendan fóðuriönaö til þess að draga úr innflutningi og spara þannig gjaldeyri. Ýmis konar innlent fóður er nú notað i kjarn- fóðurblöndur, t.d grasmjöl og fiskimjöl. 1 grasköggla hefur verið blandað steinefnum, lýsi, !5i Felagsmaiastofnun Reykjavikurborgar. DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277 Staða forstöðumanns við leikskólann Árborg Hlaðbæ 17 er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Laun skv. kjara- samningi borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 18. mars. Umsókn- ir sendist til skrifstofu Dagvistar barna Fornhaga 8 en þar eru veittar nánari upp- lýsingar. fitu frá sláturhúsum og fiski- mjöli. Mikill áhugi er nú á aukinni kornrækt i landinu, a.m.k. á vissum svæðum. Bændur i Land- eyjum sem rækta korn, hafa fengið Stórólfsvallabúið til að þurrka korn sitt, mala það og blanda grasmjöli. Hefur þessi blanda gefið góða raun að sögn bændanna. Árlega fellur til i landinu geysi- mikið magn af ýmis konar hrá- .efni, sem mætti nota til fram- leiðslu á fóðri handa búfé. 1 þessu sambandi má nefna sláturhúsa- úrgang, úrgang frá fiskvinnslu- stöðvum, mysu o.fl. Sláturhúsið i Borgarnesi og Kaupfélag Eyfirö- inga reka þó vinnslustöövar sem nýta þennan úrgang til fram- leiðslu á kjöt- og beinamjöli. Organgsfita úr þessum slátur- hús.um hefur m.a. verið notuð til iblöndunar i grasköggla. Auk hefðbundinnar framleiðslu á fiskimjöli og beinamjöli hefur á siðustu árum vaknaö áhugi á framleiöslu á s.n. meltu úr fiskúr- gangi og reyndar ýmsum öðrum lifrænum úrgangi. Rannsóknar- Tækninýjungar hjá Húsnæðis- stofnun Lögð hefur veriö fram fyrir- spurn frá Alexander Stefánssyni til félagsmálaráðherra um fram- kvæmd iaga um Húsnæðisstofnun rlkisins. Alexander spyr Svavar ma. um framkvæmd laga varöandi tækni- nýjungar og rannsóknir. Þá spyr hann um samkeppni um gerð uppdrátta af húsum og um fjár- hæðir sem stofnunin hefur veitt i lánum eða styrkjum og hverjir þeir lánþegar og styrkþegar séu. — óg stofnun fiskiðnaðarins og Rannsóknarstofnun land- búnaðarins hafa um nokkurra ára skeið gert tilraunir meö fisk- og hvalmeltu með góðum árangri. Arlega falla til I mjólkurbúum landsins 7 milj. lítra af mysu. Aðeins lítill hluti hennar er nýttur. Hiö lága þurrefnisinni- hald mysunnar og mikill flutn- ingskostnaður hefur komiö i veg íyrir að hún væri notuð til fóðurs nema i mjög litlum mæli. Með nýrri tækni sem ekki krefst jafn- mikillar orku og eiming, hefur tekist að framleiða mysuþykkni, sem inniheldurum 20% þurrefnis. Að undanförnu hafa veriö gerðar tilraunir á vegum Rannsóknar- stofunar Landbúnaðarins meö mysuþykkni með góðum árangri”. — óg Vemdun Kolbeinseyjar Ef þingsály k tuna rtilla ga Stefáns Guðmundssonar sem hann mælti fyrir i gær kemst til framkvæmda verður Kolbeinsey trúlega steypt upp og sjó- merkjum komið þar upp. Stefán gerði ítarlega grein fyrir þessari tillögu I gær, bæði hvað snertir öryggismál sjómanna og náttúruverndarsjónarmið. Eyj- ólfur Konráð Jónsson og Benedikt Gröndal lýstu yfir eindregnum stuðningi við þessa tillögu. Gátu þeir þess til viðbótar að Kol- beinsey væri grunnlinupunktur i landhelgi okkar og væri nauðsyn- legt einnig af þeim sökum að vernda eyna fyrir eyðingu náttúruaflanna. — óg Tilraunageymir fyrir veiðafærarannsóknir: Dýrt fyrirtæki Tilraunageymir fyrir veiöafærarannsóknir kost- ar á milli níu og tólf og hálfa miljón króna. Þetta kom fram í svari Stein- gríms Hermannssonar sjávarútvegsráðherra viö fyrirspurn Stefáns Guð- mundssonar um þetta efni. Steingrimur hafði skipað nefnd til að athuga þetta mál og barst lokaskýrsla um hádegið i gær. Sagði Steingrimur að þar væru margar hagnýtar upplýsingar um veiðafærarannsóknir. Nefndin hefur unnið vel og vandlega. Til- raunatankurinn sem nefndinni leist einna best á er sams konar og er I Fuglafirði I Færeyjum og kostar einsog áður sagði á milli niu og tólf og hálfa miljón króna. Skotar og Kanadamenn hafa einnig stundað slikar rannsóknir og eru þessar þjóðir reiðubúnar til samstarfs við tslendinga. Steingrimur sagði að þetta mál yröi nú skoðað nánar, m.a. af sjávarútvegsnefndum beggja deilda þingsins. Lokaskýrslu starfsnefndarinnar verður e'nnie dreift á meðal þingmanna. —ÓS Nýir þingmenn 1 gær tók Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri á Siglufirði sæti Ragnars Arnalds á alþingi. Enn fremur tók Niels Á. Lund æskulýðsfulltrúi sæti Ingvars Gislasonar. Þeir Ragnar og Ingvar eru nú á þingi Norður: landaráðs. — óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.