Þjóðviljinn - 30.03.1982, Side 7
Þriöjudagur 30. mars 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Guðrún Helgadóttir:
MEÐ SLÍKA VINI...
...til hvers þarftu óvini? Þessi
fleygu orö komu i huga mér, þeg-
ar mér barst i hendur 1. hefti
timaritsins Máls og menningar
fyrirnokkrum dögum. Allajafnan
er koma þessa gamla, góða mál-
gagns sósialiskrar hugsunar i
landinu kærkomin, likt og ljós i
þeim myrkviði fordóma og
heimsku, sem islenskir sósialist-
ar eru dæmdir til að ferðast i. Það
ferðalag hefur ekki alltaf verið
létt á fótinn, en styrkur ferða-
langsins hefur hingað til verið
fólginn í órofa samstöðu ferðafé-
laganna nær og fjær. Þungir
ósigrar hafa orðið bærilegir fyrir
þessa samstöðu, sem ekki er að
finna annars staðar, uns svo fór
að nokkuð tók að miða i átt að
markinu. A stundum sárrar nið-
urlægingar tengdi sameiginleg
hugsjón okkur saman, svo að eng-
um féllst hugur. Dæmin sýna okk-
ur hvemig fór fyrir þeim sem
enga hugsjón áttu, þegar þeir
voru sigraðir, og nægir að minna
á Urslit borgarstjórnarkosning-
anna árið 1978. Hinir sigruðu
hrundu saman eins og spilaborg.
A slikum stundum skildum við,
sem i eldlinunni stóðum það sinn-
ið, hvers virði samstaðan hafði
verið öllum hinum, sem höfðu
barist af sama kappi en tapað. Og
okkur var jafnframt ljóst, að
þetta væri aðeins upphafið að sig-
urför, sem erfitt reyndist að
stöðva.
Landráðabrigsl!
1 þingræðis- og lýðræðisriki ætti
að vera óþarft að útskýra, hvert
markmiðið skyldi vera. Aukinn
styrkur islenskra sósialista á Al-
þingi, i sveitarstjórnum, i verka-
lýðshreyfingunni, aukinn styrkur
hvarvetna, hlaut að vera mark-
miðið. Og til hvers skyldi þessi
styrkur notaður? Til þess að hér
veröi réttlátara þjóðfélag og her-
laust land. Enn er langt að þvi
marki og þvi má enginn hlekkur
bresta. Við þurfum meira en
nokkru sinni fyrr á að halda
hverjum þeim, sem vinna vill að
þessum markmiðum.
Það er þvi sárara en orð'fá lýst
að lesa grein gamals og góðs bar-
áttufélaga, Böðvars Guðmunds-
sonar, strax á 2. blaðsiðu um-
rædds timarits Máls og menning-
ar. Og af þvi tilefni er grein þessi
skrifuð. Slik ritsmið i Morgun-
blaðinu hefði ekki komið neinu
róti á huga minn, svo oft hefur
mér og öðrum fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins verið likt við morð-
ingja og við verið nefnd i sömu
andrá og Adolf sálugi Hitler. En
aldrei hefði mig órað fyrir að
verða borin landráðasökum i
timariti Máls og menningar, né
heldur að félagar minir, sem að
þessu sinni hafa valist til trúnað-
arstarfa og æðstu embætta lýð-
veldisins fengju þá einkunn. Og
það hvarflar ekki að mér að láta
sliku ósvarað.
Böðvar rekur sögu hersetunnar
að engu öðru leyti en þvi, að hann
minnist þeirra sem aldrei hafa
svikið i baráttunni fyrir brottför
hersins. Hann minnist bestu og
einlægustu andstæðinga erlendr-
ar hersetu i landinu og nefnir þar
nokkra bestu listamenn okkar.
„Bestu rithöfundar landsins og
bókmenntalegt andlit okkar
gagnvart umheiminum, standa
þar saman.” „Allt marktækt
listafólk hefur barist móti her,
samið, rist og sungið móti her.”
Vissulega hafa fjölmargir góðir
listamenn baristmóti hersetunni,
en til eru fleiri marktækir lista-
menn, sem aldrei tóku beinan
þátt i baráttunni móti her. Mætti
þar nefna nöfn til þess að afsanna
alhæfingu sem þessa. Siðastliðinn
laugardag sá ég yfirlitssýningu
merkrar islenskrar listakonu,
sem ég veit ekki til að haft hafi
nein afskipti af hersetunni, en ég
leyfi mér að halda þvi fram, að
Ragnheiður Jónsdóttir Ream sé
„marktækur” listamaður. Svo
mætti lengi telja, og þvi eru full-
yrðingar sem þessar með öllu
ósæmandi. Unnendur frelsis og
sósialisma leggja listamönnum
sinum engar linur um hvað þeir
skapa. Vond list gegn hernum er
einungis vond list.
Vissulega var stuðningur
þeirra rithöfunda, sem Böðvar
nefnir í grein sinni ómetanlegur
fyrir málsstað okkar og einkum
vegna þess að þetta eru góðir
listamenn. Þeir sem Böðvar nefn-
ir eru: Halldór Laxness, Ölafur
Jóhann Sigurðsson, Svava Jak-
obsdóttir, Thor Vilhjálmsson, Vil-
borg Dagbjartsdóttir, Hannes
Pétursson, Jakobína Sigurðar-
dóttir og Snorri Hjartarson, en
marga fleiri mætti nefna, sem
samstundis koma upp í hugann.
En það er ekki aðalatriði þessa
máls. Þó þætti mér við hæfi að
bæta Guðmundi Böðvarssyni og
Jóhannesi úr Kötlum f hópinn, og
mörgum fleiri. Og Böðvar segir
að enn flykkist ungir listamenn
undir fána málsstaðar okkar.
„Ungtlistafólk gengur fram und-
ir sama merki, hefur þá islensku
vitund sem skerpt var á timum
ungmennafélaga og Framsókn-
arflokks meðhugsjón.” Einhvern
veginn er það nú svo, að við sem
tekið höfum þátt í baráttunni fyr-
ir herlausu landi allt frá upphafi,
höfum fremur að því er ég hygg
tengt þá baráttu hugsjónum só-
sialisma og þjóðfrelsis en hug-
myndum „Framsóknarflokks
meðhugsjón”, meö allri virðingu
fyrir ungmennafélagsandanum,
sem löngu hafði yfirgefið búk sinn
þegar hin nýja sjálfstæðisbarátta
hófst, svo góður og hollur sem
hann annars var. En það er rétt,
að margir aðrir en sósialistar
Guðrún Helgadóttir: Við þörfn-
umst þess nieira en nokkru sinni
áöur að þekkja vini okkar frá
óvinum.
„Aldrei hefði mig órað fyrir þvi
að verða borin landráðasökum i
t'imariti M&ls og menningar, né
heldur að féiagar minir, sem að
þessu sinni hafa valist til trúnað-
arstarfa og æðstu embætta lýð-
veldisins fengju þá einkunn. Og
það hvarflar ekki aö mér aö láta
sliku ósvaraö,” segir Guðrún
Helgadóttir m.a. I greininni um
ádrepu Böðvars Guömundssonar.
tóku þátt i baráttunni fyrir her-
lausu Islandi i upphafi, þó að
þeim færi siðan ört fækkandi.
Þeir sem sviku!
En Böðvar kemur loks aö þeim
sem alltaf sviku: fulltrúum só-
sialista á þingi og visast alls stað-
ar annars staðar. „Það fór lika
svo að Alþýðubandalagið fór inn i
rikisstjórnirnar, hverja á fætur
annarri og haföi yfir eiðstaf sinn
um brottför hersins. Efndirnar
döpruðust”. „En það er auövitað
engin móögun við einn eða neinn
aö svikja þær vonir sem við hann
voru bundnar.” Svo mælir Böðv-
ar.. Ég held að við komumst ekki
hjá þvi aö nefna þessa svikara
fremur en aðhafa i frammi dylgj-
ur einar: Magnús Kjartansson,
LUðvik Jósepsson, Svavar Gests-
son, Hjörleif Guttormsson, Ragn-
ar Arnalds. Allir þessir félagar
hafa setið á ráðherrastóli án þess
að herinn færi brott. Fjölmargir
aðrir félagar hafa setið á þingi og
stutt gerðir svikaranna, og þá
sést hve erfitt kann að reynast
tveim herrum að þjóna. Að
minnsta kosti er það óumdeilan-
legt, aö einn hinna virtu lista-
manna, sem aldrei sviku, Svava
Jakobsdóttir, sat raunar á þingi
og studdi svikarana i ráðherra-
stólunum árin 1971 - 74. Ég hygg
að Böðvar Guðmundsson sé fyrst-
ur manna til að efast um heilindi
hennar i afstöðunni til erlendrar
hersetu á Islandi.
Söngurinn einn
Það hefur löngum verið erfitt
deilumál, hvort sósialistar eigi að
taka þátt i borgaralegum rikis-
stjórnum, svo aö vafasöm orð séu
notuð: En ég hélt að sérhver lýð-
ræðissinnaöur sósialisti i landinu
gerði sér fulla grein fyrir þvi,
hvers vegna Alþýðubandalagið
tekur þátt i' rikisstjórn. Það ættu
a.m.k.þeiraðgera, sem sótthafa
fundi flokksins og lesið málgagn
þess. En enn skal það sagt. Meg-
inástæðan fyrir þeirri þátttiacu er
að vald, sem flokkurinn hefur
aft til að hindra frekari umsvif
bandarisks hervalds i landinu en
annars hefðu oröið, auk við-
spyrnugegn frekari arðráni á is-
lenskum verkalýð en þegar á sér
stað. Böðvar virðist ekki hafa
leitthugann að þvi', aö ennþá hef-
ur Alþýðubandalagið ekki þing-
styrk til þess að reka herinn burt.
Ég hef alltaf haldið að þeir sem
„syngju móti her” gerðu það til
þess að afla flokknum þess fylgis,
sem hann þarfnast til þess að öðl-
astþann þingstyrk, sem nauðsyn-
legur er, ef við kjósum að fara
lýðræðislegar leiðir við ákvarð-
anatacu i þjóðfélaginu. Söngurinn
einn dugar skammt.
Helg skylda
En ef tilviU hefur hann hjálpað.
Að minnsta kosti hefur svo brugö-
ið við, að loksins sýnist vera að
rofa til. Þau örfáu ár sem ég hef
setið á Alþingi Islendinga, hefur
öll umræða um vigbúnaðarkapp-
hlaup stórveldanna tekið stökk-
breytingu. Viö minnumstöll þess
svartagaldurs, sem lesinn var yf-
ir okkur á árum áður, svo að litil
von virtist um, að nokkru sinni
tækist að færa þá umræðu á það
stig, sem sæmandi er vel hugs-
andi fólki. Og herstöðin i Kefla-
vik er liöur i umræöunni um
nauðsyn afvopnunar i heiminum
og baráttuna fyrir friði. NU hefur
það gerst, aö tekist hefur að fá
unga {xngmenn til að ræða þann
voða, sem vofir yfir okkur öllum,
af nokkurri alvöru, um leið og
nokkrir hugsandi prestar lands-
ins hafa gengiö i lið með þeim,
sem skilja alvöru þessarar bar-
áttu og siðferðilega nauðsyn
hennar. Með allri virðingu fyrir
góðum söng kynni þó svo að vera,
að hinir kjörnu fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins ættu hér nokkurn
hlut að máli. Gruni Böövar Guð-
mundsson félaga sinn Svövu Jak-
obsdóttur um græsku i þeim efn-
um, get ég fullvissað hann um, að
barátta hennar fyrir málstað her-
lauss Islands er virt á erlendum
vettvangi, ekki siöur en mönnum
eru minnisstæðar kjarnmiklar og
ógleymanlegar ræður Magnúsar
Kjartanssonar á þingum Norður-
landaráðs og annars staðar.
Sama má segja um málflutning
Jónasar Arnasonar um árabil.
Sjálf hef ég hlýtt sama boðskap
frá öllum nUverandi ráðherrum
Alþýðubandalagsins á innlendum
sem erlendum vettvangi, og enn
hef ég ekki haft ástæðu til að efast
um heilindi þeirra. Og vart verð-
ur um það deilt, aö hlutur ólafs
Ragnars Grimssonar hefur verið
ótæpilegur iþeirri breytingu, sem
orðin er á allri umræðu um ör-
yggismál hér á landi, og mál-
flutningur hans erlendis hefur
haft veruleg áhrif. Ekkert er þvi
meiri ósanngimi og bein ósann-
indi en að halda þvi fram, að
þetta fólk hafi nokkru sinni
brugðist þeirri helgu skyldu sinna
að berjast fyrir brottför hersins
Ur landinu og gegn þátttöku Is-
lands i hernaðarbandalögum. Og
i allri hæversku leyfi ég mér visa
slikum ásökunum til föðurhús-
anna fyrir hönd okkar hinna.
Styrkur okkar
Herinn er ekki farinn, og mik-
inn barnaskap til þess að halda að
hann fari hljóðalaust. En það er
ekki vegna svika Alþýðubanda-
lagsins, heldur vegna skorts á
þeirri vitund alþýðu þessa lands,
sem til þarf. 1 öðrum löndum og
álfum hefur ekki einu sinni meiri-
hlutastyrkur hernámsandstæð-
inga dugað til, svo að erlent her-
vald yrði hrakið brott. Misk-
unnarlausu ofbeldi hefur verið
beitt, og varla þarf að rifja fjöl-
marga slika atburði upp fyrir
Böðvari Guömundssyni. Okkurer
báðum i fersku minni fundur um
ástandið i E1 Salvador fyrir ör-
fáum dögum. En styrkur okkar i
slikum átökum er, að við erum
ekki ólæs og sveltandi, m.a. fyrir
sleitulausa baráttu islenskra
sósialista alla tið. Þess vegna
hljóta baráttuaðferðir okkar að
vera aðrar. Við eigum önnur og
betri vopn en byssukjaftana, sem
er islensk menning og menntun
og samfélag þjóða, sem svipað er
ástatt um. Við mætum ofbeldis-
seggjum veraldarinnar með þvi
eina vopni, sem við teljum sæm-
andi, sem er vitræn hugsun, þó að
við skiljum til fulls aðferöir hinna
ólæsu og sveltandi. En við höfum
enga löngun til að beita þeim
sjálf. Viö nýtum þau forréttindi
sem við höfum til þess að standa
vörð um þær þjóðir, sem engin
forréttindi hafa. Við óttumst svo-
kallað „takmarkað kjarnorku-
striö” i Evrópu, ef til átaka kem-
ur milli stórveldanna, og við get-
um ef til vill komið i veg fyrir þaö.
En við veröum jafnframt aö sjá
um, að það strið veröi ekki flutt til
þess fólks, sem enn síöur getur
nokkra björg sér veitt eins og
þriðja heimsins.
Alþýðubandalag
Vopn okkar er aðeins eitt: póli-
tiskur styrkur til aö reka af hönd-
um okkar þann óvin, sem vigbún-
aöur stórveldanna er og aörir
hafa lánað land okkar undir.
Þessi pólitiski styrkur verður
ekki fenginn i bráð, ef þeir sem
heitast þrá brottför erlends hers
af Islandi ganga i lið með róg-
berum afturhaldsins, sem ennþá
geta skemmt sér yfir vanmætti
okkar. Alþýðubandalagið er eina
aflið — eini stjórnmálaflokkur
landsins — sem alla tiö hefur
baristheils hugar gegn erlendum
her I landinu og gegn þátttöku Is-
lands í hernaðarbandalögum. Sú
barátta vinnst aldrei fyrr en sér-
hver hugsandi Islendingur
gengur I lið með okkur i staö þess
að sundra þeirri fylkingu og ger-
ast málaliði afturhaldsaflanna I
málflutningi sínum og það i tima-
riti Máls og menningar.
Vinir og óvinir
Og rétt að lokum skal félaga
Böðvari Guðmundssyni sagt það,
að það erað okkar mati „móðgun
viö islensku þjóðina að vilja ekki
sitja fundi með Hjörleifi Gutt-
ormssyni og hlusta á hann halda
fimmklukkutimaræðuna”, þegar
hann er að verja þá sömu þjóð
fyrir ofurvaldi alþjóðaauðhringa,
sem aldrei setja sig úr færi að
svikja ogarðræna þær smáþjóðir,
sem þeir koma höndum yfir. Og
þó að hann héldi tiutima ræðu
skulu þeir hlusta á hann. Og við
félagar hans stöndum einhuga aö
baki hans i þeim hremmingum.
Við vitum mætavel við hvað er að
eiga, rétt eins og þeir i Vietnam,
Kóreu, Hondúras, Guatemala,
Nicaragua, og við getum bætt viö
Chile, Puerto Rico—og enn
Tékkóslóvakiu, Ungverjalandi og
Póllandi, ef menn hiröa ekki um
að gera nokkurn greinarmun á
ólikum málum.
Við þörfnust þess meira en
nokkru sinni áður að þekkja vini
okkar frá óvinum, félagi Böðvar.
27.3.1982
(Millifyrirsagnir eru settar af
Þjóðviljanum)
Psoriases og
exemsj úklingar
Aðalfundur Samtaka psoriases og exem-
sjúklinga verður haldinn fimmtudaginn 1.
april n.k. kl. 20.30 að Hótel Heklu við
Rauðarárstig. Fundarefni: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Skjót viðbrögd
Þaö er hvimleitt að þurta að
biöa lengi meö bilaö rafkerfi,
leiöslur eöa tæki.
Eöa ný heimilistæki sem þarf
aö leggja fyrir.
Þess vegna settum viö upp
neytendaþjónustuna - með
harösnúnu liöi sem bregöur
skjótt viö.
o
• RAFAFL
Smiöshöfða 6
ATH. Nýtt simanúmer: 85955